Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 35

?

Sigríður Steins-

dóttir fæddist í

Bakkagerði í Borg-

arfjarðarhreppi í N-

Múl. 14. september

1914. Hún lést á

Sjúkrahúsinu á

Akranesi 9. febrúar

síðastliðinn. For-

eldrar hennar voru

hjónin: Steinn Ár-

mannsson, f. 7. mars

1884, d. 28. ágúst

1969, og Þórhildur

Sveinsdóttir, f. 27.

júlí 1894, d. 11. des-

ember 1983. Systur hennar voru:

Þórhalla, f. 1916, d. 1999 og Svein-

björg, f. 1919, d. 2002.

Eiginmaður Sigríðar var Jón

Guðmundsson, lengst af bæj-

argjaldkeri og framkvæmdastjóri

á Akranesi, f. á Vatni á Höfð-

aströnd í Skagafirði 20. apríl 1904,

d. 9. júní 1987. Foreldrar hans

voru hjónin Guðmundur Ellert

Jónsson, f. 10. maí 1875, d. 10. maí

1948 og Björg Jónatansdóttir, f.

13. apríl 1884, d. 17. apríl 1945.

Fyrir kynni sín af Jóni hafði Sig-

ríður eignast Erlu og ólst hún upp

hjá foreldrum Sigríðar. Börn Sig-

ríðar eru: 1) Erla Sigurðardóttir,

f. 7. okt 1933, maki Hannes Óli Jó-

hannsson, f. 1927. Börn þeirra eru:

a) Þórhildur, f. 1952, maki Ágúst

M. Grétarsson, þau eiga tvö börn

og tvö barnabörn. b) Bergrún

Gyða, f. 1953, maki Jón Her-

mannsson, þau eiga eina dóttur og

eitt barnabarn. c) Hafsteinn, f.

1954, maki Harpa Vilbergsdóttir,

þau eiga tvö börn og eitt barna-

barn. d) Jóhanna, f. 1955, maki

Ólafur Aðalsteinsson, þau eiga tvö

börn og tvö barnabörn. e) Kjartan,

f. 1956. f) Erling Óli, f. 1958, maki

Sveinborg J. Ingvadóttir, hann á

fimm börn. g) Sveinbjörg, f. 1959,

maki Pétur Örn Hjaltason, þau

eiga tvo syni. h) Sigríður Þ. Óla-

dóttir, f. 1960, hún á tvær dætur. i)

1963, maki Björn Hermann Jóns-

son, þau eiga þrjár dætur. b) Þor-

kell Logi, f. 1966, maki Eydís Að-

albjörnsdóttir, þau eiga fjögur

börn. 8) Elsa, f. 6. janúar 1942,

maki Jón Haukur Bjarnason, f.

1941, börn þeirra eru: a) Stefán, f.

1961, maki Gunnur B. Hafsteins-

dóttir, f. 1964, þau eiga tvö börn.

b) Jóna Björg, f. 1962, maki Einar

B. Bjarnason, hún á fjóra syni

(einn látinn) og tvö barnabörn. c)

Hörður, f. 1963, maki Halldóra S.

Sveinsdóttir, f. 1960, þau eiga

þrjár dætur. d) Bjarni, f. 1965,

maki Guðrún I. Svansdóttir, hann

á fjögur börn. e) Sigríður, f. 1966,

maki Jón Sigurðsson, þau eiga tvo

syni. f) Unnar, f. 1967, maki Lilja

S. Jóhannsdóttir, þau eiga þrjú

börn. g) Þráinn, f. 1969, maki

Anna S. Ingvadóttir, þau eiga þrjá

syni. 9) Guðmundur, f. 2. nóv-

ember 1943, maki Þorbjörg

Björnsdóttir, f. 1948, synir þeirra

eru: a) Jón, f. 1968, maki Unnur

Gígja Gunnarsdóttir, þau eiga tvö

börn. b) Björn, maki Birna B. Sig-

urðardóttir, þau eiga þrjú börn.

