Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 1
laugardagur 29. 3. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Suðurnesjaliðin áttu ekki í vandræðum á heimavelli>> 2
ÓTRÚLEG UMGJÖRÐ
TÓLF ÍSLENDINGAR VERÐA Í SVIÐSLJÓSINU
Í MEISTARABARÁTTUNNI Í NOREGI >> 4
Dagný var um fjórum sekúndum á
undan Tinnu í stórsvigskeppninni í
kvennaflokknum en Katrín Krist-
jánsdóttir varð þriðja. Dagný kom í
mark á 2:08,77 mínútum en Kristín
var með samanlagðan tíma 2:14,75
mín.
Björgvin Björgvinsson frá Dalvík
var einnig með mikla yfirburði í
karlaflokknum en hann var nálægt
því að falla úr keppni á lokakafl-
anum í síðari ferðinni. Björgvin var
með samanlagðan tíma 2:01,95 mín-
útur en Ármenningurinn Árni Þor-
valdsson var tæplega þremur sek-
úndum á eftir. Þriðji varð Gísli
Rafn Guðmundsson sem keppir
einnig fyrir Ármann en hann varð
aðeins hálfri sekúndu á eftir Árna.
Tveir sænskir keppendur kepptu í
karlaflokknum sem gestir og en
þeir náðu öðrum og þriðja besta
brautartímanum.
Stella og Andri sigruðu
Einnig var keppt í skíðagöngu og
þar sigraði Stella Hjaltadóttir í 5
km göngu kvenna og Andri Stein-
dórsson sigraði í 10 km göngu
karla.
Það var einnig keppt í skíða-
göngu í gær í Tungudal og í 15 km
göngu karla sigraði Andri Stefáns-
son en annar varð Sævar Birgisson.
Sævar hafði betur gegn Andra í
sprettgöngunni á fyrsta keppnis-
degi mótsins. Birkir Þór Stefánsson
varð þriðji í 15 km göngunni í gær.
Í kvennaflokki sigraði Stella
Hjartardóttir frá Ísafirði en það er
áratugur frá því hún sigraði síðast
á skíðalandsmótinu. Ísfirðingar
voru sigursælir í kvennagöngunni
því Sólveig Guðmundsdóttir varð
önnur og Guðbjörg Rós Sigurðar-
dóttir, sem er einnig frá Ísafirði,
varð þriðja.
Veðrið var í
aðalhlutverki
Dagný og Björgvin með mikla yfirburði
í stórsviginu á skíðalandsmótinu
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir frá
Akureyri sigraði í stórsvigi kvenna
á skíðalandsmótinu á Ísafirði í gær
en Tinna Dagbjartsdóttir varð önn-
ur. Björgvin Björgvinsson frá Dal-
vík varð meistari í sömu grein í
karlaflokki og Arnar Þorvaldsson
varð annar. Keppt var í svoköll-
uðum Sandfellsbakka á skíðasvæð-
inu í Tungudal og voru aðstæður
fyrir keppendur, starfsmenn og
áhorfendur mjög erfiðar vegna
hvassviðris og skafrennings.
Ljósmynd/Guðfinna Hreiðarsdóttir
Meistarar Stella Hjaltadóttir, Brynjar Leó Kristjánsson og Andri Steindórsson sigruðu öll í hefðbundinni göngu.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„ÞAÐ var mjög góð tilfinning að
sjá boltann fara ofan í holuna á
lokaholunni. Ég vissi ekki á þeim
tíma að ég hefði komist í gegnum
niðurskurðinn en ég var nokkuð
viss um að ég kæmist í gegn með
því að leika á pari vallar samtals á
fyrstu tveimur keppnisdögunum,“
sagði atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson við Morg-
unblaðið í gær. Þegar Birgir átti
eftir að leika fimm holur á öðrum
keppnisdegi Andalúsíumeist-
aramótsins á Evrópumótaröðinni
voru allar líkur á því að Birgir
kæmist ekki í gegnum niðurskurð-
inn.
Það breyttist snögglega þegar
Birgir fékk þrjá fugla á síðustu
fimm holunum og náði hann að
leika á 71 höggi eða einu höggi
undir pari. Á fyrsta keppnisdegi
mótsins lék Birgir á 73 höggum og
er hann í 56.-69. sæti.
„Í raun er ég mjög ánægður með
allt sem ég hef verið að gera á
þessu móti. Þegar útlitið var frekar
dökkt fór ég að leggja aðeins meira
í að koma boltanum nær holu og
taka meiri áhættu. Það gekk upp
og ég mun nota þessa leikaðferð á
næstu tveimur keppnisdögum,“
sagði Birgir Leifur.
Það eru margir þekktir kappar
sem eru úr leik á þessu móti og má
þar nefna Darren Clarke frá Norð-
ur-Írlandi og Danann Thomas
Björn en þeir hafa báðir leikið með
Ryderliði Evrópu.
„Þessi völlur hér í Andalúsíu er
ekki mjög langur en það er hægt að
setja hann þannig upp að það er
erfitt að eiga við hann.“ Birgir
Leifur þurfti að hætta keppni eftir
aðeins tvær holur á síðasta móti
sem fram fór á portúgölsku eyjunni
Madeira. Kylfingurinn segir að það
hafi verið gríðarlegt áfall enda
langt síðan að hann hafði leikið á
Evrópumótaröðinni.
Erfiðleikar á Madeira
„Það tók aðeins á að vera í
sjúkrameðferð á meðan aðrir voru
að leika. Ég fékk mikinn verk í
mjóbakið sem leiddi alla leið upp í
hálsinn og ég gat ekki slegið golf-
högg á þeim tíma. Ég er ekki alveg
búinn að ná mér en ég er betri í
dag en í gær og það er jákvætt,“
sagði Birgir Leifur Hafþórsson.
Þetta er í annað sinn á keppn-
istímabilinu þar sem Birgir kemst í
gegnum niðurskurðinn en þetta er
fimmta mótið á keppnistímabilinu
þar sem hann tekur þátt. Birgir er
8 höggum á eftir efstu mönnum
sem eru Peter Hedblom frá Svíþjóð
og Matthew Millar frá Ástralíu.
Birgir vissi ekki hver staðan var
þegar rætt var við hann í gærog
kom honum það á óvart hve fá
högg skilja á milli þeirra efstu og
þeirra sem rétt komust í gegnum
niðurskurðinn. „Það getur allt
gerst á þessu móti og hlutirnir eru
fljótir að breytast ef menn detta í
„stuð“ á flötunum. Ég fékk þessa
tilfinningu á lokakaflanum í gær og
það þarf voðalega lítið til að maður
nái betra skori en ég þarf að vera
þolinmóður og bíða eftir réttu
tækifærunum,“ sagði Birgir Leifur.
„Útlitið var orðið frekar dökkt“
Birgir Leifur Hafþórsson fékk þrjá fugla á fimm holum þegar mest á reyndi í Andalúsíu
Reuters
Birgir Leifur Hafþórsson.