Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 31 MINNINGAR ✝ Sören Einarssonfæddist í Hall- anda á Húsavík 8. september 1914. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 22. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Einar Sörensson sjómað- ur, f. 3.1. 1882, d. 6.4. 1971 og Guðný Árnadóttir, f. 17.10. 1889, d. 8.3. 1985. Systir Sörens var Árnína Björg, f. 29.6. 1918, d. 4.10. 1959, maki Njáll B. Bjarna- son, f. 9.11. 1913, d. 2.2. 2003. Börn þeirra Oddný, f. 28.5. 1943, Einar Guðni, f. 15.8. 1944 og Bjarney Stefanía, f. 7.9. 1947. Hinn 15. maí 1937 kvæntist Sör- en Kristjönu Benediksdóttur frá Grafarbakka á Húsavík, f. 30.7. 1915, d. 11.12. 2003. Foreldrar hennar voru Benedikt Jóhanns- son, f. 11.3. 1877, d. 28.7. 1949 og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 8.11. 1884, d. 21.4. 1961. Sören og Kristjana voru barnlaus en Dag- mar Sörensdóttir, frænka Sörens, var í fóstri hjá þeim í nokkur ár. Einnig tóku þau hjónin ást- fóstri við börn Árnínu Bjargar, systur Sörens. Sören lauk hefð- bundinni skóla- göngu. Hann lærði síðan vélstjórn og aflaði sér formanns- réttinda. Hann hóf sjómennsku upp úr fermingu, fyrst með föður sínum en síð- ar sem formaður. Á yngri árum var Sören nokkur sumur á síldveiðum. Meðfram sjónum stundaði hann ýmsa land- vinnu sem til féll. Lengst af réri hann einn á litlum vélbáti sem faðir hans hafði látið smíða og fékk nafnið Dagfari. Sören hætti sjómennsku árið 1991. Sören og Kristjana bjuggu alla tíð á Húsa- vík, lengst af í Dvergasteini, síðar Höfðavegi 7b. Síðustu árin bjuggu þau að Litla-Hvammi 6 og á Dval- arheimilinu Hvammi á Húsavík. Sören verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Söri frændi hefur alla tíð verið hluti af lífi okkar. Hann var móður- bróðir okkar og við kölluðum hann Söra frænda eða bara frænda. Æsku- heimilið var kærleiksríkt og systkin- in mjög samrýmd. Sören lauk hefð- bundinni skólagöngu, lærði síðar vélstjórn og aflaði sér formannsrétt- inda. Vinnusemi og heiðarleiki voru honum brýnd í föðurgarði og veiði- mannseðlið í blóð borið. Sören var ákafamaður til vinnu, fengsæll og far- sæll. Sören og eiginkona hans Kristjana Benediktsdóttir stofnuðu heimili í Dvergasteini á Húsavík. Söri og Stjana voru svo samrýnd og samhent að annað var nánast aldrei nefnt án hins. Heimili þeirra stóð okkur alltaf opið. Stjana og Söri voru ómetanleg í hjálpsemi við okkur, ekki síst í veik- indum móður okkar og eftir lát henn- ar. Andlát systurinnar í blóma lífsins var mikið áfall fyrir frænda. Hann var ekki maður sem bar tilfinningar sínar á torg en það kom alltaf einhver gljái í augun á honum þegar nafn hennar var nefnt. „Ég sá aldrei neitt nema sjóinn og sjómennsku,“ sagði hann gjarnan. Hann fór ungur til sjós með föður sínum á vélbátnum Otri. Einar faðir hans stundaði flutninga á Otri jafnframt fiskveiðum og selveið- um og var Sören með í þeim ferðum. Seinna varð Sören formaður á Otri. Þeir feðgar unnu alla tíð mikið saman og var samband þeirra einstaklega gott. Sören eignaðist selabát föður síns Dagfara árið 1957. Þá var komin vél í bátinn og reri Sören á Dagfara allt þar til hann hætti sjómennsku ár- ið 1991. Fyrr á árum stundaði hann einnig selveiðar og rjúpnaveiðar eins og fað- ir hans. Á heimili Sörens var veiði- byssan sjálfsagt amboð til öflunar lífsviðurværis, sem bar að umgang- ast af natni og