Morgunblaðið - 01.08.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.08.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 37 Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2. ágúst kl. 12.00: Jörg Sondermann, orgel 4. ágúst kl. 12.00: Hannfried Lucke, orgel 5. ágúst kl. 20.00: Hannfried Lucke, prófessor í orgelleik við Mozarteum, leikur verk eftir Buxtehude, Bach, Brahms, Mendelssohn, Duruflé og Vierne. www.listvinafelag.is MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600 SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. Sýnum í dag snyrtilega og vel skipulagða 4ra herb. 113 fm endaíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi auk stæðis í bílageymslu. Íbúð er: Forstofa, eldhús, stofa/borðstofa, baðherb., 3 svefnherb., þvottaherb., stórar suðursvalir, sér- geymsla og stæði í bílageymslu. Glæsilegt útsýni af svölum yfir Elliðavatn o.fl. V. 29.900.000. Sveinn Eyland, s. 6 900 820 frá Fasteign.is, verður á staðnum. ÁLFKONUHVARF 23 – ÍBÚÐ 301 OPIÐ HÚS Í DAG KL. 17.30–18.00 ÞAÐ stafar ljóma af plötu semtil var á heimili foreldraminna – plötu í hvítu umslagi með svörtu prenti. Hún bauð ekki af sér neinn sérstakan þokka, og ætla hefði mátt að innihaldið væri nauða- ómerkilegt; svo illa var vandað til umslagsins, og textans þar – allt vaðandi í vitleysu. En kannski sannaðist þar hvað best að æ skal skoða innri mann því enn hefur ekki nokkur einasta ís- lensk hljómplata – geisladiskar meðtaldir - hrifið mig jafn mikið og þessi plata. Þarna voru að verki þeir Kristinn Hallsson bassasöngv- ari og Árni Kristjánsson píanóleik- ari. Báðir voru þeir öndvegis lista- menn og miklir brautryðjendur í íslenskri tónlist. En augnablikin sem tók þá að hljóðrita þessa plötu voru sannkallaðar óskastundir. Fyr- ir þremur árum var platan loks gef- in út á geisladiski – tvöföldum geisladiski með öllu því besta sem Kristinn söng. Þessar upptökur ættu að vera skylduhlustun fyrir alla íslenska tónlistarnema, hvort heldur er í söng eða hljóðfæraleik og líka þá sem langar að njóta þess sem hér hefur verið gert.    Nú er Kristinn Hallsson látinn,81 árs. Hvað ytri aðbúnað söngvara áhrærir, og möguleika til náms og frama, frá þeim tíma sem Kristinn steig sín fyrstu skref í söngnum og til dagsins í dag, er óravegur á milli, jafnvel þótt í dag þyki okkur mörgu ábótavant. Það sem mest munar um er hin mennt- aða sönghefð, sem var nánast engin hér þá, en við höfum í dag. Í þá daga þótti jafn fráleitt að karlmaður ætl- aði að mennta sig og hafa atvinnu af söng – jafnvel þótt það væri erlend- is og það þætti í dag ef kunnáttulaus Íslendingur teldi sig eiga möguleika á að verða vínræktarséní á Ítalíu. Hefðin var annars staðar og skiln- ingur þjóðarinnar á söngmennt af skornum skammti. Þó höfðu nokkr- ir íslenskir ofurhugar stigið þessi skref og eðlilega varð starfsvett- vangur þeirra erlendis, að minnsta kosti um tíma. Í þessum hópi voru Ari Jónsson, Pétur Á. Jónsson, Egg- ert Stefánsson, María Markan, Stef- án Íslandi, Einar Kristjánsson og Þorsteinn Hannesson. Kristinn Hallsson var í hópi þeirra sem töldu að betra væri að beina kröftunum að þeirri uppbygg- ingu sem hér bar brýna nauðsyn til að sinna. Hann stóð þá plikt með miklum sóma. Kristinn Hallsson fæddist 4. júní 1926 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Hallur Þorleifsson skrif- stofumaður og Guðrún Ágústsdóttir söngkona. Kristinn lauk versl- unarskólaprófi 1945, en það var tónlistin sem togaði í hann. Það var mikil