Morgunblaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.03.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Logi Gunn-arsson átti stórleik með finnska liðinu ToPo Helsinki þegar liðið burst- aði toppliðið Jo- ensuun Kataja, 100:60, í finnsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Logi skoraði 30 stig í leiknum, hitti úr 8 af 14 þriggja stiga skotum sínum og tók að auki fjögur fráköst. ToPo er í fjórða sæti deildarinar með 50 stig en Jo- ensuu er efst með 66 stig.    Veigar Páll Gunnarsson tryggðinorska liðinu Stabæk sigur á sænska liðinu Öster í æfingaleik sem háður var í Tyrklandi. Veigar Páll skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 88. mínútu leiksins.    Barcelona hef-ur að sögn hollenska sjón- varpsins fengið leyfi hjá Chelsea til að ræða við hollenska kant- manninn Arjen Robben. Félögin neita því að ein- hvers konar samkomulag hafi verið gert en sagt er að Chelsea vilji fá 16 milljónir punda, ríflega 2 millj- arða íslenskra króna, fyrir Robben, sem er samningsbundinn Eng- landsmeisturunum til 2009.    Thomas Mogensen, leikstjórn-andi danska handknattleiks- liðsins GOG, hefur gengið frá samningi við þýska liðið Flensburg og gengur hann í raðir liðsins í sumar. Mogensen, sem er 24 ára, gerði þriggja ára samning við Flensburg sem hefur í gegnum tíð- ina haft marga danska handknatt- leiksmenn í sínum röðum. Mogen- sen leysir landa sinn Joakhim Boldsen af hólmi hjá Flensburg en hann flytur sig heim yfir landa- mærin við lok leiktíðarinnar í Þýskalandi í sumar. Boldsen er slitinn og hefur í hyggju að rifa seglin á heimavelli.    Snorri Steinn Guðjónsson muntaka við hlutverki Mogensens hjá GOG en hann og félagi hans í íslenska landsliðinu, Ásgeir Örn Hallgrímsson, gengu nýverið frá tveggja ára samningi við Fjón- arliðið.    Spænski landsliðsmaðurinn JuanCarlos Valeron þarf að gang- ast undir aðgerð á hné í þriðja sinn. Valeron hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða og ríkir óvissa um framtíð hans sem atvinnu- manns. Rúmt ár er liðið frá því hann fór í aðgerð vegna kross- bandsslits í hné, hann sneri til baka hálfu ári síðar en meiddist aftur og hefur síðan verið í basli með að fá sig góðan af þeim meiðslum. Fólk folk@mbl.is Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Grindavík vann þar með rimmuna, 2:1, í átta lið úrslitum og mætir grannaliðinu Njarðvík í undanúrslit- um en allir leikirnir í þessari við- ureign unnust á útivelli. Það var greinilegt frá upphafs- mínútum leiksins að Grindvíkingar voru léttir, hressir og kátir. Skot þeirra fóru flest ofan í og Jonathan Griffin, bandarískur leikmaður í liði Grindavíkur, fór á kostum í fyrri hálfleik þar sem hann skoraði 16 stig og alls 28 stig í leiknum. „Hann naut þess bara að ég var í svo strangri gæslu og það var enginn að dekka hann,“ sagði Páll Axel og hló þegar hann var spurður að því hvort Griff- in væri ekki frábær leikmaður. Gott svar frá fyrirliðanum og greinilegt að menn þar á bæ taka sig ekki of al- varlega. „Við erum með gott lið og það vita allir hvað þarf að gera til þess að ná árangri. Ég hlakka til þess að mæta Njarðvík í næstu um- ferð og þar getum við haldið áfram að skemmta okkur,“ sagði Páll Axel sem skoraði 15 stig í leiknum. Hlut- verk hans hefur breyst í undanförn- um leikjum þar sem hann þarf að leika meira undir körfunni í stöðu kraftframherja. „Ekkert vandamál þar á ferðinni. Þetta eru allt stöður sem ég hef leikið áður og við sköpum andstæðingum okkar ný vandamál með þessari leikaðferð.