Morgunblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 177. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SUNNUDAGUR AÐ HAFA Í SIG OG Á GETA LISTAMENN LIFAÐ AF LISTINNI? Í AUKAVINNU >> 53 KYNNTUST Í ENGLABORG ÞAU ERU MEÐ HEIMINN Í FANGINU ARKITEKTÚR >> 22 BLÓÐ FRÝS Í ÆÐUM STRANDHÖGG ÁSTRALA Á ÍSLANDI REYKJAVÍK REYKJAVÍK >> 52 E N N E M M / S ÍA / N M 2 8 5 5 5 Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is VESTFIRÐINGAR gagnrýna harðlega að örfáir einstaklingar, sem eiga og ráða yfir fiskveiðiheim- ildum, geti tekið ákvarðanir um að leggja heilu byggðarlögin í rúst, með því að selja kvótann burt. Þeir leggja einnig til að veiðiskylda verði aukin, veiðibann á hrygningartíma þorsksins verði lengt í tvo mánuði og að netaveiðar verði jafnvel bannaðar. Þetta kemur fram í greinaflokki um sjávarút- vegsmál, afstöðu landsmanna til kvótakerfisins og afleiðingar af miklum niðurskurði þorskveiðiheim- ilda fyrir næsta fiskveiðiár, sem birtast mun í Morg- unblaðinu í dag og næstu daga. Segja kvótakerfið það skásta sem við höfum Blaðamaður Morgunblaðsins hefur undanfarnar vikur ferðast um Vestfirði, Austfirði og Snæfells- nes, þar sem m.a. hefur verið rætt við sjómenn, út- gerðarmenn, trillukarla, beitningakarla, fisk- vinnslufólk og sveitarstjórnarmenn um hvað sé framundan í sjávarútvegi og hvernig réttast sé að bregðast við þeim niðurskurði á þorskveiðiheimild- um sem blasir við að ákveðinn verði. Búist er við því að Einar K. Guðfinnsson sjáv- arútvegsráðherra kynni ákvörðun sína um veiði- heimildir næsta fiskveiðiárs næsta þriðjudag. Flestir útgerðarmenn sem rætt var við, og raun- ar fleiri, telja að kvótakerfið sé það skásta sem við höfum, en sníða megi af því ákveðna agnúa. Aðrir vilja kvótakerfið burt hið snarasta og segja það hafa stórskaðað byggðir landsins. Hörð gagnrýni kemur fram í blaðinu í dag á sölu Kambs á veiðiheimildum burt frá Flateyri um miðj- an maí sl. Jafnframt vefengja Vestfirðingar ráðgjöf Hafró og gagnrýna forsendur hennar. Vilja banna netaveiðar Vestfirðingar gagnrýna fiskveiðiráðgjöf Hafró harðlega og segja nægan þorsk í sjónum  Búist er við að sjávarútvegsráðherra tilkynni mikinn niðurskurð á þorskveiðiheimildum fyrir næsta fiskveiðiár Í HNOTSKURN »Vestfirðingar eru innan við3% þjóðarinnar og ráða yfir um 9% fiskveiðiheimilda. »30% niðurskurður á þorsk-veiðiheimildum væri gríð- arlegt reiðarslag fyrir Vestfirði. »Margir Vestfirðingar gagn-rýna harðlega þau völd sem sægreifar landsins hafa yfir sjáv- arbyggðum. Vonleysi á Vestfjörðum | 10 Það er að færast líf í kríuna á Seltjarnarnesi. Egg eru komin í nokkur hreiður. Jóhann Óli Hilm- arsson fuglafræðingur segir að þó að ástandið sé betra en í fyrra, þegar varpið misfórst nær alveg, sé það frekar dapurt. Yfirleitt sé aðeins eitt egg í hreiðri og greini- legt að kríuna skorti fæðu. Rann- sóknir á kríuvarpinu undanfarin ár hafa sýnt að krían verpir að meðaltali 2,14 eggjum í hreiður. Mikilvægustu varpstaðir fugla á Seltjarnarnesi eru órækt- arlandið umhverfis tjörnina í Dal í Suðurnesi, friðlandið við Bak- katjörn og Grótta, sem einnig er friðuð. Jóhann Óli segir að varp síla- mávsins á Suðurnesjum sé mjög lélegt. Ástandið hjá kríunni segir hann betra sums staðar annars staðar á landinu. Hann segir ljóst að fuglarnir eigi erfitt með að ná í síli úr sjónum.Morgunblaðið/Ómar Kríuvarpið er frekar dapurt Krían á Nesinu er farin að verpa, en aðstæður eru henni ekki hagstæðar Uppstokkun ís- lenska flokkakerf- isins er ekki lokið, að sögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra sem spáir því að Framsóknarflokk- urinn eigi eftir að renna saman við Samfylkinguna eftir fjögur eða átta ár. „Ég held að stór hluti Fram- sóknar eigi eftir að renna saman við Samfylkinguna í einn stóran jafnað- armannaflokk, hvort sem það verður eftir fjögur eða átta ár. Sameining- arferlinu er ekki lokið.“ Björgvin segir þorra framsóknarmanna eiga heima í sömu hreyfingu og Samfylk- ingarfólk. „Við getum sameinast um frjálslyndi, félagshyggju, jöfnuð án öfga, opna sýn til útlanda og velvild til efnahagslífsins.“ Hann segist ætla að halda áfram að berjast fyrir samfylkingu jafn- aðarmanna hvar sem þeir eru staddir. | 26 Sameinast fleiri flokkar? Björgvin G. Sigurðsson Aðeins voru liðnir nokkrir tímar frá því að Tony Blair steig úr stóli forsætisráðherra þegar hann var skipaður erindreki „kvartettsins“ í Mið-Austurlöndum. Tony Blair til Jerúsalem Málaliðar eru þekkt fyrirbæri, en á undanförnum árum hafa fyrirtæki, sem sérhæfa sig í hernaði, sprottið upp. Tífalt fleiri málaliðar eru nú í Írak en voru í fyrra Persaflóastríði. Fleiri fyrirtæki gera út málaliða Knattspyrnuliðið Tottenham Hotspurs keypti miðherjann Darr- en Bent í sömu viku og Arsenal seldi stjörnuna Thierry Henry. Er valdasveiflu að vænta í Lundúnum? Darren Bent ætlað að efla Tottenham VIKUSPEGILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.