Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Blaðsíða 13
Þ að er merkileg tilviljun að bókin Orðspor skuli koma út einmitt á sama tíma og vart er meira talað um annað en orðspor Íslendinga úti í heimi. Flest af því sem Gunnar Hersveinn hefur að segja er líka orð í tíma töluð og honum ratast sannarlega satt orð á munn þegar hann segir snemma í bókinni: „Full- yrt hefur verið að orðspor þjóðar geti verið margra milljarða virði í viðskiptum“ (8). Tæplega hefur hann þó grunað að þessi setning yrði jafn kirfilega sönnuð og raunin er orðin á síðustu vikum. Gunnar Hersveinn er sumpart klassískur móralisti. Hann stillir upp nokkrum meg- indyggðum, vandar um við fólk og bendir á hin sönnu gildi í samfélaginu. En hann hef- ur sig líka upp yfir það hlutverk, því að hann er, ólíkt móralistanum, róttækur frek- ar en íhaldssamur. Honum svíður misréttið og skeytingarleysið sem blasir við á svo mörgum sviðum samfélagsins og hann hik- ar ekki við að mæla með róttækum aðgerð- um til að vinna bug á því. Bókinni er skipt upp eftir þemum og eru þemakaflarnir mjög mislangir. Þeir eru líka misgóðir. Bestur finnst mér kaflinn um jafnrétti þar sem Gunnar tekur mörg dæmi um kynjamisrétti sem lifir góðu lífi jafnvel þó að menn telji sig hafa útrýmt því. Hann er hlynntur aðgerðum til að stuðla að því að kynjahlutföll í stjórnum og ráðum séu sem jöfnust og færir rök fyrir því að það sé mik- ilvægt að konur komi í raun að ákvörðunum til jafns við karla, það dugi ekki að mögu- leikar þeirra séu formlega hinir sömu, ef karlar eru áfram yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem taka helstu ákvarðanir. Kaflinn um trúmál er líka vel upp- byggður og í honum nýtur frumleiki Gunn- ars sín vel ekki síst þegar hann skrifar um „góða fólkið“ sem „hefur ákveðnar skoð- anir um hvernig hlutirnir eiga að vera og hvernig fólk á að hegða sér“ (184). Ég er ekki frá því að í þessum kafla skíni í gegn ákveðin írónía, sem Gunnar fer yfirleitt af- skaplega vel með, stundum jafnvel of vel. Kaflar um fjölmiðla, umhverfi, samfélag og uppeldi eru líka áhugaverðir hver fyrir sig þó að efnisval í þeim sé tilviljanakennd- ara. Jafnréttismálin má líka segja að séu rauði þráðurinn í bókinni. Þau eru Gunnari greinilega efst í huga. Gunnar Hersveinn er áhugaverður höf- undur og að mörgu leyti sérkennilegur. Hann skrifar einfaldan stíl sem við fyrstu sýn virðist barnalegur en leynir mjög á sér og venst vel. Hann kemur hugmyndum sín- um vel til skila, og þótt hann geri það á ein- faldan hátt er hann aldrei einfeldnings- legur. Að milljörðunum foknum BÆKUR JÓN ÓLAFSSON SIÐFRÆÐI | Orðspor Gildin í samfélaginu Gunnar Hersveinn. JPV, 2008, 229 bls. bbbbn Gunnar Hersveinn „Áhugaverður höfundur.“ Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Hlynur Hallsson hefur verið ólatur við að draga hversdagsleikann og pólitíkina inn í list sína. Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, hefur hann nú sett upp sýningu sem setur spurninguna um táknrænt gildi listaverka og menningarlegt vald listasafna í forgrunn. Hlynur skiptir út verkum í eigu Listasafns Reykjavíkur fyrir hluti frá nærliggjandi fyr- irtækjum sem ekki eru höfundarverk ákveð- inna listamanna. Þannig má sjá á sýningunni gosdrykkjakæli úr versluninni 10-11 en þar hangir í staðin blómamálverk eftir Eggert Pétursson. Spurningar um hina merking- arhlöðnu umgjörð listasafna hafa verið lista- mönnum hugleiknar undanfarna áratugi sem hefur birst í endalausum rannsóknum á því hvað í veröldinni gæti ekki verið sett í listasafn og fengið upphafna stöðu listaverksins. Það sem gerir sýningu Hlyns áhugaverða núna er að í tíðaranda sem felur í sér aðdrag- anda mikilla breytinga á öllu gildismati þá virkar hún sem ákveðið uppgjör við þá hug- myndafræði sem hefur verið hvað mest áber- andi í samtímalist síðustu ára. Hér kemur ber- lega í ljós að Listasafnið er ekki, og hefur ekki verið, í þeirri stöðu að hafa vald til að upphefja hluti sem listaverk. Það trúði því engin nema listamennirnir og kannski stundum söfnin sjálf. Þegar vel tekst til í svona skiptileik er hægt að sjá hlutina frá einhverju nýju sjón- arhorni en oftast eru það óspennandi end- urtekningar sem byggjast á oftrú á listasöfn- um og vantrú á áhorfandanum. Hinir lánuðu hlutir sem eru til sýnis í Hafn- arhúsi, allt frá ísbirni til indverskra slæðna fá reyndar óumdeilanlega stöðu listaverka í þessu samhengi en um leið hefur staða slíkra listaverka fyrir löngu misst