Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDAHÚSIN frumsýna í
kvöld bæði mikla Hollywoodgam-
anmynd og mynd um dansara sem
gengur illa að fóta sig í hörðum
heimi.
Tropic Thunder
Sannkallað stórskotalið grínleik-
ara tekur þátt í gamanmyndinni
Tropic Thunder sem frumsýnd er í
kvöld. Ben Stiller, Jack Black, Ro-
bert Downey Jr. og Nick Nolte fara
með aðalhlutverkin í þessari stríðs-
mynda- og Hollywoodádeilu.
Segir myndin af stjörnuliði pjatt-
aðra leikara sem sendir eru til Suð-
austur-Asíu til að taka upp það sem
á að vera stærsta og dýrasta stríðs-
mynd fyrr og síðar.
En áður en langt um líður breyt-
ast kringumstæðurnar í frumskóg-
inum og hetjurnar þurfa að berjast
fyrir lífi sínu.
Ef leikararnir verða samir við sig
má eiga von á góðum skammti af
kvikindislegu gríni og sprelli en
margir gagnrýnendur vestanhafs
hafa skrifað mjög lofsamlega um
myndina sem m.a. fær fullt hús stiga
hjá San Francisco Chronicle og En-
tertainment Weekly.
Erlendir dómar
Rolling Stone 88/100
Roger Ebert 88/100
Metacritic.com 71/100
LA Times 70/100
Make it Happen
Þær virðast koma frá Hollywood í
stríðum straumum þessa dagana,
myndirnar um unglingsstúlkur sem
þurfa að hafa mikið fyrir því að
brjótast á toppinn í hörðum heimi
danslistarinnar. Myndin Make it
Happen verður frumsýnd í kvöld og
segir af stelpunni Lauryn frá In-
diana sem flyst til stórborgarinnar
Chicago til að freista þess að komast
inn í virtan dansskóla þar í borg.
Henni gengur ekki sem skyldi í
inntökuprófinu og eftir röð óhappa
endar hún á því að finna sér vinnu í
eggjandi danssýningu. Í gegnum
dansinn þarf hún bæði að takast á
við sjálfa sig og aðra og fyrr en varir
sér hún dansinn og drauma sína í
nýju ljósi.
Erlendir dómar
TimesOnline.co.uk 10/100
IMDB.com 50/100
The Independent 20/100
Grín og blóðsúthellingar í frumskóginum
Vígreifir Tropic Thunder gerir bæði grín að kvikmyndaiðnaðinum og hern-
aði. Brandon T. Jackson, Ben Stiller og Robert Downey Jr.
FRUMSÝNINGAR»
LAGAHÖFUNDURINN Kara
DioGuardi mun í vetur bætast í
fríðan flokk dómara í bandarísku
sönghæfileikakeppninni Americ-
an Idol. Kara, sem mun taka sæti
við hlið Paulu
Abdul, Randy
Jackson og
hins hispurs-
lausa Simon
Cowell, hefur
samið smelli
fyrir listamenn
á borð við
Kelly Clark-
son, Christinu
Aguilera,
Gwen Stefani
og Celine
Dion. Í við-
tölum kveðst
Kara vera
hvergi bangin
og hefur hún
einsett sér að
vera hrein-
skilin við bæði meðdómendur og
keppendur. Kara birtist á skján-
um í janúar, þegar útsendingar á
8. Idol-þáttaröðinni hefjast
vestra, en hún byrjar strax á
fimmtudag að dæma keppendur í
inntökuprufum sem fram fara í
Nýju-Jórvík.
Kara DioGuardi
Nýr dómari í
American Idol
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart.
Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem
fór beint á toppinn í USA.
"ÓBORGANLEG SKEMMTUN
SEM ÆTTI AÐ HALDA ÞÉR BROSANDI
ALLANTÍMANN."
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
"EIN BESTA GRÍNMYNDIN
Í LANGANTÍMA"
-GUÐRÚN HELGA - RÚV
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG
- 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA
GRÍNMYND ÁRSINS!
TROPIC THUNDER kl. 3:40 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
STAR WARS: CLONE WARS kl. 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ
GET SMART kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
THE MUMMY 3 kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
THE DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 3:40D LEYFÐ DIGITAL
GET SMART kl. 8D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
STAR WARS: CLONE WARS kl. 6:20D LEYFÐ DIGITAL
DARK KNIGHT kl. 8:30 sýnd í sal 1 vegna eftirsp. B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 5:50D LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
„FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
“...WALL E fær óskarinn sem besta teiknimyndin, enda
mynd sem fer fram úr því að vera fjölskylduteiknimynd
og yfir í að vera fullorðinsteiknimynd.”
“...full af nægum sjarma til að bræða hvert steinhjarta”.
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
...umhugsunar- og athyglisverðasta
teiknimynd í áratugi...”
“WallE er aftur á móti frábær afþreying ætluð hinum
almenna bíógesti, þá einkum stórfjölskyldunni...”
S.V. Morgunblaðið
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI