Morgunblaðið - 30.08.2007, Page 23

Morgunblaðið - 30.08.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 23 ns vegar en það er t þurfi að ð er gert. ð landinu mikil áhrif s að hann onum, en greina að inn. „Það kosning, með mjög Eirún, en lega unn- il dæmis n það eru reglur að klúbbinn, nn vekur úbburinn ð kvenleg umaskap, stur. „Við æðra okk- En svo er fni. Ef við ákveðum bara. Við við kunn- efnið sem dur með- rna kven- ga aldrei ennt sem að sumu ví. „Það er réttlæti í em konur gerðu sé ekki eins merkilegt og það sem karlar gerðu.“ Þá berjast þær einnig gegn ýms- um öðrum mýtum í listaheiminum, til dæmis þeirri að listin megi aldrei vera skemmtileg. „Er til dæmis bannað að skemmta sér og flissa? Gjaldfellir það þá listaverkið ósjálf- rátt? Geta stelpuleg gildi haft eitt- hvert vægi sem listaverk? Það eru mjög margir sem eiga mjög erfitt með að samþykkja þetta,“ segir Sigrún, en í einu verki á sýningunni má einmitt sjá nokkrar stúlkur í glys-kjólum sem drekka kampavín, skríða undir borð og flissa. Þá hafa stúlkurnar ekki farið varhluta af fordómum gagnvart gjörningnum sem slíkum, sem sum- ir telja hina mestu vitleysu. „Hann er náttúrlega lægstur í fæðukeðj- unni í listinni. Það var líka að hluta til þess vegna sem við ákváðum að byrja á þessu, okkur fannst þetta svo vandræðalegt og hallærislegt form,“ segja þær og hlæja. En hefur skilningurinn ekkert aukist á undanförnum ellefu árum? „Kannski ekki skilningur, en fjöldi gjörninga hefur aukist og núna er meira að segja komin sérstök gjörningahátíð, Sequenses. Þannig að það eru allavega einhverjar hræringar í þessu,“ segir Jóní. „Formin eru líka mikið að renna saman, tónlist, myndlist og leiklist, það eru allir í öllum geirum mjög spenntir fyrir hinum,“ segir Sigrún. „Við erum til dæmis alltaf svolítið svekktar yfir því að vera ekki meiri tónlistarmenn. Við kunnum ekkert á hljóðfæri,“ segir Jóní og hlær. „En það er einmitt mjög gaman að takast á við það sem maður kann ekki. Það er það sem er kannski mest ögrandi,“ bætir Eirún við, og þær útiloka því ekki að færa sig meira út í tónlistina á næstu miss- erum. Með Hilmari Erni Þótt undarlegt megi virðast ætl- ar Gjörningaklúbburinn ekki að vera með gjörning á opnuninni ann- að kvöld. „Við ætlum að skoða hvernig allt þetta dót getur lifað án okkar,“ útskýrir Eirún, en þær munu þó líklega gera einn gjörning með Hilmari Erni Hilmarssyni tón- skáldi á meðan á sýningunni stend- ur, líklega í lok september eða byrj- un október. „Þá fáum við vonandi einhverja útrás fyrir tónlistina,“ segja þær hlæjandi. Fleira verður gert á sýningar- tímabilinu því boðað hefur verið til tveggja fyrirlestra, annars vegar með þeim þremur og hins vegar með þeim og Arnaldi Schram frá THG arkitektum sem hannaði áð- urnefnt völundarhús ásamt Gjörn- ingaklúbbnum. Fyrirlestrarnir verða auglýstir þegar nær dregur. Út um allan heim Gjörningaklúbburinn hefur sýnt víða um heim á undanförnum ellefu árum, meðal annars í Helsinki, Kaupmannahöfn, San Francisco, New York, Varsjá og Tókýó. Nú stendur yfir sýning á verkum þeirra í Noregi, en sú sýning fer síðar til Belgíu, Frakklands, Bandaríkjanna og víðar. Þá munu þær opna sýningu á nýjum verkum í Þýskalandi í október. Sýningin í Hafnarhúsinu er því enginn enda- punktur á starfsemi klúbbsins. „Við sjáum þetta miklu frekar sem yf- irlit, tímapunkt til þess að taka stöðuna og sjá hvernig þetta lítur út. Það eru algjör forréttindi að hafa fengið það tækifæri,“ segja þær, og því ljóst að Gjörninga- klúbburinn er hvergi nærri að hætta störfum. „Þetta er bara logn- ið á undan storminum,“ segir Jóní og horfir björtum augum fram á veginn. „Við höfum alltaf séð okkur sem gamlar konur í þessum bún- ingum sem við eigum, að sýna gjörninga. Við erum meira að segja að hugsa um að fá gamlar leikkonur til að fara í búningana og leika okk- ur, þannig að við getum séð inn í framtíðina.