Morgunblaðið - 10.02.2008, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓNS ÁRNASONAR,
Laugarbrekku 3,
Húsavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldrunar-
deildar Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Sigurgeir Jónsson, Guðrún Óskarsdóttir,
Björg Jónsdóttir, Pálmi Pálmason,
Guðmundur A. Jónsson, Sigríður Ingvarsdóttir,
Ásdís Jónsdóttir, Sigurgeir Á. Stefánsson
og fjölskyldur.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls
og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR BJARNEYJAR
GARÐARSDÓTTUR,
Stigahlíð 30,
Reykjavík.
Garðar Halldórsson, Inga Jónsdóttir,
Kristín Jóna Halldórsdóttir,
Anna Þórunn Halldórsdóttir, Ágúst Þorsteinsson,
Helgi Þór Helgason, Guðbjörg Hanna Gyl-
fadóttir,
Hanna Ragnheiður Helgadóttir, Steffen Simbold,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og stuðning við andlát og útför elskulegs
föður og fósturföður okkar,
BJARNA JÓNSSONAR,
listamanns og kennara,
Ægisíðu 101.
Halldór Bjarnason,
Jón Haukur Bjarnason,
Lúðvík Bjarnason,
Guðrún V. Bjarnadóttir,
Erna Svala Ragnarsdóttir
og fjölskylda.
✝
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð
við andlát og útför elskulegs föður míns, sonar,
fóstursonar, barnabarns, bróður og mágs,
ÞÓRIS ARNAR ÞÓRISSONAR.
Hrefna Mjöll Þórisdóttir,
Kolbrún Bjarnadóttir, Guðmundur Símon Guðleifsson,
Kristín Jónasdóttir,
Kristján Hrafn Guðmundsson, Heiðrún Grétarsdóttir,
Helena Guðrún Guðmundsdóttir,Þorsteinn Pétur Hlífarsson,
Sæmundur Rúnar Þórisson, Arna Vignisdóttir,
Jóhann Þórisson, Elsa Soffía Jónsdóttir,
Steinar Þór Þórisson, Marina Quintanilha Mendonca,
Hugrún Hrönn Þórisdóttir, Þórarinn Friðjón Þorleifsson,
Guðrún J. M. Þórisdóttir, Gylfi Þór Þorsteinsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURÁSTA GUÐNADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 11. febrúar og hefst athöfnin kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á Minningarsjóð Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Guðni G. Sigurðsson, Þóra Hallgrímsson,
Benedikt G. Sigurðsson, Áslaug Þorleifsdóttir,
Ingibergur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Minningarathöfn um hjónin
STEFAN OG OLLU STEFANSON,
Gimli,
Nýja Íslandi,
verður haldin í Bústaðakirkju miðvikudaginn
13. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast þeirra er bent á reikning í
Landsbanka Íslands nr. 0116-05-070754, kenni-
tala 610174-2059, og renna framlögin til Íslenska landnemasafnsins
í Gimli samkvæmt beiðni ættingja.
Þjóðræknisfélag Íslendinga
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför okkar einlægu sam-
býliskonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
RAGNHILDAR STEINUNNAR
HALLDÓRSDÓTTUR,
STELLU,
Reyrengi 31,
áður Gautaborg.
Sonny Andersson,
Sæmundur Steinar Sæmundsson,
Halldóra Lára Svavarsdóttir, Hjálmar Kristjánsson,
Jökull Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Mín fyrstu kynni af
Unni voru um það leyti
sem þau Sveinn bróðir
minn og Unnur bjuggu á Flyðru-
granda, hann á 3. hæð og hún á 4.
hæð. Hann hafði boðið henni í bíó og
hitt þar á réttan streng, þau felldu
hugi saman. Það þóttu mér góð tíð-
indi. Fyrr en varði höfðu þau byggt
sér hús í Hraunási og flutt í Garða-
bæinn. Mér varð fljótt ljóst að Sveinn
Unnur Fadila
Vilhelmsdóttir
✝ Unnur FadilaVilhelmsdóttir
píanóleikari fæddist
í Leipzig í Þýska-
landi 22. janúar
1962. Hún andaðist
á líknardeild Land-
spítalans 27. janúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Bústaðakirkju 7.
febrúar.
hafði fundið sér yndis-
lega konu, lífsglaða og
hæfileikaríka. Það sást
vel í öllu sem hún tók
sér fyrir hendur hve
dugleg hún var.
Tónleikar sem hún
hélt fyrir fjölskylduna í
Hraunási síðasta haust
eru mér ofarlega í
huga, hún spilaði af
slíkri innlifun að það er
ógleymanlegt og ekki
voru veitingarnar síðri.
Í baráttu sinni við ill-
vígan sjúkdóm var hún
jákvæð, æðrulaus og ótrúlega þrótt-
mikil, fór erinda sinna hjólandi til
Reykjavíkur, ef þannig lá á henni.
Unnur og Sveinn nutu vel áhugamála
sinna saman, þau voru dugleg að
ferðast bæði um Ísland og erlenda
grund. Ég er þakklátur fyrir þær
stundir sem við áttum saman, jafnt
við árbakka í sumarblíðu sem í skíða-
brekkum um vetur.
Unnar er minnst með djúpum
söknuði. Blessuð sé minning hennar.
Jón Benediktsson.
