Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 47 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30. Leikfimi kl. 8.30. Verslunarferð í Bónus kl. 10. Bingó kl. 14. Ferð til Siglufjarðar miðvikudaginn 13. júní kl. 8 frá Aflagranda 40. Síldarminjasafnið skoðað, einnig Siglufjarðarkirkja. Hádegisverður í Bíókaffi. Leiðsögumaður Hólmfríður Gísladóttir. Verð kr. 7.000. Árskógar 4 | Kl. 8.15-16 baðþjónusta, kl. 9-12 opin handavinnustofa, kl. 9-16.30 opin smíðastofa. Bingó fellur niður í júní. Bókasafn Seltjarnarness | Handverkssýning eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi er í Bókasafni Seltjarn- arness, Eiðistorgi, 2. hæð, 5.-9. júní. Sýningin er lið- ur í Menningarhátíð Seltjarnarness. Sýningin er opin fimmtudag og föstudag kl. 10-19 og laugardag kl. 10- 14. Bólstaðarhlíð 43 | Ferð að Skógum undir Eyjafjöll- um verður farin fimmtudaginn 21. júní kl. 12.30 frá Bólstaðarhlíð 43. Safnið verður skoðað og gengið um staðinn. Kaffihlaðborð í Drangshlíð undir Eyja- fjöllum. Skráning í síma 535 2760. Allir velkomnir. Dalbraut 18-20 | Vorgleði í félagsmiðstöðinni á Dalbraut 18-20 sunnudaginn 10. júní kl. 13-16. Flóa- markaður, handverkssýning, tónlist, kveðskapur og leiklestur. Kaffi og vöfflur. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur með Fær- eyjaförum í dag 8. júní kl. 14. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin. Jóga kl. 10.50. Félagsvist kl. 20.30. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður. Hárgreiðslustofa. Fótaaðgerðastofa. Aðstaða til að taka í spil. Kaffi á könnunni alla virka daga. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Garðaberg opið kl. 12.30-15. Síðasti dagur miðasölu í vorferð FEG og FEBG í Garðabergi kl. 13-15. Félagsstarf eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi | Handverkssýning eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi er í Bókasafni Seltjarnarness, Eiðistorgi, 2. hæð, föstu- dag og laugardag á opnunartíma safnsins. Sýningin er liður í Menningarhátíð Seltjarnarness 8.-9. júní. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10 „Bragakaffi“, í framhaldi af því létt ganga um nágrennið. Kl. 13 leggur Gerðubergskór af stað í heimsókn á Ás í Hveragerði. Þriðjud. og miðvi- kud. kl. 13.30: „mannrækt – trjárækt“, gróður- setning í Gæðareit, leikskólabörn og eldri borgarar, allir velkomnir. Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14 verður messa. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson, Furugerðiskórinn syngur undir stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur. Kaffiveitingar eftir messu. Allir velkomnir. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9- 16.30 opin vinnustofa. Kl. 9-12 baðþjónusta. Kl. 10-16 pútt. Kl. 12-13 hádegismatur. Kl. 15 kaffi. Kl. 14.45- 15.30 bókabíll. 13. júní: Ferð til Siglufjarðar. Síld- arminjasafnið skoðað, einnig Siglufjarðarkirkja. Há- degisverður í Bíókaffi. Leiðsögumaður: Hólmfríður Gísladóttir. Verð 7.000 kr. Brottför kl. 8.30 frá Hraunbæ. Skráning á skrifstofu eða í síma 587 2888. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Bíó kl. 13.30, kaffi og meðlæti í hléi. Hársnyrting. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Leikfimi í salnum kl. 11, „opið hús“, spilað á spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Farið verður í ferðalag um nágrenni Reykja- víkur á mánudaginn 11. júní kl. 13. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 552 4161. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegis- verður. Kl. 13.30-14.30 sungið við flygilinn. Kl. 14.30- 14.45 kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu og fóta- aðgerðastofa opnar kl. 9, bingó kl. 13.30. Allir vel- komnir, félagsmiðstöðin er opin fyrir alla aldurshópa. Uppl. í síma 411 9450. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin kl. 17- 22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. Áskirkja | Stólaleikfimi og slökunarbæn kl. 10.15 í umsjá djákna Áskirkju. 80ára afmæli. Í dag, 8.júní, er áttræð Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Vanabyggð 3, Akureyri. Hún tekur á móti gestum í sal Rauða krossins, Viðjulundi 2, á morgun, laugar- dag 9. júní, milli kl. 15 og 18. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. dagbók Í dag er föstudagur 8. júní, 159. dagur ársins 2007 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jobsbók 36, 15.) Kvenréttindafélag Íslandsstendur fyrir alþjóðlegri ráð-stefnu á Grand hóteli 8. júníundir yfirskriftinni Fara vændi og virðing saman í jafnréttisþjóð- félagi? Þorbjörg Inga Jónsdóttir er formað- ur Kvenréttindafélagsins: „Mikið hefur verið til umræðu, hér á landi sem ann- ars staðar, hvaða áhrif kaup og sala vændis hafi á jafnrétti kynjanna. Kven- réttindafélög á Íslandi hafa mælst til þess að gert verði refsivert að nýta sér vændisþjónustu, og stangast þar á við þann hóp sem telur með slíku banni veg- ið að frelsi einstaklingsins til að kaupa og selja þjónustu,“ segir Þorbjörg Inga. Aðstandendur ráðstefnunnar hafa leitast við að leiða saman einstaklinga með ólík sjónarmið: „Fjórir frummæl- endur eru á ráðstefnunni; tveir fræði- menn og tveir úr pólitík og félags- málum. Fyrst er Rosy Weiss, forseti kvennasamtakanna International Alli- ance of Women, sem stofnuð voru í Berlín árið 1904. Hún hefur tekið þá af- stöðu að ekki eigi að gera vændiskaup refsiverð, og m.a. sagt slíkt bann geta skert enn frekar stöðu þeirra kvenna sem í dag þurfa að selja sig,“ segir Þor- björg Inga. „Marit Kvamme er kven- réttindafrömuður frá Noregi, þar sem hefur verið mikil umræða um að fara hina svokölluðu sænsku leið, þar sem gert var refsilaust að selja vændi, en refsivert að kaupa það.“ Ágúst Ólafur Ágústsson alþingis- maður og Rachel Lorna Johnstone segja einnig frá sínum skoðunum. „Ágúst Ólafur hefur í sínum þingræðum stutt tillögur íslenskra kvenréttinda- samtaka, en Rachel, sem er lektor í lög- fræði við Háskólann á Akureyri, mun væntanlega skoða málið út frá sjónar- horni lögfræðinnar.“ Að loknum erindum frummælenda verða pallborðsumræður með þátttöku áheyrenda. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu Kvenréttindafélagsins á slóð- inni www.krfi.is. Ráðstefnan fer fram á ensku og er aðgangur öllum heimill og ókeypis. Jafnréttismál | Ráðstefna á vegum KRFÍ á Grand hóteli 8. júní kl. 13 til 16 Vændi og/eða jafnrétti?  Þorbjörg Inga Jónsdóttir fæddist í Austur-Húna- vatnssýslu 1967. Hún lauk stúdents- prófi frá MR 1987 og laganámi frá Háskóla Íslands 1993 en hún stund- aði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla og Helsinkiháskóla og lauk námi í við- skiptafræði frá EHÍ. Þorbjörg Inga hóf árið 1992 störf hjá ábyrgðarsjóði launa, stofnaði eigin lögmannsstofu 1996 og fasteignasölu 1998. Hún starf- ar nú sem hæstaréttarlögmaður og hefur verið formaður Kvenréttinda- félags Íslands frá 2001. Þorbjörg er gift Ólafi Kristinssyni smið og eiga þau tvö börn. Tónlist Barinn | Boogie-blús/rokk hljóm- sveitin Grasrætur spilar á Barn- um kl. 22.30. Laxárstöð | Kórastefna við Mý- vatn kl. 20.30 í hvelfingu Laxár- stöðvar í Aðaldal. Þátttökukórar í Kórastefnu syngja: Söngfélagið Sálubót, Uppsveitasystur, Vest- firsku Valkyrjurnar og Kvennakór Akureyrar. Myndlist Anima gallerí | Harpa Árnadóttir. Sýningin ber heitið „Síðasta vor- ið“ og henni lýkur nk. sunnudag. Segja má að málverkin á sýning- unni séu eins konar ljóð í vatnslit um mörk hins innra og ytra í eilífð og andrá, söknuð, gróandann og hið hverfula. Opið kl. 14-17, www.animagalleri.is. Skemmtanir Gaukur á stöng | Ína „Idol“ ásamt hljómsveit og Out Loud ætla að gleðja Gauksgesti á föstudagskvöldið. Húsið opnar kl. 22 og er frítt inn til miðnættis. www.myspace.com/gaukura- stong. Pakkhúsið, Selfossi | Hljóm- sveitin Dalton spilar í Pakkhúsinu á Selfossi fös. 8. júní og lau. 9. júní. Nýja lagið, „Gæsalagið“, er á www.myspace.com/dalton- braedur. Fyrirlestrar og fundir Austurbær | Kl. 20. Yogi Amrit Desai hefur þróað Amrit Yoga og rekur Amrit Yoga Institute í Salt Springs í Flórída. Hann hefur lagt mikla áherslu á að vinna með „síðari hluti jóga-stöðunnar“ og byggt upp djúpan skilning á gildi Yoga Nidra. Friðarhús | Félagið Ísland – Pal- estína