Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						34 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

MINNINGAR

?

María Guð-

munda Sig-

urjónsdóttir fædd-

ist á Lýtingsstöðum

í Rangárvallasýslu

hinn 24. september

1928. Hún andaðist

á hjúkrunarheim-

ilinu Sóltúni 13.

febrúar síðastlið-

inn. Foreldrar

hennar voru Arndís

Eiríksdóttir bóndi

og ljósmóðir, f.

28.2. 1906, d. 22.8.

1993 og Sigurjón

Jónsson bóndi í Fosshólum í

Holtahreppi, f. 14.8. 1899, d.

9.10. 1960. Systkini Maríu eru:

Sigurleif Jóna, f. 15.12. 1930; Ei-

ríkur, f. 16.9. 1934, d. 14.9. 1999;

Tryggvi, f. 6.10. 1935, d. 16.12.

1969; Sigríður, f. 27.2. 1937, d.

29.7. 1986; Þórður Matthías, f.

30.12. 1991. 4) Guðrún Björk, f.

4.2. 1962, gift Páli Ragnari Guð-

mundssyni, f. 21.2. 1959. Börn

þeirra eru Jóhanna Björk, f.

24.1. 1989, Arnór Ingi, f. 24.1.

1993 og María Björk, f. 29.8.

2001. 5) Ásmundur, f. 18.9. 1966,

kvæntur Sigrúnu Davíðsdóttur f.

12.6. 1969. Börn þeirra eru Ingi,

f. 24.9. 1998 og Davíð, f.

21.1.2002.

María ólst upp í foreldahúsum

í Fosshólum fram til 24 ára ald-

urs. Hún stundaði nám frá Laug-

arvatni og lauk þaðan landsprófi.

María og Bjarni bjuggu fyrstu

árin í Reykjavík en fluttu árið

1959 í Kópavoginn og bjuggu

lengst af á Kópavogsbraut 72

sem þau byggðu árið 1965. Árið

1989 fluttu þau í Furugrund 68

þar sem María bjó í rúm 16 ár.

María starfaði lengst af sem hús-

móðir og við ýmis umönn-

unarstörf. Árið 1987 útskrifaðist

hún úr sjúkraliðaskólanum og

starfaði hún sem sjúkraliði til

1997.

Útför Maríu verður gerð frá

Kópavogskirkju í dag og hefst

athöfnin klukkan 15.

27.10. 1941 d. 3.11.

2006; og Sigrún

Erna, f. 1.4. 1943.

Árið 1954 giftist

María Bjarna Ein-

arssyni bifreiða-

stjóra, f. 3.3. 1923 d.

28.6. 1990. Börn

þeirra eru: 1) Ingi-

björg, f. 29.9. 1952.

2) Arndís, f. 30.12.

1955, gift Pétri Má

Péturssyni, f. 4.1.

1955. Börn þeirra

eru Pétur Bjarni, f.

2.11. 1988 og Eva

María, f. 9.7. 1990. 3) Einar Sig-

urjón, f. 9.7. 1957, kvæntur Elínu

Þóru Sverrisdóttur, f. 24.5. 1959.

Börn þeirra eru Birna María, f.

30.11. 1981 í sambúð með Birni

Blöndal Björnssyni, f. 13.1. 1979,

Karen Inga, f. 16.6. 1985, Bjarni,

f. 20.10. 1988 og Einar Valur, f.

Elsku amma,

nú ertu komin á betri stað til afa

sem þú saknaðir svo mikið. Þótt þú

hafir verið veik er samt mjög sárt

að kveðja þig. Svo margar góðar

minningar koma upp í hugann.

Við kynntumst þér einna best

þegar við bjuggum hjá þér um árið.

Þú varst svo góð og vildir allt fyrir

okkur gera. Við minnumst þess að

þegar við komum heim til þín eftir

skólann þá varst þú oft inni í eld-

húsi, sast við eldhúsborðið að lesa

blöðin eða leggja kapal. Og á borð-

inu biðu okkar ilmandi heitar klein-

ur sem okkur þótti svo góðar. Einn-

ig minnumst við þess að þegar þú

komst heim af kóræfingum þá

varstu alltaf svo glöð og þú raulaðir

fyrir okkur lagið sem verið var að

æfa. 