“ Sýning Gjörningaklúbbsins verð- ur opnuð í Hafnarhúsinu klukkan 20 annað kvöld. Hún stendur yfir til 21. október. n storminum opnuð í Listasafni Reykjavíkur annað kvöld nn skemmtileg, pólitísk, fyndin og feminísk Morgunblaðið/G. Rúnar engdar við kvennabaráttu.“ Gjörningaklúbburinn frá vinstri: Sigrún, Eirún og Jóní. A-gráðu árið 2000 chool of rið 2005. um » Þá berjast þæreinnig gegn ýms- um öðrum mýtum í listaheiminum, til dæmis þeirri að listin megi aldrei vera skemmtileg. „Er til dæmis bannað að skemmta sér og flissa? Gjaldfellir það þá listaverkið ósjálf- rátt? Geta stelpuleg gildi haft eitthvert vægi sem listaverk? Það eru mjög margir sem eiga mjög erfitt með að samþykkja þetta.“ TENGLAR ............................................. www.ilc.is www.listasafnreykjavikur.is FRÉTTASKÝRING Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Skeytasendingarnar sem núganga á milli leiðtogaBandaríkjanna og Íranseru af þeim toga að vel má færa rök fyrir því að stríð sé nú þegar skollið á í samskiptum ríkjanna tveggja. Bandaríkjastjórn hefur að vísu ekki enn hafið stýri- flaugaárásirnar – sem sumir hafa fullyrt á undanförnum tveimur ár- um eða svo að væru yfirvofandi – en orðastríðið, sem svo má kalla, hefur magnast til muna. Bush fór hörðum orðum um ír- anska ráðamenn í ræðu sem hann flutti á þriðjudag í Reno í Nevada. Hann sakaði stjórn Mahmouds Ah- madinejads Íransforseta um að veita beinan stuðning þeim öflum í Írak sem þar hafa staðið fyrir of- beldi og illræðisverkum og sagði að írönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á þjálfun öfgahópa sjíta í Írak. M.a. hefðu Íranar séð slíkum hópum fyrir vopnum, þ.á m. háþróuðum vegsprengjum. „Íran hefur lengi verið upp- spretta ólgu í heimshlutanum,“ sagði Bush einnig. „Einörð viðleitni Írans til að koma sér upp tækni sem gæti leitt til þess að búin yrðu til kjarnorkuvopn veldur því að heimshluti sem nú þegar er þekkt- ur fyrir óstöðugleika og ofbeldi gæti orðið fyrir ógn kjarnorkuhel- farar.“ Lét Bush svo um mælt að menn gætu treyst því að Bandaríkin myndu bregðast við þessari ógn áð- ur en það yrði um seinan. Fyrr sama dag hafði Ahmad- inejad hins vegar látið þau orð falla að pólitísk áhrif bandaríska her- námsliðsins í Írak væru á hverf- anda hveli. „Við munum bráðlega vakna upp við mikið valdatóm í heimshlutanum. Við erum að sjálf- sögðu undir það búnir að fylla í það tómarúm,“ sagði hann. Voru ummælin túlkuð sem ögrun við Bandaríkjastjórn sem áhyggjur hefur af því að írönsk stjórnvöld vilji nota upplausnarástandið í Írak til þess að auka völd sín og áhrif í heimshlutanum. Íranskir ráðamenn fullyrða að kjarnorkuáætlun þeirra eigi sér friðsamleg markmið, einungis eigi að framleiða orku, en ekki vopn. Ahmadinejad forseti hefur hins vegar talað þannig um rétt Írana til að koma sér upp kjarnorkuvopnum að fáir leggja fullan trúnað á þær staðhæfingar, auk þess sem til- raunir Írana til að auðga úran benda til að tilgangurinn sé annars eðlis en friðsamlegur. Ber að hafa í huga í þessu samhengi að Íranar hafa skuldbundið sig til að hlíta skilmálum NPT-sáttmálans um bann við útbreiðslu kjarn- orkuvopna. Byltingarvörðurinn sem hryðjuverkasamtök Sem fyrr segir hafa Bandaríkja- menn sakað Íran um að aðstoða öfgamenn úr röðum sjía-múslíma í Írak. Nýlega var greint frá því að stjórnvöld í Washington hyggist skilgreina Byltingarvörðinn – 125.000 manna úrvalssveitir ír- anska hersins – sem hryðjuverka- samtök vegna meintrar aðstoðar hans við öfgasveitir sjíta í Írak. Þessar fréttir eru ekki aðeins taldar tengjast vígstöðunni í Írak sjálfu heldur hinni langvinnu