tekur þátt í alþjóðlegum baráttudegi gegn aðskilnaðar- múrnum með fundi í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, kl. 14-16.30. Um leið verður haldið upp á útgáfu blaðsins Frjálsrar Palestínu. Kvik- myndin The Iron Wall verður sýnd. Umræður á eftir. Allir vel- komnir. Gerðuberg | Kl. 8-17. Gurudev ásamt Sri Asutosh Muni og Sa- nyasi Prajna Ma fjalla um jóga og jóga nidra sem lykil að eigin hjarta og sál, að hamingju og innri friði. Gurudev mun m.a. leiða hugleiðslu og jóga nidra sem umbreytir innri hindrunum og opnar fyrir djúpa heilun. Grand Hótel Reykjavík | Al- þjóðleg ráðstefna Kvenréttinda- félags Íslands kl. 13-16. Rosy Weiss (Austurríki), forseti Inter- national Alliance of Women, Ma- rit Kvamme (Noregur), Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður og Rachael Johnstone (Skotland/ Ísland) taka þátt í pallborðs- umræðum. Fundarstjóri Guðrún Jónsdóttir. Aðgangur ókeypis. ÁRLEG menningarhátíð BSRB hefst í Munaðarnesi á morgun kl. 14. Þá verður opnuð sýning á málverkum Guðbjargar Há- konardóttur, sem kallar sig Guggu, í Kaffi Paradís. Til hliðar sést eitt verka hennar, unnið með olíu á striga. Á hátíðinni verður boðið upp á ýmsa listviðburði. Þær Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir selló- leikari og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir píanóleikari flytja tón- list og rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir les úr verkum sínum. Þá flytur Ögmundur Jón- asson, formaður BSRB, ávarp og boðið verður upp á veitingar. Sýning Guggu er opin á af- greiðslutíma veitingahússins Kaffi Paradísar og stendur til 1. október. Þetta er sjötta einka- sýning Guggu en hún hefur einn- ig tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Árleg menningarhátíð BSRB hefst á morgun Myndlistarsýning, tónleikar, upplestur og veitingar FRÉTTIR BYGGÐAHREYFINGIN Lands- byggðin lifi í samvinnu við Land- búnaðarháskólann boðar til Byggðaþings á Hvanneyri laugar- daginn 9. júní, kl. 14-18. Ráð- stefnustjóri verður Magnús B. Jón- asson. Framsögumenn verða Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðar- háskóla Íslands, Jónatan Her- mannsson, lektor við Landbún- aðarháskóla Íslands, Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtaka Ís- lands, og Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri á Grenivík. Markmið byggðahreyfingarinnar er að vera samstarfsvettvangur fyrir félög, áhugamannahópa og einstaklinga sem hafa það að mark- miði að styrkja sína heimabyggð. Aðildarfélög þess eru um 20 talsins, sum í burðarliðnum. Byggðaþingið á Hvanneyri er haldið í tengslum við aðalfund hreyfingarinnar 2007, en hann verður haldinn kl. 10-13 daginn eftir, 10. júní. LBL er aðild- arfélag sambærilegra samtaka á hinum Norðurlöndunum, en sam- band þeirra gengur undið nafninu „Hela Norden skal leva“ (HNSL). Formennska í HNSL 2007-2008 kom að þessu sinni í hlut Íslands og hefur formaður LBL, Ragnar Stef- ánsson, þegar tekið við embætti. Þingið er að öllum opið. Frekari upplýsingar má fá á www.landlif.is. Byggðaþing á Hvanneyri Rangt farið með nafn læknis ÞAU mistök urðu í Morgunblaðinu í gær að rangt var farið með nafn Huldu Hjartardóttur, læknis og sér- fræðings í kvenjúkdómum og fæð- ingarhjálp. Var hún sögð Harðar- dóttir í grein um Yasmin-getnaðar- varnarpilluna og er beðist velvirð- ingar á mistökunum. Rangt nafn kennara NAFN kennara Njarðvíkurskóla sem var með nemendum í nýsköp- unarkeppni grunnskólanemenda í Akurskóla misritaðist í texta með frétt um keppnina sem birtist á Suð- urnesjasíðu sl. þriðjudag. Kennarinn heitir Guðrún Guðmundsdóttir. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. Sótt um heimildir fyr- ir 10.031.729 tonnum Á BLAÐSÍÐU 11 í Morgunblaðinu í gær var rangt farið með fjölda los- unarheimilda sem sótt var um til Umhverfisstofnunar. Alls hefur ver- ið sótt um heimildir fyrir 10.031.729 tonnum, en gera má ráð fyrir að þar við bætist umsókn frá Járnblendi- félaginu fyrir um 2 milljónir tonna. Umhverfisstofnun var einnig rang- lega nefnd Umhverfisstofa. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.