“ Allt á suðupunkti Leikurinn í Borgarnesi var góð skemmtun þar sem að heimamenn náðu að minnka munin í 1 stig um miðjan 4. leikhluta, 72:71, en Grinda- vík náði mest 22 stiga forskoti í fyrri hálfleik. Allt var á suðupunkti í „Fjósinu“ á þeim tímapunkti en þriggja stiga karfa frá Páli Axel Vil- bergssyni þaggaði niður í stuðnings- mönnum Skallagríms um stund, 79:73, og aðeins um 3 mínútur eftir af leiknum. Valur var ósáttur Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, var afar ósáttur við hve sjaldan Darrell Flake, miðherji liðs- ins, fékk að fara á vítalínuna í leikn- um. „Svei mér þá, ég held að það sé alltaf verið að breyta þessum bless- uðu reglum í körfuboltanum. Ég hélt að svona varnarleikur væri bannað- ur en það virðist ekki vera,“ sagði þjálfarinn en hann var reiðubúinn að lesa íslenskum dómurum pistilinn skömmu eftir leikinn. „Ætli ég láti það ekki bíða betri tíma en það getur verið erfitt að vera „litla“ lands- byggðarliðið í svona leikjum. Ég hef kynnst því frá fleiri hliðum.“ Skallagrímsmenn reyndu allt hvað þeir gátu á lokamínútum leiks- ins að komast yfir en það gekk fátt upp í sóknarleiknum. Jovan Zdra- vevski náði sér ekki á strik í sókn- inni og munar um minna í slíkum leik. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, brosti breitt í leikslok. „Ég held að þetta geti varla verið betra. Að vinna Skallagrím tvívegis í röð á útivelli í úrslitakeppninni. Það er ekkert leyndarmál að okkar markmið er að vinna Íslandsmeist- aratitilinn. Til þess þurfum við að byrja á því að vinna Njarðvík í und- anúrslitunum og miðað við leikina tvo sem við höfum leikið gegn þeim í vetur verða þetta spennandi viður- eignir. Eina vandamálið er að það eru þrjú önnur lið sem ætla sér einn- ig að vinna titilinn en ég er sann- færður um að við getum farið alla leið,“ sagði Friðrik. Hann tók við þjálfun Grindvíkurliðsins með skömmum fyrirvara sl. haust eftir að nafni hans Friðrik Ingi Rúnarsson tók við starfi framkvæmdastjóra körfuknattleikssambandsins. Friðrik tók þá umdeildu ákvörðun fyrir nokkrum vikum að láta banda- ríska/portúgalska miðherjann Calv- in Clemmons fara frá liðinu og töldu margir að það væri galin hugmynd að fara í úrslitakeppnina án hans. „Já, ég tók áhættuna. Satt best að segja þá hefur andrúmsloftið í her- búðum liðsins lagast heilmikið eftir þessa breytingu. Leikmaðurinn var hérna á Íslandi á allt öðrum forsend- um en við höfðum gert ráð fyrir. Þetta gekk ekki upp og við getum al- veg sagt það að liðið hafi haft gott af þessari breytingu,“ bætti Friðrik við. Grindvíkingar eru léttir, kátir og hressir Ljósmynd/Svanur Steinarsson Sigurgleði Grindvíkingar voru að vonum ofsakátir þegar þeir fögnuðu sigrinum á Skallagrími í búningsklefanum eftir leikinn í Borgarnesi. „ÉG hélt fyrir nokkrum vikum að við værum komnir ofan í vaskinn og það ætti bara eftir að taka tapp- ann úr og skola okkur niður. Það breyttist síðan allt til hins betra hjá okkur. Léttleikinn og gleðin