virðingu, enda fékk Sören haglabyssu nr. 12 í ferming- argjöf frá föður sínum. Meðfram sjó- mennskunni stundaði Sören ýmsa landvinnu sem til féll. Hann starfaði mörg haust í Sláturhúsi Kaupfélags Þingeyinga. Söri og Stjana stunduðu búskap með kindur í tvo áratugi. Þau höfðu tún á Húsavíkurhöfða. Við systkinin minnumst góðra stunda í heyskap með þeim úti á Höfða. Sú hátíð reis hæst þegar Söri, sposkur á svip, fisk- aði appelsín, maltöl og kremkex upp úr hvítum léreftspoka. Söri var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík og spilaði í knattspyrnuliði félagsins sem vann Valsskjöldinn 1934. Í tilefni af 80 ára afmæli Völsungs var Sören sæmdur gullmerki KSÍ. Söngfélagi í Karlakórnum Þrym var hann í ára- tugi. Söri var laxveiðimaður af ástríðu. Hann hafði ekki mikið álit á flugunni, maðkurinn var hans beita þótt hann léti sig stundum hafa það að fleygja spæni. Hann var félagi í Stangveiðfélaginu Flúðum. Drauma- laxinn veiddi hann 84 ára gamall. Laxinn tók maðkinn djúpt, fram og niður af hríslunni í Hrúthólma. Urðu báðir nokkuð móðir áður en rimm- unni lauk. Laxinn vó 26 pund – fal- legur hængur sem uppstoppaður prýðir vegg í Safnahúsinu á Húsavík. Frændi var náttúrubarn, heima- kær en gladdist í góðra vina hópi. Tók aldrei bílpróf og fór aðeins einu sinni um ævina í flugvél en hann þekkti miðin í Flóanum og landið umhverfis Húsavík. Hann þekkti rjúpnabrekk- urnar, berjalautirnar og móana þar sem krían verpti. Hann hafði sína að- ferð við að finna eggin þegar hreiðrin voru dreifð í varpinu. Svo kunni hann að koma eggjunum fyrir í derhúfunni og bera þau á höfðinu heim. Hann leiddi okkur um þessi ævintýralönd, stundum á bátnum, stundum gang- andi, stundum bara í huganum og ævintýrin urðu sem veruleiki. Söri frændi mun alltaf verða hluti af lífi okkar. Guð blessi minningu hans. Oddný Njálsdóttir, Einar Njálsson, Bjarney Njálsdóttir. Sören Einarsson Þar sem ég komst ekki í útför Þórunnar langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Þórunn var snemma rösk til verka og var vel liðtæk við búskap foreldra sinna. Hvort sem var að sækja kýr eða kindur, þó óþægar væru, gafst hún ekki upp fyrr en allt var komið til síns heima. Ég fylgdist með þessu þar sem ég átti heima aðeins ofar og átti daglega leið framhjá Efstakoti þar sem for- eldrar hennar bjuggu. Það var ynd- islegt útsýnið hjá okkur þar sem sá út á sjóinn á sumrin er bátarnir komu inn drekkhlaðnir af síld. Og í hina átt- ina fram Svarfaðardalinn um hina blómlegu sveit. Einnig blasti Hrísey við okkur og fallegt var að sjá ljósin þar þegar skyggja fór á kvöldin. Við Þórunn Ingunn Þorsteinsdóttir ✝ Þórunn IngunnÞorsteinsdóttir fæddist á Dalvík 18. júlí 1926. Hún lést á Landspítalanum 22. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Fossvogskirkju 2. apríl. þetta útsýni ólumst við Þórunn upp. Ekki var hávaði eða mengun frá vélum. Fáir voru bíl- arnir til í þá daga. Ekkert sjónvarp en mikið hlustað á útvarp. Einn vetur fór Þór- unn í Húsmæðraskól- ann að Laugalandi í Eyjafirði, til að læra að matbúa áður en lengra var haldið. Eftir þetta fór hún á nokkrar ver- tíðir, matráðskona suður með sjó. Þar kynntist hún mannsefni sínu, hinum ágætasta manni, Þorsteini Guð- mundssyni frá Flatey á Skjálfanda. Þau hófu búskap í Tómasarhaga, svo komu börnin eitt af öðru, seinna fluttu þau í Búðagerði. Þá leit ég oft inn til þeirra. Þó að Þórunn ætti fjög- ur börn þá gat hún alltaf tekið börn í pössun og þar áttum við sameiginlegt áhugamál. Alveg var það sama hvort Þórunn passaði annarra börn eða sín eigin, alltaf var sama hjartahlýjan og nærgætnin. Og ekki setti Þorsteinn sig á móti því. Ég var svo heppin að Þórunn gat passað fyrir mig, fyrir það er ég ævinlega þakklát. Þor- steinn reyndist Þórunni afar góður eiginmaður, ekki síst er líða tók á æv- ina og sjúkdómar fóru að gera vart við sig. Þá var oft kallað í Þorstein eða Steina eins og hann var kallaður í daglegu tali. Alltaf var hann tilbúinn að aðstoða hana og taldi það ekki eft- ir sér. Dóttursonur Þórunnar og Þor- steins hefur alist upp hjá ömmu og afa. Er það afar dýrmætt fyrir ung- linginn að fá góð ráð og leiðbeiningar á leið út í lífið. Dóttir Þórunnar og Þorsteins ann- ast nú matseld fyrir föður sinn og son. Er því gott til þess að vita að Þorsteinn er ekki einn. Þótt nú hafi fallið skuggi yfir heimili Þorsteins getur hann glaðst yfir ljúfum end- urminningum um eiginkonu sína. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut, en aftanskinið hverfur fljótt, það hefur boðið góða nótt. (Magnús Gíslason) Öllum ástvinum Þórunnar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu góðrar konu. Elín S. Kristinsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTINN ERLENDSSON, Neðstaleiti 2, Reykjavík, lést miðvikudaginn 24. október á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Sigursteina M. Jónsdóttir, Sigursteinn Guðmundsson, Therese Thøgersen, Kári Guðmundsson, Jytte Guðmundsson, Elín S. Guðmundsdóttir, Hjörtur Árnason, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Unnur Ólafsdóttir, Þröstur Guðmundsson, Helle Rosenlyst Guðmundsson, Jórunn Guðmundsdóttir, Magnús Þór Sveinsson, Bjarki Guðmundsson, Dagmar G. Þorleifsdóttir, Jón E. Guðmundsson, Hanna Björnsdóttir, Þórarinn F. Guðmundsson, Rannveig Björnsdóttir Gunnar S. Guðmundsson, Jóna Kristín Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁSTRÁÐUR HELGFELL MAGNÚSSON, Hörgsási 4, Egilsstöðum, lést mánudaginn 29. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Rósa Björnsdóttir, Elvar Ástráðsson, Guðrún Bóasdóttir, Sigríður Júnía Ástráðsdóttir, Björn Björnsson, Magnús Ási Ástráðsson, Hulda Rós Sigurðardóttir. Jóhanna Birna Ástráðsdóttir, Ævar Bjarnason og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, dóttir mín og systir, JÓRUNN IBSEN, lést 23. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristófer Eðvarðsson, Nína M. Þórisdóttir, Eygló Ibsen, Eygló H. Ibsen, Halldór Ibsen. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, PETREA GUÐNÝ KONRÁÐSDÓTTIR ljósmóðir, Hjallalundi 13b, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 29. október. Jarðarför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 13.30. Helgi Tryggvason, Janice Tryggvason, Guðlaug Inga Tryggvadóttir, Valur Fannar Valsson, Svandís Tryggvadóttir, Sigurjón Már Manfreðsson, Tryggvi Pétur Tryggvason, Ingveldur Tryggvadóttir, Sigmundur Björnsson og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, bróðir og frændi, ÞORLEIFUR HELGI GRÍMSSON, Fannarfelli 12, Reykjavík, var jarðsunginn miðvikudaginn 31. október. Fyrir hönd vandamanna, Helga Þorleifsdóttir, Hjalti Guðmundsson, Sigríður Þorkelsdóttir, Grímur Haraldsson, Svava Axelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.