Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ÁRLEG handverkssala Ljóssins, endurhæfingar- og stuðnings- miðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur, verður haldin nk. sunnudag, 30. nóvember, að Langholtsvegi 43 í Reykjavík. Markaðurinn verður opinn milli kl. 10 og 15. Þetta er þriðja árið í röð sem Ljósið heldur handverksmarkað. Þar verður m.a. hægt að fá jóla- gjafir á góðu verði, m.a. margt fallegt handverk, fallegar sér- hannaðar peysur, auk þess sem á staðnum verður kökubasar og flóamarkaður. Allur ágóði rennur beint til Ljóssins. Handverk til styrktar Ljósinu STARFSMENN Sels, öldrunar- deildar við Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA), mótmæla harðlega lokun deildarinnar og hvernig að ákvörð- uninni var staðið. Sjúklingarnir tólf sem þar eru verða fluttir á Kristnes, þar sem FSA rekur öldrunar- og endurhæfingardeild. ?Við vorum kallaðar á fund í há- deginu síðasta föstudag og sagt frá því að Seli yrði lokað um áramót. Í vikunni áður var okkur sagt að ekki yrði um neinar uppsagnir að ræða,? sagði Filippía Ingólfsdóttir, annar trúnaðarmanna sjúkraliða á Seli, í gær. Í ályktun sem starfsmenn Sels samþykktu á fundi í fyrradag segir að breytingarnar hafi í för með sér fjöldauppsagnir og ?verulega skerð- ingu á þjónustu og gengur þvert á það sem nú er brýnast að gera, stór- efla velferðarþjónustuna og styrkja öryggisnet fjölskyldnanna.? Þar segir einnig: ?Starfsmenn í Seli skora eindregið á stjórnendur FSA að draga ákvörðun sína til baka um að loka Seli og flytja starfsemi þess í Kristnes og leita annarra leiða til hagræðingar í samstarfi og sam- ráði við starfsfólk heilbrigðisþjón- ustunnar, samtök launþega, fjölda- hreyfingar sjúklinga, öryrkja, eldri borgara og annarra aðila sem hags- muna hafa að gæta varðandi gæði og skilvirkni heilbrigðiskerfisins.? skapti@mbl.is Starfsfólk mótmælir lokun Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Síðustu jólin Búið er að setja upp jólaskraut við Sel - líklega í síðasta skipti. L52159 Segja breytingarnar kosta fjöldauppsagnir L52159 ?Veruleg skerðing á þjónustu? L52159 Skora á FSA að spara á annan hátt ÍSLENSKIR neytendur hafa ekki verið svartsýnni samkvæmt vænt- ingavísitölu Gallup frá því að mæl- ingar vístölunnar hófust árið 2001. Vísitalan mælist nú 23,2 stig sem er langlægsta gildi vísitölunnar frá upphafi. Til samanburðar var vísital- an 59,2 stig í síðasta mánuði og 116 stig á sama tíma fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis. Hæst fór væntingavísitalan í maí 2007 þegar hún var 154,9 stig. Þegar væntingavísitalan mælist undir 100 stigum eru fleiri svarendur neikvæð- ir en jákvæðir á stöðu og horfur í efnahagslífinu. Vísitalan fór undir 100 stig í mars á þessu ári og hefur haldið sig undir 100 stigum síðan þá. Vístalan mælir mat neytenda á núverandi aðstæðum í efnahags- og atvinnumálum og væntingum til ástandsins að sex mánuðum liðnum. Þá eru allar undirvísitölur einnig í langlægstu gildum sem sést hafa. Mat á núverandi ástandi mælist nú 5,2 stig en mældist í september, fyr- ir hrun bankanna, 72 stig. Þá eru neytendur einnig afar svartsýnir á framtíðina og meirihluti aðspurðra telur að ástandið í efnahags- og at- vinnumálum verði ennþá verra að sex mánuðum liðnum. Íslendingar aldrei verið svartsýnni NÝR DAGUR ? NÝ HUGSUN Ráðstefna um tækifæri framtíðarinnar Dagskrá Fundarsetning Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Ávarp Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra Framsöguerindi A New Future for Iceland: Re-inventing the country?s economy! ? Adjiedj Bakas Fyrirungtfólkogframtíðina? Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Ítúnfætinumheima? Sóley Elíasdóttir frumkvöðull HeartWork?Mobilizingeveryone?senergytowin? Claus Möller Framtíðarlandið Ísland ? Þór Sigfússon, formaður SA Aðgangur ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og hina erlendu fyrirlesara er að finna á www.utflutningsrad.is. Adjiedj Bakas Claus Möller Mánudaginn 1. desember Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30?11.00 Adjiedj Bakas, framtíðarrýnir og forstjóri Trendwatcher, og Claus Möller, stjórnendaráðgjafi og stofnandi Time Manager International, munu horfa til framtíðar á tækifæri þjóðar á tímamótum á ráðstefnu Útflutningsráðs Íslands fullveldisdaginn 1. desember. Í erindum sínum munu þessir þekktu fyrirlesarar velta upp hinum ýmsu möguleikum í atvinnulífinu og beina sjónum að þeim krafti sem býr í íslensku þjóðinni. Borgartún35 105Reykjavík sími5114000 www.utflutningsrad.is