Morgunblaðið - 26.08.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.08.2008, Blaðsíða 1
                                       Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is „VIÐ höfum slegið þessu verkefni á frest þar til hægt er að ná eðlilegum kjörum á fjármögn- un verkefnisins,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Nýsis hf., um framkvæmdir við við- skiptamiðstöðina World Trade Center Reykja- vík. Nýsir hf. ráðgerði að reisa hana í grennd við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið, en nú er óvíst hvenær framkvæmdir geta hafist. Höskuldur segir þetta í takt við ástandið í þjóðfélaginu al- mennt, flestir hafi slegið byggingarfram- kvæmdum á frest. Hugmyndin var sú að Nýsir byggði hina 16 þúsund fermetra viðskiptamiðstöð og leigði síðan út rými til fyrirtækja. Þar áttu að vera skrifstofur, fundarsalir og verslanir. Lengi voru uppi hugmyndir um að hús Listaháskólans risi á reit viðskiptamiðstöðv- arinnar, en langt er síðan horfið var frá þeim. Eignarhaldsfélagið Portus hefur enn ekki fundið samstarfsaðila vegna 400 herbergja hótelbyggingar sem rísa á á reitnum. Helgi S. Gunnarsson er framkvæmdastjóri Portus. Hann segir fyrirtækið hafa átt í formlegum viðræðum við tvo aðila, innlendan og erlendan, um samstarf en ekkert hafi komið út úr þeim viðræðum enn sem komið er. Helgi telur samt sem áður að viðræðurnar séu enn opnar. Viðskiptamiðstöð slegið á frest  Átti að rísa í nánd við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík  Beðið eftir að ástand á fjármála- mörkuðum batni  Portus er ekki enn búið að finna samstarfsaðila vegna 400 herbergja hótels „Þetta mál hefur verið í biðstöðu,“ útskýrir Helgi, sem segir Portus ekki hafa verið tilbúið til að klára samninga. Hann bendir í því sam- hengi m.a. á að umræðan um svokallaða stokkalausn hafi verið umfangsmikil og tekið langan tíma. Ekki hefði gengið að eiga í við- ræðum við hótelrekanda á sama tíma þegar ekki lægi ljóst fyrir hvenær hægt væri að klára mannvirkið. Helgi finnur fyrir áhuga á verk- efninu en viðurkennir að finna þurfi samstarfs- aðila á næstu mánuðum ef ljúka eigi verkinu „á skynsamlegum tíma“, eins og hann orðar það. Framkvæmdir við hótelið eru í raun hafnar. Jarðvegsvinna er langt komin og verið er að vinna að bílageymslu sem verður undir því. Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 232. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF KYNNIR ÍSLENSKAR BÓKMENNTIR Í JAPAN REYKJAVÍKREYKJAVÍK Lóa les allt nema ofurhetjusögur Má bjóða þér léttan kaffisopa? Leikhúsin í landinu Allir í leikhús Gosi >> 35 GRÍÐARLEGUR umferðarþungi var á Miklu- brautinni á milli klukkan átta og níu í gærmorg- un, þótt heldur dreifðist þunginn ójafnt milli austurs og vesturs. Svo virtist sem allir væru á leiðinni í bæinn, enda skólaárið að hefjast, sem jafnan snareykur umferð. Þegar umferð náði há- marki fóru yfir eitt þúsund bílar um Ártúns- brekkuna á 10 mínútum en síðan minnkaði um- ferðin upp úr klukkan níu. Morgunblaðið/Valdís Thor Bíll við bíl á þrefaldri Miklubrautinni á háannatíma Kl. 08.59  Miklar vonir eru bundnar við fjölþáttameðferð (Multisystemic Therapy) sem farið verður af stað með hjá Barnaverndarstofu í nóvember nk. Meðferðinni er ætl- að að fylla ákveðið tómarúm sem hefur myndast, en vantað hefur heildræna meðferð fyrir ung- menni með alvarlegan hegð- unarvanda, s.s. vímuefnafíkn, á heimilum þar sem fjölskyldan öll er í fyrirrúmi. Taka ber fram að MST er ekki ætlað að koma í stað annarra meðferða, s.s. á stofnunum, og nýtist alls ekki öllum ungmennum sem glíma við alvarlegan hegð- unarvanda. Að einhverju leyti mun þó sami hópur og sótt hefur aðstoð á Stuðla og meðferð- arheimili geta nýtt sér hana. Innleiðing MST hófst í Banda- ríkjunum 1994 og hefur síðan þá náð mikilli útbreiðslu. Eru níu ár síðan Norðmenn ákváðu að inn- leiða meðferðina. » 12-13 Af stað með MST  Uppselt er í margar sólarlandaferðir í lok október, en á þeim tíma fara flestir grunn- skólar landsins í vetrarfrí. Sala á borgarferðum á þessum tíma hefur einnig gengið mjög vel og almennt virðist sala ferða um jól, áramót og páska vera mikil. „Kreppan sem all- ir eru að tala um er ekki komin hvað þetta varðar, landinn er þá að spara við sig í einhverju öðru,“ segir tals- maður ferðaskrifstofu. Ferðir sem áður hafði verið áætlað að hætta við eru komnar aftur á dagskrá. » 8 Sólarþrá um vetur  Stormur og stórhríð brast á í Hrafntinnuskeri aðfaranótt mánu- dags og er þar allt orðið hvítt af snjó. Hrafntinnusker er einn áfanga á Laugaveginum, vinsæl- ustu gönguleið landsins. Ferðafélag Íslands er með skála í Hrafntinnu- skeri og á heimasíðu FÍ er brýnt fyrir göngufólki að vera vel búið á gönguferðum og kanna vel veð- urspá áður en haldið er til fjalla. Ljóst má vera að fyrstu haustlægð- irnar hafa dunið yfir af miklu afli. Stórhríð á Laugaveginum 13 ÁRA drengur sýndi snarræði á Ísafirði í gær þegar hann tilkynnti eld í iðnaðar- og geymsluhúsnæði við Suðurtanga 2. Í húsinu er íbúð á efri hæð og var hann þar inni ásamt tveimur öðrum börnum þegar eldur- inn kviknaði á neðri hæðum. Svo vildi til að drengurinn var á leið á siglinganámskeið og átti því erindi niður í bátageymslu Sæfara og sá þá hvers kyns var. Hann kallaði á hin börnin tvö og lét síðan lögreglu vita. Allt tiltækt slökkvilið Ísafjarðar var kallað út enda hafði eldurinn náð sér á strik og olli miklum skemmdum á húsinu áður en tókst að slökkva hann Á sama tíma dags fyrir fimm dög- um barst Neyðarlínunni tilkynning um að reyk legði frá kyndikompu á jarðhæð húsnæðisins. Reyk lagði frá húsnæðinu en lögreglumenn sem voru fyrstir á vettvang sýndu snar- ræði þegar þeim tókst að kæfa eld- inn í fæðingu. Slökkvilið kom þá á vettvang og braut upp hurð til að reykræsta. orsi@mbl.is 13 ára drengur sýndi snarræði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.