Kæra Unnur, frænka og vinkona,
fyrstu minningar mínar um þig eru
þegar þú komst til okkar í sveitina,
Kaupang, til sumardvalar. Þú kennd-
ir okkur alla leikskólaleikina og varst
óþreytandi í sandkassanum. Á ung-
lingsárum sástu um matreiðsluna í
nokkra daga og varst alltaf með hrís-
grjónarétti með eggjum og grænmeti
sem féll misjafnlega í kramið hjá karl-
peningnum.
Þá fékk ég að heimsækja ykkur í
Ljósheima 12. Móðir þín hélt upp á
átta ára afmælið mitt. Það er ógleym-
anlegt því þetta var fínasta veisla með
öllum frændunum og frænkunum í
Reykjavík. Ég fékk þó nokkurn pen-
ing í afmælisgjöf og gat keypt mér
rauða leðurskólatösku sem ég átti í
mörg ár og var mjög ánægð með.
Leiðir okkar lágu aftur saman í
Reykjavík þegar við vorum báðar
búnar að eiga drengina okkar. Geng-
um saman með þá í barnavögnum í
Smáíbúðahverfinu og spáðum í hvað
þeir ættu að heita. Þeir heita að sjálf-
sögðu ágætum nöfnum, Eðvarð Þór
og Gunnar Már. Svo skildi leiðir og
við höfum lítið sést undanfarin ár.
Hringurinn. Þið Gunnar Már kom-
uð í heimsókn til mín í Vættagilið á
leið ykkar í kringum landið á nýja
Audiinum þínum. Það var gaman og
við héldum ágætis grillveislu. Þú
heimsóttir foreldra mína í Kaupangi
og rifjaðir upp dvöl þína þar.
Því miður komst ég ekki í brúð-
kaupið ykkar Sveins.
Nú ertu farin frá okkur svo alltof
fljótt. Við munum aldrei gleyma lífs-
gleði þinni og baráttuanda. Hlátur
þinn hjómaði svo fallega og gat hrifið
mann með sér. Píanóið fylgdi þér frá
unga aldri. Þá varstu ötul við að baka.
Spáðir mikið í heilsuna og hjólaðir í
tónlistarskólann í Kópavogi þegar þú
bjóst á Nesinu.
Kær kveðja, Vala í sveitinni,
Valgerður Kristjánsdóttir.
Þegar ég frétti að Unnur væri dáin,
þá trúði ég ekki mínum eigin augum.
Ég hafði vitað að hún var veik, en að
þessi lífsglaða manneskja gæti dáið
fannst mér einhvern veginn útilokað.
Þetta er þó hinn kaldi veruleiki. Eftir
sitjum við sem þekktum Unni sorg-
mædd og fátækari en við vorum áður.
Við höfðum að vísu ekki mikið sam-
band síðustu árin en þeim mun meira
þegar við vorum skólasystur í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík. Fyrst vorum
við saman í ýmsum tónfræðigreinum.
Ég var dálítill græningi utan af landi
og talsvert yngri en Unnur, en við
náðum engu að síður mjög vel saman
og höfðum góðan stuðning hvor af
annari í ýmsum fögum. Síðan hófum
við báðar nám á sama tíma í píanó-
kennaradeild skólans. Við vorum ein-
ungis þrjár í „bekknum“ og því varð
samband okkar talsvert náið og átt-
um við þarna þrjú ógleymanleg ár í
skemmtilegu námi og hjá góðum
kennurum. Unnur var alltaf kát og
hress og til í prakkarastrik ef því var
að skipta. Það er góður eiginleiki sem
fleiri mættu hafa, tala nú ekki um í
listgreinum þar sem okkur hættir til
að taka okkur of hátíðlega. Eftir nám-
ið skildust leiðir okkar, ég fór til Nor-
egs og hún til Bandaríkjanna. Mér
fannst við hafa allan heimsins tíma til
að hittast og rifja upp gömul kynni og
búa til ný, en þannig varð það því mið-
ur ekki.
Mig langar til að senda Gunnari Má
og öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur með ljóðinu Glerlist
eftir Gylfa Gröndal.
Kristalshljómur
hreinn
eins og næturdögg
á nýju grasi.
Gleymum þó ekki:
Gler brýtur sá
er syngur hæst.
Andinn ofar efninu
ljóð og tónar.
Jónína Erna Arnardóttir
píanóleikari.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og systir mín,
JÓHANNA ELÍN ÁRNADÓTTIR,
Furugrund 30,
Kópavogi
lést mánudaginn 4. febrúar á líknardeild
Landspítalans Landakoti.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 13.febrúar kl 13.00.
Einar Jónsson,
Bjarni Bergmann Sveinsson, Þorbjörg Kristvinsdóttir,
Úndína Bergmann Sveinsdóttir, Björn Brynjólfsson,
Ásmundur Bergmann Sveinsson, Hallveig Finnbogadóttir,
Árni Bergmann Sveinsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Rúnar Bergmann Sveinsson,
Jón Þór Bergmann Sveinsson, Steinhildur Hjaltested,
Róslind Bergmann Bordal, Dag Bordal,
Sigrún Friðgeirsdóttir, Logi Úlfljótsson,
Haukur Örn Björnsson, Sigrid E. Guðmundsdóttir,
Úndína Árnadóttir.