Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 43

menning

HÚSEIGN Í ÞINGHOLTUNUM

EÐA NÁGRENNI MIÐBORGARINNAR ÓSKAST

Traustur kaupandi óskar eftir 200-400 fm húseign

á framangreindu svæði. Staðgreiðsla í boði.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson

lögg. fasteignasali.

Þ

órhallur Sigurðsson, Laddi,

heldur upp á sextugsafmæli

sitt á viðeigandi hátt í Borg-

arleikhúsinu um þessar mundir;

með yfirlitssýningu frá sínum ein-

staka grínferli.

Laddi er auðvitað þjóðargersemi

og stemningin var þannig á frum-

sýningunni á Laddi 6-tugur. Þangað

voru gestir komnir til að hylla hann

og samfagna honum. Það að hann

næði að kitla hláturtaugarnar einu

sinni enn var nánast eins og auka-

geta. Svona sýning er nánast óhjá-

kvæmilega byggð upp af eldra efni

(þó undirritaður hafi reyndar ekki

nægilega yfirsýn yfir smáatriði í

ferli Ladda til að fullyrða um það),

og grín er yfirleitt ekki ýkja fjöl-

nota. En auðvitað var líka hlegið, og

það nánast uppstyttulaust. Enda er

maðurinn meistari.

L50098L50098L50098

F

yrst og fremst er hann auðvitað

meistari persónusköpunar

enda voru þau öll mætt, Elsa Lund,

Marteinn Mosdal, Hallgrímur orm-

ur, Denni, Þórður húsvörður, Stef-

án á Útistöðum, Saxi læknir, séra

Svavar og meistarastykkið Eiríkur

Fjalar. Það er umhugsunarefni að

Laddi virðist ekki eiga sér neinn

augljósan arftaka í þessu formi, þó

grínframleiðsla standi í sjaldgæfum

blóma nú um stundir. Sigurður Sig-

urjónsson er svo til eini maðurinn

sem hefur viðlíka tök á persónu-

smíðinni. Vonandi hverfur þessi list

samt ekki alveg úr flórunni þegar

þeir tveir draga sig í hlé. Þetta er

nefnilega mikil og skemmtileg

kúnst og gefur þegar best lætur

ýkta og eftirminnilega mynd af per-

sónueinkennum sem allir kannast

við, ef ekki hjá sjálfum sér þá

örugglega í samferðamönnum sín-

um.

L50098L50098L50098

Þ

að sést best í síðari hluta dag-

skrárinnar þegar Laddi birtist

loksins ?sem hann sjálfur?, með

hefðbundið en vel útfært uppistand.

Þá gerist það í tvígang að hann

bregður sér í annað hlutverk fyrir

framan áhorfendur og sú umbreyt-

ing er mögnuð. Ég get svarið það að

hann bætti á sig tíu kílóum af vöðva-

massa á fimm sekúndum sléttum,

við það að taka á sig mynd Bubba

Morthens.

Samverkamenn hans í sýningunni

skila sínu líka vel. Steinn Ármann er

verulega flinkur ?straight man?,

gaman er að sjá Halla aftur og

tveggja manna sena með Ladda og

Eggerti Þorleifssyni er eins og

nærri má geta ekkert slor.

L50098L50098L50098

Þ

etta er sem sagt ansi hreint

skemmtilegt. Og fyrir utan það

hvað Laddi er frábær þá vakti kab-

arettformið spurninguna: hvers

vegna er ekki meira af svona sýn-

ingum? Laustengdum og einföldum

með stuttum leikatriðum, tónlist og

öðru gríni? Mætti meira að segja

gjarnan innihalda ádeilubrodda.

Þetta er vitaskuld mun handhægara

og sveigjanlegra form til að taka á

samtímanum en þungskreiðar leik-

sýningar sem taka óratíma í vinnslu

og leikrit í hefðbundnum stíl sem

lítill vegur er að breyta til að bregð-

ast við viðburðum. Ég sá því miður

ekki ?Best í heimi? en af lýsingum

að dæma var það sýning af skyldum

toga og vel heppnuð sem slík. En

það ætti að vera regla fremur en

undantekning að kabarett sé á fjöl-

unum í borginni.

