Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viltu gerast ferðaráðgjafi? Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn hér á landi sem býður upp á alþjóðlegt nám frá IATA/UFTAA, sem eru alþjóðleg samtök flugfélaga og ferðaskrifstofa, og útskrifar skólinn á hverju ári „ferðaráðgjafa“ til starfa hjá flugfélögum, ferðaskrifstofum og við aðra ferðaþjónustu. Með aukningu ferðamanna hefur þörfin eftir fólki með slíka menntun aldrei verið meiri. Flestir, sem útskrifuðust í vor, fengu starf innan ferðaþjónustunnar að loknu námi. www.menntun.is Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is RÍKISSTJÓRNIN kynnti í gær framkvæmdaáætlun sem felur í sér að byggingu 400 nýrra hjúkr- unarrýma verði hraðað. Auk þess verður 380 núverandi rýmum breytt úr fjölbýli í einbýli. Um er að ræða áætlun til ársins 2012 sem sætir end- urskoðun í lok næsta árs. Uppsöfnuð þörf „Það er alveg ljóst að það er mjög mikil uppsöfnuð þörf fyrir hjúkr- unarrými. Í þessari áætlun leggjum við mikla áherslu á uppbyggingu á heimahjúkrun og við miðum við að 15% af þeim rýmum sem verða byggð verði tekin í notkun fyrir hvíldarinnlagnir,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og trygginga- málaráðherra, í gær á blaðamanna- fundi þar sem áætlunin var kynnt. „Við erum að fara langleiðina með þessari áætlun að útrýma fjölbýlum. Það eru mannréttindi að fólk hafi það val að geta verið eitt í hjúkr- unarrými,“ sagði Jóhanna um fjölg- un einbýla handa öldruðum. „Við viljum haga þessu þannig að við metum þegar í árslok 2009 þörf- ina fyrir þessa uppbyggingu og hvort hægt sé að draga úr þörf fyrir hjúkrunarrými með því að leggja aukna áherslu á ýmis konar heima- þjónustu,“ sagði Jóhanna. „Framlög til heimahjúkrunar hafa verið aukin og þessi þjónusta er ekki aðeins fyrir þá sem eldri eru því langveikir á öllum aldri þurfa á heimahjúkrun að halda. Þessi áætl- un og sú hugsun sem lögð var upp með hér er gott dæmi um viðhorf og sýn ríkisstjórnarinnar,“ sagði Guð- laugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra. Endanlegur kostnaður við þá upp- byggingu sem framkvæmdaáætl- unin tekur til mun ekki liggja fyrir fyrr en að lokinni endurskoðun áætl- unarinnar í árslok 2009. Ef miðað er við þörfina eins og hún liggur nú fyr- ir er áætlaður stofnkostnaður ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofn- ana við fjölgun hjúkrunarrýma um 17 milljarðar króna sem dreifist að hluta til á 25 ár þar sem uppbygging er fjármögnuð með leigugreiðslum. Framkvæmdir við ný rými á Sléttu- vegi í Reykjavík hefjast í mars 2010, við Sunnuhlíð í Kópavogi í maí 2010 og á Vestfjörðum í mars 2010, svo dæmi séu tekin. Einnig verða skoðaðar leiðir til að einstaklingar geti eignast tímabund- inn búseturétt í húsnæði þar sem öldrunarþjónusta er veitt. Jafnframt vill ríkisstjórnin taka til endurskoð- unar núgildandi fyrirkomulag greiðsluþátttöku einstaklinga sem dveljast á öldrunarstofnunum. Birtir til í hjúkrun  Ríkisstjórnin hraðar uppbyggingu hjúkrunarrýma og fjölgar einbýlum fyrir aldraða  17 milljarða stofnkostnaður „VIÐ svo sannarlega fögnum þessu framtaki,“ segir Helgi Hjálmsson, for- maður Landssambands eldri borgara, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að beita sér fyrir uppbyggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma. „Það er svo sannarlega þörf á uppbyggingu hjúkrunarrýma. Mér sýnist þessar fyr- irætlanir líta vel út og þetta er ágætis skref í rétta átt. Það er líka algjört skilyrði að fjölbýlum fækki. Við leggjum áherslu á það að allir verði í ein- býli sem óska eftir því. Það eru breyttir tímar og það er ekki lengur for- svaranlegt að menn séu margir saman í herbergi,“ segir Helgi. 800-850 eldri borgarar á landinu búa við það að þurfa að deila herbergjum með öðrum, allt að 4 einstaklingum. Fagna framtaki ríkisstjórnar Morgunblaðið/Kristinn Ný rými Ríkisstjórnin ætlar að hraða byggingu 400 hjúkrunarrýma og fjölga einbýlum fyrir aldraða. Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Í NÝRRI grein Baldurs Þórhalls- sonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um Evrópu- stefnu íslenskra stjórnvalda er far- ið ítarlega yfir átökin bak við tjöld- in um EES-samninginn, leynifundi fyrir myndun Viðeyjarstjórnarinn- ar og afstöðu stjórnvalda og stjórn- málaflokka til aðildar að Evrópu- sambandinu (ESB). Greinina er að finna í bókinni Uppbrot hugmyndakerfis: Endur- mótun íslenskrar utanríkisstefnu 1991-2007. Í greininni er meðal annars greint frá þremur leyni- fundum milli forystumanna Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks vet- urinn 1990-1991. Fundirnir lögðu grunninn að stjórnarmyndun flokk- anna að loknum kosningum vorið 1991. Á fundunum komu Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson því á framfæri við Jón Baldvin Hanni- balsson og Jón Sigurðsson að Sjálf- stæðisflokkurinn væri tilbúinn að tryggja EES-samningnum brautar- gengi í ríkisstjórn. Einnig myndi flokkurinn falla frá þeirri kröfu sinni að koma á tvíhliða viðræðum við Evrópusambandið um sjávarút- vegsmál. Forsetinn og EES-málið Þá er í greininni farið ítarlega yfir afstöðu Vigdísar Finnboga- dóttur forseta til EES-málsins og samskipti hennar við forystumenn stjórnarflokkanna um EES. Fram kemur að forystumenn ríkisstjórnarinnar óttuðust að Vig- dís myndi ekki skrifa undir EES- samninginn og ætluðu að rjúfa þing og boða til kosninga ef forset- inn ákvæði að skrifa ekki undir samninginn. Sjálfstæðisflokkur og ESB Í greininni er ennfremur farið ít- arlega yfir afstöðu Sjálfstæðis- flokksins til aðildar að ESB. Fram kemur að Davíð Oddson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætis- ráðherra, hafi verið tilbúinn að skoða Evrópusambandsaðild eftir þingkosningar vorið 1991. Þátttaskil urðu hins vegar varð- andi afstöðu Davíðs og Sjálfstæð- isflokksins til aðildar árið 1992. Leynifundir lögðu grunninn að ríkisstjórn Ný grein um Evrópustefnu Íslendinga Morgunblaðið/Sverrir Stjórnarmyndunarviðræður í Viðey Davíð Oddsson heilsar Jóni Baldvini Hannibalssyni við hús staðarhaldarans í Viðey. Í HNOTSKURN »Þrír leynifundir voruhaldnir milli forystu- manna Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks veturinn 1990- 1991. Þessir fundir lögðu grunninn að stjórnarmyndun árið 1991. »Forystumenn ríkisstjórn-arinnar óttuðust mjög að forseti myndi ekki skrifa und- ir EES-samninginn. Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „ÉG tel mig gríðarlega heppinn að vera á lífi eftir þessa árás, alveg gríð- arlega,“ segir Miguel Angel Sepul- veda Roman. Hann varð fyrir alvar- legri líkamsárás á gatnamótum Ingólfsstrætis og Hverfisgötu að- faranótt föstudagsins 1. ágúst. Hann var stunginn í síðuna svo blæddi inn á lunga. „Hnífurinn fór rétt við lungað. Ég veit ekki hvað hefði gerst hefði hann farið alla leið. Svo var ég einnig skorinn á hand- leggnum.“ Miguel missti um lítra af blóði og þakkar því hversu fljótt hjálp barst að ekki fór verr. Tveir menn voru handteknir í kjöl- far árásarinnar og voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Nokkrum dögum síðar var sá þriðji handtekinn vegna málsins. Einum þeirra var svo ný- lega sleppt en gæsluvarðhald hinna tveggja var framlengt til fimmtu- dags. Miguel kveðst ekki vita hvers vegna mennirnir réðust til atlögu við hann. „Tel mig heppinn að vera á lífi“ Morgunblaðið/Sverrir Bærinn Árásin átti sér stað við mót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Tveir enn í gæslu- varðhaldi eftir lík- amsárás 1. ágúst GÍSLI Marteinn Baldursson borg- arfulltrúi hefur ákveðið að fara í meistaranám í borgarfræðum við Edinborg- arháskóla í haust, en hann hyggst útskrifast úr BA- námi í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands í haust. Af þessum sökum mun hann hætta í borgarráði og láta af nefnd- arstörfum, en sitja áfram sem borg- arfulltrúi og fljúga heim á borg- arstjórnarfundi. Í bréfi sem hann sendi borgar- stjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins á mánudag, þar sem hann tilkynnti ákvörðun sína, segir að námið standi í tólf mánuði og sameini „margskon- ar viðfangsefni borgarlífs, allt frá skipulagsmálum og arkitektúr yfir í hagfræði borga, hagkvæmni sam- ganga, húsnæðismála og þess sem þeir kalla „urban politics“. Hættir í borgarráði Gísli Marteinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.