Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Sjónvarpsgláp skaðlegra 

en áður var talið fyrir börn

SJÓNVARPSÁHORF getur skað-

að börn mun meira en hingað til

hefur verið haldið, samkvæmt

nýrri rannsókn sem vísindaritið

Biologist birtir í gær. Þar segir að

áhorfið geti aukið líkur á að verri

sjón, offitu og ýtt undir að börn

verði kynþroska fyrr en eðlilegt

er, sem og að þau fái einkenni ein-

hverfu. Samkvæmt rannsókninni

dregur sjónvarpsgláp úr fram-

leiðslu á hormóninu melatóníni.

Melatónín hefur áhrif á svokall-

aðan líftakt (e. biological rhythm),

það er reglubundnar lífeðlisfræði-

legar sveiflur. 

Minni framleiðsla á melatóníni

getur verið ein af ástæðum þess að

stúlkur verða mun fyrr kynþroska

í dag en fyrir hálfri öld, sam-

kvæmt rannsókninni sem er unnin

af sálfræðingnum Aric Sigman.

En rannsóknin snerist ekki bara

um börn og sjónvarpsáhorf þeirra

heldur einnig eldra fólk. Sam-

kvæmt rannsókninni eykst hætta á

Alzheimer-sjúkdóminum hjá fólki á

aldrinum 20?60 ára, sem eykur

sjónvarpsáhorf um klukkustund á

dag.

Morgunblaðið/ÞÖK

|þriðjudagur|20. 2. 2007| mbl.is

daglegtlíf

Agnes Guðmundsdóttir hefur

spilað handbolta með Gróttu í

mörg ár. Hún situr núna meidd

á varamannabekknum. » 22

tómstundir

Hundar fjölmenntu með eig-

endum sína í skrautlega skrúð-

göngu sem haldin var um dag-

inn á Flórída. » 22

gæludýr

Tvíburasysturnar Halla og

Ragna Ólafsdætur skelltu sér til

Kaíró í Egyptalandi sem hluta af

arabískunámi sínu. » 24

daglegt líf

Frumkvöðlar Draugasetursins á

Stokkseyri kynntu þar til sög-

unnar Álfa- og tröllasetur um

síðustu helgi. » 23

bæjarlíf

Vísindamenn kanna hvers

vegna ástin er svona voldug og

af hverju því fylgir svo mikill

sársauki að vera hafnað. » 25

rannsókn

H

eimsmet er í hættu. Mið-

garðsormurinn er kom-

inn vel yfir 63 metra og

lengist enn. Haldi fram

sem horfir verður hann langlengsta

tuskudýr veraldar áður en langt um

líður. 

Ormurinn langi á uppruna sinn í

Menntaskólanum við Hamrahlíð,

nánar tiltekið á Miðgarði, en svo

nefnist opið rými á efri hæð skólans.

Rúm tuttugu ár eru síðan að hann-

yrðaglaðir menntskælingar tóku

fram prjónana og hófu að skapa

kvikindið sem á sér engan endi.

Prjónaorminum hefur nefnilega

aldrei verið lokað í afturendann

heldur hanga á honum prjónar sem

hverjum er frjálst að grípa í. 

?Þetta byrjaði sennilega upp úr

1985,? segir Hulda Halldóra

Tryggvadóttir, oddviti Lagningar-

daga sem fram fóru í skólanum í

síðustu viku. ?Þá tóku einhverjir

krakkar sig til og byrjuðu að prjóna

þennan orm. Prjónarnir héngu svo

alltaf á endanum á orminum þannig

að þá gat fólk einfaldlega sest niður

og prjónað að vild. Síðustu ár hefur

hann þó bara hangið uppi og enginn

bætt við hann, en núna ætlum við að

taka þann sið upp aftur.?

MH-ingar hafa þegar tekið fyrsta

skrefið í þá átt því á Lagningar-

dögum í síðustu viku var hafist

handa á ný við að prjóna við orm-

inn. Að auki var hann bættur hér og

þar eftir þörfum enda orðinn nokk-

uð lúinn að sögn Huldu. ?Hann var

orðinn svolítið slitinn en viðgerð-

irnar gengu vel og hann er orðinn

mjög flottur.? 

Óhefðbundið vaxtarlag

Samkvæmt bestu heimildum

Huldu stefnir allt í að nemendum

MH takist fljótlega að setja heims-

met með prjónaskap sínum. ?Við

mældum orminn um daginn og þá

var hann 63,7 metrar. Svo bættist

eitthvað við hann á Lagningar-

dögum en við erum ekki búin að

mæla hann síðan. Við höldum að allt

stefni í að hann verði lengsta tusku-

dýr í heimi en þyrftum að fá löggilt-

an matsmann frá Heimsmetabók

Guinnes til okkar til að fá það stað-

fest. Og við stefnum á að gera það.?

Skepnan atarna er býsna litrík

enda alls kyns þræðir sem hafa ver-

ið notaðir við sköpun hennar.

?Hann er mjög fjölskrúðugur og

misfeitur eftir því hvort fólk hefur

prjónað fast eða laust,? heldur

Hulda áfram en óreglulegt vaxt-

arlag dýrsins má sennilega einnig

rekja til fjölbreytts mataræðis þess.

Þannig herma heimildir að hann sé

troðinn út með svampi og vatti en

einnig ýmiss konar óskilamunum og

jafnvel gömlu nesti, þótt Hulda þori

ekki alveg að staðfesta það. 

Eins og gefur að skilja er 64

metra langur ormur allmikill að

umfangi en það aftraði þó ekki

pörugengi úr MR frá því að taka

þetta gæludýr MH-inga í gíslingu

eitt árið þegar skólarnir tveir öttu

kappi í ræðukeppni framhaldsskól-

anna, Morfís. ?Það var eitthvað

stríð á milli skólanna svo krakkar í

MR stálu orminum og fóru með

hann í skólann til sín,? segir Hulda.

MH-ingar hefndu sín grimmilega

með því að nema á brott þáverandi

forseta Framtíðarinnar, nemenda-

félags MR. Að lokum voru þó höfð

gíslaskipti svo Miðgarðsormurinn

rataði aftur heim til sín. 

Síðustu misseri hefur ormurinn

verið í geymslu þar sem taka þurfti

Miðgarð undir bráðabirgða-

kennslustofur en nú, þegar búið er

að taka viðbyggingu við skólann í

notkun, er stefnt að því að hengja

hann upp á sinn stað. Þó ekki fyrr

en búið er að mæla hann. ?Svo von-

umst við bara eftir því að sem flestir

bæti við hann,? segir Hulda og bæt-

ir við að garnafgangar séu vel

þegnir til verksins.

Miðgarðsormurinn Nemendur MH kepptust við að stoppa í götin á kvik-

indinu á Lagningardögum sem haldnir voru í skólanum í síðustu viku.

Morgunblaðið/G.Rúnar

Langur Þeir eru ófáir puttarnir sem eiga þátt í sköpun ormsins langa í gegnum tíðina og stöðugt bætist við. 

Hillir undir heimsmet hjá

Miðgarðsorminum í MH

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52