Morgunblaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 332. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is ILMUR JÓLANNA RAUÐ OG FALLEG, ANGA EINS OG EPLI OG STAFA FRÁ SÉR HLÝRRI BIRTU >> 24                           FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LEYFT verður að veiða allt að 1.333 hrein- dýr árið 2008 og hefur kvótinn meira en þre- faldast frá árinu 2000. Til 2003 var fjöldi um- sókna um veiðileyfi í samræmi við kvótann en síðan hefur umsóknum fjölgað margfalt. Skarphéðinn G. Þórisson, hreindýrasér- fræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, sagði að veiðikvótinn hefði fylgt stofnsveiflu dýranna í áranna rás. T.d. hefðu verið skotin 1.008 hreindýr árið 1976, árið eftir 981 dýr og 1991 voru veidd 1.259 hreindýr. „Stofninn hefur verið að vaxa á síðustu ár- um og við verðum að fylgja því eftir,“ sagði Skarphéðinn. Hann sagði tilgang veiðanna vera þann að hér væri lífvænlegur hrein- dýrastofn sem gengi ekki of nærri gróðri. Miðað hefur verið við að vetrarstofninn sé 4.400-4.500 dýr. Þegar kálfarnir bætast við stækkar stofninn og við það er veiðikvótinn miðaður. Tíðarfar hefur verið gott og nátt- úruleg dánartíðni lítil. Aukning kvótans verður aðallega á Fljóts- dalsheiði. Skarphéðinn sagði að hreindýrin hefðu að mestu yfirgefið sumarhaga á Vest- uröræfum upp úr 2001-2002. Sumir teldu að framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og aukin umferð þar hefðu átt þátt í því. Tíð- arfarið hefði líklega einnig haft áhrif. Hin síð- ari ár hafa sumarhagar þessarar hjarðar ver- ið á innri hluta Fljótsdalsheiðar þar sem áður var haustbeitiland. Samhliða því hefði fall- þungi 4-5 vetra kúa lækkað úr 41 kg í um 39,5 kg, en á liðnu hausti hækkaði hann aðeins. Kvótaaukningin nú miðaði ekki síst að fækk- un hreinkúa á Fljótsdalsheiði. Skarphéðinn taldi ekki ólíklegt að hreindýrin leituðu aftur á Vesturöræfi, en það mundi m.a. ráðast af því hver áhrif Hálslóns yrðu á Vesturöræfi. Dreifa þarf veiðinni meira Jóhann G. Guttormsson, starfsmaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum, telur að aukinn veiðikvóti kalli á meiri dreifingu veiðiálagsins á svæði 2, þ.e. á Fljótsdals- og Fellaheiðum. Nú er heimilt að veiða hreinkýr frá 1. ágúst til 15. sept- ember. Jóhann sagði hægt að nýta fyrrihluta tímabilsins miklu betur en þungi veiðinnar hefur verið á síðari hlutanum. Hann taldi einnig nauðsynlegt að fjölga leiðsögumönn- um með hreindýraveiðum á svæði 2 en eitt- hvað var um að veiðimenn ættu erfitt með að fá leiðsögn á liðnu hausti. Veiði í takt við viðgang Hreindýrakvótinn hefur þrefaldast frá 2000 ÞAÐ hefði borgað sig fyrir ríkið að selja einkaaðilum öll sín háhita- svæði í upphafi sjöunda áratugarins og þeir sem hefðu eignast svæðin hefðu í krafti öruggs eignarréttar nýtt réttindi sín á svæðunum betur en síðan hefur komið í ljós að gert hefur verið. Þessari skoðun lýsti Ragnar Árnason hagfræðiprófessor á málþingi í gær um eignarrétt á auðlindum í jörðu. Málþingið var haldið á vegum RSE, Rannsóknamiðstöðvar um sam- félags- og efnahagsmál. Ragnar var framsögumaður ásamt Karli Ax- elssyni hrl. á málþinginu og var að bregðast við fyrirspurn Bjarna Harðarsonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Mögulegir einkaað- ilar hefðu nýtt réttindi sín betur „hvort heldur til verndunar, útvistar eða orkuframleiðslu“, sagði Ragnar og bætti við: „Svo framarlega sem, og það er hinn stóri fyrirvari, aðrar markaðsbrenglanir hefðu ekki komið inn í myndina.