Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 3
r
ta
y en
son
s
í
eik-
að
m til
frá
ik-
ers
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 3
Stefán Þ. Þórð-arson skor-
aði fyrra mark
Norrköping sem
vann Sylvia, 2:1, í
nágrannaslag í
sænsku 1. deild-
inni í knattspyrnu
í gær. Stefán kom
inn í liðið á ný eft-
ir tveggja leikja bann. Garðar Gunn-
laugsson lék líka með Norrköping en
fór af velli á 51. mínútu. Lið þeirra
trónir á toppnum eftir þennan sigur
með 10 stig að fjórum leikjum lokn-
um.
Deco, miðjumaður Barcelona,verður ekki með liðinu næstu
tvær vikurnar en hann tognaði lít-
illega á ökkla á æfingu í gær. Hann
mun því væntanlega missa af leikjum
Börsunga við Real Sociedad og Real
Betis og síðari undanúrslitaleiknum í
spænska bikarnum þar sem Barce-
lona mætir Getafe.
Arnar Darri Pétursson, mark-vörður úr Stjörnunni, hefur ver-
ið kallaður inn í íslenska drengja-
landsliðshópinn sem tekur þátt í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Belg-
íu þessa dagana. Hann kemur í stað-
inn fyrir Trausta Sigurbjörnsson
sem meiddist á höfði á upphafsmín-
útunum í leik Íslands og Englands í
fyrradag og þarf að taka sér hvíld í 7-
10 daga af þeim sökum. Arnar fer ut-
an í dag og verður í hópnum þegar Ís-
land mætir Hollandi í kvöld.
Ívar Ingimars-son og Brynjar
Björn Gunn-
arsson, landsliðs-
menn í knatt-
spyrnu, fara til
Suður-Kóreu með
liði sínu, Reading
í sumar. Reading
hefur staðfest
þátttöku sína í Friðarbikarnum sem
leikinn er þar í landi 12.-21. júlí en þar
keppa átta lið úr minnst þremur
heimsálfum. Ívar og Brynjar verða
líka á ferð og flugi í næstu viku en lið
Reading fer til Spánar á sunnudags-
morguninn og verður þar í æf-
ingabúðum í fjóra daga.
Hermann Albertsson, knatt-spyrnumaður frá Dalvík, er
genginn til liðs við úrvalsdeildarlið
Víkings í Reykjavík en hann hefur
leikið með FH undanfarin ár. Eins og
áður hefur komið fram kaupa Vík-
ingar upp samning hans við FH sem
gilti út þetta ár. Hermann, sem er 23
ára, leikur væntanlega vinstra megin
á miðjunni hjá Víkingum í stað Harð-
ar Bjarnasonar sem sleit krossband í
hné á dögunum.
Spænska knattspyrnusambandiðhefur fellt niður gult spjald sem
David Beckham fékk í leik með Real
Madrid gegn Athletic Bilbao um síð-
ustu helgi. Hann sleppur því við að
taka út leikbann þegar Real mætir
Sevilla í stórleik spænsku 1. deild-
arinnar á sunnudaginn.
Fólk sport@mbl.is
Liðin höfðu sigrað hvort annað til
skiptis á útivöllum í fjórum viðureign-
um þeirra í vetur en HK náði að
brjóta ísinn á sínum heimavelli.
Leikurinn var í járnum lengi vel og
liðin skiptust á um að hafa forystuna.
Stjarnan var yfir í hálfleik, 11:9, og
hafði undirtökin fram í miðjan síðari
hálfleik. Þá tóku Kópavogsbúar völd-
in, með grimmum varnarleik og hröð-
um sóknarleik þar sem Litháarnir
Augustas Strazdas og Tomas Eitutis
voru í aðalhlutverkum skoruðu þeir
fimm mörk í röð og komust í 23:18.
Það var forskot sem Garðbæingarnir
réðu ekki við. Þeir eygðu smá von
þegar þeir minnkuðu muninn í 27:24
þegar hálf þriðja mínúta var eftir en
HK-ingar svöruðu að bragði og sigur
þeirra var ekki í hættu á lokamínút-
unum.
