Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						20

Viðskipti | Atvinnulíf

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

Í HNOTSKURN

»

Lán til tengdra aðila telj-

ast lán til stjórnarmanna,

stjórnenda, fjölskyldna

þeirra, félaga í þeirra eigu

og fyrirtækja sem þeir tengj-

ast

»

Samkvæmt upplýsingum

frá Kaupþingi skulduðu

starfsmenn alls 53 milljarða

króna þegar bankinn féll

vegna lána sem þeir fengu til

að kaupa hlutabréf í honum.

Eftir Þórð Snæ Júlíusson

thordur@mbl.is

LÁN til tengdra aðila í Landsbanka,

Kaupþingi og Glitni jukust um 169

milljarða króna á tveimur og hálfu

ári. Samtals námu slíkar lánveiting-

ar tæpum 115 milljörðum króna í

árslok 2005 en voru um 284 millljarð-

ar króna um mitt ár 2008. 

Lán Kaupþings til tengdra aðila

jukust um rúma 100 milljarða króna

á þessum tíma. Bankinn lánaði einn-

ig mest allra til slíkra, eða 146 millj-

arða króna. Inni í þeirri tölu eru lán-

veitingar til Exista og Eglu, tveggja

stærstu hluthafanna í bankanum áð-

ur en hann féll. Samkvæmt árshluta-

reikningi Kaupþings fyrir fyrstu sex

mánuði ársins í ár námu lán til

stjórnarmanna, stjórnenda og fjöl-

skyldna þeirra um 36,8 milljörðum.

Ekki veitt lán til bréfakaupa

Lánveitingar Landsbanka til

tengdra aðila fóru úr tæpum 32 millj-

örðum króna í árslok 2005 í rúma 64

milljarða króna í júnílok. Þar var

starfsmönnum þó ekki veitt lán fyrir

hlutabréfakaupum sem hluti af

starfskjörum líkt og tíðkaðist bæði

hjá Kaupþingi og Glitni. Á árinu

2007 jukust þau um tæp 55 prósent í

samtals um 63 milljarða króna. Í árs-

reikningi bankans er þessi mikla

hækkun meðal annars skýrð með því

að rúmir 37 milljarðar króna hefðu á

því ári verið lánaðir til tengdra aðila

vegna kaupanna á Stork Food Sys-

tems í Hollandi. 

Tengdar lánveitingar Glitnis

hækkuðu um 35 milljarða króna á

þessu tveimur og hálfa ári og stóðu

samtals í 74 milljörðum króna í júní-

lok 2008. Þau jukust um 28 prósent á

fyrstu mánuðum ársins 2008 úr tæp-

um 58 milljörðum króna. Aukning

skýrist þó fyrst og fremst af því að

Þorsteinn Már Baldvinsson settist í

stjórn bankans og lán fyrirtækja

honum tengd töldust þar með lán-

veitingar til tengdra aðila. Þorsteinn

á meðal annars í Samherja.

Tengd lán jukust

um 169 milljarða

Lán bankanna til tengdra aðila voru 284 milljarðar króna

   MT146MT48MT53 MT146MT48MT54 MT146MT48MT55 MT146MT48MT56 MT146MT48MT53 MT146MT48MT54 MT146MT48MT55 MT146MT48MT56 MT146MT48MT53 MT146MT48MT54 MT146MT48MT55              MT76MT97MT110MT100MT115MT98MT97MT110MT107MT105MT32MT205MT115MT108MT46   MT53MT48MT48MT48                                                                                                                                                                                                                           ÞRÁTT fyrir að

lánshæfis-

einkunn íslenska

ríkisins hafi

lækkað umtals-

vert hjá tveimur

af þremur

stærstu alþjóð-

legu matsfyrir-

tækjum heims

eru íslensk ríkisskuldabréf enn

tæk í endurhverfum viðskiptum

hjá evrópska seðlabankanum.

Einkunn fyrir langtímaskuld-

bindingar í erlendri mynt er BBB-

hjá Standard & Poors og Fitch, en

A1 hjá Moody?s. Um miðjan októ-

ber breytti evrópski seðlabankinn

reglum sínum um lágmarks-

einkunn skuldabréfaútgefanda í

endurhverfum viðskiptum. Áður

þurfti útgefandi að hafa A ein-

kunn hjá a.m.k. einu af þremur

matsfyrirtækjanna, en nú nægir

BBB- einkunn.

Eftir fall íslensku bankanna

munu þó fáir stunda endurhverf

viðskipti hjá evrópska seðlabank-

anum með íslensk ríkisskuldabréf.

Þá er óvíst að lækkun lánshæf-

iseinkunnarinnar muni hafa telj-

andi áhrif á fjármögnunarmögu-

leika íslenska ríkisins.

