Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ekki vil ég láta hjá líða að minnast Eiríks með nokkrum orðum. Okkar kynni hófust þegar ég og fóstursystir hans Fanney Magnús- dóttir fórum að skjóta okkur hvort í öðru. En það sýnir betur en flest annað góðsemi foreldra hans, Eiríks Sigfússonar og konu hans Önnu Gunnarsdóttur, að þau ólu upp þær Fanneyju og móður hennar Jakob- ínu Oddsdóttur og reyndust þeim með afbrigðum vel og ekki var að sjá né heyra að þeirra eigin börn nytu forgangs á heimilinu. Þar nutu allir jafnt umhyggju þeirra og hug- ulsemi. Það fór ekki hjá því að ýmsu þyrfti að hyggja að á bæ, þar sem var fremur lítið bú og þurfti að mæta ýmsum áföllum, slæmu tíðarf- ari, búfjársjúkdómum og veikindum sem herjuðu á fólkið sjálft. Þetta tókst þeim hjónum afburða vel, og þeirra var það ánægjulega hlut- skipti að vera fremur veitendur, en þiggjendur, enda mikils metin af öll- um sem þau þekktu. En því miður hvarf þessi myndarskapur með þeim. Eftir þeirra tíð var heimilið ekki svipur hjá sjón. Allt snerist nú um að spara og láta helst ekkert eft- ir sér, sem öðrum þóttu sjálfsagðir hlutir og okkur sem næst þessum góðu systkinum stóðu var raun að horfa upp á þau hokra án allra þæg- inda og þess sem venjulegt fólk tel- ur til sjálfsagðra lífsgæða. En aldrei var kvartað. Þetta var þeirra háttur. Sjónvarpsmenn gerðu þátt um Málmfríði systur Eiríks sem sýndi þær ömurlegu aðstæður, sem hún bjó við árum saman af fúsum og frjálsum vilja, þessi þáttur var óþarfur og átti ekkert erindi við óviðkomandi fólk. Eiríkur var án efa vel gefinn maður og minnið óbrigð- ult og ekki er að efast um heiðar- leikann, en bókvitið verður ekki eitt saman í askana látið, hann kunni ekki að verjast ásælni annarra og því fór sem fór. Hann varð vegna eigin hrekkleysis leiksoppur þeirra sem vildu honum ekki vel og bar aldrei sitt barr eftir það. Það væri ekki rétt að halda því Eiríkur Björgvin Eiríksson ✝ Eiríkur BjörgvinEiríksson fædd- ist í Dagverðargerði í Tunguhreppi í N-Múlasýslu 16. des- ember 1928. Hann lést á elliheimilinu Grund 25. ágúst síð- astliðinn og var út- för hans gerð frá Fossvogskapellu 3. september. fram að við Eiríkur værum sérstakir vin- ir, til þess vorum við of ólíkir. Hann vildi tala um gamla tímann, söguna og ættfræði, en ég um nútímann og tæknina. En því er ekki að neita að ég hafði lúmskt gaman af að heyra hann tala um löngu dáið fólk, eins og hann hefði hitt það í gær. Við leiðarlok kveðj- um við hjónin og fjöl- skylda okkar þennan vammlausa vin okkar, Eirík Björgvin Eiríksson, og þökkum honum samfylgdina. Þær óskir kunnum við bestar honum til handa í nýjum heimkynnum að hon- um verði rétt þykk ættfræðibók til að glugga í. Fanney Magnúsdóttir og Jón Frímannsson. Eftir að Eiríkur fluttist til Reykjavíkur þurfti hann eins og all- ir aðrir á ýmissi aðstoð að halda, ókunnugur borgarlífinu. En hann átti þá sem betur fer hauka í horni og þá reyndist hún móðir mín hon- um betri en engin. Um árabil þvoði hún fötin hans og ófáir voru bitarnir sem hrutu til hans af hennar borði. Enda var alla tíð kært með þeim. Hún veiktist 1988 af Alzheimer- sjúkdómnum og gat þá