Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 8. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 185. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er ÍÞRÓTTIR FLUGELDASÝNING FJÖLNIS Í KÓPAVOGI REYKJAVÍKREYKJAVÍK Stemning hjá Mugison í Berlín Engin sætuefni 25% minni sykur ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 41 26 8 03 .2 0 0 8 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÞEGAR sumarfrístímanum lýkur í haust er hætt við að margir missi vinnuna. Horfur á vinnumarkaði eru með þeim hætti að atvinnuleysi gæti á skömmum tíma farið úr 1% í rúm 3%. Í dag eru um tvö þúsund manns án atvinnu en gangi svartsýnustu spár eftir, upp á 3,8% atvinnuleysi á næsta ári, jafngildir það að um 6.700 manns verði atvinnu- lausir. Atvinnulausum gæti því fjölgað um allt að fjögur þúsund næsta árið eða svo. Er hér miðað við vinnuafl í landinu upp á tæplega 180 þúsund manns en erlendu starfsfólki gæti átt eftir að fækka verulega vegna minnkandi eftirspurnar á vinnumarkaðnum. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir Þúsundir án atvinnu  Útlit fyrir mestu aukningu atvinnuleysis í þrjá áratugi  Atvinnulausum gæti fjölgað um 4.000 næsta árið  Atvinnuleysistryggingasjóður fitnaði vel í góðærinu  Útlitið dökkt | Miðopna gott atvinnuástand hafa varað lengur fram á þetta ár en spáð var. Síðan muni atvinnuleysið birtast hratt með haustinu og líkast til hraðar en menn hafi séð í þrjá ára- tugi. Breytingin verði meiri en margir geri sér í hugarlund. Þó að klipið hafi verið af framlagi í Atvinnuleysistrygg- ingasjóð, með því að láta hluta tryggingagjalds launa renna í Fæðingarorlofssjóð hefur sjóðurinn fitnað vel í góðærinu. „Góðu heilli eigum við vel til mögru áranna,“ segir Giss- ur en eigið fé sjóðsins nemur nú um 13 milljörðum króna. Hann segir sjóðinn „þola“ um 2,3% atvinnuleysi áður en fer að ganga á eigið fé. Þó beri að hafa í huga að launa- greiðslur geti átt eftir að minnka samfara minnkandi um- svifum á vinnumarkaði. ÞÆR VONIR sem bundnar voru við átak til lækkunar lyfjakostnaðar á Landspítalanum í vetur eru brostn- ar, að minnsta kosti í bili, enda hafa gengisbreytingar sett verulegt strik í reikninginn og leitt til umtals- verðrar útgjaldaaukningar. Björn Zoëga, annar starfandi for- stjóra Landspítalans, telur að ætla megi að spítalinn fái kostnað vegna falls krónunnar bættan, forsendur fjárlaga hafi ekki gert ráð fyrir gengisbreytingunum undanfarið. Lyfjakostnaður Tryggingastofn- unar (TR) sveiflast mjög eftir gengi krónunnar sökum þess að verð á meirihluta lyfja er skráð í erlendri mynt, einkum evru og danskri krónu, að því er fram kemur í nýrri skýrslu TR um lyfjakostnað á árinu. Evran sé að meðaltali 7% dýrari á tímabilinu en á sama tíma í fyrra. Segir þar einnig að kostnaður hafi aukist mest vegna flogaveikilyfja, geðrofslyfja, þunglyndislyfja og lyfja við ofvirkni. | 4 Lyfin hækkað mikið í verði Kemur niður á rekstri Landspítalans Morgunblaðið/Frikki Dýrara Ofvirknislyfið Rítalín er meðal lyfja sem hafa hækkað. Í HNOTSKURN »Lyfjakostnaður Trygg-ingastofnunar á fyrsta árs- fjórðungi ársins í ár nam 2.583 milljónum króna, um 308 millj- ónum króna meira en í fyrra. »Aukningin er 14 af hundr-aði á milli ára. ÁRBÆJARSAFN býður á hverju sumri upp á örnámskeið fyrir börn á aldr- inum 8-12 ára í ýmsum þjóðlegum handverkum, s.s. glímu, flugdrekagerð og ullarvinnslu. Í gær fengu krakkarnir að spreyta sig á að tálga, undir leiðsögn Bjarna Þórs Kristjánssonar, og skáru þau út hina fínustu flugna- spaða sem koma sér eflaust vel gegn vespunum í sumar. Lipurt handbragð í Árbæjarsafni Morgunblaðið/G. Rúnar Tálga forláta flugnaspaða  Þrjú af tíu vöndum sem gengu í Evrópusambandið 2004 hafa tekið upp evru. Sex lönd hafa annaðhvort ekki uppfyllt Maastricht-skilyrðin um efnahagslegan stöðugleika eða talið ástæðulaust að hefja þetta ferli vegna aðstæðna í efnahagslíf- inu. Slóvakíu er heimilt að taka upp evruna í byrjun næsta árs. Ströng skilyrði fyrir upptöku evru gera ríkjum erfitt fyrir í þessu ferli. » 14 Morgunblaðið/Golli Gjaldmiðill Evran er eftirsóttur en ekki auðfenginn gjaldmiðill. Ekki auðsótt mál að upp- fylla skilyrði evruaðildar  Íslendingum býðst nú að læra að smíða sinn eigin Fender-raf- magnsgítar. Gunnar Örn Sigurðsson, gítar- smiður- og viðgerðarmaður, hélt í vetur námskeið hjá Iðnskólanum í Reykjavík þar sem fólk á öllum aldri mætti og smíðaði sinn eigin Stratocaster eða Telecaster. Nem- endurnir voru hæstánægðir með gítarana og stefnan er tekin á ann- að námskeið í haust. » 16 Lærðu að smíða rafmagnsgítar Fender Konur og karlar smíðuðu rafmagnsgítara frá grunni. SIGURBJÖRG ÓF landaði í gær á Siglufirði afla úr Bar- entshafi. Verðmætið var um 170 milljónir króna, sem er að sögn Friðþjófs Jónssonar skipstjóra met í einni veiðiferð. Aflinn var 614 tonn af þorski og 40 tonn af ýsu, en þær tölur miðast við óslægðan fisk. Friðþjófur segir jafnframt að nægan fisk sé að fá á miðunum í Barentshafi. Veiðiferð Sigur- bjargar tók 33 daga, þar af 24 á veiðum og níu daga á siglingu. Áhöfnin unir líklega vel við sinn hag eftir túrinn, enda var hlut- ur hvers háseta á bilinu 1,7-1,8 milljónir króna. hsb@mbl.is onundur@mbl.is Veiðiferð- in gaf 170 milljónir Atvinnulausir í júní 2008 2.136 Miðað við 3,2% spá 2009 5.696 Vinnumálastofnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.