músík á æskuheimili hans og hann fékk tilsögn í söng. Það var sjálfsagt og sjálfgefið að Kristinn færi ungur að syngja hjá pabba sín- um í sönghópnum Kátum félögum, og fyrr en varði var hann farinn að syngja einsöng með þeim. Hann var þá enn innan við tvítugt. Kristinn fékk tilsögn í söng hjá Guðmundi Jónssyni, sem var sjálfur nýkominn heim úr námi, og hæfileikarnir leyndu sér ekki. Tæpast verður sagt að hann hafi verið orðinn hámennt- aður í sönglistinni þegar hann var beðinn að syngja einsöngsbassa- hlutverkið í Sálumessu Mozarts, þegar hún var flutt á vegum Tón- listarfélagsins í Reykjavík 1949. Hann var góður söngvari; – það góður að hann var valinn til að syngja í fyrstu óperuuppfærslu Þjóðleikhússins, Rigoletto, árið 1951. Eftir það lá leiðin beint til Lundúna í alvörusöngnám við Royal Academy of Music. Þaðan lauk hann prófum árið 1954. Eftir heimkom- una vann hann skrifstofustörf en kenndi jafnframt söng og söng sjálf- ur við þau tækifæri sem gáfust og góðu heilli áttu þau eftir að verða mörg.    Í viðtali sem ég átti við Kristin fyr-ir nokkrum árum spurði ég hann hvort honum hefði aldrei þótt það eftirsóknarvert að spreyta sig erlendis. Kristinn svaraði: „Mér var boðið að syngja bæði í Covent Garden og í Saddlers Wells, en ég var bara svo óheppinn að ég fékk ekki atvinnuleyfi. Það eina sem hægt var að gera var að koma heim.“ Það hefur þá ekki hvarflað að þér að fara til Þýskalands eða Ameríku? „Elskan mín góða, ég fór til allra þessara landa og söng, en ekki til að fastráða mig. Rétt eftir að ég lauk náminu söng ég á Edinborgarhátíð- inni, og fór þaðan til Þýskalands og svo til Norðurlandanna – þræddi þau tvisvar sinnum. Ég fór til Hol- lands, Frakklands og aftur til Eng- lands – það var alltaf einhver helvít- is fart á manni. Nú, svo fór ég nú í söngferðalag til Sovétríkjanna með Láru Rafnsdóttur. Ég fékk tilboð frá hinum og þessum óperuhúsum en ég sá að það þýddi ekkert fyrir mig að eltast við það. Fór bara að vinna eins og hver annar skrif- stofumaður hjá tryggingafyrirtæki sem ég var hluthafi í. Ég var líka orðinn fjölskyldumaður en það réð engum úrslitum. Það er engum að kenna um þetta nema sjálfum mér. Við Guðmundur [Jónsson, söngvari] vorum eitt sinn að horfa hvor fram- an í annan, báðir búnir að fá tilboð hingað og þangað. Þá sagði hann: „Veistu það, Kiddi, ef við verðum ekki hér heima þá verður bara ekk- ert úr músíklífinu hérna!““    Þeir Kristinn og Guðmundurvoru iðulega söngfélagar og fleiri söngvarar, af þeirra kynslóð, einkum þau Þuríður Pálsdóttir, Guðmunda Elíasdóttir, Guðrún Á. Símonar og Magnús Jónsson skip- uðu þann hóp sem varð hinn eig- inlegi fyrsti hópur íslenskra óp- erusöngvara. Þetta er líka kynslóð Síðasta lags fyrir fréttir, söngv- aranna sem gáfu íslenska einsöngs- laginu líf í vitund þjóðarinnar í nú- tímanum. Þáttur Kristins í að skapa þessa menningu okkar var stór. Nú þegar hann er fallinn frá er geisladiskurinn sem inniheldur gömlu góðu plötuna enn dreginn fram og settur í spilarann. Ég spurði hann um árið nánar um samstarf hans og Árna, og hann svaraði: „Það var sérstök uppákoma að ég fór svo að vinna með Árna Krist- jánssyni. En mikið lifandis ósköp var gott að vinna með honum. Það var verið að bjóða Árna og ein- hverjum Íslendingi að taka þátt í tónleikahaldi í Stokkhólmi. Allt í einu kom beiðni til mín frá Árna um það hvort ég vildi vera með honum í þessu. Ég sagðist mjög gjarnan vilja gera það og við fórum út. Við feng- um alveg ofsalega, helvíti góða krí- tík. […] Það var alveg sérstakt að vinna með Árna. Hann var svo lif- andi í músíkinni að það var alveg ótrúlegt. Ég hef alveg minn eigin smekk á því hvernig eigi að fara með tónlist, en við vorum alltaf sam- mála um þessa hluti.