Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 1
fimmtudagur 5. 7. 2007 íþróttir mbl.isíþróttir Markahrókar klæðast peysum númer 9 á Englandi >> 2 STYRKIR BRÖNDBY MIKIÐ STEVEN LUSTÜ UM STEFÁN GÍSLASON: „MEÐ MIKLA YFIRFERÐ, ER LÍKAMLEGA STERKUR OG ÁGENGUR Í LEIK SÍNUM“ >> 4 Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is Fyrri samningur Ívars við félagið átti að renna út ári fyrr. Hann hefur nú leikið í tæp fjögur ár með Read- ing og ekki misst úr deildaleik með liðinu undanfarin tvö ár. Ívar lék hverja einustu mínútu með Reading í 1. deildinni 2005-2006 og lék sama leik með liðinu í úrvalsdeildinni síð- asta vetur. Reading kom þá verulega á óvart sem nýliði og hafnaði í 8. sæti og Ívar var fyrirliði liðsins í mörgum leikjum í úrvalsdeildinni, auk þess sem hann var kjörinn leikmaður árs- ins hjá félaginu í vor. „Mér líkar afar vel hjá Reading. Þetta er félag sem er í stöðugri fram- för á öllum sviðum og það er virki- lega gaman að taka þátt í því sem hér er að gerast. Ekki er verra að hafa alla þessa Íslendinga í kringum sig,“ sagði Ívar en Brynjar Björn Gunn- arsson leikur einnig með Reading og þá skrifuðu unglingaliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Viktor Unn- ar Illugason undir atvinnusamninga við félagið á dögunum. „Það er verið að verðlauna Ívar fyrir frábæra frammistöðu, enda mikið afrek að spila hverja einustu mínútu með liðinu í úrvalsdeildinni síðasta vetur. Það var líka gaman að heyra orð Johns Madejski, stjórnar- formanns, við undirskriftina. Hann sagði þar að Ívar væri ekki aðeins góður fótboltamaður, heldur frábær persónuleiki sem dýrmætt væri að hafa í sínu liði,“ sagði Ólafur Garð- arsson umboðsmaður sem gekk frá samningnum með Ívari í gær. Á leið til Suður-Kóreu Ívar og Brynjar fengu lengra sumarfrí en flestir leikmanna Read- ing vegna landsleikja Íslands í júní en Ívar sagðist mæta á sína fyrstu æfingu í dag, fimmtudag. „Á mánu- daginn kemur fljúgum við síðan til Suður-Kóreu og tökum þar þátt í al- þjóðlegu átta liða móti, ásamt liðum víðsvegar að úr heiminum,“ sagði Ív- ar Ingimarsson, en keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst um miðjan ágúst. Reading byrjar þá heldur bet- ur á erfiðum verkefnum því liðið sækir meistara Manchester United heim á Old Trafford þann 11. ágúst og fær svo Chelsea í heimsókn þrem- ur dögum síðar. Þrír Íslendingar á ferðinni Það getur svo farið að aðeins þrír íslenskir landsliðsmenn verði á ferð- inni í úrvalsdeildinni í vetur – Ívar og Brynjar Björn með Reading og Her- mann Hreiðarsson með Portsmouth. Miklar líkur eru á að Heiðar Helguson yfirgefi Fulham og haldi á nýjar slóðir. Emil Hallfreðsson er hjá Totten- ham og Bjarni Þór Viðarsson hjá Everton, en þeir hafa ekki fengið að spreyta sig með liðum sínum í úr- valsdeildinni. Reuters Varist Ívar Ingimarsson er hér í baráttu við Shola Ameobi í leik Reading og Newcastle á Madejski Stadium í ensku úrvalsdeildinni sl. vetur. Ívar Ingimarsson fram- lengdi hjá Reading til 2010 „ÞAÐ er ánægjulegt að hafa fram- lengt samninginn. Forráðamenn Reading vildu endurbæta þann fyrri og bæta við einu ári og ég sló ekki hendinni á móti því,“ sagði Ívar Ingimarsson, landsliðsmið- vörður í knattspyrnu, við Morgun- blaðið í gær eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við enska úr- valsdeildarfélagið Reading til vors- ins 2010. Í HNOTSKURN »Ívar Ingimarsson hófknattspyrnuferil sinn hjá KSH (Súlan og Hrafnkell Freysgoði á Breiðdalsvík) 1991, lék síðan með KBS (Knattspyrnusambandi Suður- fjarða) 1993, Val 1995-1997 og ÍBV 1998-1999. » Ívar fór til Torquay í Eng-landi 1999, en lék síðan með Brentford 1999-2002 og Wolves 2002-2003, en var lán- aður til Brighton um tíma. » Ívar gekk til liðs við Read-ing 2003. Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is ÁGÚST S. Björgvinsson körfu- knattleiksþjálfari komst nálægt því að fá starf hjá einu af sterkari liðum Evrópu á dögunum. Um er að ræða Lieutuvos Rytas frá Litháen, sem Ágúst dvaldi hjá veturinn 2003-2004, þar sem hann kynnti sér þjálfunar- aðferðir hjá liðinu. Ágúst var í viðræðum við félagið um að taka við unglingaliðinu sem til stóð að koma á fót, auk þess að vera aðstoðarþjálfari að- alliðsins. Þessar áætlanir runnu hins vegar út í sandinn þegar hætt var við að stofna unglinga- liðið: ,,Liðið komst í Euroliga sem er svona eins og Meistaradeildin í körfunni. Það er mjög kostn- aðarsamt auk þess sem ný laga- setning í Litháen skerðir auglýs- ingatekjur félagsins. Af þessum sökum varð ekkert af stofnun unglingaliðsins. Ég var mjög spenntur fyrir þessu enda ekki sjálfgefið fyrir ungan þjálfara að komast að hjá svo sterku félagi. Þeir tjáðu mér hins vegar að þeir vildu taka upp þráðinn að ári, og það er því ekki útilokað að ég fari þá til félagsins,“ sagði Ágúst í samtali við Morgunblaðið í gær. Ágúst er með töluverða reynslu af meistaraflokksþjálfun þrátt fyrir að vera einungis 28 ára gamall. Hann gerði kvennalið Hauka að Íslandsmeisturum síð- ustu tvö ár og áður en hann fór til Litháen 2003 hafði hann tekið við karlaliði Vals, aðeins 23 ára gam- all. Ágúst segist vera að athuga hvort eitthvað annað sé í boði ut- an landsteinanna: ,,Það er ekki auðvelt að komast að erlendis. Mín sambönd miðast fyrst og fremst við þessa aðila í Litháen, en þeir eru tilbúnir að hjálpa mér að finna starf einhvers staðar í Evrópu. En það er ekkert sér- stakt að gerast í þeim málum sem stendur.“ Ágúst missti af starfi í Litháen Ágúst S. Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.