Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						úr bæjarlífinu

MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 23

Sú fregn barst nýlega út að bæjarstjórn Árborgar ætlaði

ekki að leggja menningardagskránni Vor í Árborg lið og

ákvörðunin var endanleg sem birtist í því að framlag var

ekki á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Þykir mörgum það

miður. Menningardagskrá þessi var sprottin upp úr frum-

kvæði og áhuga fólks sem sat í menningarnefnd sveitarfé-

lagsins og hafði að markmiði að fá nýsameinað sveitarfé-

lag til að ganga í takt. Þar fór fyrir Inga Lára Baldvins-

dóttir á Eyrarbakka og vann hún mikið þrekvirki við þá

framgöngu ásamt öðrum sem lögðu hönd á plóg. Viðbrögð

við því að ekki verður Vor í Árborg hafa ekki komið frá

listafólki en bent hefur verið á veltuaukningu sem varð

með auknum heimsóknum fólks þann tíma sem menning-

ardagskráin stóð yfir. 

L50098L50098L50098

Í kjölfarið á því að menningarvorið var slegið af þá blésu

frumkvöðlar Draugasetursins á Stokkseyri til sóknar og

sjósetningar nýs menningarfleys út frá menningar-

verstöðinni í þorpinu með opnun Álfa- og tröllaseturs þar

sem heimsækja má tröll og álfa til viðbótar við draugana.

Þjóðfræðinni er hér beitt í útrás menningarinnar. Í stað

útgerðar til sjávarins frá Stokkseyri og fiskvinnslu í landi

er nú komin öflug menningarútgerð frá þessari verstöð

þar sem frumkvöðlar hafa komið hugmyndum sínum í

framkvæmd. Hólmaröstin, þar sem áður var Hraðfrysti-

hús Stokkseyrar, hýsir nú margþætta starfsemi sem fjöldi

fólks sækir. Segja má að í þorpinu sé nú kominn fram

kraftmikill ferðamála- og menningarklasi þar sem gert er

út á að þjóna ferðafólki með afþreyingu og listsköpun bæði

í þorpinu sjálfu og í næsta nágrenni og hver sækir kraft í

annan. Segja má að Stokkseyrarklasinn sé orðinn tákn um

það hvernig ný hugsun hefur blómstrað á gömlum grunni

þar sem fólk lætur reyna á hugmyndir. Áhrif frumkvöðla-

starfs Stokkseyringa og annarra athafnamanna og kvenna

smitar út frá sér, til nágrannaþorpsins Eyrarbakka og

þéttbýlisins á Selfossi við Ölfusá. Allt hefur þetta aukið afl

svæðisins og dregið að fólk í heimsókn og til búsetu. 

L50098L50098L50098

Það er ekki hægt annað en minnast á Suðurlandsveg í

þessum pistli því sá vegur á eftir að umbylta miklu á svæð-

inu austan Hellisheiðar. Nú er hægt að fagna því ákveðið

hefur verið að tvöfalda og lýsa veginn frá Reykjavík til

Selfoss. Sjö ára umræða hefur skilað þessum árangri sem

er að þakka þeirri miklu samstöðu sem myndaðist um

þetta verkefni í gegnum umræðuna. Hún varð svo mikil að

ekki varð framhjá henni komist. Rétt er að óska sam-

gönguráðherra og þingmönnum allra flokka til hamingju

með þessa ákvörðun og þennan þátt í samgönguáætlun til

næstu ára. Ráðherrann hefur nú tekið af skarið og ákveðið

uppbyggingu til framtíðar með tvöföldum Suðurlandsvegi

þar sem áhersla verður á það meginatriði að ná mesta ör-

yggi sem vegurinn getur boðið upp á. Næsta skref er út-

boð hönnunar og framkvæmda á næstu vikum.

L50098L50098L50098

Það er greinilegt að fjárfestar líta með miklum áhuga til

Árborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í áformum um

skipulagningu lands fyrir íbúða- og atvinnulóðir. Nýtt

deiliskipulag einkaaðila fyrir íbúðalóðir upp með Ölfusá í

landi Laugardæla verður tekið fyrir í næstu viku. Með

Eyravegi og sunnan við byggðina á Selfossi eru stór svæði

sem búið er að deiliskipuleggja eða skipulag er í farvatn-

inu. Þá er hafinn undirbúningur að nýju deiliskipulagi

miðbæjar á Selfossi með miklu byggingamagni og við

Biskupstungnabrautina eru áform um stóra verslunar-

miðstöð og nýtt athafnasvæði Toyota-umboðsins og

tengdrar starfsemi. Atlantsolía hefur áform um uppbygg-

ingu í nágrenni við þetta svæði auk þess sem boðuð hefur

verið uppbygging á framleiðslu forsteyptra húseininga í

nágrenninu, við Hrísmýrarklett. Til viðbótar má nefna að

fregnir eru um kaup einkaaðila á spildu úr Laugardæla-

landi austan marka Selfoss, í Flóahreppi. Auk þess er mik-

ill áhugi á uppbyggingu í Hveragerði, Ölfusi, á Eyrar-

bakka, Stokkseyri og í Þorlákshöfn. Gera má því skóna að

íbúafjöldi þessa svæðis muni margfaldast á næstu árum.

