Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						4

Fréttir

INNLENT

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur

ingibjorg@mbl.is

VERÐI margra ára töf á því að reist verði fyrir-

hugað verslunarhúsnæði í miðborginni vegna

efnahagskreppunnar þarf hugsanlega að meta

hvort lagfæra eigi gömul og niðurnídd hús sem

víkja áttu fyrir nýjum byggingum, að sögn Ólafar

Örvarsdóttur, skipulagsstjóra Reykjavíkur-

borgar sem viðurkennir að hús sem neglt hafi

verið fyrir eða ekki gerð upp séu lýti á miðborg-

inni. Samkvæmt vinnureglum má ekki rífa húsin

fyrr en sýnt hafi verið fram á hvað koma eigi í

staðinn.

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Samson Pro-

perties sem á tugi fasteigna við Skúlagötu, Hverf-

isgötu, Laugaveg, Vitastíg og Frakkastíg, telur

að fáir séu að fara byggja mikið upp í miðbænum

eins og staðan er nú. ?Menn reyna í besta falli að

klára það sem þeir eru með í vinnslu,? segir Ás-

geir. Aðeins tvö húsa Samson Properties á svæð-

inu eru auð, samkvæmt upplýsingum frá félaginu. 

Ágúst Friðgeirsson hjá ÁF-Húsum ehf. sem á

fimm fasteignir við Laugaveg og Vatnsstíg segir

enn stefnt að því að byggja verslunarhúsnæði á

svæðinu með íbúðum fyrir ofan. ?En auðvitað

gæti það breyst miðað við þróun mála. Útlitið er

ekki glæsilegt. Það er búið að halda manni í gísl-

ingu með fleiri hundruð milljónir króna í þrjú ár.

Ekki lækka skuldirnar við það. Náist ekki sam-

komulag við borgaryfirvöld um endurbyggingu á

þeim húsum sem eiga að halda sér á Laugaveg-

inum geri ég kröfu um að fá að byggja eftir gild-

andi deiliskipulagi en það miðast við að þessi hús

fari. Að sögn Ágústs eru þrjár fasteignir ÁF-

Húsa auðar, ein við Vatnsstíg og tvær við Lauga-

veg. ?Það er neglt fyrir og við erum með daglegt

eftirlit með þessum húsum þar sem hústökumenn

höfðu hreiðrað um sig.? Það er mat Ágústs að

nánast allar fasteignirnar séu ónýtar.

Skipulagsstjóri segir að verði engar fram-

kvæmdir um langa hríð sé eðlilegast að eldri hús

verði gerð upp og þeim komið í notkun. ?Við vilj-

um ekki að bærinn sé skörðóttur. Það eru skiptar

skoðanir um hversu ónýt húsin eru. Ef menn ætla

ekkert að gera í mörg ár hlýtur alltaf að vera hag-

kvæmara að gera eitthvað fyrir húsin og koma

þeim í notkun. Byggingarfulltrúi þarf að meta

ástand húsanna í samvinnu við eigendur. Mörg

húsanna hafa ekki endilega verið keypt til niður-

rifs.?

Fáir að fara að byggja í miðbænum

L52159 Skipulagsstjóri segir hugsanlega þörf á að meta hvort gera eigi gömul niðurnídd hús upp

L52159 Eigendur húsa sem neglt hefur verið fyrir segja endurgerð ekki svara kostnaði

Í HNOTSKURN

»

Jón Viðar Matthíasson,

slökkviliðsstjóri á höf-

uðborgarsvæðinu, óttast að

menn leiti skjóls í auðum hús-

um þegar harðnar á dalnum.

Hann óttast að brunagildrur

séu enn margar.

»

Samkvæmt skýrslu

slökkviliðsstjóra frá því í

apríl síðastliðnum stóðu 57

hús auð í miðborginni og þar

um kring. Slökkviliðið fer í

eftirlitsferðir á um hálfs

mánaðar fresti.

»

Húseiganda ber að halda

húsi sínu við og sjá til

þess að ekki stafi hætta af

því.

»

Byggingarfulltrúi hefur

heimild til þess að beita

dagsektum eða láta vinna

verkið og innheimta fyrir það

stafi hætta af húsum.

Morgunblaðið/Golli

Engin prýði Autt húsnæði við miðbæinn sem lítil prýði þykir að.

Eftir Björn Jóhann Björnsson

bjb@mbl.is

SAMKVÆMT upplýsingum frá

fjórum helstu bílafjármögnunarfyr-

irtækjunum hafa hátt í 20 þúsund

bíleigendur nýtt sér möguleika á að

frysta erlend bílalán síðustu tvo

mánuði. Er afborgunum af höfuð-

stól lána þá almennt frestað í fjóra

mánuði en lántakar greiða áfram

vexti.

Upplýsinga var aflað frá Avant,

SP Fjármögnun, Glitni Fjármögnun

og Lýsingu en fleiri aðilar hafa

einnig boðið upp á erlend bílalán.

Þessi fjögur fyrirtæki hafa þó átt

langstærstan hlut á markaðnum.

Bíleigendur hafa getað breytt

þessum greiðslum sér að kostn-

aðarlausu, nema að Lýsing hefur

tekið 7.000 króna gjald fyrir. Hefur

þetta verið helst verkefni fyrirtækj-

anna síðustu daga og vikur.

