Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 33

MINNINGAR

?

Jón Vídalín Sig-

urðsson fæddist

á Búðum í Fá-

skrúðsfirði 4. jan-

úar 1913. Hann lést

á sjúkrahúsi Seyð-

isfjarðar 6. febrúar

síðastliðinn. Hann

var sonur hjónanna

Sigurðar Þórð-

arsonar frá Kálfa-

felli í Suðursveit og

Salóme Ingibjargar

Magnúsdóttir frá

Litla Hólmi í Leiru.

Eftir lát föður

síns flytur hann ásamt móður

sinni til Siglufjarðar 1940. Þar

kynnist hann konu sinni.

Jón kvæntist 10.10. 1944 Sig-

rúnu Sigurðardóttur, f. 10.10.

1916, d. 10.3. 1996. Börn hans

og Sigrúnar eru Sigurbjörn,

kvæntur Hugrúnu Ólafsdóttur,

þau eiga tvö börn og eitt barna-

barn og Anna Gunnlaug, hún á

tvö börn og fjögur

barnabörn. Fyrir

átti Sigrún dótt-

urina Gunnþórunni

Gunnlaugsdóttir,

gifta Hafsteini Sig-

urjónssyni, þau

eiga fjögur börn og

12 barnabörn.

Jón byrjaði ung-

ur til sjós. Ungur

þurfti hann að ger-

ast fyrirvinna móð-

ur sinnar vegna

veikinda föður síns

er síðar lést. Hann

stundaði sjómennsku nánast all-

an sinn starfsferil og bjó á

Siglufirði frá 1940 til 1973.

Fluttist þá í Garðinn og bjó þar í

4 ár. Fluttist til Seyðisfjarðar

1977 og vann þar hjá Norðursíld

í 20 ár.

Útför Jóns verður gerð frá

Seyðisfjarðarkirkju í dag og

hefst athöfnin klukkan 14.

Elsku pabbi minn.

Þá ertu farinn frá okkur. Þú ætl-

aðir alltaf að komast 10. hringinn

kringum landið en þeir urðu bara 9 sá

síðasti er hafinn þangað sem eilífðin

er og almættið finnst, þangað sem við

öll eigum eftir að fara. Söknuðurinn

er mikill hjá okkur öllum en minning-

arnar lifa og eru margar og góðar.

Þú varst mér góður faðir, tókst mig

strax að þér 7 ára gamla sem þína

eigin dóttur þegar þið mamma gift-

ust. Það var ekki erfitt að byrja strax

á að kalla þig pabba, annað kom ekki

til greina, ekki var mamma þín síðri

við mig en hún var alltaf amman á

heimilinu.

Seinustu 30 árin sem þú hefur búið

hér á Seyðisfirð gerðu okkur ennþá

nánari, dagleg samskipti voru bæði

heima og á sama vinnustað, auk þess

að þið Hafsteinn voruð alltaf svo góð-

ir vinir og höfðuð sama áhugamál.

Þær voru ófáar ferðirnar ykkar

kringum kindurnar og öll árin í Norð-

ursíld sem þið unnuð saman.

Þú varst með afbrigðum hraustur

maður, ég man aldrei eftir þér veik-

um, fórst einu sinni í viðgerð eins og

þú orðaðir það, mjöðmin var eitthvað

að angra þig. En þú lést það ekki

aftra þér að koma við og við og leysa

af sem brýnari í frystihúsinu þótt

kominn væri yfir áttrætt.

