Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						14

Fréttir

INNLENT

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur

gag@mbl.is

SKILANEFNDIR Glitnis, Landsbanka og Kaup-

þings reyna nú að hámarka virði bankanna og

setja sjálfar verklagsreglur um hvernig þær ætla

að ná því markmiði. Þær fengu skipunarbréf um

að passa virði eignanna frá Fjármálaeftirlitinu.

Það er gagnrýnt.

Formaður skilanefndar Glitnis, Árni Tómasson,

segir markmiðið meðal annars að selja ekki er-

lendar eignir bankanna á brunaútsölu og fékk

nefndin tilmæli frá lánardrottnum í þessa veru.

Eftirlitsteymi innan bankans gæti að því að skila-

nefndin stígi ekki feilspor og aðstoðarmaður skip-

aður af dómstólum kvitti undir gjörninga nefnd-

arinnar: ?Frá Fjármálaeftirlitinu var almennt

orðað að við skyldum gæta hags búsins og við út-

færðum það svo nánar.? 

Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar

Landsbankans, segir kröfuhafa bankans fylgjast

vökulum augum með því að nefndinni takist að há-

marka virði eignanna og styðji að þær séu ekki

seldar á brunaútsölu ?Öll áherslan hefur verið á

það að halda eignunum innan bankans. Það getur

því orðið nokkurra ára ferli að innleysa virði eign-

anna sem eru í bankanum.? Það sé alþekkt við

gjaldþrot banka. 

Engar reglur frá ríkinu

Ríkisstjórnin setti þessum skilanefndum bank-

anna, sem sjá um erlendar eignir þeirra, ekki

verklagsreglur um hvernig þær ættu að hámarka

verð erlendra hluta bankanna úr gjaldþrotabúi

þeirra. 

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Sam-

fylkingarinnar og formaður viðskiptanefndar Al-

þingis, segir að skoða þurfi alvarlega að settar

verði verklagsreglur. ?Mér finnst eðlilegt að

menn hugi að slíkum verklagsreglum til að

tryggja gegnsæi. Það eru ýmsar sögusagnir í

gangi um hvernig skilanefndirnar starfa og ég

held að gegnsætt ferli muni eyða tortryggni og

auka trú og traust manna á þeirri vinnu sem á sér

stað innan bankanna í dag.? Hann segir að við-

skiptanefndin muni skoða með Fjármálaeftirlitinu

hverjir séu annmarkarnir á því að setja verklags-

reglur. ?Séu þeir ekki fyrir hendi tel ég að skoða

eigi alvarlega að slíkar reglur séu settar.?

Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Sam-

taka fjárfesta, gagnrýnir einnig regluleysið. ?Auð-

vitað þurfa að vera verklagsreglur. Það eru þegn-

ar í þessu landi sem bíða skaðann og

skilanefndirnar hafa engar heimildir til þess að

gera hvað sem er.? Skilanefndirnar verði að gæta

jafnræðis og gegnsæis. Skipun Fjármálaeftirlits-

ins að skilanefndirnar passi virði eignanna séu

teygjanlegar reglur og í þeim felist ekki mikið

gegnsæi.

Vilhjálmur svarar að það komi sér ekki á óvart

að engar skýrar verklagsreglur liggi fyrir. ?Það

hefur ekkert verið gert í sjö til átta vikur, frá því

að hlutirnir byrjuðu að rúlla. Þetta er grundvall-

aratriði. Ef skilanefndirnar ætla ekki að koma sér

í tukthúsið þurfa þær sjálfar að setja sér verk-

lagsreglur sem standast skoðun.? 

Eftirlit lánardrottnanna mikið

Lárus segir það ekki koma sér á óvart að engar

skýrar verklagsreglur hafi verið settar. ?Eins

skrítið og það hljómar erum við í raun að vinna

fyrir kröfuhafana. Við verðum að ná sem mestu

virði til hagsbóta fyrir þá sem eiga kröfu á bank-

ann.? Skilanefndin hangi því á eignum bankans

enda ástandið of slæmt til að selja þær núna.

Hann segist ekki hræðast að störf skilanefnd-

arinnar muni sæta gagnrýni. ?Auðvitað er alltaf

hætta á gagnrýni en við getum þá sýnt fram á að

við vinnum á jafnræðisgrundvelli.?

Báðar skilanefndirnar hafa fundað með kröfu-

höfum. ?Þeir lögðu gríðarlega áherslu á að við

flýttum okkur ekki við að selja eignir. Það hræð-

ast menn mest,? segir Lárus og bendir á að þeir

muni á endanum gagnrýna skilanefndirnar mest.

?Þeir eiga mest undir að sem mest komi út úr

eignunum. Það eru því engin önnur sjónarmið á

störf okkar en þau að við náum sem mestu út úr

eignunum og við erum ekki að flýta okkur.?

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í

Steinar Þór Guðgeirsson, formann skilanefndar

Kaupþings.

Uppgjörið tekur nokkur ár

Morgunblaðið/ Golli/Kristinn/G. Rúnar

Bankastjórar á blómatíð Skilanefndir bankanna gera nú upp tíð Lárusar Welding, Glitni, Sigurjóns

Árnasonar, Landsbankanum og Hreiðars Más Sigurðssonar, Kaupþingi. Það gæti tekið mörg ár.

