Morgunblaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 36
Ég stefni ekki á að
gefa hárið upp á bát-
inn og starfa eingöngu við
tónlist hér á landi… 38
»
reykjavíkreykjavík
Listhneigða flugan ykkar stóðst ekkimátið og flaug til Feneyja til aðupplifa fjörið í kringum Tvíæring-inn, einn mesta listviðburð ver-
aldar, hvar myndlistarmaðurinn Steingrímur
Eyfjörð heldur sýningu fyrir hönd Íslands.
Við hefðbundin ilmvatns- og snyrtivörukaup í
Fríhöfninni á Leifsstöð voru þar í svipuðum
hugleiðingum hjónin Guðlaugur Þór Þórð-
arson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
og frú hans Ágústa Johnson líkamsrækt-
arfrömuður með börnin sín á leið til útlanda.
Ágústa var stelpuleg og sæt í hvítri, sport-
legri buxnadragt. Flugvélin hafði ekki náð að
staðnæmast við flugstöðvarbygginguna í Róm
þegar við blasti fyrsta auglýsingaskiltið sem
gaf forsmekk að tískuóðum Ítölum; nefnilega
Emporio Armani. Við vorum sko lent í
heimsveldinu hans Armani. Nokkrum metr-
um síðar minntu Dolce&Gabbana líka á sig
með sama hætti. Þegar komið var til borg-
arinnar við síkin, sem státar af því að engir
bílar eru til að menga andrúmsloftið, var siglt
með „vatnaleigubíl“ yfir á besta staðinn í
bænum; eða Canale Grande þar sem íslenska
sýningin fer fram í gamalli, glæsilegri höll.
Flugan kom þangað sveitt af raka og hita og
kættist við að sjá lóuna hans Steingríms en
sýningin ber nafnið: Lóan er komin. Sér-
stæður söngur Ólafar Arnalds hljómaði um
hallarsalinn og fangaði huga áhugasamra
gesta af öllu þjóðerni. Íslenski skálinn á
tvíæringnum hefur slegið í gegn. Það er svo
enn til að auka á ánægjuna að íslenski mynd-
listarmaðurinn sem hefur umsjón með sýn-
ingunni í sumar, Þórunn Hjartardóttir, tekur
af hlýju og alúð á móti fólkinu og svarar
spurningum forvitinna um listina sem ber
fyrir augu auk margvíslegra fyrirspurna um
eyjuna okkar.
… Vaðið á háum hælum yfir Mark-
úsartorg …
Eftir ánægjulega listskoðun var ljúft að
hoppa á milli aldagamalla kaffihúsa í níð-
þröngum götunum og dreypa á ýmist Bellini,
prosecco eða spritz Campari, sem eru ein-
kennisdrykkir Feneyinga. Og ösla í vatni upp
fyrir ökkla á Markúsartorgi á nýju háhæluðu
gullsandölunum eins og innfæddar skvísur
gera án þess að blikna eða missa göngutakt-
inn. Og smakka á ótrúlegasta sjávarfangi
sem fiskveiðiþjóðinni miklu, Íslendingum,
kæmi ekki til hugar að leggja sér til munns:
Klikkuðum kolkrabba, stórskrítnum skelfiski
og rækjum sem maður horfist í augu við.
Meðan á dýrðlegum máltíðum stóð var svo
horft með jafnmikilli lyst á geggjuðu gondóla-
gaurana sem eru vaxnir eins og rómverskar
styttur og það stirnir á þokkafullan svitann á
brúnum upphandleggsvöðvunum þegar þeir
stjaka yfir seiðandi síkin. Namminamm …
Morgunblaðið/Eggert
Hörður Bragason og Pétur Eggertz.
Flóki Sigurjónsson og Sjón.
Imur Kristjánsdóttir og Ari Sigvaldason.
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir og Steve Lorenz.
Björn Thors og Bryndís Ásmundsdóttir.Morgunblaðið/Golli
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, Hildur Haf-
stein, Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Margrét
Rún Guðmundsdóttir.
Þórdís Elva Þórðardóttir Bachman,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Rún-
ar Freyr Gíslason.
Þuríður Jónsdóttir, Atli Ingólfsson, Guðni
Fransson og Lára Stefánsdóttir.
Rakel Garðarsdóttir og Bryndís Ólafsdóttir.
Sveinn Geirsson og Tinna Hrafnsdóttir.
Flugan
… Geggjaðir gondóla-
gaurar í Feneyjum …
… Við vorum sko lent í heims-
veldinu hans Armani …
Brynhildur Björnsdóttir
og Þórarinn Eldjárn.
Unnur Sara Eldjárn og Eyrún
María Rúnarsdóttir.
Védís Kjartansdóttir, Sunneva Kjartansdóttir
og Kjartan Ólafsson.
Monika Abendroth, Páll Óskar Hjálmtýsson,
Stefán Jónsson og Rebekka Sigurðardóttir.
» Gríman, Íslenskuleiklistarverð-
launin, var afhent í
Íslensku óperunni á
föstudagskvöldið.
» Afhent var úrminning-
arsjóði Kristjáns
Eldjárns gít-
arleikara í Lista-
safni Sigurjóns
Ólafssonar á
föstudaginn.