Morgunblaðið - 21.05.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.05.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 15 MENNING SILJA Aðal- steinsdóttir bók- menntafræðingur tekur hinn 1. september nk. við starfi útgáfu- stjóra Máls og menningar/Vöku- Helgafells. Silja tekur við starfinu af Hólmfríði Matthíasdóttur. Silja hefur m.a. ritstýrt Tímariti Máls og menningar undanfarin ár og er reyndur ritstjóri og bókmennta- gagnrýnandi. Hún hefur auk þess ritað kennslubækur og ævisögur. Silja ætlar sem útgáfustjóri að byggja við og efla sterkan útgáfu- lista innlendra höfunda Máls og menningar og víkka sjóndeildar- hringinn með nýjustu straumum og stefnum í erlendum bókmenntum. Oddný S. Jónsdóttir er nýr rit- stjóri kennslubóka hjá forlaginu en sá hluti útgáfunnar hefur verið í um- sjón Laufeyjar Leifsdóttur. Laufey mun nú einbeita sér betur að vefbók- um, orðabókum og öðrum stórvirkj- um, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Silja út- gáfustjóri Ætlar að víkka sjóndeildarhringinn Silja Aðalsteinsdóttir MINNISVARÐI um samkynhneigð fórnarlömb nasista verður afhjúp- aður í Berlín 27. maí nk. Minnisvarð- ann gerði listamannatvíeykið Mich- ael Elmgreen og Ingar Dragset. Elmgreen og Dragset unnu sam- keppni um hönnun minnisvarðans en honum hefur verið fundinn staður í Tiergarten, til móts við minnisvarða Peters Eisenmanns um fórnarlömb Helfararinnar. Minnisvarðinn er steypufleki líkur þeim sem eru í verki Eisenmanns og í honum verður myndbandsverk sí- endurtekið sem kvikmyndaleikstjór- inn Thomas Vinterberg leikstýrði. Á því sjást tveir karlmenn kyssast ást- úðlega. Skipt verður um myndband á tveggja ára fresti þannig að bæði hommar og lesbíur komi við sögu. Fórnarlamba nasista minnst Tvíeykið Elmgreen og Dragset. DJASSHLJÓMSVEIT Hauks Gröndal leikur á næstu tón- leikum djassklúbbsins Múlans sem haldnir verða annað kvöld á DOMO í Þingholtsstræti. Auk Hauks saxófónleikara skipa sveitina þeir Ásgeir Ás- geirsson á gítar, Agnar M. Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Efnisskráin verður samsett af fjölbreyttri djassmúsík sem leikin verður af fingrum fram. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er miðaverð kr. 1.000 og kr. 500 fyrir nemendur. Múlinn er sam- starfsverkefni FÍH og Jazzvakningar og heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni. Tónlist Gröndal og félagar á Múlanum Haukur Gröndal saxófónleikari SÍÐUSTU útskriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskóla Íslands á vorönn 2008 verða haldnir í Salnum í Kópavogi annað kvöld kl. 20, og eru það tónleikar nr. 23 í röðinni. Píanóleikarinn Hákon Bjarnason lýkur törninni með verkum eftir Bach, Beethoven, Granados, Chopin, Liszt og Prókofíeff. Í október 2007 varð Hákon einn af fjórum nem- endum sem urðu hlutskarpastir í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Í kjölfarið spilaði hann í janúar sl. píanó- konsert nr. 1 eftir Prokofíeff með Sinfóníuhljóm- sveitinni. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Hákon rekur smiðshöggið Hákon Bjarnason píanóleikari STOPPLEIKHÓPURINN frumsýnir á morgun nýtt ís- lenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýn- ingin hefst kl. 10 í fyrrmálið í Iðnó. Í tilkynningu frá leik- hópnum segir að leikritið um Bólu-Hjálmar „leiði okkur á fjörugan, hressandi og óvenju- legan hátt í gegnum þetta sér- stæða lífshlaup hans á 45 mín- útum, þar sem öllum meðölum leikhússins er beitt“. Þrír leikarar segja söguna og leika allar persónur, þ.e. Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur og fleiri. Leiklist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar Teikning af Bólu-Hjálmari Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is BANDARÍSKI myndlistamaðurinn og landslagsarkitektinn Martha Schwartz sameinar þessar tvær list- greinar í verkum sínum. Fyrirtæki hennar er með útibú í Bandaríkj- unum og Bretlandi og hefur hannað almenningsrými í borgum um allan heim. Í hennar huga er manngert umhverfi og náttúrlegt ekki and- stæður. „Fólk hefur þá hugmynd að landslag sé alltaf villt náttúra og er almennt ekki meðvitað um að það geti verið hannað af mönnum. Það er mjög einföld sýn á umhverfið að stilla alltaf upp þessum andstæðum, ósnortin náttúra annars vegar og hins vegar borgarumhverfið sem engu máli skiptir hvernig lítur út. Þetta er eins og að hugsa alltaf um konur sem annað hvort hreinar meyjar eða hórur.