Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 2
2 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR íslenskur ríkisborgari www.okkarsjodir.is Lífeyrissjóðirnir eiga að starfa í þágu þeirra sem greiða í þá. Lífeyrisþegar geta ekki borgað sukk örfárra einstaklinga. Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 19.000 manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir eru okkar eign! Jóhanna! Valdið er í þínum höndum! Jónatan, fáið þið ekki yfirdrátt hjá Gleðibankanum til að redda betra hóteli? „Þetta er svo glaður hópur að þess þarf ekki.“ Íslenski Eurovision-hópurinn kemur til með að gista á Cosmos, „frekar lélegu meðalhóteli“ í Moskvu í maí, að sögn Jónatans Garðarssonar, liðsstjóra. FJÖLMIÐLAR Íbúar á Álftanesi geta frá og með deginum í dag nálgast Fréttablaðið í svokölluðum Frétta- blaðskössum, sem hafa verið sett- ir við götur og fjölfarna staði í sveitarfélaginu. Hætt var að bera Fréttablaðið í hús á Álftanesi um síðustu mán- aðamót. Var það liður í sparnað- araðgerðum útgefanda blaðsins. Að sögn Jóns Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins, bárust mikil við- brögð frá íbúum Álftaness. við þeirri ákvörðun. „Það er auðvitað slæmt að þurfa að draga úr þjónustunni, en eftir áföllin í efnahagslífi lands- ins verðum við að gæta ítrasta aðhalds við útgáfu blaðsins. Það er á hinn bóginn gott að fá þessi sterku viðbrögð. Það sýnir okkur að fólk kann virkilega að meta Fréttablaðið. Dreifingin með Fréttablaðskössunum kemur til móts við þá miklu eftirspurn sem er eftir blaðinu,“ segir Jón Kaldal. Eins og áður sagði hafa Frétta- blaðskassarnir verið settir upp víða á Álftanesi. Að sögn Hann- esar Hannessonar, framkvæmda- stjóra Pósthússins, sem sér um dreifingu blaðsins, verður endan- leg staðsetning þeirra ákveðin í samráði við bæjaryfirvöld og íbúa á svæðinu. - kg Íbúar á Álftanesi geta nú nálgast Fréttablaðið í Fréttablaðskössum: Fréttablaðskassar á Álftanesi ■ Gatnamót Bæjarbrekku og Kirkjubrekku ■ Við innkeyrslu í Miðskóga ■ Við innkeyrslu í Brekkuskóga ■ Bjarnastaðavör, á móti bæjarskrifstofu ■ Við hornið á Lyngholti ■ Birkiholt 1 ■ Asparholt 1 ■ Þrír kassar við Vesturtún 7-25; 31-45; 40 ■ Hólmatún 20-23 og 5-19 ■ Sjávargata 26 FRÉTTABLAÐSKASSAR Á ÁLFTANESI ■ Túngata 12 ■ Blikastígur ■ Tveir kassar við Norðurtún ■ Austurtún ■ Hátún ■ Suðurtún ■ Blátún ■ Nýja hverfið ■ Við leikskóla ■ Við sundlaug ■ Við íþróttamiðstöð STJÓRNMÁL Samfylkingin fékk 5 milljóna króna styrk frá Kaup- þingi árið 2006, en það var hæsti einstaki styrkurinn sem flokkur- inn fékk það árið. Samanlagt fékk flokkurinn 36 milljónir króna frá fimmtán fyrirtækjum. Bank- arnir þrír studdu flokkinn allir, Landsbankinn um 4 milljónir og Glitnir um 3,5. Þá studdi Straum- ur Burðarás flokkinn um 1,5 milljónir og Sparisjóður Reykja- víkur lagði fram 1 milljón. Baug- ur styrkti flokkinn um 3 milljónir króna árið 2006. Samfylkingin þáði styrki að upphæð 45 milljónir króna umrætt ár, 9 milljónir komu frá einstaklingum. Ársreikningar Samfylkingar- innar frá stofnun hennar eru og hafa um árabil verið aðgengi- legir á vef hennar og má þar sjá heildar yfirlit styrkja frá einstakl- ingum og lögaðilum. Nöfn ein- stakra styrktaraðila hafa hins vegar ekki verið birt, fyrr en með nýjum lögum árið 2007. - kóp Samfylkingin upplýsir um styrki sem eru hærri en 500 þúsund krónur: Fékk fimm milljónir frá Kaupþingi STYRKIR YFIR 500 ÞÚSUND Actavis hf. 3.000.000 Baugur Group hf. 3.000.000 Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000 Eimskipafélag Íslands 1.000.000 Exista ehf. 3.000.000 Eykt ehf. 1.000.000 FL Group hf. 3.000.000 Glitnir 3.500.000 Kaupþing 5.000.000 Ker hf. 3.000.000 Landsbanki Íslands 4.000.000 Milestone 1.500.000 SPRON 1.000.000 Straumur Burðarás 1.500.000 Teymi ehf. 1.500.000 Samtals 36.000.000 Fréttablaðið kemur næst út á þriðjudag. Afgreiðsla blaðs- ins er lokuð í dag og næstu tvo daga. Afgreiðsla verður aftur opin á þriðjudag. Þjónustu- ver er opið frá klukkan 10 til 22 alla daga nema á morgun, páskadag, en þá er opið til klukkan 18. Útgáfa Fréttablaðsins: Kemur næst út á þriðjudag SAMFÉLAGSMÁL „Við Sigurður hitt- umst um það bil einu sinni í viku, keyrum saman í um 45 mínút- ur, fáum okkur kannski ís eða pylsu og kók,“ segir Hrönn Björg Harðardóttir ökukennari. Sigurð- ur Sigurðsson, sem er geðfatlað- ur, á sér þann draum að taka bíl- prófið aftur, en hann var með próf áður en hann veiktist. Þangað til það tekst fer hann reglulega í öku- tíma hjá Hrönn. Hrönn byrjaði að kenna Sigga, eins og hann er kallaður, fyrir nokkrum árum en ákvað fljótlega að hætta að rukka fyrir tímana. „Við erum bara bílavinir eins og við köllum það,“ segir hún í sam- tali við Fréttablaðið. Blaðamað- ur og ljósmyndari þiggja stuttan rúnt hjá Sigga og Hrönn og Leifur Leifsson, vinur Sigga, er einnig með í för, þau ætla öll að fá sér ís á eftir. „Hún Hrönn er fín,“ segir Sig- urður sem má þó lítið vera að því að ræða við blaðamann, hann þarf að einbeita sér að akstrinum, nema hvað. „Ég vann einu sinni á lyftara í Áburðarverksmiðj- unni, það verður að koma fram,“ bætir hann samt við. „Var ekki nema nokkrar mínútur að setja á hann.“ Hrönn hefur starfað sem öku- kennari í fullu starfi í fimm ár, en kennt á bíl í níu ár. Hún kennir á tvenns konar bíla, annar þeirra er sjálfskiptur og sérútbúinn fyrir fatlaða og það er á honum sem þau Sigurður rúnta um bæinn. Hrönn segir það einfaldlega hafa þróast að hún fór að hitta Sigurð vikulega og taka hann í ökutíma án þess að rukka fyrir. „Maður hættir bara að rukka, mér finnst þetta bara svo gaman og gefandi,“ segir hún. sigridur@frettabladid.is Rúnta og fá sér ís Ökukennarinn Hrönn Björg Harðardóttir og Sigurður Sigurðsson hittast reglu- lega. Sigurður, sem er geðfatlaður, sest undir stýrið og þau rúnta um bæinn. Framtíðarmarkmið hans er að taka bílpróf. Hrönn rukkar ekki fyrir tímana. FÓLK „Við erum að byggja upp nýtt samfélag, okkar eigið sam- félag, og þetta hús verður notað undir listsköpun og róttæka starfsemi af ýmsu tagi,“ segir Arnar Þórisson, meðlimur hóps sem flutti inn í autt hús á Vatns- stíg á laugardag. Húsið hefur staðið autt nokkuð lengi. Að sögn Arnars hefur hóp- urinn eytt síðustu dögum við þrif og tiltektir. „Kapítalistarnir sem eiga húsið láta það grotna niður. Það hlýtur að vera betur nýtt sem félagsmiðstöð.“ Samkvæmt lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu hafa engar kvartanir borist frá eigendum hússins vegna hústökunnar. - kg Hústökufólk á Vatnsstíg: Félagsmiðstöð í auðu húsi UMHVERFISMÁL Auglýst hefur verið eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri. Húsið verður reist samkvæmt vottuðum vist- vænum byggingarstöðlum og unnið verður samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup. Meðal markmiða við hönnun byggingarinnar er að takmarka neikvæð umhverfisáhrif, skapa heilnæman vinnustað, minnka rekstrarkostnað og stuðla að góðri ímynd. Sömu hugmynda- fræði er einnig beitt við bygg- ingu þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. - kóp Vatnajökulsþjóðgarður: Umhverfisvott- uð bygging FÉLAGAR Á FERÐ Sigurður Sigurðsson ökunemi og Hrönn Björg Harðardóttir ökukennari búin að koma sér vel fyrir og reiðubúin í reglubundinn vikulegan bíltúr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VATNSSTÍGUR 7 Hópurinn hefur eytt síðustu dögum í þrif og tiltekt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR L‘AQUILA, AP Yngsta fórnarlamb jarðskjálftans í Abruzzo-héraði á Ítalíu í síðustu viku hefði orðið fimm mánaða gamalt á morgun, páskadag. Jarð- arfarir 205 af þeim 290 sem létu lífið af völdum skjálft- ans fóru fram í gær. Tveir fundust látnir í rústum í gær- morgun. Alls voru tut- tugu af þeim sem létust á barns- eða unglings- aldri. Benedikt páfi XVI sendi íbúum á svæðinu skilaboð þar sem hann hvatti fólk til að halda í vonina. Yfir 800 eftirskjálftar hafa mælst á svæðinu eftir stóra skjálftann á mánudag, sem mæld- ist 6,3 á Richter. Um 15.000 manns sem misstu heimili sín búa nú í tjöldum víðsvegar um héraðið. - kg Jarðskjálftinn á Ítalíu: Páfi sendi íbúum skilaboð BENEDIKT PÁFI SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.