Lýsing er með um 23 þúsund

bílasamninga við 16 þúsund við-

skiptavini, þannig að sumir eru með

fleiri en tvo bíla á sínum vegum.

Að sögn Ingólfs Þorsteinssonar,

innheimtustjóra Lýsingar, hafa ríf-

lega 4.000 samningar verið frystir

síðustu tvo mánuði, þar af um 2.600

núna fyrir næsta gjalddaga í byrjun

desember. Frestur til að gera

breytingar á þeim gjalddaga var 21.

nóvember sl. Ekki hefur verið tekin

ákvörðun um áframhald á þessum

breytingum á lánum í erlendri

mynt. Ingólfur segir stöðuna vera

endurmetna fyrir gjalddaga í jan-

úar, eftir því hvernig gengi krón-

unnar þróast.

20-30% af heildinni

Að sögn Magnúsar Gunnars-

sonar, framkvæmdastjóra Avant,

hafa um fjögur þúsund bílalán verið

fryst. Spurður hvað það sé mikill

hluti af heildarfjölda bílalána hjá

Avant segir Magnús það vera um

þriðjung.

Samkvæmt upplýsingum frá

Glitni Fjármögnun hafa um fjögur

þúsund aðilar óskað eftir frystingu

á bílalánunum og er það um 20% af

heildarfjölda viðskiptavina.

?Við erum að tala um nokkur

þúsund bílalán,? segir Haraldur

Ólafsson, markaðsstjóri SP Fjár-

mögnunar, um stöðuna en gefur

ekki upp nákvæmari tölu. Á bilinu

22-24 þúsund bílasamningar hafa

verið gerðir hjá fyrirtækinu, að

sögn Haraldar.

Morgunblaðið/Ómar

Bílalán Af um 80 þúsund samningum hjá fjórum stærstu fjármögnunarfyrirtækjunum hafa nærri 20 þúsund bílalán

verið fryst í næstum fjóra mánuði. Áfram eru greiddir vextir af lánunum og aðeins afborgunum slegið á frest.

Um 20 þúsund fryst

L52159 Lýsing endurskoðar afstöðu sína fyrir gjalddaga í janúar

L52159 Frysting bílalána helsta verkefni fjármálafyrirtækjanna

Í HNOTSKURN

»

Um 4.000 bílalán hafa ver-

ið fryst hjá hverju fyrir-

tæki fyrir sig, Avant, Lýsingu

og Glitni Fjármögnun

»

SP Fjármögnun segir

?nokkur þúsund? hafa

fryst bílalánin.

»

Frá fimmtungi upp í þriðj-

ung lántakenda hafa nýtt

sér þennan möguleika til að

mæta hækkunum á erlendum

bílalánum.

Eftir Önund Pál Ragnarsson

onundur@mbl.is

OPINN fundur

fyrir sjóðsfélaga í

peningabréfa-

sjóði Landsvaka,

dótturfélags

Landsbankans,

verður haldinn

annað kvöld.

Fundurinn byrjar

klukkan 20 og fer

fram í íþrótta-

miðstöðinni í

Laugardal, þar sem ÍSÍ hefur aðset-

ur.

Að sögn Kristínar Helgu Kára-

dóttur, sem er meðal skipuleggj-

enda, hafa helstu stjórnendur sem

eru málinu viðkomandi verið boð-

aðir á fundinn. Ásmundur Stef-

ánsson, formaður bankaráðs Nýja

Landsbankans, Lárus Finnbogason,

formaður skilanefndar gamla

Landsbankans, Stefán Héðinn Stef-

ánsson, stjórnarformaður sjóðsins,

og Elín Sigfúsdóttir, forstjóri Nýja

Landsbankans eru þar á meðal.

Þingmönnum boðið að mæta

Einnig hefur Gísla Tryggvasyni,

talsmanni neytenda, verið boðið á

fundinn og öllum þingmönnum sem

gegna formennsku í þingflokkum.

Kristín Helga segir þá kröfu

verða setta fram á fundinum að tap

peningabréfasjóðsins verði rann-

sakað og að allt komi upp á borðið,

varðandi viðskipti í sjóðnum

skömmu fyrir hrun bankans. Þá vilji

sjóðsfélagar líka að rætt verði við þá

um úrbætur. Ýmislegt hafi verið

rætt í því samhengi, svo sem að fá

andvirði hins tapaða fjár greitt inn á

bundinn verðtryggðan reikning, að

fá skattaafslátt eða skuldajöfnun.

Hins vegar verði líklega rætt um

hina ósiðlegu, ef til vill ólöglegu

markaðsetningu sjóðsins. ?Það er

hluti þess sem við viljum að verði

rannsakað,? segir Kristín Helga. Yf-

ir 150 manns hafa nú skráð sig í hóp-

inn sem stendur fyrir fundinum.

Fundað um Lands-

vakasjóð á morgun

Kristín Helga

Káradóttir

NÝ HÁLENDISBÓK!

SKRUDDA

Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík

s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is

www.skrudda.is

Einstökbókum

ævintýralegar

jöklaferðirumhávetur,

samskiptijeppamanna

ogleiðiroglandslagá

hálendinu.

Frábærbókhanda

ölluáhugafólki

umhálendiðog

fjallaferðir!

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52