Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 19
Snerpa
HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000, www.hekla.is, hekla@hekla.is
Vorsprung durch Technik www.audi.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
4
1
2
A3 Sportback 1,8 TFSI® · 5 dyra · 160 hestöfl · Sjálfskiptur S-tronic
Líttu inn hjá okkur og fáðu að reynsluaka Audi A3
Næst þegar þú átt leið um New York
geturðu sinnt óvenjulegu erindi milli há-
degismatar og búðarferða. Nýja stofan
Smooth Med býður viðskiptavinum sín-
um nefnilega hrukkumeðferð með bó-
toxi án þess að tími sé bókaður fyr-
irfram.
Eigandi stofunnar, lýtalæknirinn
Michael Rose, vill að sögn vefsíðu Ex-
pressen, auðvelda borgarbúum að fá
fljótlega hrukkumeðferð. „Hægt er að
kíkja til okkar fyrirvaralaust og innan
við hálftíma síðar gengur viðkomandi út
og heldur áfram með það sem hann var
að gera. Það er skárra en að eyða öllum
deginum á stofu, bara fyrir sprautu sem
tekur fimm mínútur,“ segir hann.
Bótoxsprautun er læknisfræðileg
meðhöndlun sem fylgir ákveðin hætta á
minniháttar ofnæmisviðbrögðum. „Við
erum með allar sömu varúðarráðstaf-
anir og hver önnur læknastofa,“ heldur
Rose áfram. „Læknar sjá um spraut-
urnar og taka meðferðinni af fyllstu al-
vöru.“
Bótox á hjóli
Víðar er bótoxmeðhöndlun orðin að-
gengilegri en áður. Þannig býður stofa í
London upp á það sem hún kallar Botox
á hjóli. Tilboðið felur í sér að læknir
kemur heim til sjúklingsins á mótorhjóli
og meðhöndlar hann með bótoxi og
hrukkueyðingarlyfinu Restylane.
Hrukkueyðing í skyndi
Morgunblaðið/Golli
Hrukkukrukk Með einni sprautu hverfa hrukkurnar og það þarf ekki einu sinni að panta tíma.
UNGLINGAR virðast hafa getu til
að neyta mun meira af alkóhóli en
fullorðnir og það getur haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér á síð-
ari árum. Áfengisdrykkja þeirra,
sem enn eru að þroskast, getur
nefnilega framkallað breytingar til
hins verra á heilabúi unglinganna
og þær geta orðið fylgifiskar fyrir
lífstíð.
Niðurstöður úr rannsókn, sem
greint var frá á vefmiðli The Indep-
endent fyrir skömmu, leiddu í ljós
að unglingar, sem drukku í óhófi
eða að meðaltali tvo drykki á dag í
tvö ár, urðu fyrir 10% minnistapi í
samanburði við jafnaldra, sem ekki
drukku áfengi. Að sögn vísinda-
manna eru unglingar að glutra
minninu meira niður en fullorðnir
alkóhólistar auk þess sem ungling-
ar í óhófsdrykkju eiga erfiðara með
að stýra streituþáttum síðar meir á
ævinni. Því má ljóst vera að alkó-
hólið getur verið mikill skaðvaldur
fyrir eðlilega þroskun heila-
starfseminnar.
Áfengið
skaðar heila-
þroskann
Fréttir
í tölvupósti