Auglýsi hér með eftir því að ein-

hverjir framtakssamir leikhúsfröm-

uðir kalli saman svona hóp og við

fáum sprellfjörugan kabarett um

ástandið í þjóðarsálinni á vordög-

um. Þangað til er um að gera að

heimsækja Borgarleikhúsið og sam-

fagna Ladda 6-tugum.

Takk fyrir mig.

Einn voða ástsæll 

AF LISTUM 

Þorgeir Tryggvason

»

Ég get svarið það að

hann bætti á sig tíu

kílóum af vöðvamassa á

fimm sekúndum slétt-

um, við það að taka á sig

mynd Bubba Morthens.

Virtur Laddi tekur við sérstökum heiðursverðlaunum er afhent voru hlustendaverðlaun útvarpsstöðvarinnar FM

95,7. Eins og kemur fram í pistlinum er Laddi einstakur grínleikari og engan augljósan arftaka að finna. 

toggi@hvitahusid.is

Í SKEMMTILEGU skjáverki

Eyglóar Harðardóttur á sýningunni

?Leiðsla? í Listasafni ASÍ sést hvar

roskin kona og ungur drengur, stödd

í almenningsgarði á suðlægum slóð-

um, kenna hvort öðru að stíga dans í

góða veðrinu. Úr hátölurum berst

lágvært hljóð sem minnir á hlátra-

sköll. Saman ? undir handleiðslu

hvors annars ? finna þau rytmann og

er stuttu myndskeiði, þar sem parið

sést leika badminton, skotið inn eins

og til að undirstrika leikinn í sam-

skiptum þeirra. Verkið miðlar brota-

kenndri frásögn úr hversdagslífinu

en þar lýkur jafnframt öllum aug-

ljósum skírskotunum í veruleikann á

sýningu Eyglóar og við tekur óviss-

an. Listamaðurinn býður upp í dans

og merkingarspuna þar sem sýning-

argesturinn verður að virkja ímynd-

unarafl sitt og skynræna álykt-

unarhæfni til að vinna úr því sem

fyrir augu og eyru ber ? og hverfa

jafnframt inn á við líkt og í leiðslu.

Sýningin í heild einkennist af rofi

rökrænnar tjáningar og skynjunar

líkt og sést í skjáverkinu þar sem

stutt myndskeið eru jafnóðum fleyg-

uð af öðrum eins og verið sé að byrja

upp á nýtt í sífellu, ef til vill í sam-

ræmi við reynslu listamannsins sem

lætur hugann reika í sumarhitanum:

leikur parsins vekur athygli en hug-

urinn hvarflar um stund annað eða

augun að öðrum stað og beinast svo

aftur að parinu o.s.frv. Verkið lýsir

þannig ekki síst huglægu ástandi

listamannsins.

Auk tveggja skjáverka sýnir

Eygló málverk á pappír, teikningar

og þrívíð verk. Síðasttöldu verkin

liggja ýmist á gólfi safnsins eða eru

fest beint á veggina eins og í miðju

vinnuferli og vitnar það um að sköp-

unarferlinu sé ólokið ? í raun byrjar

það upp á nýtt með hverjum sýning-

argesti. Vinnubrögðin eru til-

raunakennd og í þeim birtist áhersla

á hið ósjálfráða (eitt verkanna er að

sögn unnið undir dáleiðslu) og hið

tilviljunarkennda, en af þeim sökum

kunna verkin að virðast viðvanings-

leg. Hér er hins vegar um vísvitað

vinnulag að ræða og verkin eru að

þessu leyti hugmyndafræðilega ?út-

hugsuð? (þótt það kunni að virðast í

mótsögn við hina ósjálfráðu sköpun),

þau eru unnin af næmi og í þeim

birtist fínlegt flæði.

Framsetningin í þessum inn-

hverfu verkum er naum en dálítið

flókin og því fremur óaðgengileg.