Fjármögnun á erlendum mörk-

uðum hefur verið afar erfið, enda

þurfti ríkið að leita aðstoðar Al-

þjóðagjaldeyrissjóðsins um neyð-

arlán þegar illa gekk að fá lán

með öðrum leiðum. Lækkun ein-

kunnarinnar breytir væntanlega

litlu þar um.

bjarni@mbl.is

Bréfin enn

tæk í við-

skiptum

Eftir Þórð Snæ Júlíusson

thordur@mbl.is

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur

hafnaði í gær gæsluvarðhaldskröfu

yfir forstöðumanni verðbréfamiðlun-

ar hjá Virðingu hf. þar sem ekki væri

kominn fram ?slíkur grunur um

refsivert athæfi kærða að heimilt sé

að lögum að gera honum að sæta

gæsluvarðhaldi.? 

Um 250 milljónir millifærðar

Maðurinn var handtekinn við

komuna til landsins frá Dúbaí á

mánudag. Á föstudag gerði efna-

hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra

húsleit hjá Virðingu vegna málsins

og handtók í kjölfarið tvo meinta

samverkamenn forstöðumannsins,

en hvorugur þeirra vinnur hjá Virð-

ingu. Annar þeirra var úrskurðaður í

gæsluvarðhald á mánudag en sleppt

í gær. Rannsókn málsins beinist ekki

að Virðingu heldur meintum brotum

forstöðumannsins. 

Forsaga málsins er sú að lögreglu

barst tilkynning frá ótilgreindum

banka í júní síðastliðnum um háar

millifærslur inn á bankareikning

annars hinna meintu samverka-

manna. Á grundvelli þeirra gagna

taldi efnahagsbrotadeildin sig hafa

rökstuddan grun um að peninga-

þvætti og auðgunarbrot hefðu átt sér

stað. Í úrskurðinum frá því í gær

kemur fram að lögreglan telji upp-

lýst að frá 5. október 2007 til 12.

september 2008 hafi tæpar 250 millj-

ónir króna verið greiddar frá Virð-

ingu inn á bankareikning hins

meinta samverkamanns. Stórum

hluta þeirrar upphæðar hafi hann

síðan ráðstafað inn á bankareikning

forstöðumannsins, bróður hans og

einkahlutafélags sem þeir þrír áttu

saman. 

Ekki óeðlilegar millifærslur

Fyrir dómi vísaði forstöðumaður-

inn til þess að hann annaðist að

miklu leyti verðbréfa- og gjaldeyr-

isviðskipti fyrir hinn meinta sam-

verkamann og því ættu allar þær

millifærslur sem lögreglan tilgreinir

sér eðlilegar skýringar. Þar sem

verulegur hagnaður hefði verið á við-

skiptunum væri ekkert óeðlilegt við

að háar fjárhæðir væru millifærðar

inn á reikninga þeirra. Hann neitaði

því að hafa gerst sekur um peninga-

þvætti eða önnur auðgunarbrot og

fullyrti að engin markaðsmisnotkun,

í krafti starfsstöðu hans, hefði átt sér

stað. Dómari taldi lýsingar á meint-

um brotum vera mjög óljósar og að

skýringar hins grunaða hefðu ekki

verið augljóslega ótrúverðugar né

stangast á við rannsóknargögn máls-

ins. Því var kröfu um gæsluvarðhald

hafnað. 

Páll Arnór Pálsson, lögmaður hins

grunaða, segir að allar millifærslur

hafi verið uppi á borðinu og ekkert

hafi verið gert til að hylma yfir þær.

Lögreglan hafi séð þessar færslur og

gefið sér að þar hefði verið framið

lögbrot. Páll segir einnig liggja fyrir

að hinn grunaði hafi ekki nýtt sér

innherjaupplýsingar í gjaldeyrisvið-

skiptum. Samkvæmt upplýsingum

frá efnahagsbrotadeild verður rann-

sókn málsins haldið áfram enda sé

rökstuddur grunur til staðar um

óeðlileg viðskipti. Í rannsókn felist

að leita skýringa á þeim grunsemd-

um og staðreyna hvort þær reynist á

rökum reistar. 

Gæsluvarðhaldskröfunni hafnað

Grunsemdir vöknuðu hjá lögreglu vegna 250 milljóna króna millifærslna

FJÓRIR fyrrverandi starfsmenn

Glitnis í New York, Jonathan Logan,

Ignacio Kleiman, Magnús Bjarnason

og Timothy Spanos hafa keypt skrif-

stofu Glitnis þar í borg og yfirtekið

rekstur hennar og allar skuldbind-

ingar, þ. á m. launaskuldbindingar. 