10) Ólafur, f. 8. júní 1945, maki

Kristín Sigurðardóttir, f. 1950,

dætur þeirra eru: a) Sæunn Ólafs-

dóttir, f. 1972, maki Benedikt Arn-

arson, þau eiga tvö börn. b) Iðunn

Ólafsdóttir, f. 1974, maki Árni

Valur Skarphéðinsson, f. 1977,

þau eiga þrjú börn. 11) Sigurjón, f.

8. október 1947. Barnabörnin eru

37, barnabarnabörnin 93 og

barnabarnabarnabörnin 22. Af

þessum hópi eru þrjú látin, tvær

dætur hennar sem létust í bernsku

og eitt barnabarnbarn sem lést af

slysförum.

Sigríður ólst upp á Borgarfirði

eystra, en flutti þaðan 1933 með

manni sínum Jóni Guðmundssyni

og settust þau að á Akranesi og

bjuggu þar eftir það. Sigríður

vann húsmóðurstörf alla starfsævi

sína. Hún vann ekki utan heimilis,

ef frá eru talinn stuttur tími sem

hún vann við fiskvinnslustörf.

Útför Sigríðar verður gerð frá

Akraneskirkju í dag og hefst at-

höfnin klukkan 14. 

Árni, f. 1962, maki

Valgerður D. Hreins-

dóttir, þau eiga fjóra

syni. j) Ólöf Björg, f.

1964, hún á tvö börn.

k) Sigurjón Guðni, f.

1969, maki Andrea

G. Guðnadóttir, þau

eiga tvo syni. 2) Ey-

steinn, f. 29. júní

1933, maki Jóna Þor-

geirsdóttir, f. 1929,

börn þeirra eru: a)

Sigríður, f. 1962,

maki Gísli Tryggva-

son, hún á þrjú börn.

b) Guðný, f. 1964, maki Hrafn

Loftsson, hún á tvö börn og eitt

barnabarn. c) Jón Geir, f. 1967,

maki Ásta Jensdóttir, þau eiga

tvær dætur. d) Bjarni, f. 1968. 3)

Stúlka, f. 6. apríl 1935, d. 19. júní

1935. 4) Unnur, f. 4. maí 1936,

maki Svavar Karlsson, f. 1935,

börn þeirra eru: a) Sigríður, f.

1954, maki Haukur Hannesson,

þau eiga þrjú börn og tvö barna-

börn. b) Sigrún Birna, f. 1955,

maki Jóhann Þórðarson, þau eiga

þrjú börn og fimm barnabörn. c)

Viðar, f. 1957, maki Fjóla Ásgeirs-

dóttir, þau eiga þrjú börn og eitt

barnabarn. d) Jón Karl, f. 1961,

maki Helga S. Ásgeirsdóttir, þau

eiga þrjú börn og eitt barnabarn

e) Jökull Freyr, f. 1972. 5) Elsa, f.

3. júlí 1937, d. 4. janúar 1943. 6)

Björn, f. 5. október 1938, maki

Sigríður H. Ketilsdóttir, f. 1936,

börn þeirra eru: a) Þórhildur, f.

1958, maki Albert Guðmundsson,

hún á fjögur börn og fjögur barna-

börn. b) Brynhildur, f. 1961, maki

Guðmundur Sigurbjörnsson, þau

eiga tvær dætur. c) Ketill Már, f.

1963, maki Ingibjörg Finn-

bogadóttir, þau eiga þrjú börn. d)

Elsa Jóna, f. 1966, maki Jón Hugi

Harðarson, þau eiga þrjú börn. 7)

Steinn Þór, f. 17. febrúar 1940,

maki Eva H. Þorkelsdóttir, f. 1946,

börn hans eru: a) Auður Elfa, f.

?Sæl elskan mín og vertu velkom-

in,? sagði verðandi tengdamóðir mín

við mig um leið og hún faðmaði mig

hlýlega að sér. Nokkru síðar dró hún

svo son sinn afsíðis og hrósaði mér í

hástert, alls ómaklega. Þannig tók

hún á móti mér fyrir röskum 35 ár-

um og þannig var viðmót hennar alla

tíð. Hlýjan var henni eðlislæg og

virðing fyrir fólki, ásamt mikilli glað-

værð. Dillandi hláturinn einkenndi

hana.

Sigríður, Sigga, var hávaxin, fríð

og glæsileg kona eins og sjá má á

myndinni sem fylgir hér, en hún var

tekin í 90 ára afmæli hennar. Ég hélt

að líf Siggu hafi verið erfitt. Hún

eignaðist barn 17 ára og þurfti að

skilja það eftir og flytja á annað

landshorn. Það hefur tekið á að vera

búin að eiga 11 börn 33 ára gömul.

Þá hafði hún misst tvö þeirra.

Tveggja og hálfs mánaða telpu sem

sprautuð var með skemmdu bóluefni

og Elsu eldri sem hafði hrifið gest-

komandi konu í næsta húsi sem óaf-

vitandi færði henni bráðaberkla.

Elsa lést fimm og hálfs árs gömul.

Sigurjón, yngsti sonurinn, fékk

heilahimnubólgu ársgamall og var

lengi á Landakoti. Hann bar nokkra

fötlun eftir það. Þau mæðginin fóru

síðar saman á dvalarheimilið Höfða.

Þessi mál ræddi ég stundum við

Siggu. Hún hafnaði því að lífið hafi

verið erfitt. Þetta með börnin hafi

sannarlega verið sárt, mjög sárt og

hafi valdið sárum sem gréru seint.

Það sem við sjáum sem þæginda-

laust líf með mjög stórt heimili hafi

ekki verið svo ýkja erfitt. Það þekkt-

ist ekkert annað þá. Börnin voru

vissulega mörg en þau stækkuðu og

gátu þá hjálpað eitthvað til. Hún hafi

reyndar aldrei verið mikið fyrir börn

en það var oft gaman að þeim þegar

þau stækkuðu. Hún skellihló þegar

hún sagði þetta síðasta.

Þó að Sigga hafi aldrei gert mikið

úr erfiði fyrri ára, þá fagnaði hún

tækninýjungum og hafði mikinn

áhuga á þeim. Góð þvottavél er sann-

anlega gulli betri, svipað má segja

um mörg algengustu heimilistækin.

Hún var áhugasöm um nýjungar,

hvort sem var í tækni eða ýmsar nýj-

ar stefnur. Hún var alltaf til í að

prófa eitthvað nýtt, reyna nýjar upp-

skriftir, smakka óvenjulegan mat

eða reyna nýjustu vítamínin og

heilsukúrana. Eins og svo margt

annað varð þetta allt til að auka gleði

hennar, en hún var fundvís á marg-

vísleg gleðiefni.

Heimilið varð starfsvettvangur

Siggu og lagði hún mikinn metnað í

að halda heimilinu fallegu og

skreytti það af miklu listfengi. Marg-

ir fallegir munir liggja eftir hana.

Hún hafði lengi mikla ánægju af ým-

iss konar handverki og var fljót að

tileinka sér nýja tækni og þurfti litla

leiðsögn. Sigga lagði sig einnig eftir

því að elda góðan mat og naut fjöl-

skyldan þess. Hún kynnti sér nýj-

ungar í matargerð og þróaði áfram

með eigin hugmyndum. Niðurstaðan

var alltaf mjög góð.

Sigga hafði margvíslega listræna

hæfileika. Hún hafði fallega söng-

rödd, beitti henni sjaldan af fullum

krafti, en raulaði við verkin sín. Ég

sagði henni að bestu hæfileikar henn-

ar hafi ekki fengið að njóta sín. Hún

var ekki sammála því og sagði að þeir

hafi einmitt gert það. Það kann að

vera rétt hjá henni. Ég kveð tengda-

móður mína með virðingu, söknuði og

miklu þakklæti.

Kristín Sigurðardóttir

Um ömmu mína á ég aðeins ljúfar

minningar. Ég kveð hana með sökn-

uði og eftirsjá.

