Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 26
vistvænt 26 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Hver skyldi nú besti veitingastaður heims vera? Það er spurning sem maður heyrir oft og á hverju ári reynir tímaritið Restaurant Magaz- ine að svara henni með því að leita til rúmlega 600 einstaklinga um all- an heim er á einhvern hátt tengjast veitingahúsum og rekstri þeirra. Þar sem undirritaður hefur verið í þeim hópi undanfarin ár sem fær að leggja sitt af mörkum í vali Res- taurant Magazine þykir mér rétt að gera aðeins grein fyrir nið- urstöðunum. Það kemur svo sem ekki á óvart að El Bulli, hinn margrómaði veit- ingastaður Spánverjans Ferran Adriá í smábænum Roses skammt frá Barcelona, skuli tróna á toppn- um. Hann gerir það yfirleitt í svona könnunum. Merkilegt nokk er þetta staður sem nánast allir hafa heyrt talað um en fæstir hafa borð- að á. Adriá hefur stað sinn einungis opinn frá byrjun apríl og út sept- ember. Þetta eru einungis 158 dag- ar og sætin á veitingastaðnum ein- ungis um 50, eða svona svipað og Holtið. Það blasir því við að færri komast að en vilja. Mun, mun færri. Það breytir hins vegar ekki því að allir tala um El Bulli og fáir kokkar hafa líklega meiri áhrif á starfsbræður sína en Adriá. Í öðru sæti er breski veitinga- staðurinn Fat Duck sem rekinn er af Heston Blumenthal í smábænum Bray. Annar lítill staður (40 sæti) og kokkurinn sjálflærður. Í því þriðja kemst París loks að með veitingastað Pierre Gagnaire, í því fjórða er kaliforníski staðurinn French Laundry og í fimmta hinn ástralski Tetsuya’s. Aðferð Restaurant Magazine við að velja staðina tryggir greinilega ákveðna breidd enda mega menn ekki velja staði úr eigin heimalandi og verða að hafa ákveðna land- fræðilega dreifingu á valinu. Ætli listinn myndi ekki líta dálítið öðru- vísi út ef t.d. hópur franskra sér- fræðinga myndi standa að honum? Það sem vekur kannski mesta athygli hjá okkur Íslendingum er að veitingahúsið Noma í Kaup- mannahöfn trónir efst á toppi nor- rænna veitingastaða, í fimmtánda sæti. Noma er til húsa í Nordatl- antens Brygge, í sama húsi og ís- lenska sendiráðið, og var opnað til að vekja athygli á vestnorrænu – þar með talið íslensku – hráefni. Matreiðslumeistarinn á Noma hef- ur sömuleiðis komið til Íslands til að taka þátt í hinni árlegu Food and Fun-hátíð. En þá að vínum vikunnar sem að þessu sinni koma öll frá Ítalíu, nán- ar tiltekið Sikiley. Eyjan sú hefur upp á margt að bjóða í vínum og loftslagið er allt að því nýjaheims- legt. Ekki síst eru það þrúgur Sik- ileyjar sem skapa vínunum sér- stöðu en jafnt rauða þrúgan Nero d’Avola sem fjölmargar yndislegar hvítar þrúgur eru jafngóðar og oft betri en þrúgur með frægari nöfn. Vínin frá Planeta eru ávallt traust og nýir árgangar eru komn- ir af grunnvíninu La Segreta, jafnt hinu rauða sem hvíta. Þetta eru forvitnilegar blöndur þar sem blandað er saman sikileyskum þrúgum og þekktustu þrúgum Frakklands. Planeta La Segreta Bianco 2005 er hvítvínið og þrúgurnar eru Grecanico (50%), Chardonnay, Fiano og Viognier. Í angan er sykraður sítrónubörkur og þrosk- aður banani, kíví, ferskjur og örlítil vanilla. Feitt og ferskt með góðri lengd og djúpum ávexti. 1.290 krónur. 88/100 La Segreta Rosso 2005 er ekki síðri þrúgukokkteill, Nero d’Avola, (50%), Shiraz og Cabernet Franc. Í nefi þroskuð rauð ber, kirsuber og rifsber, fremur kryddað, þurrt og milliþungt. 1.290 krónur. 86/100 Ný á markaðnum eru vín sem seld eru undir nafninu Emporio. Þessi vín eru framleidd í samstarfi sikileyska vínhússins Firriato (sem verið hefur á markaðnum hér um árabil) og fyrirtækisins Int- ernational Wine Services, sem undir stjórn Ástralans Kym Milne hefur tekið þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum víða um heim. Ágætt dæmi um svokallaða „fljúg- andi“ víngerðarmenn sem hafa verið svo áhrifamiklir í að hleypa nýju blóði í víngerð hér og þar. Hvítvínið Emporio Inzolia- Grecanico 2006 er skemmtilegt vín í stíl einhvers staðar á milli Evrópu og Nýja heimsins. Ferskju-, apríkósu- og kantalópu- angan. Millilengd, einfalt og milt, bragðgott og ljúft. 1.390 krónur. 87/100 Ilmur rauðvínsins Vinarte Emporio Rosso 2006 er einfaldur en ljúfur, þarna er plómu- og sveskjuávöxtur, fremur létt vín, sumarlegt og þægilegt. 