Þín er sárt saknað og þú átt alltaf

stað í hjarta okkar. Við kveðjum þig

með bæninni sem þú kenndir okkur:

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum)

Þín barnabörn

Jóhanna, Arnór og María.

Það var á vormánuðum 1983 að

ég ákvað að ?hlaupabrautin?, sem

svo var kölluð meðan Fjölbrauta-

skóli Suðurlands var ennþá húsnæð-

islaus, hentaði mér ekki. Ég sótti

um að komast í Verzlunarskólann,

þar sem meirihluti frændsystkin-

anna á Kópavogsbraut 72, sem ég

leit talsvert upp til, hafði numið og

sá yngsti úr þeim hópi, Ási frændi,

hafði nýlega hafið nám. Í stuttu máli

fékk ég skólavist í Verzló, en þá var

bara einn höfuðverkur; að fá hús-

næði á Reykjavíkursvæðinu.

Sá vandi var leystur af Maju og

Bjarna og þar með hófst ?Versló-

tíminn? í mínu lífi og tók hann tvo

vetur.

Ég fékk sem sagt inni á Kópa-

vogsbrautinni, í herbergi inn af eld-

húsinu, og á þessum árum kynntist

ég frændfólkinu ennþá betur. Þá

voru reyndar elstu systkinin flutt að

heiman; Bubba frænka var að vinna

á Samvinnuferðum, Dísa frænka

orðin sjúkraþjálfari að vinna í

Seattle í Bandaríkjunum og Einar

frændi að vinna sem flugvirki hjá

Landhelgisgæslunni. Svo var Gunna

frænka komin í Háskólann að læra

hjúkrun og Ási frændi á undan mér

í Verzló. Bjarni keyrði sinn fallega

leigubíl númer 40 hjá BSR og Maja

frænka vann á Kópavogshæli. Þá

var hafinn hjá henni undirbúningur

að sjúkraliðanámi sem hún lauk

þegar hún var um sextugt. Þegar

hugsað er um þennan tíma finnst

mér bæði Bjarni og Maja alltaf hafa

verið að vinna. Já, það þurftu þau

svo sannarlega að gera; Bjarni var

farinn út að keyra þegar ég fór á

fætur á morgnana og hann kom

ekki heim fyrr en um kvöldmat.

Maja ýmist að vinna á daginn,

kvöldin eða á næturvöktum og svo

var námið farið að taka allan tíma

sem hugsast gat þess á milli hjá

henni. Já, þegar krakkarnir flugu úr

hreiðrinu var hennar tími greinilega

kominn. En þrátt fyrir nám og

vinnu var alltaf vel hugsað um

heimilið sem var sérlega fallegt og

garðurinn á Kópó var líka mjög fal-

legur. Maturinn hennar Maju er eft-

irminnilega góður, hvort sem var á

venjulegum virkum degi eða efnt til

stórveislu. Maja frænka var frábær

og yndisleg manneskja sem mun

alltaf eiga stað í mínu hjarta. Á

kveðjustund er henni þakkað fyrir

allt saman. Það gerir einnig Anna

systir mín sem fór strax á eftir mér

til náms við Verzlunarskólann og

fékk inni á Kópavogsbrautinni, var

þar í tvo vetur og á þaðan hlýjar

minningar. Frændfólkinu öllu er

vottuð dýpsta samúð.

Hafðu þökk fyrir allt og allt,

elsku góða Maja frænka. Blessuð sé

minning þín.

Þinn bróðursonur, 

Jón Þórðarson.

Kynni okkar Mæju hófust þegar

ég flutti í næsta hús við hana á

Kópavogsbrautinni árið 1966. Það

var mikið lán fyrir mig og urðum

við strax góðar vinkonur og börnin

okkar sem haldist hefur fram á

þennan dag.

Mæja var mikil myndarkona sem

aldrei féll verk úr hendi, var það

mér ungri stúlkunni mikil hvatning.