Skrifstofan er söluskrifstofa í

leiguhúsnæði með óverulegum eign-

um, að því er fram kemur í tilkynn-

ingu frá skilanefnd Glitnis. Kaupverð

er ekki gefið upp en í tilkynningu frá

skilanefndinni segir að söluverð hafi

ekki verið hátt. Lánasafn var ekki

selt með starfseminni og bankinn

losnaði við allar skuldbindingar sem

skrifstofunni fylgdu. Aðrar eignir, s.s

málverk voru undanskilin í sölunni í

samræmi við tilmæli menntamála-

ráðuneytisins og hafa verið send til

Íslands. 

Þegar skilanefnd Glitnis tók yfir

bankann var tilkynnt að allri erlendri

starfsemi yrði hætt. Starfsemin í

Bandaríkjunum fór fram í hlutafélagi

sem bar nafnið Glitnir Capital Cor-

poration og var með tvenns konar

starfsemi. Í fyrsta lagi fjárfestingar

sem voru bókaðar hjá móðurfélaginu

á Íslandi og eru í eigu þess félags, í

öðru lagi ráðgjöf til viðskiptavina. 

Í svari við fyrirspurn blaðamanns

segir Magnús Bjarnason að útlán og

fjárfestingar Glitnis í Bandaríkjun-

um hafi gengið vel og skilað góðum

hagnaði, en allar slíkar eignir séu enn

í eigu í gamla Glitnis. Magnús segir

jafnframt að það hafi verið hagstætt

fyrir gamla Glitni að starfsmennirnir

tækju starfsemina yfir og erfitt að sjá

hvernig það geti haft neitt nema já-

kvæð áhrif. thorbjorn@mbl.is

Keyptu Glitni í New York

L52159 Fyrrverandi starfsmenn keyptu L52159 Málverk undanskilin

? Bankastjóri Englandsbanka, Mer-

vyn King, hefur varað við því að Bret-

land muni sigla inn í alvarlega

kreppu hefji viðskiptabankar ekki

eðlilega útlánastarfsemi á ný. King

sagði á fundi með þingmönnum í

gær að þetta atriði skipti mestu máli

í augnablikinu. Hann sagði jafnframt

að breskir bankar gætu þurft á frek-

ari opinberri fjárhagsaðstoð að

halda til þess að virkja útlána-

starfsemi. Hann útilokaði ekki að

þjóðnýta þyrfti suma banka að fullu,

en ríkið hefur nú þegar eignast hluti í

flestum breskum bönkum. Þá varaði

hann við því að verðbólga gæti farið

undir 2% á næstunni vegna verð-

lækkana á hrávörum og samdráttar í

einkaneyslu. thorbjorn@mbl.is

Mervyn King varar

við alvarlegri kreppu

? Greining Glitnis spáir því að vísi-

tala neysluverðs hækki um 2,1% í

mánuðinum í endurskoðaðri verð-

bólguspá fyrir nóvember. Upphafleg

spá hljóðaði upp á 2,3% hækkun.

Verðbólga undanfarna 12 mánuði

mælist samkvæmt þessu 17,5%.

Telur greining að hækkun nú verði

fyrst og fremst drifin af verulegri

verðhækkun á mat og drykk, fatnaði

og húsbúnaði, en allir þessir liðir eru

mjög háðir gengi krónunnar. Á móti

kemur að eldsneytisverð lækkaði

meira en greining gerði ráð fyrir. 

thorbjorn@mbl.is

17,5% verðbólga und-

anfarna 12 mánuði

? Seðlabanki

Bandaríkjanna

ætla að verja 800

milljörðum doll-

ara til þess að

reyna að koma

jafnvægi á efna-

hagslífið í land-

inu. Þessi upp-

hæð kemur til

viðbótar þeim

700 milljörðum dollara sem banda-

rísk stjórnvöld hafa þegar ráðstafað

með aðgerðaáætlun sem samþykkt

var fyrr í haust. Verður um 600 millj-

örðum dollara varið í að kaupa upp

sérvarin skuldabréf, sem eru með

veði í fasteignalánum, en 200 millj-

örðum til þess að hleypa lífi í neyt-

endalánamarkaðinn. 

thorbjorn@mbl.is

800 milljarðar dollara

til viðbótar í björgun

Ben Bernanke

? Mikil velta var með skuldabréf í

Kauphöll Íslands eða fyrir fjóra millj-

arða króna í dag. Veltan með hluta-

bréf var hins vegar einungis tæpar

63 milljónir króna. 

Úrvalsvísitalan hækkaði um

0,04% og er 637,33 stig. Hlutabréf

Bakkavarar hækkuðu um 10,8%,

Century Aluminum 9,84% og Atlantic

Petroleum 2,82%. Eimskip lækkaði

um 1,52%, Össur 1,04% og Marel

um 0,38%. thorbjorn@mbl.is

Lítil hlutabréfavelta

ÞETTA HELST ?

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52