“ Ef menn þyrftu að veðja við skilyrði óvissunnar í þessum efnum „þá er að mínu viti miklu vænlegra að veðja á einkaeignarréttinn en hið opinbera“, sagði hann. „Öll hlutlæg staða málsins og hlutlægar að- stæður benda til þess að að jafnaði verði einkaaðilar betri hvað snertir hagkvæmni en hið opinbera, þó að frávikin geti vissulega orðið.“ Ríkið hefði átt að selja Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170 www.boconcept.is X E IN N IX 0 7 11 0 08 EF ÞÚ VEIST EKKI HVERNIG ÞÚ GETUR GLATT ÁSTVINI ÞÍNA EKKI KENNA OKKUR UM Leikhúsin í landinu Má bjóða þér sæti >> 45 Eftir Soffíu Haraldsdóttur og Agnesi Bragadóttur HLUTAFÉ í FL Group verður á næstunni aukið um 49% eða um rúma 4,5 milljarða hluta. Nýtt hlutafé verður selt á genginu 14,7 sem þýðir að um allt að 67 milljarða króna aukningu er að ræða að markaðsvirði. Þetta er nánast fjórð- ungs verðlækkun frá lokagengi FL í fyrradag, sem var 19,25. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun Fons, eignarhalds- félag í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristjánssonar, kaupa allt að 10% hluta í FL, og þar ræðir um hluta af bréfum Hannesar Smárasonar og Magnúsar Ármann, sem á 33% í Materia Invest, eiganda rúmlega 9% í FL Group. Hermt er að kaupverð Fons á bréfunum verði einnig 14,7. Baugur Group verður stærsti hluthafinn í FL Group en fé- lagið eykur eignarhlut sinn í FL Group úr 17,7% í rösk 38% í fyrsta áfanga hlutafjáraukningarinnar en á næsta ári er áætlað að hlutur Baugs verði minnkaður niður í 35,9%. Eignarhlutur Hannesar Smárasonar, sem hefur verið stærsti hluthafinn, fer úr 20,5% nið- ur í um 13,8% miðað við óbreyttan fjölda hluta. Greitt með fasteignafélögum Baugur greiðir fyrir hlutaféð í FL Group með eignum sem metnar eru á 53,8 milljarða króna, sem aft- ur er kaupverð hlutafjárins. Um er að ræða allar eignir Baugs í fast- eignafélögum. Stærst er hið nor- ræna Landic Property, sem áður hét Stoðir, og á FL Group 39,8% í félaginu eftir viðskiptin. Að auki eignast FL Group 32% hlut í Fast- eignafélagi Íslands, tæp 50% í Þyrpingu, tæp 23% í Eik og eign- arhluti í alþjóðlegum fasteignasjóð- um. Baugur eignast sem fyrr segir nýtt hlutafé í FL Group sem nemur 53,8 milljörðum að markaðsvirði. Þessu til viðbótar verður fagfjár- festum boðið að kaupa nýtt hlutafé fyrir 10 milljarða króna og er þar einnig miðað við gengið 14,7. Í tengslum við það útboð mun Baug- ur selja af hlut sínum sem nemur fimm milljörðum að markaðsvirði og við það fer eignarhlutur Baugs niður í 35,9%, sem fyrr segir. Loks er fyrirhugað forgangsrétt- arútboð á nýju hlutafé að fjárhæð allt að þrír milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2008 og verður sölu- verðið áfram 14,7. Hluthafar í FL Group munu eiga forkaupsrétt á því hlutafé í hlutfalli við eign sína í félaginu. Baugur fell- ur hins vegar frá forkaupsrétti sín- um í því útboði. | 6 og 14 Morgunblaðið/Ómar Umskipti Hannes Smárason, fráfarandi forstjóri, Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður og Jón Sigurðsson, nýr forstjóri, lýsa breytingunum. 67 milljarðar inn í FL  Baugur stærsti hluthafinn í FL Group með rúman þriðjung  49% aukning hlutafjár á næstunni  Fons mun kaupa allt að 10% hlut í félaginu Í HNOTSKURN » Hannes Smárason hætt-ur sem forstjóri og tekur sæti í stjórn. Jón Sigurðsson tekur við forstjórastólnum. » Alls munu 15 milljarðarkróna í FL Group standa fagfjárfestum til boða. Þar af eru fimm af hlut Baugs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.