Morgunblaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 36
Starfsstúlkan bauð mig „hjartanlega vel- kominn“ í gegnum stálgráan talstaurinn … 40 » reykjavíkreykjavík Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgis@mbl.is FERTUGSAFMÆLI Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar er að renna upp, hann verður fertugur á næsta ári. Hann á inni eina góða veislu og ákveður að halda upp á afmælið með glæsibrag en um leið að koma fram hefndum vegna Baugs- málsins og þá fyrst og fremst á Davíð Oddssyni. Til þess leitar hann til Kára Stefánssonar og bið- ur hann um greiða,“ segir Óttar M. Norðfjörð um nýjustu bók sína, Jón Ásgeir og afmælisveislan, sem er teiknimyndasaga með klippimyndaívafi. Óttar á að baki fjórar ljóðabækur og skáldsögu og gaf út tveggja blaðsíðna ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, Hannes – nóttin er blá. Tvö bindi eru enn óútgefin um ævi Hannesar, í anda ritraðar Hannesar um Halldór Laxness. „Síðan býður hann frægu fólki, Tom Cruise og Brad Pitt meðal annars, og líka Davíð Oddssyni og Gísla Marteini, Sigurði Kára og fleirum, með ákveðinn hrekk í huga,“ heldur Óttar áfram. Dav- íð og félagar ákveði að mæta í veisluna með það í huga að eyðileggja hana. Því verði mikið loka- uppgjör í veislunni með óvæntum endi. Óttar seg- ir Jón Ásgeir nú þurfa að feta í fótspor stórlaxa á borð við Hannes Smárason og Björgólf Thor Björgólfsson með því að halda alvöru veislu. „Þar hafa verið Elton John og 50 Cent og aðrir miklir skemmtikraftar. Hann fær því Michael Jackson til að spila hjá sér. En svo þarf að vera loka- atriði,“ segir Óttar. Þar komi Davíð Oddsson við sögu í mikilli hefnd Jóns Ásgeirs. Baugsmálið sé í raun gert upp í afmælisveislunni. Baugsmálið í anda Shakespeares „Maður náttúrlega spyr sig hvaða áhrif þetta mál hefur haft á þessa grey menn, á sálina og lík- amann, svefninn. Maður hefur það á tilfinning- unni að þessu sé ekkert lokið,“ segir Óttar alvar- legur. Tvær sögur hafi verið sagðar af Baugsmálinu undanfarin ár, önnur sé hin form- lega fréttasaga en hin „Séð og heyrt-sagan“. Í þeirri síðarnefndu sé fjallað um að Jón Ásgeir hafi gert sér dælt við eiginkonu Jóns Geralds, snekkjur og ýmislegt fleira sápuóperulegt. Sú saga sé í anda Shakespeares, sögur sagðar af valdablokkum, deilandi fjölskyldum, kóngum og prinsum. Í bókinni er Kári Stefánsson orðinn brjálaður vísindamaður sem býr til klón daginn út og inn, hefur m.a. breytt þingmanni Frjálslynda flokks- ins, Magnúsi Þór Hafsteinssyni, í Pólverja. Í haust kemur út önnur skáldsaga Óttars, Hnífur Abrahams, sem Óttar segir „rosalega“. Abraham sé í raun faðir íslam, gyðingatrúar og kristni. „Ég fór að lesa mér til um Abraham og komst að skemmtilegu leyndarmáli um hann og syni hans tvo, sem er raunverulegt, trúarlegt fyr- irbæri sem múslímar trúa en er í raun haldið leyndu fyrir kristnum mönnum og gyðingum,“ segir Óttar. Þetta leyndarmál sé eiginlega hálf- gert áfall fyrir kristna og gyðinga. Óttar vill ekki greina blaðamanni frá leyndarmálinu, en segir bókina í „DaVinci“-stíl, vísar þar til DaVinci- lykilsins. Morgunblaðið/G.Rúnar Satíra Brad Pitt og Angelina Jolie eru á meðal þeirra sem koma við sögu í nýrri bók Óttars M. Norðfjörð rithöfundar og skálds. „Jón Ásgeir hefnir sín“ Þá áttu U2-liðar lög í Mission Impossible og James Bond- myndinni Goldeneye þannig að þetta kemur í raun alls ekkert á óvart eftir allt saman. En samt … Það er Julie Taymor Tony- verðlaunahafi sem mun leikstýra söngleiknum um ofurhetjuna og þeir Bono og Edge sjá um alla tón- list og texta. „In the name of … Spi- derman“ kyrjar Bono þá líklega í sturtunni núna og spennandi verð- ur að heyra hvurs lags hljómavef þeir fóstbræður galdra fram fyrir Lóa gamla. Upphafið að endalokunum gæti einhver sagt en þá hefur því verið haldið fram allt frá útgáfu Achtung Baby og samt eru þeir enn að. HIÐ mjög svo áreiðanlega tónlist- arfagrit Billboard greinir frá því að Bono og The Edge, sem mynda öx- ulinn í írsku hljómsveitinni U2, vinni nú saman að tónlist fyrir söngleikinn Spider-Man: The Broadway Musical, eins og hann nefnist upp á ensku. Bono hefur lýst því yfir að í framtíðinni muni hann og Edge ábyggilega vinna meira saman en efni af þessu tagi kemur eflaust mörgum í nokkuð opna skjöldu, hljómar eiginlega hálffáránlega. Og þó. Félagarnir hafa lagt annarri of- urhetju lið, þegar þeir sömdu að- allagið fyrir Batman Forever- myndina („Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me“) árið 1995. Söngleikjaefni Kóngulóarmað- urinn í kröppum dansi ... og söng. Reuters Klikkaðir? Þeir félagar Bono og The Edge á tónleikum í Melbourne á Ástr- alíu. Þeir hyggjast nú reyna fyrir sér á söngleikjasviðinu. Bono og The Edge semja tónlist fyrir söngleik  Davíð Þór Jónsson, spurn- ingasmiður, skemmtikraftur og bloggari, situr að eigin sögn þessa dagana og þýðir kvikmynd- ina um Simpson- fjölskylduna „í óþökk allra að því er virðist.“ Hann skrifar meðal annars á bloggsíðu sinni: „Það er eins og það sé almenn stemning fyrir því í þjóð- félaginu að það sé beinlíns skaðlegt fyrir tungu okkar og menningu að þetta efni sé til á móðurmáli okk- ar.“ Davíð Þór furðar sig á við- brögðum fólks sem telur sjálfsagt að verk á borð við Hringadrótt- inssögu séu til á íslensku en ekki megi hrófla við handriti um góð- kunningjana frá Springfield, sem ber hið fallega heiti Lindarhagi í þýðingu Davíðs Þórs. „Einu sinni þótti það eftirsókn- arvert að sem flestar perlur heims- bókmenntanna væru til í íslenskri þýðingu. Einhvern tímann gerðist það hins vegar að þýðendur urðu í huga þjóðarinnar að menningar- legum skemmdarvörgum. Nú virð- ist það vera þannig að helstu perl- urnar eigi ekki að menga með því að snara þeim á fjósamannatung- una sem við tölum.“ Davíð Þór endar svo færsluna á orðunum: „Það er í lagi að snara drasli eins og Faðirvorinu en að snerta gullkorn á borð við „D-oh!“ og „Hi-diddly-ho!“ er hins vegar sakkrílids.“ Já, það er sannarlega vandlifað. Hi-diddly-ho! Davíð Þór Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.