Morgunblaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 1
miðvikudagur 9. 4. 2008 íþróttir mbl.isíþróttir Curbishley þarf að lækka launakostnaðinn hjá West Ham >> 3 HÁSPENNA Á ANFIELD ENSKU LIÐIN LIVERPOOL OG CHELSEA MÆTAST Í UNDANÚRSLITUM MEISTARADEILDARINNAR >> 3 ÞRÓTTUR úr Reykjavík tryggði sér í gær sæti í úrslitum Íslands- móts karla í blaki með því að leggja KA frá Akureyri að velli, 3:2. Þrótt- ur vann fyrri leik liðanna á Ak- ureyri 3:0. Viðureign Þróttar og KA í gær var mjög spennandi og Akureyrarliðið komst yfir 2:1 og var nálægt því að tryggja sér sigur í fjórðu hrinu. Þróttarar náðu að snúa taflinu sér í hag og lönduðu sigri í fjórðu hrinu, 25:19. Í odda- hrinunni hafði Þróttur undirtökin og tryggði sér sæti í úrslitum með 15:12-sigri. Það eru mörg ár frá því að Þróttur lék síðast til úrslita á Ís- landsmótinu en liðið er á góðri sigl- ingu þessa dagana. Japanski leik- maðurinn Masayugi Takahashi stóð upp úr í jöfnu liði Þróttar en Davíð Búi Halldórsson lék best í liði KA. Bikarmeistaralið Stjörnunnar sigraði ÍS 3:0 í fyrstu viðureign lið- anna í undanúrslitum sl. sunnudag. Stjarnan gat með sigri tryggt sér sæti í úrslitum og það gerðu Garðbæingar. ÍS vann fyrstu hrin- una en Stjarnan svaraði með þrem- ur sigurhrinum í röð. Jounes Hmine, leikmaður ÍS, meiddist illa á ökkla í þriðju hrinu og þar sem ekki var varamaður til staðar hjá ÍS varð liðið að gefa fjórðu hrinuna. Þróttur og Stjarnan í úrslitin Morgunblaðið/Ómar Skellur Þróttur úr Reykjavík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla eftir langt hlé. Þróttur mætir bikarmeistaraliði Stjörnunnar. ÓLAFUR Stefánsson og félagar hans í Ciudad Real héldu sig- urgöngu sinni áfram í spænsku 1. deildinni í hand- knattleik í gær- kvöld. Ciudad Real vann örugg- an sigur á Al- mería, 36:24, á heimavelli sínum og náði fjögurra stiga forskoti í toppsæti deild- arinnar. Ólafur Stefánsson hafði frekar hægt um sig og skoraði 2 mörk, bæði úr vítaköstum. Rutenka var markahæstur í liði Ciuad með 8 mörk og Alberto Entrerríos kom næstur með 7 mörk. Ademar Leon varð að láta sér lynda jafntefli við Valldolid á úti- velli, 25:25. Sigfús Sigurðsson var í leikmannahópi Ademar Leon en náði ekki að skora. Ciudad Real hefur 49 stig í efsta sæti, Barcelona, sem á leik til góða gegn Portland San Antonio í kvöld, hefur 45, Ademar Leon 42 og Port- land 41. Ciudad Real vann Ólafur Stefánsson Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is FORRÁÐAMENN körfuknattleiks- deildar Stjörnunnar úr Garðabæ sögðu í gær Dimitar Karadzovski, leikmanni liðsins, upp störfum. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Á heimasíðu fé- lagsins er sagt frá því að ástæða uppsagnarinnar sé mjög alvarlegur trúnaðarbrestur af hendi leik- mannsins og sá stjórnin sér ekki fært annað en að segja upp samn- ingi þegar í stað. Karadzovski, sem er frá Make- dóníu, lék með Skallagrím í tvö ár áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar sl. sumar. Bragi Magnússon, þjálfari Stjörn- unnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að leikmaðurinn hefði brotið trúnað við félagið og farið á bak við leikmenn liðsins. „Ég get svo sem ekki tjáð mig mikið um þetta mál á þessari stundu. Í fyrrakvöld kom upp sú staða að við sáum okkur ekki annað fært en að rifta samningi Karad- zovski við félagið. Hann liggur undir grun um þjófnað og m.a. hjá leik- mönnum liðsins og við bíðum eftir að rannsókn málsins ljúki áður en við getum tjáð okkur um einstök at- riði. Það eru allir mjög miður sín yf- ir þessum atburði og menn trúa þessu varla,“ sagði Bragi í gær. Karadzovski lék lykilhlutverk hjá nýliðum Stjörnunnar í vetur þar sem hann skoraði rúmlega 21 stig að meðaltali í leik. Bragi sagði að á undanförnum dögum hefði félagið verið að ganga frá lausum endum hvað varðaði næsta tímabil. „Þessi staða sem upp er komin breytir ýmsu en Jovan Zdravevski verður áfram í okkar herbúðum,“ sagði Bragi en Zdravevski var í þrjú tíma- bil hjá Skallagrími þar sem hann lék m.a. með landa sínum Karadzovski í tvö ár. Karadzovski sagt upp  Forráðamenn körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar sögðu Dimitar Karadzovski upp störfum eftir alvarlegan trúnaðarbrest  Mál hans í rannsókn hjá lögreglu Dimitar Karadzovski

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.