Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 333. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is VERÐUR SÓPRAN „ÞAÐ SEM ER SKRIFAÐ FYRIR SÓPRAN ER MIKLU MEIRI PRÍMADONNUTÓNLIST“ >> 16 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SÍMNOTENDUR geta nú valið á milli þriggja fyrirtækja sem bjóða upp á farsíma af þriðju kynslóð, svo- nefnda 3G-síma, og tilheyrandi þjón- ustu; Nova, Símans og Vodafone. Síminn byrjaði 4. september sl. að bjóða upp á 3G-símaþjónustu. Nova, símafélag í eigu Novator, þ.e. Björg- ólfs Thors Björgólfssonar, hóf sína 3G-þjónustu 1. desember og Voda- fone hóf að bjóða upp á 3G-þjónustu um síðustu helgi. 3G-tæknin býður upp á ýmsa möguleika, m.a. myndsímtöl og að skoða Netið í símanum. Einn af þeim möguleikum sem líklegt er að verði mikið notaðir er að tengja fartölvur við Netið með því að nota sérstök 3G- netkort en þannig er hægt að tengj- ast Netinu hvar sem er – svo lengi sem viðkomandi er innan 3G-þjón- ustusvæðis. Raunar var hægt, með eldri tækni, að nota gsm-síma til að tengjast Netinu en gagnaflutning- arnir voru mun hægari. Þá, sem hyggjast nota 3G til að tengja fartölvu við Netið, er rétt að minna á að það er töluvert dýrara en með hefðbundinni ADSL-tengingu. Sem dæmi má nefna að mánaðargjald fyrir 3G-netkort hjá Símanum með 1 GB inniföldu er 4.990 krónur. Fyrir sama fé má kaupa áskrift að ADSL- tengingu hjá Símanum með 6 GB inniföldum. Hjá Vodafone kostar 3G- netkort með 1 GB 4.980 krónur en ADSL-tenging með ótakmörkuðu niðurhali kostar 5.460 krónur. Nova býður m.a. upp á 3G-netkort með 500 MB á 2.990 krónur. Hjá öllum fyr- irtækjunum er hægt að velja á milli mismunandi gagnamagns. Hægt er að að fylgjast með hversu miklu hefur verið hlaðið niður með 3G-netkortinu og þannig geta við- skiptavinir haldið utan um pyngjuna. Þrjú byrj- uð með 3G MARKAÐSVERÐMÆTI Exista minnkaði um 4,7% í gær og nemur verðlækkun félagsins í vikunni nú 11,2% eða 33 milljörðum króna. Verð hlutabréfa í félaginu hefur hríðfallið síðan það náði hápunkti sínum um mitt sumar. Lækkunin nemur nú 43% á fimm mánuðum sem þýðir að nærri 200 milljarðar króna hafa þar farið forgörðum. Einn hlutur í Exista kostaði fyrir réttu ári 22 krónur. Snörp verð- hækkun varð á fyrri hluta ársins í ár sem skilaði sér í nærri tvöföldun, eða 40,25 krónum. Hluturinn kost- ar nú 22,95 krónur og nálgast skráningarverð félagsins á hluta- bréfamarkað í fyrrahaust. Raunar hafa öll þau félög sem skipa úrvalsvísitölu kauphallarinn- ar lækkað í verði í vikunni, utan Össur sem stendur í stað. Markaðs- verðmæti þessara félaga hefur hrunið um 176 milljarða króna. Þá hefur sú mikla hækkun sem varð á verði hlutabréfa í úrvalsvísi- tölunni á árinu nánast þurrkast út. Þegar mest lét, í sumar, hafði gengi úrvalsvísitölunnar hækkað um rúmlega 40% frá áramótum. Nú nemur hækkunin frá áramótum 1,6% þegar tekið er mið af þeim fé- lögum sem nú skipa vísitöluna. Úrvalsvísitalan samanstendur nú af tólf fyrirtækjum og hafa verð- breytingar á hverju og einu þeirra verið afar mismunandi á árinu. Sex þeirra hafa hækkað í verði frá ára- mótum, fimm hafa lækkað og Ice- landair stendur nú í sama verði og í upphafi árs. Órói tengdur óvissu um FL Nokkur órói einkenndi hluta- bréfamarkaðinn í kringum upp- stokkun hjá FL Group. Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs, segir óróleikann á mörkuðum valda mönnum áhyggjum. Hann segir þróun mála hjá FL Group hafa áhrif á allan markaðinn. Viðar Már Matthíasson, formað- ur yfirtökunefndar, segir nefndina fylgjast náið með þeim breytingum sem séu að verða á hluthafahópi FL Group með tilliti til þess hvort yf- irtökuskylda sé að myndast. Hann segir að samstarf Baugs við aðra hluthafa verði meðal annars skoð- að. Annars vegar samstarfið við Materia Invest og hins vegar við Gnúp. Hluthafafundur verður haldinn í FL Group hinn 14. desember og þá verður lögð fram skýrsla um mat á þeim fasteignum sem Baugur lagði inn í FL Group. Morgunblaðið ósk- aði eftir að fá að sjá skýrsluna, en því var hafnað. Lífeyrissjóðir eru meðal eigenda hlutafjár í FL Group og hefur markaðsvirði hlutafjár- eignar þeirra í félaginu lækkað um tæpa þrjá milljarða á árinu. Verðmæti Exista féll um 33 milljarða í vikunni                             Í HNOTSKURN » Markaðsverðmæti Existahefur aukist um 2% frá ára- mótum en verðmæti FL Group hefur minnkað um 36%. » Verið að kanna hvort yf-irtökuskylda hafi myndast í FL Group. » Leita þarf aftur til ársins2001 til að finna lækkun á ís- lenskum hlutabréfamarkaði inn- an ársins, að sögn Kaupþings.  Miðopna og Viðskipti unina. Þá fannst dauð 72 senti- metra löng nýhrygnd sjóbirtings- hrygna. Starfsmenn áhaldahúss Hvera- gerðisbæjar fóru með Varmá á ALVARLEGAST við klórmeng- unarslysið í Varmá er að það skyldi verða þegar allur fiskur, bæði stað- bundinn fiskur og sjógöngufiskur, var í ánni, að mati Magnúsar Jó- hannssonar, fiskifræðings og deild- arstjóra Suðurlandsdeildar Veiði- málastofnunar. Magnús var ásamt Benóný Jónssyni, líffræðingi hjá Veiðimálastofnun, við rannsóknir á lífríki Varmár í gær. Magnús sagði að í Varmá væri mest sjóbirtingur og staðbundinn urriði en einnig bleikja, regnboga- silungur, hornsíli, áll og lax. Við Reykjafoss, nokkru ofan við lækinn þar sem klórmengun frá sundlaug- inni í Laugaskarði komst í ána á föstudag, var talsvert líf. Sjá mátti væna urriða stökkva í fossinum og einnig fundust þar nokkur urr- iðaseiði. Frá útrennslinu þar sem klórinn fór í ána og niður undir fiskeld- isstöðina á Öxnalæk, neðan við Suðurlandsveginn, fundust aðeins tvö lifandi urriðaseiði, dauð urr- iðaseiði og eitthvað af lifandi ál sem kann að hafa sloppið við meng- þriðjudag og fundu talsvert af dauðum fiskum, suma mjög væna. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, telur þetta vera mesta mengunarslys sem orðið hef- ur í Varmá og það sé mikið áfall. Hveragerði státi af fullkomnustu hreinsistöð frárennslis á landinu, m.a. til að vernda lífríki árinnar. Því sé sárt að verða fyrir þessu. | 6 Morgunblaðið/RAX Alvarlegt hve mik- ill fiskur var í ánni Bæjarstjórinn telur þetta mesta mengunarslys sem orðið hefur í Varmá Leikhúsin í landinu Skelltu þér í leikhús >> 41 www.glitnir.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 7 – 2 0 2 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.