Morgunblaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 335. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is JÓLIN KOMA! FLOTT JÓLAFÖT Á BÖRNIN TIL AÐ FORÐAST GAMLA JÓLAKÖTTINN >> 30 FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „VIÐ fögnum þessu svo sannarlega, þetta þýðir að fólk getur haldið áfram að vinna í samfellu,“ segir Helgi K. Hjálmsson, formað- ur Landssambands eldri borgara (LEB), um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka frí- tekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyris- þega á aldrinum 67–70 ára í allt að 100 þúsund krónur á mánuði frá 1. júlí nk. En Helgi hefði þó viljað ganga lengra og afnema takmörkin með öllu. „Við skiljum ekki af hverju þurfi að vera einhver tekjumörk.“ Helgi bendir á að í tekju- mörkunum geti fal- ist gildra, fólk geti fengið bakreikning eftir á. „Refsingin getur komið seinna, rukkunin frá Trygginga- stofnun.“ Undir þessi sjónarmið hefur Stjórn Sam- taka verslunar og þjónustu tekið og hvatti sl. sumar ríkisstjórnina til að skerða ekki ald- urstengdar bætur þótt viðkomandi hefði launatekjur. Helgi er sannfærður um að ákvörðun rík- isstjórnarinnar muni hafa þau áhrif að margt fólk haldi áfram að vinna eftir 67 ára aldur. Í sama streng tekur Ingibjörg R. Guð- mundsdóttir, varaforseti ASÍ. Jákvætt sé að eldra fólk fái möguleika til að vinna mislengi eftir því sem það hefur áhuga, aðstöðu og heilsu til. Þá sé breytingin líka jákvæð fyrir atvinnulífið. 2,4 milljarðar króna í ríkissjóð Í nýlegri könnun Rannsóknarseturs versl- unarinnar við Háskólann á Bifröst kemur fram að tæp 30% eldri borgara á aldrinum 65–71 árs, sem ekki eru starfandi, hafi áhuga á atvinnuþátttöku ef hún hefði ekki áhrif á bætur þeirra frá Tryggingastofnun. Um 13 þúsund Íslendingar á þessum aldri eru á skrá hjá Tryggingastofnun ríkisins. Rann- sóknin leiddi ennfremur í ljós að ríkissjóður gæti hagnast á því að afnema tekjutengingu bóta vegna launatekna eldri borgara eftir því sem fleiri stunduðu vinnu. Sé miðað við að 5% af þessum hópi færu út á vinnumarkaðinn og fengju 75% af meðal- launum jafnaldra sinna hefði það í för með sér 90 milljóna króna kostnað fyrir ríkissjóð. Yrði hlutfallið 10% myndi það skila 430 millj- ónum króna í ríkissjóð. Sé miðað við að um 30% hópsins færu út á vinnumarkaðinn hefði það 2,4 milljarða króna tekjuaukningu fyrir ríkissjóð í för með sér og hefði sá hópur 100% meðallaun jafnaldra sinna sem þegar eru á vinnumarkaði þýddi það 3,4 milljarða króna í tekjur fyrir ríkissjóð. Heilsa Heilbrigði aldraðra hefur aukist og fleiri þeirra eru til- búnir að vinna lengur. Allir ættu að hagnast Um 30% 67–71 árs fólks vilja vinna áfram FÁIR voru á ferli þegar ljósmyndari Morg- unblaðsins mundaði vél sína við Elliðavatn í gærdag. Þar skartaði náttúran sínu fegursta og þrátt fyrir að skarkali borgarinnar sé nærri náði hann ekki að eyðileggja and- artakið. Á morgun má búast við töluvert meira lífi við vatnið enda fer þar fram jólamarkaður. Ekið er inn í Heiðmörk af Suðurlandsvegi. Morgunblaðið/Golli Vetrarríki við Elliðavatn Náttúruperla í nágrenni höfuðborgarinnar Eftir Rúnar Pálmason og Andra Karl ÞRÍR Litháar sem eru í farbanni vegna gruns um að þeir tilheyri þjófagengi, sem lét til sín taka með stórtækum hætti á höfuð- borgarsvæðinu, reyndu í gær- morgun að flýja land. Þegar þeim varð ljóst að lögregla hafði komið auga á þá í innritunarsal Leifs- stöðvar tóku þeir til fótanna og komust undan. Lögreglan á Suð- urnesjum hefur komið upplýsing- um um þessa tilraun mannanna til lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Alls eru níu manns í farbanni vegna rannsóknarinnar á þjófa- genginu, allir frá Litháen. Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu, sem fer með rannsókn málsins, hafði látið lögregluna á Suðurnesj- um vita af því að mennirnir væru í farbanni. Í fyrradag slapp pólskur karlmaður, sem er í farbanni vegna gruns um nauðgun á Sel- fossi, úr landi en í því tilviki hafði lögreglan á Suðurnesjum ekki verið látin vita af farbanninu. Jóhann R. Benediktsson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, sagði að þessi tilraun mannanna þriggja og flótti pólska mannsins í fyrra- dag sýndu að farbann væri veikt úrræði þegar í hlut ættu útlend- ingar sem hefðu engin tengsl við landið, þ.e. ættu hér hvorki fjöl- skyldu né fasta búsetu. „Okkur finnst dómstólar þurfa að sýna lögreglu aukinn skilning við þess- ar aðstæður, því í þessum tilvikum er virk hætta á því að þeir reyni að flýja land. Þessi dæmi sýna það,“ sagði Jóhann. Farbann virkar ágætlega Dómstólar þyrftu, að mati Jó- hanns, í ríkari mæli að fallast á gæsluvarðhaldskröfu lögreglu þegar slíkir einstaklingar liggja undir grun um afbrot. Einnig þyrfti að ræða hvort hægt væri að taka upp mildari úrræði sem gætu m.a. falist í því að menn í farbanni bæru einhvers konar öryggisbönd sem sýndu staðsetningu þeirra. „Þetta sýnir að þau úrræði sem við grípum til, þ.e. að láta okkar ágætu kollega á Suðurnesjum vita, virka ágætlega,“ sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuð- borgarsvæðinu, spurður hvort far- bann væri ófullnægjandi úrræði. Ekki hafa verið teknar ákvarð- anir um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir mönnunum, „en við þurfum að meta þetta, því það eru orðnar meiri líkur á því að þessir menn reyni að komast úr landi en ella. Þá verðum við að skoða hvort einhverjar sterkari varnir þurfi“. Þrír menn í farbanni reyndu að flýja land Í HNOTSKURN »Borið hefur á því að und-anförnu að menn í far- banni reyni að flýja land. » Í fyrradag tókst pólskummanni að flýja. »Lögregla fer oftast nærfram á gæsluvarðhald en dómstólar hafna og setja á far- bann þess í stað. Jóhann R. Benediktsson Stefán Eiríksson Það á að gefa börnum brauð Þema jóla- frímerkjanna í ár er laufabrauð www.postur.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 0 7 - 1 5 3 5 Leikhúsin í landinu Töfrar leikhúsins >> 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.