Þeir Strazdas og Eitutis skoruðu
alls 17 mörk fyrir HK og Strazdas fór
á kostum í seinni hálfleiknum þegar
hann gerði 7 mörk af ýmsum gerðum.
Auk þeirra var Ragnar Hjaltested
drjúgur og Egedijus Petkevicius
varði vel, m.a. tvö vítaköst.
Patrekur Jóhannesson var í aðal-
hlutverki hjá Garðbæingum lengi vel
og skoraði 6 mörk í fyrri hálfleiknum.
David Kekelia og Björn Óli Guð-
mundsson báru síðan að mestu uppi
leik liðsins í síðari hálfleiknum.
Brynjar Valsteinsson, horna-
maður HK, er líklega með brotinn
úlnlið en hann lenti illa seint í leiknum
og var fluttur beint á slysadeildina.
HK með góða stöðu
Kópavogsliðið lagði Stjörnuna að velli, 29:26, og getur tryggt sér deildabikarinn
í Garðabæ á morgun. Litháarnir fóru á kostum í liði HK í seinni hálfleiknum
HK-INGAR náðu loksins að bera
sigurorð af Stjörnunni á heimavelli
sínum í Digranesinu á þessu keppn-
istímabili þegar þeir lögðu Garða-
bæjarliðið að velli, 29:26, í fyrsta
úrslitaleik liðanna í deildabikar
karla í handknattleik í gærkvöldi.
HK stendur því vel í einvíginu og
getur tryggt sér deildabikarinn
þegar liðin mætast aftur í Garðabæ
á morgun. Jafni Stjarnan metin þar
verður oddaleikur í Digranesi
næsta miðvikudagskvöld.
Morgunblaðið/Kristinn
Bestur Augustas Strazdas átti stórleik með HK gegn Stjörnunni í gærkvöld og skoraði 9 mörk. Hér brýst hann í
gegnum vörn Stjörnunnar einu sinni sem oftar en Tite Kalandadze reynir að halda aftur af honum.
FORSVARSMENN grænlenska
handknattleikssambandsins eru
bjartsýnir á að halda sæti sínu
inn Handknattleikssambands
Ameríkuríkja, PATHF. Hópur
þjóða innan þess vill vísa Græn-
lendingum úr sambandinu og
segir þá eiga meiri samleið með
Evórpuþjóðum.
Meðal annars var landsliði
Grænlendinga, skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri meinuð
þátttaka í undankeppni HM í
þessum aldursflokki í Argentínu í
síðasta mánuði.
Á þingi Alþjóða handknatt-
leikssambandins (IHF) í Madrid
um síðustu helgi fundu Græn-
lendingar fyrir stuðningi við sinn
málstað innan stjórnar IHF.
Sáttafundur á milli Grænlend-
inga og „óvinaþjóðanna“ bar hins
vegar ekki árangur. Til þess að
fá í málinu skorið hefur græn-
lenska handknattleikssambandið
kært forsvarsmenn PATHF til
laga- og reglugerðanefndar IHF,
þar sem þess er krafist að Græn-
land verði hér eftir sem hingað til
fullgildur meðlimur PATHF.
Talsmaður grænlenska hand-
knattleikssambandsins, Carl Joh-
an Colberg, segist á heimasíðu
sambandsins vera bjartsýnn á
fullan stuðning IHF í málinu og
að þjóðin haldi sinni stöðu inn
PATHF.
Helstu andstæðingar Græn-
lendinga innan PATHF eru
Bandaríkin, Kanada, Chile og
Paragvæ, en þessar þjóðir hafa á
síðustu árum orðið að láta í minni
pokann fyrir Grænlendingum í
undankeppni HM og horft á þá
leika meðal hinna stóru.
Grænlendingar eru vongóðir
TERRY Brown, fyrrum stjórn-
arformaður enska knattspyrnufélags-
ins West Ham, forveri Eggerts Magn-
ússonar í því starfi, hefur hótað að
lögsækja félagið í kjölfar þess að núver-
andi stjórn West Ham rifti starfsloka-
samningi við hann. Þetta sagði Mihir
Bose, íþróttaritstjóri BBC, í íþrótta-
þætti á stöðinni í gær.
