Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 11
FYRSTU réttir haustsins hefjast
um næstu helgi. Réttað verður í
Baldurheimsrétt næsta sunnudag.
Listi yfir fjár fyrir haustið 2008 er
eftirfarandi.
Fjárréttir haustið 2008
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún.,
laugardag 6. sept.
Áfangagilsrétt á Landmannaafrétti, Rang.,
fimmtudag 25. sept.
Árskógsrétt á Árskógsströnd, Eyf.,
sunnudag 14. sept.
Baldursheimsrétt í Mývatnssveit, S.-Þing.,
sunnudag 31. ágúst.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr.,
sunnudag 14. sept.
Fellsendarétt í Miðdölum,
sunnudag 14. sept.
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal.,
laugardag 20. sept.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang.,
þriðjudag 16. sept. og sunnudag 21. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr.,
laugardag 13. sept.
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft.,
föstudag 5. sept.
Fossvallarétt v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp),
sunnudag 21. sept.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal.,
sunnudag 21. sept.
Glerárrétt við Akureyri,
laugardag 20. sept.
Gljúfurárrétt í Höfðahverfi, S.-Þing.,
laugardag 6. sept.
Grafarrétt í Skaftártungu, V.-Skaft.,
laugardag 13. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr.,
þriðjudag 16. sept.
Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang.,
sunnudag 14. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún.,
laugardag 13. sept.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.,
laugardag 20. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr.,
mánudag 15. sept.
Hlíðarrétt í Bólstaðarhlhr. A.-Hún.,
sunnudag 7. sept.
Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing.,
sunnudag 31. ágúst.
Holtsrétt í Fljótum, Skag.,
laugardag 13. sept.
Hólmarétt í Hörðudal,
sunnudag 27. sept.
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal,
sunnudag 21. sept.
Hraungerðisrétt í Eyjafjarðarsveit,
laugardag 6. sept.
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing.,
sunnudag 7. sept.
Hreppsrétt í Skorradal, Borg.,
sunnudag 21. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn.,
föstudag 12. sept.
Hrútatungurétt í Hrútafirði, V.-Hún.,
laugardag 6. sept.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn.,
laugardag 20. sept.
Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strand.,
laugardag 20. sept.
Illugastaðarétt í Fnjóskadal S.-Þing.,
sunnudag 7. sept.
Kaldárbakkarétt í Kolb., Hnapp.,
sunnudag 7. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal.,
laugardag 13. sept.
Kjósarrétt í Árneshreppi, Strand.,
laugardag 20. sept.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós.,
sunnudag 21. sept.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn.,
miðvikudag 10. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði,
sunnudag 7. sept.
Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal.,
laugardag 6. sept.
Lokastaðarétt í Fnjóskadal, S.-Þing.,
sunnudag 14. sept.
Melarétt í Árneshreppi, Strand.,
laugardag 13. sept.
Melarétt í Fljótsdal, N.-Múl.,
laugardag 20. sept.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún.,
laugardag 6. sept.
Múlarétt í Saurbæ, Dal.,
sunnudag 21. sept.
Mýrdalsrétt í Hnappadal,
þriðjudag 16. sept.
Mælifellsrétt í Skagafirði,
laugardag 6. sept.
Möðruvallarétt í Eyjafjarðarsveit,
sunnudag 7. sept.
Núparétt á Melasveit, Borg.,
sunnudag 21. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg.,
miðvikudag 17. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg.,
föstudag 19. sept.
Reistarárrétt í Arnarneshreppi, Eyf.,
laugardag 13. sept.
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum,
laugardag 20. sept.
Reykjarétt í Ólafsfirði,
laugardag 20. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn.,
laugardag 13. sept.
Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg.,
laugardag 20. sept.
Selflatarrétt í Grafningi, Árn.,
mánudag 22. sept.
Selnesrétt á Skaga, Skag.,
laugardag 6. sept.
Selvogsrétt í Selvogi,
sunnudag 21. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag.,
mánudag 15. sept.
Skaftárrétt í Skaftárhr., V.-Skaft.,
laugardag 6. sept.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn.,
föstudag 12. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag.,
laugardag 6. sept.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal.,
laugardag 20. sept.
Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strand.,
laugardag 20. sept.
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal.,
sunnudag 21. sept.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún.,
sunnudag 7. sept.
Staðarbakkarétt í Hörgárdal, Eyf.,
föstudag 12. sept.
Staðarrétt í Skagafirði.,
laugardag 6. sept.
Staðarrétt í Steingrímsfirði, Strand.,
sunnudag 21. sept.
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún.,
laugardag 6. sept.
Svarthamarsrétt á Hvalfjstr., Borg.,
sunnudag 21. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr.,
mánudag 15. sept.
Tungnaréttir í Biskupstungum,
laugardag 13. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal,
sunnudag 7. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún.,
föstudag 5. sept. og laugardag 6. sept.
Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún.,
föstudag 5. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún.,
laugardag 6. sept.
Þorvaldsdalsrétt í Hörgárdal, Eyf.,
laugardag 13. sept.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík,
laugardag 20. sept.