1.390 krón- ur. 86/100 Og er þá ekki fínt að ljúka þessu með víni frá Firriato, nefnilega Santagostino 2003. Þetta er vín sem er einmitt skólabókardæmi um hvað það er sem gerir sikil- eysku vínin svo aðlaðandi og svo góð kaup. Þykkur, kryddaður og heitur ávöxtur. Sólber, rósir og vindlavafningur, mjúkt, feitt og kryddað með flottri uppbyggingu. Afskaplega þéttriðið í munni, tann- ískt og öflugt. Og allt þetta fyrir bara 1.890 krónur. 89/100 Bestu veitingahúsin og sikileysk vín Morgunblaðið/Ásdís Planeta La Segreta Bianco. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ásdís Planeta La Segreta Rosso 2005. Morgunblaðið/Ásdís Santagostino 2003 frá Firriato. Listi Tímaritið Restaurant Magazine hefur gefið út lista með bestu veitingahúsum heims. French Laundry í Kaliforníu lendir þar í fjórða sæti. Vinarte Emporio Rosso 2006. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Fátt hefur vakið meiri athygli í umhverf- isumræðunni undanfarna daga en opnun vefseturs Kolviðar þar sem einstaklingar og fyrirtæki hafa tækifæri til að kaupa „syndaaflausn“ vegna kolefnislosunar sinnar af völdum bíl- og flugferða. Synda- aflausnin er fólgin í því að borga fyrir plöntun nægilegs trjágróðurs til að binda samsvarandi magn kolefnis og losnar vegna ferða viðkomandi og er hægt að ganga frá þeirri greiðslu beint á síðunni. Greiðslan rennur í sjóð Kolviðar sem mun svo sjá um gróðursetningu trjánna. Kolviður er þó fjarri því að vera eina ís- lenska vefsíðan þar sem umhverfismál eru í forgrunni. Af öðrum nýjum síðum má nefna co2.is, loftslagssíðu á vegum Orku- seturs á Akureyri, þar sem sjá má hversu mikið kolvetni af völdum jarðefnaelds- neytis Íslendingar hafa losað út í and- rúmsloftið frá áramótum og hversu hratt sú tala stígur. Á síðunni er einnig fróð- leikur um umhverfismál og loftslagsbreyt- ingarnar sem þjóðir heims glíma nú við. Hvernig má minnka orkukostnaðinn? Orkusetur heldur einnig úti sinni eigin heimasíðu þar sem orkunotkun er í for- grunni. Þar er m.a. að finna orkuteljara sem sýnir notkun heits vatns, rafmagns og olíu á landinu. Gefin eru ítarleg ráð um orkusparnað, hvort sem um rafmagn, eldsneyti eða hita er að ræða. Þar er að finna forvitnilegar reiknivélar þar sem einstaklingar geta t.a.m. reiknað út kostn- að, mengun og/eða hugsanlegan sparnað sem hlýst af vali á samgöngumáta. Landvernd heldur úti vefsetri um nátt- úru- og umhverfismál og má sérstaklega benda á undirsíðu Vistverndar í verki. Þar er að finna fjölda ráða um hvernig ein- staklingar geta breytt háttum sínum á vistvæna vegu og þannig sýnt í verki vilja til að leggja sitt á vogarskálarnar til að draga úr gróðurhúsaáhrifunum. Staðardagskrá 21 er verkefni sem Sam- band íslenskra sveitarfélaga stendur að í samræmi við svokallaða Ríósamþykkt Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða áætlun um þau verk sem vinna þarf í hverju samfélagi um sig til að nálgast markmiðið um sjálfbæra þróun á 21. öld- inni. Staðardagskrá 21 heldur úti öflugri vefsíðu þar sem m.a. má finna Orð dags- ins sem eru daglegar fréttir af umhverf- ismálunum í heiminum auk ýmiss konar fróðleiks. Vefsetrið natturan.is er einkarekin „upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt“, eins og það er orðað á síðunni. Þar eru ekki bara fréttir og fræðslumolar um umhverfismál heldur einnig vefverslun með umhverfis- og heilsuvænar vörur. Akstur og sorphirða Þeim sem hafa hug á því að gera akstur sinn eins umhverfisvænan og kostur ers- kal bent á heimasíðu FÍB þar sem er að finna góð ráð er varða umhverfið og akst- ur undir flipanum „Upplýsingar“. Á heimasíðu Sorpu má finna gagnlegar upplýsingar um flokkun, endurvinnslu og fleira er lýtur að sorphirðu og umhverf- ismálum. Þá má benda á heimasíður Umhverf- isstofnunar og umhverfissviðs Reykjavík- ur þar sem finna má gagnlegar upplýs- ingar um umhverfismál. Ekki er um tæmandi lista að ræða enda margir sem halda úti öflugri umhverf- isumræðu þessa dagana. Ofangreint er þó ágætis byrjun fyrir þá sem þyrstir í frek- ari upplýsingar og/eða hafa hug á að bæta ráð sitt og gerast umhverfisvænni en áð- ur. Grænar síður www.kolvidur.is www.co2.is www.orkusetur.is www.landvernd.is/vistvernd www.samband.is/dagskra21 www.natturan.is www.fib.is/?ID=18&adalmenu=6 www.sorpa.is www.ust.is www.umhverfisstofa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.