Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						rannsókn

MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 25

L

okaðu augunum eitt augnablik og sjáðu fyrir þér

allt það rómantíska við mannslíkamann: Fallegu

augun hennar, sterklegar axlirnar hans? Hugs-

aðirðu nokkuð um mismunandi hluta heilans, var það?

Þannig er nefnilega mál með vexti að vísindamenn hafa

verið að kanna ýmsa hluta heilans, sem almenningur veit

lítið sem ekkert um, til að reyna að skilja lífeðlisfræðilegar

ástæður fyrir því að fólki líður eins og því líður þegar það

verður ástfangið. Með því að rannsaka heilasneiðmyndir

fólks sem nýlega var orðið ástfangið kynntust vísinda-

menn vísindum ástarinnar; af hverju ástin er svo voldug

og af hverju því að vera hafnað fylgir svo mikill sársauki.

Frá þessu er sagt á vefnum CNN.com. 

Dr. Lucy Brown, prófessor tauga- og taugavísinda-

deildar við Albert Einstein-læknaskólann í New York,

gerði tilraun ásamt samstarfsfólki sínu þannig að teknar

voru heilasneiðmyndir af ungum háskólanemum sem voru

að upplifa sársaukafulla nýja ást. Á meðan þeir voru í

sneiðmyndatækinu horfðu nemarnir á mynd af þeim sem

þeir voru að falla fyrir. 

Vísindamennirnir komust að því að sá hluti heilans, sem

á þátt í því að óslökkvandi löngun kviknar, varð mjög virk-

ur rétt á meðan. Annað svæði sem vaknaði til lífsins var sá

hluti sem framleiðir dópamín, sem er öflugt boðefni og

hefur áhrif á gleði og hvatningu. Dr. Brown sagði að vís-

indamönnunum sýndist sem svo að þegar fólk verður ást-

fangið flæði dópamínið þannig um hin mikilvægu svæði

heilans. ?Þess meira dópamín þess meiri víma,? sagði dr.

Brown eða eins og kollegi hennar, dr. Helen Fisher, orðaði

það: ?Þegar fólk verður ástfangið fer nákvæmlega sama

ferli af stað og þegar það tekur kókaín. Víman getur verið

ofsaleg þegar fólk er ástfangið og eins þegar það tekur

kókaín.? 

Er þetta ást ? eða kynlíf?

Þessar niðurstöður urðu til þess að vísindamennirnir

fóru að velta fyrir sér hvort ástfanginn heili liti eins út og

kynferðislega örvaður heili. Í huga manna ruglast nefni-

lega oft hvort fólk er ástfangið eða einfaldlega kynferð-

islega örvað. Svarið var: Ástfanginn heili og kynferðislega

örvaður heili eru ekki mjög líkir. Þegar þátttakendum í

rannsókninni voru sýndar erótískar myndir á meðan þeir

voru í heilasneiðmyndatöku urðu önnur svæði virk en hjá

hinum ástföngnu. Eitt svæðið stjórnar fýsnum eins og

hungri og þorsta auk annarra fýsna. Upplýst var að í ást-

arrannsókninni hafi ekki fundist samsvarandi virkni. Þó

eru ein tengsl milli ástar og kynlífslöngunar, en það er að

þegar fólk verður ástfangið eykst framleiðsla dópamíns og

við það fer af stað framleiðsla testósteróns í líkamanum,

en það drífur áfram kynhvötina í körlum og konum. 

Kvenheili ? karlheili

Við skoðunina á hinum ástföngnu kom í ljós munur á

heilastarfsemi milli karla og kvenna. Karlarnir höfðu

þannig aðeins meiri virkni í heilasvæðinu sem samþættir

sjónræna örvun. Það kemur kannski ekki á óvart ?þar sem

karlar halda uppi klámiðnaðinum en konur eyða lífi sínu í

að líta vel út fyrir karlana?, er haft eftir dr. Fisher. 

Heilastarfsemi kvenna kom nokkuð meira á óvart, en

vísindamennirnir komust að því að í ástföngnum konur

var heilastarfsemi sem tengist minningum virkari. Það er

talið tengjast því að kona getur ekki séð hvort karl er frjó-

samur en ef hún skoðar hann náið og leggur á minnið

hegðun hans getur hún ákvarðað hvort hann verður áreið-

anlegur maki og faðir. 

Þegar öllu var á botninn hvolft komust vísindamenn-

irnir að því að ást er í raun ekki tilfinning ? hún er drif-

kraftur sem að grunni er djúpt í heilanum á mannkyninu,

alveg eins og þörfin fyrir vatn og mat. 

Heilasneiðmyndir af nemum sem nýlega hafði verið

hafnað af ástvini sýndu enn eina niðurstöðu. Það svæði

heilans sem upplifir líkamlegan sársauka sýndi mikla

virkni þegar þeim voru sýndar myndir af ástvininum sem

hafði hafnað þeim. ?Fólk kom grátandi úr sneiðmynda-

tækinu,? sagði dr. Fisher. ?Það mun líða á löngu áður en

við gerum svona rannsókn aftur.?

Reuters

Ástarvíma Ástin getur gefið viðlíka vímu og kókaín að því er ný rannsókn gefur til kynna. 

Ástin býr í heilanum

smáauglýsingar mbl.is

ókeypis

smáauglýsingar

mbl.is

Staður: Háskólinn í Reykjavík

Dags: Fimmudaginn 22. febrúar

Stund: kl. 12.00 - 13.30

Framsögumenn: Eric Moen frá Hægri flokknum í Noregi 

Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður Heimdallar 

Pallborðsumræður: Amund Drönen Rindal frá Hægri flokknum í Noregi

Sunniva Flakstad Ihle, varaformaður Ungra Hægri manna í Noregi

Árni Helgason varaformaður Heimdallar auk framsögumanna. 

Fundarstjóri: Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík. 

Boðið upp á léttan hádegisverð. 

Aðgangur ókeypis. 

Skráning á netfangið evropa@evropa.is 

Eiga hægrimenn 

erindi í ESB?

Erla Ósk Ásgeirsdóttir

Formaður Heimdallar

Erik Moen

Hægri flokknum í Noregi

Hádegisverðarfundur

á vegum Heimdallar og Evrópusamtakanna

Mrs. Harriet Mayor Fulbright heldur opinn 

fyrirlestur í boði Háskóla Íslands

í Hátíðarsal aðalbyggingar, í dag kl. 16.00. 

Mrs. Fulbright er hér á landi í boði bandaríska 

sendiráðsins í tilefni af 50 ára afmæli Fulbright 

stofnunarinnar á þessu ári. 

Að erindi loknu er boðið upp á hressingu.

Allir velkomnir. 

FYRIRLESTUR

CHALLENGES OF

LEADERSHIP

www.hi.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52