Þórustaðarétt í Hörgárdal, Eyf.,
laugardaginn 13. sept.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún.,
laugardag 13. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.,
mánudag 15. sept.
Þverárrétt í Öxnadal, Eyf.,
mánudag 15. sept.
Ölfusréttir í Ölfusi, Árn.,
mánudag 22. sept.
Nánari upplýsingar um réttir í Húnavatnssýslum
og Skagafirði er að finna á www.skagafjordur.is
og á Norðausturlandi á www.nordurland.is og
www.eyjafjardarsveit.is.
Helstu réttir í Landnámi Ingólfs
Arnarsonar haustið 2008
Þórkötlustaðarétt í Grindavík,
laugardag 20. sept. kl. 14.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit,
laugardag 20. sept. upp úr hádegi.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól,
laugardag 20. sept. upp úr hádegi.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn.,
sunnudag 21. sept. kl. 9.
Fossvallarétt við Lækjarbotna,
sunnudag 21. sept. kl. 11.
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal,
sunnudag 21. sept. um hádegi.
Kjósarrétt í Hækingsdal, Kjós,
sunnudag 21. sept. um kl. 16.
Selflatarrétt í Grafningi,
mánudag 22. sept. kl. 9.
Ölfusréttir í Ölfusi,
mánudag 22. sept. kl. 14.
Seinni réttir verða tveim vikum
síðar á sömu vikudögum, þ.e. dagana
4. – 6. október. Til að auðvelda
hreinsun afrétta og draga úr hættu á
ákeyrslum á þjóðvegum í haust-
myrkrinu er lögð áhersla á að fé
verði haft í haldi eftir réttir. Sam-
kvæmt 5. gr. fjallskilasamþykktar
fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar
nr. 401/1996 er óheimilt að sleppa
aftur fé úr haustréttum á afrétti.
Fyrstu réttir hefjast um helgina
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 11
FRÉTTIR
Kristján Axelsson, bóndi í Bakkakoti í Stafholtstungum, er fjallkóngur í
Stafholtstungnaleitum á Holtavörðuheiði og svæðinu í kring. Hann segir
leitina og réttirnar vera nokkuð stóra viðburði til sveita og að menn taki
að þjálfa hesta sína til verksins nokkrum vikum áður.
Hugur er í mönnum og vel hefur gengið að fá fólk í leitirnar en 57
manns fara í fyrstu leit, þar af 25 Tungnamenn. Þá munu sextán Þverhlíð-
ingar og jafnmargir Hvítsíðingar taka þátt að sögn Kristjáns. Fólk á öllum
aldri tekur þátt en menn verða löggildir leitarmenn við fermingu og má
því reikna með að heilu fjölskyldurnar verði á hlaupum uppi um heiðar.
Ekki veitir af mannskapnum því rollurnar eru þónokkrar. „Það smalast
væntanlega um tuttugu þúsund fjár ef allt kem-
ur,“ segir konungur fjallsins.
„Það er alltaf gott veður, það er bara svona mis-
jafnlega gott,“ segir Kristján reifur þegar hann er
spurður hvort veðrið leiki stórt hlutverk í leit og
réttum. Hann segir að smalafólkið láti það ekki á sig
fá en óski þess eðlilega alltaf að vel viðri. Og skyldi
engan undra enda ekkert grín að leita fjár upp til
fjalla. skulias@mbl.is
Alltaf gott veður í réttum
Flestar fjárréttir fara fram um miðjan september
Lögð áhersla á að fé verði haft í haldi eftir réttir
THORVALDSENSFÉLAGIÐ hefur
fært rannsóknarteymi á Barnaspít-
ala Hringsins 2,5 milljónir króna
styrk til gerðar nýs meðferðarefnis
fyrir of feit börn og fjölskyldur
þeirra.
Meðferðarúrræði fyrir of feit
börn hafa verið fá og sundurleit hér
á landi og brýn þörf er því á úrræð-
um fyrir þau samkvæmt upplýs-
ingum barnasviðs Landspítalans.
Síðastliðin þrjú ár hefur staðið
yfir þróun og rannsóknir á meðferð
fyrir of feit börn og fjölskyldur
þeirra á Barnaspítala Hringsins.
Yfir 100 fjölskyldur hafa með góð-
um árangri farið í gegnum nám-
skeið sem gengið hafa undir nafn-
inu Heilsuskólinn. Miklar vonir eru
þess vegna bundnar við að hið nýja
meðferðarefni, sem verður nú til
fyrir tilstilli Thorvaldsensfélagsins,
muni geta hjálpað fjölmörgum fjöl-
skyldum á Íslandi í framtíðinni.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Styrkur Sigríður Sigurbergsdóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, af-
hendir Ragnari Bjarnasyni lækni styrkinn, ásamt Hrefnu Magnúsdóttur.
Guðlaugur Þór Þórðarsson heilbrigðisráðherra var einnig viðstaddur.
Styrkja gerð meðferðar-
efnis fyrir of feit börn