“ Blinduð af áli Í tengslum við sýninguna Draum- ar um ægifegurð í íslenskri sam- tímalist hefur hún gert verk sér- staklega fyrir portið á Kjarvals- stöðum. Titill verksins er „I hate nature/Aluminati“ og ál leikur aðal- hlutverk í því. „Ég vildi búa eitthvað til sem væri áhugavert að skoða og ögrandi. Ég lagði upp með hug- myndina um ægifegurð og hvernig hægt væri að koma henni til skila í svona takmörkuðu plássi. Ein leiðin er að búa til andstæður, leiða fólk inn í lítið og dimmt rými og búa til útsýni yfir eitthvað víðfemt og bjart. Augun venjast myrkrinu og þegar fólk sér svo álið þá hálfpartinn blind- ast það af því,“ segir Schwartz. „Þetta á að vera fallegt, en um leið yfirþyrmandi.“ Mörg álitamál sem nú eru uppi á Íslandi um umhverfismál koma henni kunnuglega fyrir sjónir. „Við- horfin til landslagsins eru mjög ólík eftir samfélögum, en ég sé margt líkt með því hvernig Íslendingar og Bandaríkjamenn hugsa um þessa hluti. Báðar þjóðirnar urðu til í landslagi sem var miklu stærra en þær. Vegna þess hvað Bandaríkin eru víðfeðm þá höfum við nýtt okkur allt sem við getum úr náttúrunni án þess að leiða hugann að því að það gætu verið takmörk, að landslagið gæti verið viðkvæmt og það fælust í því sjálfstæð verðmæti.“ Hún segir að hér séu mistök í um- hverfismálum dýrkeyptari en víðast annars staðar. „Þið búið í hálfgerðu eyðimerkurlandslagi, sem á yfir- borðinu lítur út fyrir að vera mjög harðgert, en í rauninni er það mjög viðkvæmt. Víða er hægt að nota skóga og gróður til þess að breiða yfir mistökin sem gerð hafa verið. Ef eitthvað fer úrskeiðis hérna þá blas- ir það við í hundruð þúsunda ára.“ Líkindin með Bandaríkjunum ná að mati Schwartz líka til Reykjavík- ur. „Þið takið ekki með í reikninginn að þið eruð að byggja umhverfi sem þið þurfið síðan að búa í. Til þess að borgir beri sig þá verða þær að vera þétt byggðar, því þannig nýtast tak- markaðar auðlindir best og að- stæður skapast fyrir nauðsynlega menningarstarfsemi. Við höfum gert mistök í þessum efnum í Bandaríkj- unum og erum ennþá að gera þau. Það er ennþá verið að byggja út- hverfi, en umræðan um hlýnun jarð- ar hefur vakið fólk til umhugsunar. Mér finnst samfélagslegu rökin ekki síður mikilvæg.“ Martha Schwartz vinnur á mörkum byggingarlistar og myndlistar Yfirþyrmandi fegurð álsins Morgunblaðið/G.Rúnar Myrkur og ofbirta Martha Schwartz stillir upp andstæðum í verki sínu. Í HNOTSKURN »Verk Mörthu Schwartz varsett upp í tilefni af sýning- unni Ægifegurð í íslenskri sam- tímalist sem opnaði um helgina á Kjarvalsstöðum. »Á sýningunni eru verk eftirmarga af fremstu myndlist- armönnum landsins sem ekki hafa verið sýnd hér áður. Meðal þeirra eru Hreinn Friðfinnsson, Ragnar Kjartansson og Gjörn- ingaklúbburinn. Sýningin var sett upp í Brussel á Íslands- kynningu þar í febrúar. Á TÓNLEIKARÖÐINNI Köku- konsertar er tónlist, kökum og víni blandað saman á hárnákvæman hátt. Í kvöld verða aðrir tónleikarnir í röðinni þar sem bæði efnisskrá og veitingar eru miðaðar við árstíðirnar vetur, vor og sumar. Hafliði Ragnarsson konfektgerð- armeistari og Arnar Bjarnason tón- skáld og víninnflytjandi sjá um sætabrauðið og vínið með hverri árs- tíð, en þær Margrét Sigurðardóttir og Hallveig Ragnarsdóttir skipu- lögðu tónleikana. „Við ætlum að víkka út upplifunina af tónlistinni með því að bjóða upp á rétti sem passa við þá, konfekt og kökubita. Bragðlaukarnir fá að vera með,“ segir Hallveig. „Í þetta skiptið bæt- ist enn ein vídd við, því við fengum myndlistarmann, Björk Viggósdótt- ur, til þess að gera myndbandsverk sem styður við tónlistina.“ Slagverksleikarinn Frank Aarn- ink og raftónlistarmaðurinn Kippi Kanínus spinna tónlist sem hæfir vetrinum, síðan tekur Margrét við með fimm sönglög þar sem vor- stemning ræður ríkjum og Hallveig flytur að lokum sumarlegan laga- flokk eftir Berlioz, „Nuits d’Été“. Tónleikarnir hefjast klukkan átta í kvöld á Kjarvalsstöðum. Aðgangs- eyrir er 2.500 krónur og eru veit- ingar innifaldar í því verði. Gómsætir tónleikar Morgunblaðið/Valdís Thor Kræsingar Agnieszka Panasiuk, Björk Viggósdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hafliði Ragnarsson og Margrét Sigurðardóttir. Útsölustaðir eru í verslunum Byko og verslun Rangá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.