“ Kanntu skýringu á því? „Ætli við höfum ekki bara verið með sömu músíksálina á þessu sviði. Það var bara aldrei neitt sem fór af sporinu í þessari samvinnu.“ Ég hlusta á Kristin syngja Säf, säf, susa, og Þei, þei og ró; Árni skapar stemningu angurværðar, og í mögnuðum söng sínum leysir Kristinn vitundina úr viðjum hvers- dagsins inn í frelsi næturkyrrð- arinnar. Hann var góður söngvari AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir » Í mögnuðum söngsínum leysir Kristinn vitundina úr viðjum hversdagsins inn í frelsi næturkyrrðarinnar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Bassinn Kristinn Hallsson syngur við athöfn er stytta af Tómasi Guðmunssyni er afhjúpuð í Austurstræti árið 1974. Það er Ólafur Vignir Albertsson, meðleikari Kristins til margra ára, sem er við píanóið. begga@mbl.is Sverrir Norland sverrirn@mbl.is MIÐASALA á tónleika hins ítalska Andrea Bocelli í Egilshöll hefst í dag á midi.is. Egilshöllin verður fjór- skipt á tónleikunum; miðar á A- svæði eru dýrastir og kosta 22.900 krónur, en ódýrustu miðarnir, á svo- kallað D-svæði, kosta 8.900 krónur. Frekari upplýsingar má nálgast á midi.is. Missti aldrei móðinn Tónlistarferill Bocellis er um margt merkilegur. Hann hóf píanó- nám sex ára gamall, en vegna mikils tónlistaráhuga bætti hann fljótlega flautu og saxófóni í vopnabúrið. Hann fæddist með vonda sjón en glataði henni síðar algjörlega eftir knattspyrnuslys, þá einungis tólf ára. Seigla Bocellis og eljusemi urðu þó til þess að hann lét ekki deigan síga; eftir að hafa lokið doktorsnámi í lögfræði við Háskólann í Písa komst hann í læri hjá hinum þekkta tenór Franco Corelli, og söng á pí- anóbörum hér og hvar. Gullbarkinn fékk sitt fyrsta alvöru tækifæri á söngsviðinu árið 1992. Þá auglýsti „Björgvin Halldórsson þeirra Ítala,“ hjartaknúsarinn og rokkarinn Fornaciari (kannski betur þekktur sem Zucchero - „Sykur“), eftir tenórum sem syngja áttu prufuútgáfu af lagi sínu „Miserere.“ Lagið hafði hann smíðað ásamt írska rokktröllinu Bono. Fjölmargir lærð- ir söngvarar þöndu barka sína í hæfnisprufunum en sama var hvern- ig þeir rembdust og reigðu sig, eng- um þeirra tókst að syngja popp- músík á sannfærandi hátt. Var að endingu stungið upp á lítt þekktum óperuunnanda sem bjó þar í grennd- inni. Skemmst er frá að segja að Bo- celli rúllaði upp áheyrnarprófinu og kyrjaði loks dúettinn ásamt öðrum söngguði, sjálfum Pavarotti. Þótti vel til takast og Bocelli skaust upp á stjörnuhimininn. Fyrsta plata Bocellis, Bocelli, var gefin út árið 1995, en í dag liggja eft- ir hann heilar 14 hljómplötur auk fjögurra ópera. Hann hefur unnið með stórstjörnum á borð við Pav- arotti, Stevie Wonder, Céline Dion og Christinu Aquilera. Hljómskífur hans seljast í bílförmum, en hann er þó óneitanlega æði umdeildur. Ýms- ir klassískir sérfræðingar fussa og sveia og þykir kappinn alltof mjúkur og poppaður; svo eru aðrir sem fagna því hversu aðgengilegur og „vinsældavænn“ söngur kappans er. Til að mynda lét sönggyðjan Celine Dion hafa þessi orð eftir sér: „Ef Guð hefði söngrödd myndi hún hljóma eins og rödd Andrea Bocelli.“ Fjórði tenórinn Bocelli Kemur til landsins ásamt hundrað manna fylgdarliði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.