Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Í Kaíró Halla og Ragna á Khan Al Khalili-markaðnum ásamt Regínu, þriðju systurinni, sem kom

í heimsókn er þær sátu á skólabekk í Egyptalandi í haust. 

Upplifun Systurnar þrjár í heimsókn í Alexandríu sem er næststærsta borg Egyptalands. Þær

standa hér fyrir framan borgarvirkið. Egypska leiðsögustelpan Katrin er lengst til hægri.

H

alla og Ragna Ólafs-

dætur ljóma af sjálf-

stæði þrátt fyrir ungan

aldur, þær urðu 22 ára

sl. aðfangadag sem er harla ungur

aldur miðað við þá reynslu sem

þær búa að. Þær eru frá Djúpavogi

en eiga heima í Danmörku þar sem

þær eru í námi og segjast vera

hálfgerðar flökkukindur.

?Við fluttum að heiman þegar við

vorum sextán til að fara í Verslun-

arskólann í Reykjavík í stað þess

að fara t.d. á Egilsstaði eða Höfn,?

segir Halla. Þær systur segjast

hafa haft þörf fyrir að kynnast

stærri stað en Djúpavogi. ?Átti

maður að fylgja vinunum eða gera

eitthvað upp á eigin spýtur?? út-

skýrir Ragna togstreituna í huga

þeirra. Skoðanir systranna og

væntingar til lífsins slá í takt við

keimlíkar raddir þeirra sem hálf-

erfitt er að greina á milli á bandi

blaðamanns. Þær ætluðu sér ekki

að lenda í sama bekknum í Versló,

nú þegar þær höfðu valið, en fylgd-

ust óvart að alveg út námið. Ekki

að þær vildu forðast hvor aðra ?

eru raunar bestu vinkonur ? en

sem tvíburi er stundum erfitt að

vera sjálfstæður. ?Eitt sinn á fót-

boltaæfingu þegar ég hafði ekki

mætt talaði Ragna stanslaust um

okkur við eina nýja stelpu, við vær-

um að fara að gera þetta og hitt,

og stelpan varð eitt spurning-

armerki,? segir Halla. ?Þá fékk ég

högg, ég var orðin 18 ára og hugs-

aði að ég yrði aðeins að fara að

slíta mig frá. Við höfðum alltaf

þekkt sama fólkið sem skildi þetta

?við?,? segir Ragna. 

Bæklingur og tilviljun

Veturinn eftir útskrift fluttist

Ragna til Danmerkur og hóf nám í

arabísku og Austurlandafræðum í

Árósum og lauk fimmtu önninni í

janúar. Halla hefur nýhafið sama

nám. Hvernig skyldi þessi áhugi á

arabísku hafa vaknað? 

?Þetta er fyrst og fremst áhugi á

annarri menningu, við höfum alltaf

haft mikinn áhuga á að læra tungu-

mál. Mér finnst öll menning sem er

öðruvísi en mín mjög spennandi.

Svo þegar ég var á leiðinni út til

Danmerkur var ég að fletta bækl-

ingi og um leið og ég rak augun í

arabískunámið vissi ég að ég yrði

að kynna mér þetta betur,? segir

Ragna. Af tilviljun sá ?hinn helm-

ingurinn? líka umræddan bækling

og rak strax augun í arabísku og

íslamska menningu, án þess að

Ragna hefði gefið nokkuð upp. ?Ég

byrjaði þó nám í fyrra í við-

skiptaháskóla úti því mig langaði

ekki að gera nákvæmlega það sama

og Ragna en svo átti viðskipta-

fræðin engan veginn við mig. Ég

varð bara að hætta að hugsa um að

ég væri tvíburi og gera það sem

mig langaði til,? segir Halla einlæg. 

Systurnar settust síðan á

egypskan skólabekk í Kaíró í haust,

Ragna í skiptinámi. Þær segja tvo

og hálfan mánuð hafa verið alltof

stuttan tíma sem þó hafi verið vel

nýttur. ?Ég lærði miklu meira í

málinu heldur en í þessi tvö ár í

Danmörku,? segir Ragna, og Halla

segist hafa lært stöku orð og skilji

þónokkuð og sé ánægð með það.

Þær bjuggust við vissu menning-

arsjokki í Kaíró sem kom á daginn.

?Við fundum svolítið úti hvað við

erum ungar en allir í náminu voru

a.m.k. tíu árum eldri ? maður þarf

náttúrlega að hafa þroska til að

takast á við þetta,? segir Ragna. 

?Við skárum okkur talsvert úr í

útliti sem gat verið erfitt. Þarna

snýst allt um peninga og við vorum

orðnar svolítið þreyttar á prútt-

menningunni,? segir Ragna. ?Um

leið og maður fer að ná tökum á

tungumálinu verður allt miklu auð-

veldara,? heldur Ragna áfram.

