Morgunblaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 15
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FJÖLMIÐLAR í Bandaríkjunum
velta nú mjög fyrir sér hvort Mich-
ael R. Bloomberg, borgarstjóri í
New York, hyggist bjóða sig fram
til embættis forseta en hann sagði
sig úr Repúblikanaflokknum á
þriðjudag. Myndi hann þá fara
fram sem óháður frambjóðandi.
Stóru flokkarnir tveir hafa lengi
skipst á um að hreppa forsetaemb-
ættið, auðkýfingurinn Ross Perot
kom mörgum á óvart er hann
hlaut 19% atkvæða 1992. Bloom-
berg, sem er 65 ára, hefur hingað
til vísað á bug að hann hyggi á
forsetaframboð og lætur enn duga
að ýta undir vangaveltur þess efn-
is. Hann gantaðist eitt sinn með að
Bandaríkjamenn myndu varla gera
„lítinn, fráskilinn gyðing“ að for-
seta.
Hann var lengi flokksbundinn
demókrati en gekk í Repúblik-
anaflokkinn árið 2000, áður en
hann bauð sig fyrst fram í embætti
borgarstjóra í New York. Bloom-
berg stofnaði á sínum tíma fjár-
mála- og fjölmiðlafyrirtækið
Bloomberg LP, er vellauðugur, tal-
inn eiga um 5.000 milljónir dollara
eða vel yfir 300 milljarða króna.
Ljóst þykir að borgarstjórinn í
New York myndi höfða sterkt til
margra hægri-miðjumanna sem
eru ósáttir við margt í stefnu
George W. Bush, Íraksstríðið,
harðlínustefnu í siðferðismálum og
skuldasöfnun ríkisins, en geta vart
hugsað sér að kjósa Hillary Clint-
on eða yfirleitt demókrata. Bloom-
berg þykir hafa staðið sig vel sem
borgarstjóri og sýnt mikla lagni.
Hann hefur stutt hjónabönd sam-
kynhneigðra, takmarkanir á
byssueign, vill leyfa tilraunir með
stofnfrumur og hækkaði eigna-
skatta til að leysa fjárhagsvanda
borgarinnar í kjölfar hryðjuverk-
anna 11. september 2001. Hann er
fylgjandi því að sett verði tíma-
áætlun um brottflutning herja frá
Írak og segist vera andvígur
hneigð núverandi forseta til að
hunsa skoðanir annarra þjóða.
Góðar hugmyndir
hafi forgang
„Allir sem kjörnir hafa verið til
ábyrgðarstarfa og tekist vel upp
vita að raunverulegur árangur
skiptir meira máli en slagsmál
milli flokka, að góðar hugmyndir
eiga að hafa forgang á stranga
hollustu við ákveðna pólitíska hug-
myndafræði,“ sagði Bloomberg í
yfirlýsingu sinni um úrsögnina.
Mjög umdeilt er hvort hann tæki
flest atkvæði af demókrötum eða
repúblikönum. Breska tímaritið
The Economist fjallaði eitt sinn um
hugsanlegt forsetaframboð Bloom-
bergs og taldi að kæmi til þess
væri Antonio Villaragoisa, borg-
arstjóri í Los Angeles, líklegt vara-
forsetaefni. Aðrir nefna Chuck
Hagel, öldungadeildarþingmann
repúblikana frá Nebraska, sem er
gömul stríðshetja en er nú einhver
öflugasti gagnrýnandi Íraksstríðs-
ins úr röðum repúblikana.
Hvað segja líklegir keppinautar
um ákvörðun Bloombergs? Hillary
Clinton var ekki margorð. „Ég er
ekki hissa á nokkrum manni sem
segir sig úr Repúblikanaflokkn-
um,“ sagði hún.
Býður Bloomberg borgarstjóri
sig fram til forseta næsta ár?
Hefur sagt sig
úr Repúblikana-
flokknum
AP
Óháður Michael Bloomberg (t.v.), borgarstjóri í New York, umkringdur
fréttamönnum í gær eftir að hafa gefið út yfirlýsinguna.
Í HNOTSKURN
»Bloomberg er m.a. sagðurvelta því fyrir sér hvort kjós-
endur verði búnir að fá sig full-
sadda af harkalegum átökum
stóru flokkanna tveggja þegar
kemur fram á næsta ár. Þá gæti
hann í augum margra virst
traustvekjandi málamiðlun.
»Blaðið The New York Timessegir hugsanlegt að Bloom-
berg ætli með úrsögninni aðeins
að vekja á sér athygli og efla
þannig stöðu sína sem borg-
arstjóri þegar kjörtímabilinu er
að ljúka. Hann mun hverfa úr
embætti 2009.
FRAM kemur í
nýrri skýrslu
hollensku um-
hverfismats-
stofnunarinnar
að koltvíoxíð-
losun Kína hafi
aukist um 9% í
fyrra, miðað
við 1,4% í
Bandaríkjun-
um. Breska
blaðið The Guardian segir að Kína
sé nú orðið mesti mengunarvaldur
heims, hafi farið fram úr Banda-
ríkjunum mun fyrr en búist hafi
verið við. Er talið að aukin áhersla
á kolanotkun í Kína hafi flýtt fyrir
þessari þróun en brennsla kola
veldur mikilli losun koldíoxíðs. Í
skýrslunni er losun frá samgöngu-
tækjum og losun vegna eyðingar
skóga ekki með í útreikningunum
en talið ósennilegt að slíkir þættir
myndu breyta meginniðurstöð-
unni.
Blaðið segir að tíðindin muni
auka þrýsting á stjórnmálamenn
heimsins um að sameinast um nýj-
an samning um aðgerðir gegn
loftslagsbreytingum af mannavöld-
um og þar verði tekin með í reikn-
inginn losunin í Kína.
Hagvöxtur er geysimikill í Kína,
þar eru byggð um tvö orkuver á
viku. John Ashton, breskur sér-
fræðingur í loftslagsbreytingum,
bendir á að útblástur koltvíoxíðs á
hvern íbúa sé enn mun lægri í
Kína en gerist víðast á Vestur-
löndum.
Kína los-
ar mest
af CO2
Sævarhöfða 2 / Sími 525 8000 / www.ih.is / Opið: Mán frá kl. 10 - 18 og þri til fös frá kl. 9 - 18.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
4
0
6
KOMDU OG REYNSLUAKTU!