ekki lengur hugsað um hann eins og áður. Einn- ig var vinur hans og velgerðarmað- ur Sverrir Hermannsson Eiríki ómetanlegur og mat hann Sverri vel. Þegar tekið var að halla undan fæti hjá honum hitti Jón mágur minn eitt sinn Sverri vin hans og minntist á að nú væri komið að því að gera eitthvað fyrir Eirík. Já, það verður að drífa í því, sagði Sverrir og kallaði á Margréti dóttur sína, sem var á ferð með honum og sagði henni að hún yrði að sjá um að Ei- ríkur kæmist á stað sem honum hæfði sem allra fyrst. Það leið ekki langur tími, þangað til ég frétti að Eiríkur væri kominn á Elliheimilið Grund. Fyrir þetta drengskapar- bragð þeirra feðgina erum við þeim eilíflega þakklát. Svona eru vinir í raun. Eflaust eru þeir miklu fleiri sem greiddu götu Eiríks og þökk sé þeim öllum. Það er býsna merkileg reynsla að hafa kynnst manni eins og Eiríki Björgvin Eiríkssyni. Manni sem lét ekki glepjast af prjáli nútímans og þorði að vera hann sjálfur eins og Guð skapaði hann. (Þó hann efaðist nú reyndar um það.) En gjarnan hefði ég viljað sjá hann eiga þægi- legra líf og gjarnan hefði ég viljað að hann hefði heldur notað aurana sína sér til ánægju en að hafa það, að því er virtist, að markmiði að láta sig vanta allt, sem hann gat mögulega án verið. Tveir elstu synir Jóns og Fann- eyjar, Frímann og Eiríkur, dvöldu hjá þeim systkinum, Eiríki og Fríðu, í Dagverðargerði nokkur sumur og upplifðu þar ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt, bæði um fyrri búskaparhætti og ýmsan fróð- leik og frásagnir frá fyrri tímum. Þeir bræður höfðu oft samband við Eirík eftir að hann fluttist til Reykjavíkur, bæði heimsóttu hann og buðu honum heim og rifjaðist þá upp ýmislegt skemmtilegt frá þess- um sumrum. Ég kveð Eirík með virðingu og vil um leið koma á framfæri kveðju frá mágkonu móður minnar og ferming- arsystir Eiríks, Hólmfríði Björns- dóttir, sem bjó á næsta bæ, Rangá. Leit hún oft til með þeim systkinum. Hún hélt alltaf sambandi við hann, síðast skömmu fyrir andlátið og var hann þá nokkuð hress. Kristbjörg Guðmundsdóttir. Eiríkur Björgvin hét maður. Hann var sonur Eiríks Sigfússonar og Önnu Gunnarsdóttur. Hann bjó í Dagverðargerði við Lagarfljót, en flutti til Reykjavíkur. Hann var sjálfstæðismaður og bókamaður svo mikill að enginn réð í móti að mæla er hann kvað. Hann átti eina systur er Málfríður hét. Hún var fjölfróð og bjó ein í Dagverðargerði eftir föður sinn. Engum manni dytti í hug að skrifa venjulegan formála um Eirík Eiríksson frá Dagverðargerði. Svo forn var hann í háttu og sérstakur í sjón og raun að orða er vant. Til- heyrði raunar ekki þessari öld og hinni síðustu jafnvel ekki heldur. Kannski fæddur eins og 700 árum of seint til að njóta sín til fulls. Hví- líkur fengur hefði ekki verið að slík- um manni á Þingeyrum eða í Helga- fellsklaustri á árum áður, eða sem skrifari hjá Snorra. En stundum er réttur maður uppi á röngum tíma og öfugt. Við því er ekkert að gera. Mér er í barnsminni að grindhor- aður unglingur kom fyrir húshornið í Bót í norðangarra að haustlagi. Hann var í samfestingi og á stíg- vélum með derhúfu á höfði, blár af kulda. Hann var að sækja