Framundan er því gósentíð athafnaskálda og frumkvöðla

að láta til sín taka í nýjum klösum athafnafólks. Í þeirri

hringiðu allri má ekki gleyma menningarlegri uppbygg-

ingu með menningarhúsi í meginkjarna byggðarinnar, á

Selfossi, þar sem dagskrá leiklistar, myndlistar og tónlist-

ar fær notið sín við bestu aðstæður. Slík áform smita og

auka áhugann á svæðinu. Dæmið frá Stokkseyri sýnir að

það þarf drífandi fólk til að skapa athafnir, tómlæti er

óviðunandi.

SELFOSS

Sigurður Jónsson fréttaritari

Morgunblaðið/Sigurður Jónsson

Álfar og tröll Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-

málaráðherra þar sem hún hugar að hrjótandi tröll-

skessunni í hinu nýja Álfa- og tröllasetri á Stokkseyri.

D

avíð Hjálmar Haraldsson orti á

konudaginn: 

Vitrar, snjallar, blíðar, bestar,

brjóstin hvelfd og sléttur maginn,

indælar og fagrar flestar

finnst mér þær á konudaginn.

Hreiðar Karlsson skrifar vegna

væntanlegrar ráðstefnu klámiðn-

aðarins að þá þurfum við ekki

lengur að þjarka um álver, mengun

eða gróðurhúsahrif:

Fagnandi göngum við frægðinni mót

og framtíðargæfan er vís.

Það kemur sér vel að við komum á fót

klámhundaparadís.

Björn Ingólfsson sér notagildi í

því fyrir Húsvíkinga: 

Klámhundaparadís kostarík

kynni að standa undir nafninu

í höndunum á þeim á Húsavík

við hliðina á reðursafninu.

Davíð Hjálmar rifjar upp að Páll

Arason hefur arfleitt reðursafnið

að tólum sínum: 

Norður á bóginn í skyndi sér skelli

í skoðunarferð trú?ég klám-framámenn

og háreista kætist við höfrungabelli

og hreindýra ? jafnvel þótt Páll lifi enn.

pebl@mbl.is

VÍSNAHORNIÐ

Af konum og klámi

AUGLÝSINGADEILD

netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

First North 

? stærri tækifæri 

fyrir smærri fyrirtæki

Morgunverðarfundur OMX Nordic Exchange á Íslandi

Kauphöllin býður félögum, fjárfestum og öðrum markaðsaðilum 

til morgunverðarfundar 22. febrúar á Nordica hotel (salur FG). 

First North Iceland er markaður þar sem minni kröfur eru gerðar 

en við skráningu á Aðallista Kauphallarinnar. Á síðasta ári opnaði 

isec markaðurinn sem varð um áramótin First North Iceland. 

Af því tilefni var reglum markaðarins breytt. Þetta var fyrsta 

skrefið í samþættingu Kauphallarinnar við OMX Nordic Exchange. 

Helsta breytingin, innleiðing ráðgjafa (Certified Advisor) við 

skráningarferlið og meðan skráning varir, er kynnt sérstaklega.

Dagskrá:

8:00 Morgunverður

8:10 First North - Power Source for Future Companies

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar

8:25 Nordic Alternative on the Rise - the experience so far

Johan Allstrin, Head of Sales, OMX Company Services, Stokholm

8:40 Certified Advisor - opportunities and responsibilities

Rickard Lindgren, Compliance Officer, Kaupthing Bank Sverige

8:55 Umræður

Fundi lýkur kl. 9:10. Fundarstjóri er Magnús Harðarson, 

forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar.

omxgroup.com/nordicexchange/firstnorth

Með nýjum tímum koma 

stærri tækifæri fyrir 

smærri fyrirtæki

Vinsamlegast skráið ykkur fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 21. febrúar 

með pósti á ingibjorg.gudjonsdottir@omxgroup.com.

Fermingarblað

Morgunblaðsins

SérblaðhelgaðfermingumfylgirMorgunblaðinusunnudaginn4.mars2007

Meðalefniser:

? Fermingarfötinogfermingar-

hárgreiðslaníár

? Maturinníveislunni

? Veislanheimaeðaíleigðumsal

? Skreytingaráveisluborðið

? Öðruvísifermingarveislur

? Hugmyndiraðgjöfum

? Ljósmyndir

Allarnánariuppl.veitirKatrínTheódórsdóttir

ísíma5691105eðakata@mbl.is

Auglýsendur!

Pantiðfyrirklukkan16mánudaginn26.febrúar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52