Eftir að þú misstir mömmu fyrir 11

árum sástu alfarið um þig sjálfur. Þú

varst ekki vanur heimilisstörfum því

mamma sá vel um þig. En þig munaði

ekki mikið um það, heimilið var alltaf

tandurhreint og svo vel var búið um

að ég kallaði rúmið fjölina og húsið

Hvítholt. Svo var keyptur nýr bíll og

þínar sumarlegu hringferðir hófust,

alltaf ein ferð á sumri og skoðaðir

flestalla staðir á landinu, ókst öll jarð-

göng og heimsóttir gamla vini. Eljan

og áhuginn var svo mikill að eitt sum-

arið hringdir þú í mig frá Djúpavogi

og sagðist vera á heimleið enda

hringurinn að verða búinn. Næsta

morgun hringirðu og varst þá stadd-

ur í Hóladómkirkju, þú hafðir gleymt

að koma þar við og þá var einfaldast

að skreppa norður. Þvílíkur hraust-

leiki.

Heima var það handavinnan, orð-

inn 80 ára og fórst að mála dúka, rýja

mottur og púða og síðast en ekki síst

allt postulínið, sem þú málaðir, ótal

könnur, vasa og diska.

Hver sem hefði séð þína vinnulúnu

fingur eftir áratuga sjómennsku

hefði vart trúað slíku handbragði. En

svona varstu vandvirkur, samvisku-

samur og heiðarlegur.

Elsku pabbi minn, tengdapabbi, afi

og langafi. Við þökkum þér af öllu

hjarta fyrir alla samfylgdina gegnum

lífið. Biðjum Guð að blessa þig og

varðveita og mömmu líka um alla ei-

lífð.

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi,

hafðu þökk fyrir allt og allt.

Gekkst þú með Guði,

Guð þér nú fylgi,

hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

(V. Briem.)

Þín dóttir 

Gunnþórunn.

Við eigum bágt með að trúa að

komið sé að kveðjustund en okkur

langar að minnast afa okkar með ör-

fáum orðum. Afi Seyðó eins og við

kölluðum hann alltaf var einstaklega

glaðlyndur, góður og ljúfur maður og

ekki má gleyma að minnast á hvað

hann gat verið stríðinn og með smit-

andi hlátur. Minningarnar og allar

skemmtilegu samverustundirnar á

Seyðisfirði og allar heimsóknirnar til

afa og ömmu munu ylja okkur um

hjartarætur. Fyrsta minningin sem

við systkinin munum frá því að við

vorum pínulítil er að þegar við kom-

um í heimsókn til afa og ömmu stóðu

þau ávallt í hlaðinu og tóku vel á móti

okkur og svo fórum við systkinin

beint inn í eldhús í nammiskúffuna

sem var ávallt búið að fylla með góð-

gæti áður en við komum. Ekki má

gleyma hvað litlu hendurnar okkar

voru forvitnar um alla fínu hlutina

hans afa, enda átti hann rosalega

mikið af dóti sem okkur fannst spenn-

andi. Hann elti okkur um allt hús til

að athuga hvað við værum að bralla.

Afi var duglegur að leika við okkur

og gaf sér alltaf tíma fyrir okkur.

Hann var einstaklega hraustur enda

fékk hann sér alltaf lýsi ofan á fiskinn

og reyndi í mörg ár að fá okkur til að

gera það sama, en án árangurs. Afi

ferðaðist mikið og keyrði alltaf hing-

að suður hvert sumar. Við vorum svo

stolt að eiga svona duglegan afa sem

keyrði svona langa leið. Afa fannst

gaman að hannyrðum og bjó til

marga fallega hluti sem fegra heimili

okkar og verða varðveittir. Okkur

þótti vænt um afa og erum þakklát

fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur.

Við munum varðveita allar yndislegu

minningarnar um afa og ömmu á

Seyðó í hjarta okkar og vitum að þið

munuð vaka yfir okkur.

Elsku afi, góða ferð og kysstu

ömmu frá okkur.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni

sitji guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

( Sig. Jónasson frá Presthólum.)

Jón Ólafur og Steinunn.