gildi sitt og eru oft meira virði í sínu upprunalega samhengi. Hvernig er þá virði skilgreint, er það uppsett verð á hlut, verð sem hlutur er seldur á, nota- gildi hlutar eða menningarlegt vægi? Í tilfelli sýningarinnar er það hugmyndin að gjörn- ingnum og framkvæmd hans sem hefur menn- ingarlegt vægi. Ekki síst vegna þess að skiptil- eikurinn felur í sér óvæntar pólitískar og listpólitískar skírkotanir sem fá nýjan hljóm í kreppunni. Neonskilti frá Subway sem hangir nú í Hafnarhúsi og segir „Borgið hér“ verður allt að því grátbroslegt. Lítil stytta af íslenskum myndlistarmanni eftir Karin Sander er sýnd í glerskáp með víkingadóti í versluninni Vík- ingur og verður þar eins og hver önnur túr- istavara. Málverk eftir Gunnlaug Blöndal er sýnt í litla skotinu í gallerí i8 þar sem yngstu og óþekktustu listamennirnir hafa fengið að spreyta sig gegnum tíðina en frá i8 eru hins vegar tómar bjórflöskur frá opnun sýndar í Listasafninu. Óhætt er að mæla með sýningunni og snið- ugt að vera með sýningarpésann í vasanum og kíkja eftir listaverkum á þeim tuttugu stöðum sem tilgreindir eru í miðbænum um leið og rölt er í kaffihús og verslanir á aðventunni. Jón og séra Jón MYNDLIST ÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR LISTASAFN REYKJAVÍKUR | Hafnarhús Hlynur Hallsson. Blönduð tækni. INN/ÚT Sýningin stendur til 11.janúar. Opið daglega frá kl. 10-17, fimmtu- daga til kl 22. Aðgangur ókeypis. bbbmn Skiptileikur „Lítil stytta af íslenskum myndlistarmanni eftir Karin Sand- er er sýnd í glerskáp með víkingadóti í versluninni Víkingur og verður þar eins og hver önnur túristavara.“ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 Lesbók 13GAGNRÝNI LEIKLIST Vestrið eina Borgarleikhúsið, Nýja sviðið „Þetta er bráðskemmtileg, kolsvört kómedía, þó alvarleg í grunninn. Sýningin í heild er vel heppnuð og aðstandendum til sóma.“ Ingibjörg Þórisdóttir Utan gátta Þjóðleikhúsið (Kassinn) „Hér er list leikarans höfð í fyrirrúmi þar sem orð höfundarins mynda þéttan skóg sem per- sónur verksins reyna að feta sig í gegnum og það er leikstjórans að leiða þær áfram.“ Ingibjörg Þórisdóttir Fólkið í blokkinni Borgarleikhúsið „Leikendur eru að vísu misgóðir og það er ekki fyrr en Halldóra Geirharðs- dóttir fær stærra hlutverk í framvind- unni sem erlenda farandverkakonan Valery að sýningin fer á skrið. “ María Kristjánsdóttir KVIKMYNDIR Dögun (Rescue Dawn) bbbbn Sýnd í Sambíóin Álfabakka og Kringlunni „Þungamiðja myndarinnar er þó karakterstúdía Dieters Denglers, og fer Christian Bale frábær- lega með hlutverkið. “ Heiða Jóhannsdóttir Farþegar/Passengers bbnnn Sýnd í Sambíóunum Álfabakka og Kringlunni „Bærilegur leikur Hathaway (The Devil Wears Prada), og Wilson (lék barnaníðing eft- irminnilega í Hard Candy), hjálpar aðeins upp á sakirnar og Wiest og Morse lífga upp á mislukk- aða mynd.“ Sæbjörn Valdimarsson High School Musical 3 bbmnn Sýnd í Sambíóum Álfabakka og Kringl- unni „Kát og frískleg mynd fyrir táninga, aðrir ættu að halda sig í öruggri fjarlægð.“ Sæbjörn Valdimarsson Hvernig glata má vinum og baka sér óvini (How to Lose Friends and Alienate People) bmnnn Sýnd í Sambíóum Álfabakka og Kringlunni „Ljósið í myrkrinu er breski grínistinn Simon Pegg, sem bjargar því sem bjargað verður varð- andi sína persónu, og stórleikarinn Jeff Bridges sem er frábær sem Carter, og skapar persónu sem á heima í annarri og miklu betri mynd. “ Heiða Jóhannsdóttir MYNDLIST Gallerí i8 Guðrún Einarsdóttirbbbbn Sýningu lýkur 7. des. „Guðrún stýrir uppbyggingu myndflatarins skipulega, jafnvel mynsturkennt, og eru verkin oft dekoratíf að sjá. Átök þar innan eru þá hvorki í myndbyggingu né lit heldur eru þau í efnis- kenndinni þar sem tilraunakennd efnisnotkun vegur á móti dekorasjóninni, . . .“ Jón B. K. Ransu Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús Hlynur Hallsson. ÚT/INN bbbmn Sýningin stendur til 11. janúar „Það sem gerir sýningu Hlyns áhugaverða núna er að í tíðaranda sem felur í sér aðdraganda mikilla breytinga á öllu gildismati virkar hún sem ákveðið uppgjör við þá hugmyndafræði sem hefur verið hvað mest áberandi í samtíma- list síðustu ára. “ Þóra Þórisdóttir Gallerí Ágúst Guðrún Kristjánsdóttir– Myndir Sýning stendur til 13. des. „Uppsetning verkanna í rými gallerísins heppn- ast vel; annars vegar í formi stakra mynda og hins vegar sem heild tólf málverka á vegg and- spænis glugganum.“ Anna Jóa Í GANGI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.