Geómetrísk formin í mörgum verk-

anna minna á grunnteikningar húsa

og þá helst völundarhúsa sem undir-

strikar stöðu hins ?týnda? sýning-

argests. Síendurtekið fótatak þess

sem gengur um í óræðu, bleiku neð-

anjarðarrými í skjáverki á efri hæð-

inni, endurómar ferð aðkomumanns-

ins sem leitast við að fóta sig í rými

sýningarinnar en einnig listamanns-

ins sem fetar sig leiðslukennt í heimi

skynvídda.

Sýningin fjallar um skynviðbrögð

okkar ? ?meðfædd? eða lærð kyn-

slóð fram af kynslóð. Eitt verkanna í

Gryfjunni (á neðri hæð safnsins)

sýnir til dæmis hvar listamaðurinn

hefur byrjað að teikna lauslega og

eftir (skyn)minni það sem líkist út-

línum bygginga sem kallast á við

klipptar og óreglulegar útlínur

pappírsarkarinnar. Hringformið er

endurtekið á myndfletinum sem og

málað blátt form. Ósjálfráð viðbrögð

eru að ímynda sér hið þekkjanlega:

sól, haf og hús sem ber við himin.

Annars staðar er geómetrísk skissa

af niðurhólfuðu rými skorin ofan í

mynd sem sýnir hár á líkama. Hér er

vísað til þess hvernig líkaminn nem-

ur skynreynslu eftir ákveðnum boð-

leiðum, flokkar hana og varðveitir í

minnishólfum heilans.

Í íslömskum trúarbrögðum segir

eitthvað á þá leið að ekkert sé full-

komið nema Allah og á einblöðungi

kemur fram að Eygló vann verkin

m.a. undir áhrifum frá íslamskri list

þar sem hið óhlutbundna er í fyr-

irrúmi. Verkin hennar eru sum hver

á mörkum hins óhlutbundna auk

þess sem þau eru efnislega eins og

tillögur að verkum ? andstætt hug-

myndinni um hið ?fullgerða? verk. Í

þeim eru jafnframt fólgin drög að

merkingarsambandi sem byggir

fyrst og fremst á völundarhúsi skyn-

hrifanna.

Drög að merkingarsambandi

Morgunblaðið/Júlíus

ASÍ Auk tveggja skjáverka eru málverk á pappír, teikningar og þrívíð verk. 

MYNDLIST

Listasafn ASÍ ? Ásmundarsalur

og Gryfja

Til 25. febrúar 2007

Opið þri. til su. kl. 13?17. Aðgangur

ókeypis.

Leiðsla ? Eygló Harðardóttir

Anna Jóa

SÆNSKA sjónvarpið vill fá Eirík

Hauksson áfram í pallborðsumræð-

urnar í hinum vinsæla þætti Inför

E.S.C. ?Við viljum endilega fá hann

með, það gefur þættinum bara aukið

gildi að hafa einn þátttakanda með

sem er jafnframt keppandi. Þetta er

bara leikur og engar strangar reglur

í gildi,? sagði Meta Bergqvist, fram-

leiðandi þáttanna, í samtali við

Fréttavef Morgunblaðsins í gær.

Bergqvist sagði að það væri undir

RÚV komið hver tæki þátt í Inför

Eurovision Song Contest (sem

myndi útleggjast sem Undanfari

Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-

stöðva) fyrir Íslands hönd og hjá

RÚV fengust þau svör að Eiríkur

Hauksson yrði að öllum líkindum

okkar fulltrúi í þáttunum. Eiríkur

sjálfur sagðist vera á báðum áttum.

?Það verður fundur um þetta í RÚV

innan tíðar og þá verður tekin

ákvörðun í málinu,? sagði Eiríkur

Hauksson. Hann sagðist vera svolít-

ið hræddur við að geta ekki beitt sér

fyllilega í þáttunum þar sem hann

væri að dæma fólk sem hann færi

síðan að keppa við í Helsinki. ?Það

sem er gaman við þessa þætti fyrir

mig er að geta verið með glens og

grín og kannski gefið svolítinn skít í

einhverja og hyllt aðra,? sagði Eirík-

ur. ?Það verður svo hjákátlegt ef ég

gef einhverju lagi núll stig sem fer

áfram en ég sjálfur ekki.?

Eiríkur Hauks 

á báðum áttum

Eiríkur Hauksson

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52