deilu um kjarnorkuáætlanir Írana og eru bandarísk stjórnvöld sögð vilja auka enn hinn pólitíska þrýsting á Írana um að binda enda á kjarn- orkuáætlun sína. Mörgum þykir sem tíminn sé að renna út, þess megi vænta að jafnvel á næsta ári eða því þarnæsta geti Íranar fagn- að framleiðslu fyrstu sprengjunnar. Hitt er víst að Íranar myndu líta á það sem beina og grófa ögrun ef Bandaríkjamenn gerðu alvöru úr því að skilgreina Byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Aðeins vondir kostir í stöðunni En er þá öruggt að aðgerðir fylgi á endanum í kjölfar ummæla í lík- ingu við þau sem Bush Bandaríkja- forseti lét falla í fyrradag? Tveir möguleikar virðast vera í stöðunni hvað það varðar. Annars vegar hafi bandarískir ráðamenn ákveðið að magna þrýsting á Írana vegna kjarnorkuáætlunar þeirra sökum þess að þeir telji að aðeins þannig verði hægt að fá Íran til að hverfa frá henni. Hinn möguleikinn sé sá að Bandaríkjastjórn hafi nú þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði hægt að stöðva Írana með friðsamlegum leiðum og að því verði að kynda undir svo hægt sé að stíga næsta skref: gera margumtal- aðar árásir í því skyni að eyðileggja kjarnorkuáætlun Írana. Vaxandi þungi á meint afskipti Írana af atburðum í Írak, þ.m.t. á vígvellinum sjálfum, mætti skoða í þessu ljósi, enda líta sumir svo á að þau gefi Bandaríkjamönnum þá réttlætingu sem þeir þurfi, séu eins konar stríðsástæða, casus belli. „Þeir vita að hvers konar aðgerð gegn Íran mun verða svarað með tilhlýðilegum hætti,“ sagði Ahmad- inejad hins vegar á þriðjudag um möguleikann á hernaðarárás Bandaríkjamanna. Og augljóst er að ákvörðun um árás á Íran gæti haft hrikalegar afleiðingar. Fyrir það fyrsta er ekki víst að með því að skjóta stýriflaugum á kjarnorkuver Írana náist sá árang- ur sem eftir sé vænst. Íranar hafa dreift kjarnorkuverum sínum víða um landið og falið sumar stöðvar, jafnvel neðanjarðar. Þá er ekki víst að menn hafi þá öruggu vitneskju um staðsetningu veranna sem þarf. Í öðru lagi hafa menn áhyggjur af því hverjar afleiðingar slíkra að- gerða yrðu. Vart er hægt að segja, að almenningsálit í veröldinni sé Bandaríkjastjórn hliðhollt og því er næsta víst að mikil óánægjubylgja færi um heimsbyggðina, að ekki sé talað sérstaklega um múslíma- heiminn, með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. Þá má gefa sér að Íran tæki slíkri árás ekki orðalaust. Hvað það hefði í för með sér er í raun ómögulegt að segja til um. Mögulega myndu Íranar auka til muna stuðning við hryðjuverkaöfl, hvort heldur væri í Írak eða í Líb- anon (Hezbollah), svo dæmi séu tekin. Aðeins vondir kostir virðast því í stöðunni, gefi menn sér að Íran með kjarnorkuvopn valdi slíkum óstöðugleika í heimshlutanum (ekki síst í ljósi yfirlýsinga þarlendra ráðamanna um eyðingu Ísr- aelsríkis) og sé algerlega óvið- unandi kostur. Reuters Umdeildur Ahmadinejad Íransforseti hefur kallað Ísraelsríki „æxli“ sem flytja bæri til Þýskalands eða Austurríkis. Fylgja árásir í kjölfar orðastríðsins? Í HNOTSKURN »Íran er aðili að NPT-sáttmálanum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Þeir segjast hins vegar hafa fullan rétt til að reka kjarn- orkuáætlun og fullyrða að markmið hennar séu ein- ungis friðsamleg. »Bandaríkjastjórn ograunar flest önnur áhrifa- ríki telja hins vegar ljóst að tilgangur kjarnorkuáætl- unarinnar sé sá að búa til kjarnorkusprengju. Bush Bandaríkjaforseti segir að ef Íranar fá að koma sér upp kjarnorkuvopnum vofi „kjarn- orkuhelför“ yfir Mið-Austurlöndum. Bandaríkin muni bregðast við þessari ógn áður en það er um seinan. Þýða þessi ummæli að vaxandi líkur séu á því að gerð verði hernaðarárás á Íran? erka Jó- ni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.