hefur verið okkar aðalsmerki að und- anförnu og ég ætla að fara inn í klefa á eftir og ræða við strákana og spyrja þá hvort við ætlum okkur ekki að fara alla leið. Ég veit hvert svarið verður,“ sagði Páll Axel Vil- bergsson, fyrirliði Grindavíkur, eft- ir 97:81 sigur liðsins gegn Skalla- grím í Borgarnesi í gær. Í HNOTSKURN »Skallagrímur lék í fyrstasinn til úrslita um Íslands- meistaratitilinn í fyrra gegn Njarðvík. Þar hafði Njarðvík betur. »Grindvíkingar hittu úr 10af 17 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og vítanýting liðsins var 81%. »Borgnesingar hittu aðeinsúr 7 af alls 28 þriggja stiga skotum sínum. „ÉG held að við getum sjálfum okkur um kennt hvernig fór. Í upphafi leiks voru Grindvíkingar sterkari en við og það tók ein- faldlega of mikla orku að vinna upp 20 stiga forskot þeirra. Ég hef aldrei kvartað yfir dómgæslu og ætla ekki að fara að byrja á því núna. Það er óvíst hvað tekur við hjá mér núna en ég hef áhuga á því að leika áfram á Íslandi og sækja um ríkisborgararétt,“ sagði Darrell Flake, miðherji Skallagríms, en þetta er þriðja tímabil hans á Íslandi. Hann lék með KR 2002–2003 og með Fjölni í fyrra. „Íslenska deildin er sterk og sá leikstíll sem íslensk lið leggja áherslu á hentar mér mjög vel. En það er ekkert ákveðið um framtíð mína og ég þarf að ræða við fjölskylduna um framhaldið,“ sagði Darrell Flake en hann skoraði 31 stig í gær. Flake vill vera áfram Darrell Flake EIÐUR Smári Guðjohnsen er þriðji marka- hæsti leikmaður Barcelona á leiktíðinni en hann hefur skorað 11 mörk fyrir liðið í öll- um keppnum þess á tímabilinu. Fjórtán leikmenn hafa skipt mörkunum 90, sem lið- ið hefur skorað, á milli sín en í fyrra, þegar liðið hampaði bæði Spánar- og Evr- ópumeistaratitlinum, setti liðið félagsmet þegar 16 leikmenn skoruðu mörk liðsins. Það met gæti fallið í ár því Barcelona á eftir að spila 11 leiki í deildinni og í það minnsta tvo bikarleiki. Markaskorarar Barcelona á tímabilinu eru: Ro- naldinho (20), Javier Saviola (12), Eiður Smári (11), Samuel Eto’o (8), Lionel Messi (8), Andres Iniesta (7), Deco (6), Ludo- vic Giuly (6), Xavi Hernandez (5), Rafael Margquez (2), Santi Ezquerro (2) og aðrir færri. Þriðji á markalista Eiður Smári VALUR Orri Valsson, 12 ára nemi úr Borgarnesi, átti tilþrif gærkvöldsins í oddaleik Skallagríms og Grindavíkur. Valur fékk að spreyta sig í þriggja stiga skoti og í boði var ferð til Evrópu fyrir tvo með Iceland Express. Valur, sem er örv- hentur, skaut laglega í spjaldið og boltinn fór ofan í við mik- inn fögnuð áhorfenda. Skotið var á milli 3. og 4. leikhluta og annar þjálfarinn í leiknum í gær tók sér smátíma til þess að fylgjast með skotinu hjá drengnum. Það var Valur Ingi- mundarson, þjálfari Skallagríms, enda er Valur Orri sonur Vals. Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggðar, fékk einnig tækifæri á að skora frá miðju en skotið var allt of stutt. Fyrir leikinn fékk Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grinda- víkur, afhenta bók frá stuðningsmönnum Skallagríms. Bókin ber nafnið Hraustar kýr og tók Friðrik við bókinni með bros á vör enda er heimavöllur Skallagríms kallaður „fjósið“. Spjaldið og ofan í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.