Elsku pabbi. Þá er þessu lokið,

allavega að sinni. Síðustu mánuðir

voru þér erfiðir, bæði andlega og lík-

amlega. Andlega af því að þú vildir

ekki vera upp á aðra kominn og lík-

amlega þar sem krabbameinið var

farið að láta þig finna fyrir sér á nýj-

an leik. Þú sem aldrei vildir vera upp

á aðra kominn og ekki láta hafa fyrir

þér varðst að sætta þig við það hlut-

skipti.

Nú get ég ekki lengur hringt í þig

til að athuga hvernig heilsan er, því

að eftir að þú greindist með krabba-

meinið varst þú ákveðinn í að það yrði

skorið burt.

Ótal minningar hafa sprottið upp í

huga mínum undanfarna daga þar

sem ég hef hugsað um það sem ég

gæti skrifað þér. Allar minningarnar

um þig eru góðar enda varst þú góður

og hlýr.

Ferðalögin sem þú fórst alltaf á

sumrin eftir að mamma dó gleymast

ekki. Þú byrjaðir að undirbúa þig fyr-

ir hringferðina, eins og þú kallaðir

það, í apríl og lagðir svo yfirleitt af

stað daginn eftir 17. júní hvernig sem

viðraði. Nema einu sinni þegar snjór

var yfir Norðurlandi og þú komst

ekki af stað fyrr en viku seinna. Þú

varst svo skipulagður í þessum ferð-

um, þó var ég dálítið áhyggjufullur

þegar þú fórst út á þjóðveginn en þú

skilaðir þér alltaf heilu og höldnu

þrátt fyrir smáóhöpp sem við minn-

umst ekki á núna.

Einnig er minnisstætt síðastliðið

sumar þegar þú komst með okkur í

sumarbústaðinn hvað þú hresstist

mikið við að koma í sveitina, kom þá

upp í þér ferðahugurinn. 

Ég minnist samtalsins sem við átt-

um hér í eldhúsinu áður en þú fórst í

aðgerðina, að þú ættir eftir að fara og

skoða svo margt í næstu hringferð.

En þú hefur nú lokið hringferðunum

hér en eflaust ert þú á ferðalagi þar

sem þú ert núna. Ég mun ávallt

sakna þín og það tekur mjög á mig að

vita það að heimsóknirnar verða ekki

fleiri í bili eða símtölin til þín.

Lífið hjá þér á Seyðisfirði var í föst-

um skorðum eftir að mamma dó, það

var aðdáunarvert að fylgjast með því

hvernig þú skipulagðir þig. Þegar þú

vaknaðir á morgnana fékkstu þér

morgunverð, fórst í göngutúra, sinnt-

ir heimilisstörfunum því ekki vildir

þú húshjálp, sagðist þrífa þitt heimili

sjálfur, og ekki má gleyma Leiðar-

ljósi sem þú misstir aldrei af og ef

manni varð á að hringja á meðan

Leiðarljós var í sjónvarpinu var ekki

svarað í símann. Svo mátti nú aldrei

vera snjókorn eða ryk á stéttinni. Svo

varst þú svo duglegur að föndra og

mála postulín, ekki gat maður nú

ímyndað sér að þú ættir eftir að sýna

svona mikla snilli með pensilinn.

Nú á kveðjustund þakka ég fyrir

hverja samverustund með þér og fyr-

ir allt sem þú kenndir mér. Minning-

arnar eru mér mikill fjársjóður sem

ég mun ávallt varðveita.

Elsku pabbi, ég veit að þú ert kom-

inn á betri stað og þér líður betur, all-

ar þjáningar þínar horfnar. Ég kveð

þig með margar góðar minningar í

hjarta. Ég veit að þú vakir yfir okkur

og verndar.

Nú legg ég augun aftur

ó, Guð þinn náðarkraftur

mín veri vörn í nótt.

Æ, virst mig að þér taka,

mér yfir láttu vaka

þinn engill, svo ég sofi rótt.

Minning um góðan föður lifir.

Þinn sonur 

Sigurbjörn.

Jón Vídalín Sigurðsson 

Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.

Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is ?

smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins ? þá birtist valkosturinn

Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.

Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast

fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi

eða þriðjudegi).

Minningargreinar

Englasteinar

Helluhrauni 10

Sími 565 2566 ? www.englasteinar.is

15% afsláttur af öllum

legsteinum og fylgihlutum

Sendum

myndalista

? 

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og

langafi, 

PÉTUR VIÐAR KARLSSON, 

Grenigrund 38, 

Selfossi, 

andaðist á heimili sínu laugardaginn 17. febrúar. 

     Brynhildur Tómasdóttir, 

Páll Pétursson, Auður I. Ottesen, 

Kristján Karl Pétursson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, 

Hrund Pétursdóttir Winckler, Anders Winckler, 

Hjörtur Leví Pétursson, Ásdís Ýr Aradóttir, 

     barnabörn og barnabarnabarn. 

? 

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,

afi og langafi, 

JÓSEF TRYGGVASON, 

Þrastarhóli, 

Arnarneshreppi, 

lést á heimili sínu laugardaginn 17. febrúar. 

Hann verður jarðsunginn frá Möðruvallaklausturs-

kirkju laugardaginn 24. febrúar kl. 14.00 

Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans

er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri. 

Vilborg Pedersen, 

Hreinn Pálsson,  Sigríður Kristín Bjarkadóttir, 

Salvör Jósefsdóttir,  Árni Ómar Jósteinsson, 

Ingibjörg Valgerður Jósefsdóttir, Sigurður Svan Gestsson, 

Óskar Jósefsson,  Ingibjörg Sverrisdóttir, 

Haraldur Jósefsson, 

Sigrún Jósefsdóttir, Friðbjörn Hilmar Kristjánsson, 

Hildur Jósefsdóttir,  Guðmundur Örn Helgason, 

Níels Pétur Jósefsson,  Anna Jóna Vigfúsdóttir, 

Heiða Björk Jósefsdóttir,  Ingi Rúnar Jónsson, 

Sigríður Hrefna Jósefsdóttir, Ricky Carl Sørensen, 

Ólöf Harpa Jósefsdóttir, Axel Grettisson, 

afabörn og langafabörn. 

? 

Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir

og afi,  

KARL JÚLÍUSSON,  

Garðhúsum,  

Grindavík, 

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn

16. febrúar. 

Jarðsungið verður frá Grindavíkurkirkju laugardag-

inn 24. febrúar kl. 14.00.  

Sigrún Guðmundsdóttir, 

Guðmundur Grétar Karlsson, 

Sigurður Rúnar Karlsson, 

Jón Júlíus Karlsson, 

Páll Tryggvi Karlsson, Finndís Fjóla Birgisdóttir, 

Ronja Rán Pálsdóttir, 

Ylfa Dröfn Pálsdóttir. 

? 

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,

afi og langafi, 

JÓN EINARSSON, 

Hjallaseli 55, (Seljahlíð), 

Reykjavík, 

andaðist sunnudaginn 18. febrúar. 

Útförin auglýst síðar. 

Ingveldur Jónsdóttir, 

María Jónsdóttir,   Axel Stefán Axelsson, 

Leifur Jónsson,  Bryndís Petersen, 

barnabörn og barnabarnabörn. 

? 

Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi

og langafi, 

ÓLAFUR ÁSGEIRSSON, 

Melseli 8, 

Reykjavík, 

lést á líknardeild Landakotsspítala sunnudaginn

18. febrúar. 

Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 

26. febrúar kl. 13.00. 

María Rósinkarsdóttir, 

Ottó Kolbeinn Ólafsson, Björk Baldursdóttir, 

Jakob Ólafsson, Helena Soffía Leósdóttir Little, 

Rósinkar Snævar Ólafsson, Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, 

Guðný Ólafsdóttir, Ómar Gunnarsson, 

Ásgeir Kristján Ólafsson, Aðalheiður Gylfadóttir, 

barnabörn og barnabarnabörn. 

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52