Þegar ég var lítil stúlka og ung-

lingur sótti ég ömmu mína reglulega

heim. Ég þekki göturnar í kringum

húsið hennar á Skaganum næstum

eins vel og heima. Ég er alin upp af

yndislegum foreldrum sem unnu

bæði úti, en hjá ömmu var alltaf nota-

legt og rólegt. Amma var aldrei of

upptekin til að setjast og spjalla eða

spila við stelpuskjátuna. Amma átti

alltaf eitthvað gott til þegar við kíkt-

um í heimsókn og ég geri enn í öllum

afmælum brauðrétt sem ég fékk upp-

skriftina hennar að þegar ég var ung-

lingur. Það var gott að koma heim til

ömmu.

Ég hugsa stundum hvað hún hefur

lifað margt og séð heiminn breytast

mikið. Ég heyrði hana segja mér frá

því þegar hún fékk fyrsta ísskápinn

og fyrstu þvottavélina og það fær

mann til að hugsa um þau lífsgæði

sem við búum við og tökum sem gefn-

um. Hún sagði mér margar skemmti-

legar sögur til dæmis af því þegar

hún var lítil stúlka og Jóhannes S.

Kjarval bað um að fá að mála af henni

mynd og mömmu hennar leist ekki

vel á það. Amma sá örlítið eftir því og

hugsaði að það hefði verið gaman að

til væri mynd af henni eftir meist-

arann.

Ég er yngsta barnabarn hennar,

33 ára gömul. Þegar amma mín var

jafngömul mér hafði hún eignast 11

börn, 9 þeirra lifðu fram á fullorð-

insár og lifa móður sína. Ég get ekki

ímyndað mér hvernig það er að eiga

11 börn þó að ég eigi sjálf 3 og vinni

að auki við kennslu þá er þetta samt

framandi hugsun á okkar tímum. Síð-

ustu ár hef ég ekki verið eins dugleg

og ég hefði viljað vera að heimsækja

hana og er það mín stærsta eftirsjá

því við gerum aldrei nógu mikið af því

að hitta gott fólk sem okkur þykir

vænt um. Ég lét alltof oft hversdags-

legar annir stoppa mig.

Amma mín var mér besta amma

sem ég hefði getað hugsað mér,

skemmtileg kona uppfull af hlýju og

væntumþykju. Ég vona að hún hafi

vitað hvað mér þótti vænt um hana.

Iðunn Ólafsdóttir.

Elsku Sigga mín, ekki hélt ég að

það yrði nú okkar síðasti fundur þeg-

ar við heimsóttum þig 29. desember

sl. á Höfða. Þú varst hress og hlýleg

að vanda og búin að klæða þig í þitt

fínasta, mikið varstu nú glæsileg.

Mundi ég þá eftir því þegar hún Halla

frænka þín sagði mér fyrir löngu að

þú hefðir verið fallegasta stúlkan á

Austfjörðum. Myndarskapur og

smekkvísi þín var eftirtektarverð.

Þegar við dáðumst að því hvað allt

væri fínt og fallega skreytt hlóstu

dátt og sagðir að sagt hefði verið að

þú værir svo mikil ?dúlla?.

Við sátum hjá þér dágóða stund,

fengum kaffi og kökur, skoðuðum

myndir úr fjölmörgu albúmunum

þínum og þú sagðir okkur fréttir af

fjölskyldunni sem þú fylgdist svo vel

með.

Mikið var gaman þegar þú komst

hér áður fyrr í bæinn, alltaf jafn kát

og upplífgandi og gistir þá ósjaldan

hjá okkur í Sævó, því í þá daga var

ekki algengt að farið væri fram og til

baka á Skagann á sama deginum. Þú

kunnir að segja sögurnar enda hafðir

þú gott minni og skemmtilega frá-

sagnarhæfileika.