Tuttugu til þrjátíu aðilar allsstaðar að úr heim-

inum hafa haft samband við skilanefnd Glitnis

og sótt í að kaupa eignir þrotabúsins eða þeirra

fyrirtækja sem við hann skipta og eru á barmi

gjaldþrots. ?Þeir eru allir til í að hjálpa okkur við

að selja eignir. En hjálpin er í 99% tilvika í þá

veru að menn reyna að kaupa eignir á lágu verði.

Við höfum vísað þeim frá,? segir Árni Tómasson

formaður skilanefndar bankans. Spurður hvort

engin fyrirtæki hafi verið seld með aðstoð bank-

ans svarar Árni: ?Nei, ekkert sem neinu máli

skipti.? Þá séu langflestar eignir bankans útlán

sem skuldarar haldi áfram að greiða til baka.

?Þau borgast inn í fyllingu tímans með þeim

vöxtum sem umsamdir eru.? Árni segir að þegar

sé búið að selja þær eignir þar sem skilanefndin

hræddist að innlánin féllu á landsmenn. ?Við

náðum að loka þeim öllum þannig að það kom

ekki til þess. Hins vegar hefðum við gjarnan vilj-

að fá hærra verð en við áttum ekki kost á því.?

Sótt að skilanefndunum til að næla sér í ódýrar eignir

TILKYNNT var um eld í þvottahúsi

fjölbýlishússins Möðrufells 5 í

Reykjavík kl. 22.37 í gærkvöldi.

Þegar lögregla og slökkvilið

komu á staðinn fannst þar enginn

eldur og lítil reykjarlykt. Að sögn

Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins

hafði verið brotin rúða á þvottahús-

inu og talið að einhvers konar

sprenging hefði orðið. Einnig hafði

verið hleypt úr duftslökkvitæki í

þvottahúsinu en við það getur

myndast líkt og reykur. Loftað var

út úr þvottahúsinu. Engin slys urðu

á fólki. Lögreglan kannar málið.

Hleypt úr slökkvitæki

Morgunblaðið/Golli

Reykur Enginn eldur fannst í Möðrufelli en þar var tilkynnt um eldsvoða. Þar hafði verið hleypt úr slökkvitæki.

?JÁ, peningarnir

skiluðu sér eftir

þrjár vikur,?

segir Erla Ragn-

arsdóttir. Þau

Magnús Teitsson

fá laun frá Ís-

landi en eru í

námi á Sevilla á

Spáni. Evrur

þeirra gufuðu

upp innan kerfisins þegar bank-

arnir hrundu. ?Nú gerum við ráð

fyrir að millifærslur skili sér á hálf-

um mánuði. Ég byrjaði því í upphafi

mánaðarins að leggja línunar fyrir

þann næsta svo við ættum örugg-

lega fyrir leigu, hita og rafmagni.

Það er engin miskunn ef maður á

ekki pening.?

Hjördís Jónsdóttir, fram-

kvæmdastjóri Sambands íslenskra

námsmanna erlendis, SÍNE, segir

að ástandið hafi skánað en það sem

áður tók tvo daga taki nú viku til

tíu daga. ?Námsmenn fóru á for-

gangslista hjá Seðlabankanum.

Mikið var kvartað en nær enginn

talar við okkur lengur.? 

gag@mbl.is

Námsmenn 

fá peningana 

Hjördís Jónsdóttir 

STUTT

STÍGAMÓT hafa sent út tilkynn-

ingu þar sem þau óska eftir að fá

gefins ný og varlega notuð veski,

snyrtiveski, samkvæmisveski og

töskur af öllum stærðum og gerð-

um.

Veskin verða seld hjá Stígamót-

um 13. desember til þess að styrkja

reksturinn. Heldri veski eru líka

velkomin en þau verða boðin á upp-

boði. Tekið verður á móti töskum

og veskjum daglega í hádeginu á

Stígamótum til heimilis á Hverfis-

götu 115, við hliðina á Lögreglu-

stöðinni.

Veski öðlist

nýtt líf

STOFNANIR ríkisins eru byrjaðar

að setja reglur til að spara útgjöld

vegna efnahagskreppunnar.

Yfirstjórn Vegagerðarinnar hef-

ur ákveðið að aðhaldi verði beitt til

að draga úr útgjöldum. Þannig á að

takmarka akstur, dagpeninga,

kaup á sérfræðiþjónustu og eigna-

kaup eins og kostur er. Aðeins er

gert ráð fyrir einum svæðisfundi á

næsta ári en öðrum fundum verður

frestað.

Þá verður dregið úr ferðum á

fundi og ráðstefnur erlendis eins og

kostur er og færri fulltrúar frá

Vegagerðinni munu sækja fundi og

ráðstefnur en alla jafna.

sisi@mbl.is

Sparnaður hjá

Vegagerðinni

Hringborðsumræður með þátttöku ungmenna-

ráða, eldri borgara, foreldra, Alþjóðahúss, ÍTR,

Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, íþróttafélaga,

kirkjunnar, þjónustumiðstöðva, skóla, SAMFOK,

íbúasamtaka og annarra félagasamtaka í hverfum

borgarinnar.

Hvað geta hverfin lært hvert af öðru?

Hver er staðan hjá fólkinu í borginni nú þegar

erfiður tími fer í hönd?

Miðvikudagskvöldið 26. nóvember

í Ölduselsskóla klukkan 20.30-22.

Umræðustýrur eru Björk Vilhelmsdóttir

og Oddný Sturludóttir borgarfulltrúar.

Staðan hjá fólkinu í borginni

Allir velkomnir

Skilanefndirnar setja sér

verklagsreglur um

hvernig hámarka megi

virði bankanna

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52