?Okkur fannst við vera öruggar í

þessari 20 milljóna stórborg sem

kom á óvart en maður heyrði aldrei

af neinu misjöfnu og allir eru mjög

vinsamlegir,? lýsir Halla en segir

ferðamenn, sérstaklega bandaríska,

þó oft snuðaða t.d. af leigubíl-

stjórum. ?Þeir eru yfirleitt ekki

hrifnir af Bush en ég held að

Bandaríkjamenn verði þó ekki mik-

ið fyrir barðinu á heimamönnum

sem er ótrúlegt í ljósi þess að

múslimar verða pottþétt fyrir að-

kasti í Bandaríkjunum.? Halla segir

að hatursfull stefna sé ekki rekin í

þessu múslimalandi a.m.k. ?Það

ríkir mikill náungakærleikur.

Moskur og kirkjur eru hlið við hlið,

þú hefur þitt samband við þinn guð

og ég við minn er hugsunin.? 

Þær systur segjast sjálfar ekki

trúræknari en hinn venjulegi Ís-

lendingur en samfélagið í Egypta-

landi byggist hins vegar á trúnni.

?Við gengum alltaf framhjá mosk-

unni í hádeginu og það var svo

gaman að sjá að þar var allt troðið.

Allir standa saman og biðja, til að

sýna að allir séu jafnir í trúnni,

embættismaður og götusópari,?

segir Ragna og Halla tekur undir:

?Allt sem ég veit um þessa trú er

fallegt en múslimar eru alltaf í

þeirri stöðu að verja trú sína, eins

og vinkonur okkar í Danmörku,

það þurfum við ekki ? og auðvitað

telja þau hryðjuverkamenn ekki

góða múslima,? segir Halla. ?Eina

sem er dregið fram um íslamstrú

er neikvætt. Og ég er pottþétt á

því að við komum þangað með ein-

hverja fordóma,? segir Halla.

Ragna botnar: ?Þótt maður sé allt-

af að berjast gegn því.? Núna líti

þær öðrum augum t.a.m. á klæðnað

múslima og finnist flott hvernig

konurnar klæða sig í stíl við slæð-

urnar sem í huga margra tengist

kúgun.

Þær systur segja frá múslimsk-

um vinkonum sínum í Danmörku.

?Ein er að berjast við að vera bæði

dönsk og múslimi en önnur vill

bara vera mjög góður múslimi og

umgengst bara sína,? segir Ragna.

Halla heldur áfram: ?Ég myndi

segja að þessi sem er ?sjálfstæðari?

hafi mjög heilbrigða hugsun: Ég

veit að ég er góð manneskja, ég

þarf ekkert endilega að vera með

slæðu, að biðja stanslaust eða vera

gift Líbana til þess að vera góður

múslimi. Ég held að flestir í kring-

um okkur hugsi þannig.?

Framtíð í arabískunni

Halla og Ragna sjá ýmsa mögu-

leika varðandi framtíðarstarf. ?Mér

finnast margir vina minna fara

?skynsömu? leiðina í námi en það

eru ýmsir möguleikar vegna fjölda

fólks frá Miðausturlöndum í Dan-

mörku, t.d. túlkastarf, jafnvel í

Kaíró,? segir Ragna. Ísland sé þó

líka í myndinni, hér sé heimili

þeirra þrátt fyrir flökkueðlið og

eftirsóknarvert andrúmsloftið í

Danmörku andspænis stressinu

sem þær segja alltaf byrja þegar

þær komi hingað. En sem áhorf-

endur að fátæktinni í Kaíró og

stéttaskiptingu segjast þær hafa

fundið að þær hafi það gott hér.

?Ég tala nú ekki um mengunina,

manni var illt í augunum og það

var mengunarlykt af fötunum,?

segir Halla ? eða var það Ragna? 

Að síðustu bendir blaðamaður

þeim á með vísifingri að koma í

myndatöku en fær upplýsingar frá

systrum ? sem gætu komið að

gagni síðar ? um að puttahreyf-

ingin þýði einfaldlega ?nú lem ég

þig? samkvæmt arabískri hefð. Það

var og.

thuridur@mbl.is

Flökkukindur í arabískunámi

Morgunblaðið/Kristinn

Tvíburar Ragna (t.v.) og Halla Ólafsdætur eru sem ein manneskja; þær hrífast gjarnan af sömu hlutunum og eru

nú báðar í arabískunámi í Danmörku, enda alltaf haft áhuga á ólíkum menningarheimum.

Tvíburasysturnar Halla

og Ragna Ólafsdætur

dvöldu á framandi slóð-

um Egyptalands í Kaíró

í haust til að læra arab-

ísku. Þuríður Magnúsína

Björnsdóttir ræddi við

þær um heim múslima

og einstakt samband 

tvíbura.

Sakkara Freyja Friðbjarnardóttir, móðir systranna, við hlið betlara.

daglegt líf

24 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52