Ég mun aldrei gleyma sögunni um

ferðina, sem þú fórst fimmtán ára

gömul með vinkonu þinni átján ára, á

hestum frá Borgarfirði eystri. Þið

lentuð í blindbyl yfir heiðina til Loð-

mundarfjarðar og erfiðan fjallveg yf-

ir til Seyðisfjarðar.

Það var alltaf tilhlökkunarefni að

fá jólagjafir frá þér, þær voru lista-

verk enda mikil listakona á ferð sem

allt lék í höndunum á. Fljót varstu að

hjálpa mér við saumaskapinn þegar

ég var búin að gefast upp. 

Þakka þér fyrir bjartar og góðar

minningar. 

Jóna S. Þorgeirsdóttir.

Sigríður Steinsdóttir 

Þannig lýsi ljós yðar

meðal mannanna, að

þeir sjái góð verk yðar

og vegsami föður yðar, sem er á himnum. 

(Matt. 5:16).

Öðlingur er orðið sem kemur upp í

huga minn er ég hugsa um Jóhann

mág minn sem hefði orðið 65 ára í

dag, en hann lést hinn 20. ágúst síð-

astliðinn.

Jóhann Sæmundur Björnsson 

?

Jóhann Sæ-

mundur Björns-

son fæddist á

Hvammstanga 20.

febrúar 1942. Hann

andaðist á Landspít-

alanum 20. ágúst

2006 og var útför

hans gerð frá Bú-

staðakirkju 29.

ágúst.

Fyrir ári síðan

greindist hann með

lungnakrabbamein,

sem má rekja til þess

tíma er hann vann við

smíðar með asbesti

fyrir um 30 árum. Það

var mjög erfið hálfs

árs barátta sem hann

háði bæði heima og á

sjúkrahúsi, en hann

Jói mágur minn æðr-

aðist ekki heldur tókst

á við þetta eins og allt

annað.

Jóhann var mikill

máttarstólpi í fjölskyldunni allri og

skilur þar eftir stórt skarð.

Fyrir um 15 árum byrjaði hann

hjá Lágafellssókn sem fram-

kvæmdastjóri. Það var honum til

mikillar blessunar enda var hann

trúaður maður og fengu margir að

njóta hjálpsemi hans og kærleika.

Jóhann var vandaður maður í orði

og verki og átti fólk auðvelt með að

leita til hans þegar á þurfti að halda

bæði í gleði og á sorgarstundum.

Svanhildur systir mín átti traust-

an og góðan mann en þau voru búin

að vera gift í 45 ár. Á heimili þeirra

ríkti kærleikur og friður. Voru þau

samtaka í öllu, börnin þeirra bera

þess vott, þau Þorkell, Alfa og Þor-

björn, tengdabörn og barnabörnin

sjö sem nú sakna afa sárt. 

Þú, ljóssins ljós,

sem lýsir heimi öllum

þú rauða rós

er ríkir lífs í höllum. 

Ó, bú oss hjá, 

allt batnar þá. 

Í návist þinni er náð og friður.

(Friðrik Friðriksson). 

Blessuð sé minning Jóhanns.

Í þakklæti 

Sigurlaug Þorkelsdóttir.

LEGSTEINAR

Tilboðsdagar

Alltað50%afsláttur

af legsteinum og fylgihlutum

Sendum myndalista

MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk

sími 587 1960 www.mosaik.is

? 

Ástkær tengdafaðir minn, afi, langafi og bróðir, 

JÓHANN HALLVARÐSSON 

frá Geldingaá, 

Prestastíg 6, 

Reykjavík, 

verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- 

daginn 21. febrúar kl. 13.00. 

Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en

þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild

Landspítala, Landakoti, deild L5. 

Sigríður Ósk Óskarsdóttir, 

Jóhann Davíð Snorrason, Valdís Ólafsdóttir, 

Ingvi Pétur Snorrason, Ásdís Erla Jónsdóttir, 

Snorri Ingvason, 

Auður Ingvadóttir, 

Björg Hallvarðsdóttir. 

Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.

Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur

senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er

um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og

börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast

er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í

minningargreinunum.

Minningargreinar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52