„Þetta er í framhaldi af sektinni sem
West Ham hlaut vegna þess hvernig
staðið var að kaupunum á Carlos Tévez
og Javier Mascherano. Stjórn West
Ham telur Brown ábyrgan fyrir því
sem gerðist og telur að hann hafi
brugðist trausti sem stjórnarformaður.
Samkvæmt samningnum átti hann að fá
1,5 milljónir punda til 31. maí 2009 og
naut ýmiss konar forréttinda, auk þess
að vera áfram varaforseti félagsins. Því
hefur öllu verið rift, hann er bálreiður
og hótar lögsókn,“ sagði Bose.
Terry Brown var stjórnarformaður
West Ham í 14 ár og jafnframt stór
hluthafi í félaginu en við söluna á félag-
inu fékk hann 30 milljónir punda, um
3,8 milljarða króna, í sinn hlut. Með
skuldum nam heildarkaupverðið 85
milljónum punda, eða 11,4 milljörðum
króna.
Forveri Eggerts hótar kæru
örk-
lf-
ona-
n
að
lið-
ni
sæti
il
,
aði í
i-
n af
kk
von-
þeir
p-
:1,
n
undanfarin þrjú
ár verið aðalþjálf-
ari meistara-
flokksins. Þetta
er mitt félag og
ég hef átt gott
samstarf við þá
sem standa að
starfinu hjá
Njarðvík. Mér
fannst þetta vera
rétti tíminn til
þess að gera breytingar,“ sagði Ein-
ar.
Undir hans stjórn varð Njarðvík
Íslandsmeistari vorið 2006, bikar-
meistari árið 2005 og Njarðvík sigr-
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Það eru ýmsar ástæður fyrir upp-
sögninni en ný stjórn félagsins hafði
rætt við mig og lagt hart að mér að
halda áfram störfum. Ég er búinn
að þjálfa hjá Njarðvík í 14 ár og
aði í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ ár-
ið 2006. Hann var kjörinn þjálfari
tímabilsins 2006–2007 á lokahófi
KKÍ á dögunum.
„Það eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni sem ég mun velta fyrir mér á
næstu vikum. Ég hef áhuga á því að
þjálfa áfram en hvar það verður er
óljóst,“ sagði Einar en hann vildi
þakka stjórnarmönnum félagsins
fyrir frábært starf á undanförnum
árum.
Miklar breytingar verða á leik-
mannahópi Njarðvíkinga fyrir
næsta tímabil en liðið varð deild-
armeistari en tapaði í úrslitum gegn
KR. Bandaríski leikmaðurinn Jeb
Ivey ætlar að reyna fyrir sér á meg-
inlandi Evrópu. Ragnar Ragnarsson
og Halldór Karlsson eru hættir að
leika með liðinu og ekki ólíklegt að
Egill Jónasson skoði hvort hann
komist að hjá erlendu liði. Samn-
ingur Igors Beljanskis rann út í vor
en Valþór Söring, fráfarandi for-
maður körfuknattleiksdeildarinnar,
segir að hann eigi von á að Friðrik
Stefánsson og Brenton Birmingham
leiki áfram með liðinu. „Uppsögn
Einars kom okkur á óvart en við
virðum ákvörðun hans. Það eru ekki
margir þjálfarar á lausu hérna á Ís-
landi og ekki ólíklegt að ný stjórn
félagsins leiti að þjálfara erlendis.“
NJARÐVÍKINGAR leita nú að nýj-
um þjálfara fyrir úrvalsdeildarlið
sitt í körfuknattleik eftir að Einar
Árni Jóhannsson sagði upp störfum
í gær. Einar átti eitt ár eftir af
samningi sínum en hann ákvað að
nýta sér uppsagnarákvæði í samn-
ingnum.
Einar Árni
Jóhannsson
Einar Árni hættur hjá Njarðvík