rollur. Tveggja tíma gangur. Tók því ekki að ná í hest. Þessi æskumynd af Eiríki Björg- vin hefur haldist lítið breytt, þó skó- síður frakkinn hafi tekið við af sam- festingnum hin síðari árin og hárið færst niður á hökuna. Eiríkur var ekki sundurgerðarmaður í klæða- burði né hirðumaður um sjálfan sig. Af honum skein hins vegar hrekk- leysið og nánast barnsleg einlægni. Eiríkur ólst upp með foreldrum sínum á hinu undursnotra koti Dag- verðargerði í Hróarstungu. Þar var á tíðum heilsufar tæpt og þröngt í búi. Með ýtrustu sparsemi komst heimilið þó af. Þessar aðstæður mörkuðu Eirík ævilangt. Af skyldu- rækni við foreldrana vann Eiríkur búinu framan af þótt hann væri frá- bitinn búskap. Þótti rollurnar hver annarri líkar og var amlóði við vélar. Hugur hans hneigðist til bóka og fræðistarfa af óútskýrðri ástríðu. Eins og mörgum kotbændum er tamt lagði Eiríkur metnað sinn í að vera sjálfstæður og engum háður. Hann gerðist sem slíkur ákafur stuðningsmaður Sjálfstæðisflokks- ins, en hryllti sig ef minnst var á Framsókn. Sparsemi Eiríks var og viðbrugðið, nálgaðist meinlæti. Hver sú ríkisstjórn sem hækkaði tóbakið fékk falleinkunn hjá Eiríki og þeim systkinum báðum. Eiríkur kunni þó bæði að gleðjast og gleðja. Sagnabrunnur og frásögnin í al- gleymi. Gat átt erfitt um mál fyrir hlátri. Tók í glas og hafði í kviðling- um. Þrumaði rímur yfir nærstödd- um ef vel var veitt. Velgjörðarmaður Eiríks fyrr og síðar, Sverrir Hermannsson, frels- aði Eirík á miðjum aldri frá búskap- arbaslinu og útvegaði honum starf á bókasafni Alþingis. Þar undi Eirík- ur hag sínum hið besta og lét hlut sinn í engu. Mun hann í senn hafa áunnið sér virðingu og vináttu flestra alþingismanna, enda lifandi uppsláttarrit um sögu og innlend málefni, auk þess vel jafnoki þeirra um kveðskap. Ógleymanlegt er sex- tugsafmæli Eiríks þegar hann, sem velt hafði hverri krónu, leigði Hótel Borg og bauð þingmönnum og rík- isstjórn ásamt helstu embættis- mönnum þjóðarinnar og fella þurfti niður fundi á Alþingi. Í Reykjavík bjó Eiríkur í lítilli íbúð á Brávallagötu. Ekki var þar ríkmannlegt um að litast en staflar af bókum og blöðum í öllum her- bergjum. Eiríkur átti þar ekkert sjónvarp. Ég sá þar heldur aldrei ryksugu, enda hefðu þá laus blöð og lélegri handrit verið í uppnámi. Mundi einhver hafa sagt að það vantaði „woman’s touch“ á því heim- ili. Því miður naut Eiríkur lítt spar- semi sinnar og ráðdeildar. Sannað- ist enn á honum hve hrekkleysi og góðvild eru viðsjálir einleikar. Kannski kom það ekki að sök. Hans heimur var í raun löngu liðinn. Sá heimur var ríkur af frásagnargleði og orðsins list. Þeirra auðæfa naut Eiríkur út í æsar. Fátt hygg ég mundi gleðja hann meira en að hitta höfund Hungurvöku eða Eystein Ásgrímsson á landi lifenda. Pétur Stefánsson. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, amma, tengdamóðir og systir, ÁSDÍS STEINGRÍMSDÓTTIR, Framnesvegi 27, lést á líknardeild Landspítala, Kópavogi, laugar- daginn 1. september. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Guðmundur Pétursson, Bergljót Björg Guðmundsdóttir, Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson, Sigurður Árni Steingrímsson, Halla Björg Sigurþórsdóttir, Sindri Már Steingrímsson, Guðmundur Páll Sigurþórsson, Sveinn Haraldsson, Rósa Margrét Steingrímsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR TRYGGVI ÓSKARSSON, Ásvegi 30, Akureyri, lést mánudaginn 3. september á hjúkrunar- heimilinu Seli, Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. september kl. 13.30. Ellý Dagmar Guðnadóttir, Tryggvi Rafn Gunnarsson, Olga Gunnarsdóttir, Gunnar Elvar Gunnarsson, Hulda Rafnsdóttir, Magnús Gunnarsson, afa og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR HELGI TRYGGVASON vélstjóri, Kleppsveg 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, þriðjudaginn 4. september. Útför auglýst síðar. Ágústa Erla Andrésdóttir, Tryggvi Sigurðsson, Erla Halldórsdóttir, Ágúst Ingi Sigurðsson, Eva Leplat Sigurðsson, Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Ása Svanhvít Jóhannesdóttir, Ólafía Ósk Sigurðardóttir, Kári Hrafn Hrafnkelsson, Sigurður Sigurðsson, Hildur Guðmundsdóttir, og barnabörn. ✝ Jóhanna Jó-hannsdóttir fæddist í Króki í Meðallandi 26. mars 1928. Hún lést mið- vikudaginn 29. ágúst sl. Foreldrar hennar voru Jóhann Þorsteinsson, f. 4.9. 1897, og Vilborg Guðmundsdóttir, f. 12.12. 1893. Systk- ini Jóhönnu eru: Páll, f. 27.4. 1924, Ingibjörg, f. 24.9. 1925, Óli Ragnar, f. 12.9. 1926, Sigurlína, f. 11.7. 1929, Steinþór, f. 28.4. 1932, og Gunnar, f. 12.2. 1935. Jóhanna fluttist árið 1945 með foreldrum sínum að Sandaseli í Meðallandi. Árið 1957 giftist hún Markúsi Runólfssyni, f. 25.6. 1928, og hófu þau búskap í Langagerði í Hvol- hreppi, þar sem þau bjuggu til ársins 1997. Þá fluttust þau í Hvolsvöll. Markús lést 9.3. árið 2002. Í lok árs 2003 fluttist Jó- hanna á Kirkjuhvol, Dvalarheimili aldr- aðra á Hvolsvelli, þar sem hún bjó til síðasta dags. Dóttir Jóhönnu og Mark- úsar er Guðrún, f. 7.1. 1961, og sonur hennar er Markús James Dempsey, f. 10.1. 1995. Fóstur- börn Jóhönnu og Markúsar eru tví- burarnir Ágúst og Einar Árnasynir, f. 30.5. 1947, og Ár- mann Þór Guðmundsson, f. 12.5. 1975. Sambýliskona Ármanns er Ása Gróa Jónsdóttir. Dóttir Ár- manns og Ásu er Emilía Guðrún, f. 2004. Börn Ásu frá fyrra hjóna- bandi eru Viktoría Rán Péturs- dóttir og Michael Pétursson. Önn- ur börn Ármanns eru Ísak Andri og Birta Rún. Útför Jóhönnu fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn 8. september kl. 13. Mig langar til að minnast með fáum orðum fyrrverandi nágrannakonu minnar og nöfnu Jóhönnu í Langa- gerði. Fyrstu kynni mín af Jóhönnu voru þegar ég var fimm ára og flutti með fjölskyldu minni að Brekkum ár- ið 1985. Ég hef fáum manneskjum kynnst jafnhlýjum og henni Jóhönnu. Jó- hanna var hjartahlý og hógvær, öllum leið vel í návist hennar. Frá fyrstu tíð tók hún mér vel og það var svo margt sem við gátum brallað saman. Margs er að minnast og sakna, en minningin um elskulega og góða konu mun lifa um ókomna tíð. Ég og fjölskylda mín þökkum Jó- hönnu vináttu og samferð í gegnum árin og vottum Guðrúnu og Markúsi litla innilega samúð. Guð blessi minningu Jóhönnu. Jóhanna Ólafsdóttir. Jóhanna Jóhannsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.