Hún kenndi mér svo margt sem ég

hafði aldrei haft áhuga á áður eins

og að sauma föt. Alltaf gat ég hlaup-

ið yfir og spurt ?hvernig á ég að

gera þetta?? sauma í rennilás, gera

hnappagöt, sníða og hvað annað

sem viðkom saumaskap. Hún var

góður kennari þessarar óþolinmóðu

stelpu sem helst þurfti að gera allt í

gær.

Ég á eftir að búa að vinskap okk-

ar alla ævi. Á seinni árum hittumst

við ekki oft en eins og Mæja sagði

alltaf sannir vinir þurfa ekki að hitt-

ast oft því það var alltaf eins og við

hefðum hist í gær.

Vænt þótti mér um að geta hlúð

að henni síðustu vikurnar sem hún

lifði á hjúkrunarheimilinu í Sóltúni.

Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir

mig og dætur mínar, Mæja mín.

Bubbu, Dísu, Einari, Gunnu, Ása

og fjölskyldum votta ég samúð

mína.

Kristín Guðmundsdóttir.

María G. 

Sigurjónsdóttir 

Minningarkort

535 1825

www.hjarta.is 5351800

REYNSLA ? UMHYGGJA ? TRAUST

Þegar andlát ber að höndum

Önnumst alla þætti útfararinnar

ÚTFARARSTOFA

KIRKJUGARÐANNA

Vesturhlíð 2

?

Fossvogi

?

Sími 551 1266

?

www.utfor.is

? 

Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og

amma, 

GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR 

frá Fremstuhúsum 

í Dýrafirði, 

verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðviku- 

daginn 21. febrúar kl. 11.00. 

Kristján Jóhannsson, 

Kristján Gaukur Kristjánsson, Maliwan Phumipraman, 

Pathipan Kristjánsson, 

Malín Agla Kristjánsdóttir, 

Kristján Örn Kristjánsson, 

Drengur Arnar Kristjánsson. 

? 

Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, 

ÁRNI G. BJÖRNSSON, 

andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 

17. febrúar. 

Útför auglýst síðar. 

Júlíana Árnadóttir, Guðmundur Árnason, 

Ólöf Árnadóttir, Börkur Guðjónsson, 

Ester Árnadóttir, Hallmundur Hafberg, 

Björn Árnason, Laufey Guðmundsdóttir 

og afabörn. 

? 

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-

amma, 

INGIBJÖRG ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR, 

Furugerði 1, 

(áður Stangarholti 12), 

Reykjavík, 

lést á heimili sínu föstudaginn 16. febrúar. 

Útförin verður auglýst síðar. 

Fyrir hönd aðstandenda, 

Margrét Sigurðardóttir,  

Sigurbjörn Sigurðsson  

og Sigríður Ó. Þ. Sigurðardóttir. 

? 

Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-

amma, 

HULDA ÁRNADÓTTIR, 

Blöndubyggð 4, 

Blönduósi, 

andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri

miðvikudaginn 14. febrúar. 

Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn

24. febrúar kl. 13.30. 

Harpa Friðjónsdóttir, Richard Bell, 

Bergþóra Huld Birgisdóttir, Harald R. Jóhannesson, 

Ragnar Andri, Katrín Birta og Hulda Rún. 

? 

Okkar ástkæri, 

RÍKHARÐ JÓN ÁSGEIRSSON, 

      (Rikki í Höfnum), 

er látinn. 

Fyrir hönd aðstandenda, 

 Jón Ásgeir Ríkharðsson, Björg Skúladóttir, 

   Sólveig Jóhannsdóttir. 

? 

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og

langafi, 

GUNNAR INGVAR ÍSDAL ÞORSTEINSSON  

frá Reyðarfirði, 

lést föstudaginn 2. febrúar síðastliðinn. 

Úförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. 

Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls

hans. 

Sigríður Sæbjörnsdóttir, 

Svanborg Gunnarsdóttir Overgaard, Bjorn Overgaard, 

Þorsteinn Gunnarsson,    Bjarnrún Haraldsdóttir, 

Guðný Eygló Gunnarsdóttir,   Steingrímur Ingason, 

barnabörn og barnabarnabörn. 

Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.

Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -

mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að

senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem

kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er

unnt að tengja viðhengi við síðuna.

Minningargreinar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52