Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Erlent

21

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

FRÉTTASKÝRING

Eftir Boga Þór Arason

bogi@mbl.is

BARACK Obama, verðandi for-

seti Bandaríkjanna, hefur valið virta

hagfræðinga í þau embætti sem

mest mæðir á þegar reynt verður að

blása lífi í efnahag landsins á næstu

misserum. Hagfræðingarnir hafa

hingað til beitt sér fyrir varfærnis-

legri stefnu í ríkisfjármálum, aukn-

um sparnaði og minni fjárlagahalla.

Þeir hafa aðhyllst þá skoðun að tak-

mörkuð ríkisútgjöld geti ásamt

frjálsum viðskiptum skapað varan-

legan hagvöxt.

Verkefnið sem Obama hefur falið

helstu efnahagsráðgjöfum sínum er

að ýmsu leyti í andstöðu við það sem

þeir og fleiri hagspekingar hafa boð-

að til þessa. Hann hefur sagt þeim

að setja fjármálakerfinu nýjar regl-

ur og semja áætlun um ráðstafanir

til að blása lífi í efnahaginn, aðgerðir

sem gert er ráð fyrir því að kosti rík-

issjóð allt að 700 milljarða dollara á

næstu tveimur árum.

Innviðir efldir

Fénu verður meðal annars varið

til að byggja brýr, leggja vegi, bæta

almannasamgöngur og fjárfesta í

nýjum og vistvænum orkugjöfum,

svo eitthvað sé nefnt. Obama segir

þetta nauðsynlegt til að skapa eða

vernda um 2,5 milljónir starfa á

næstu tveimur árum. 

Svo umfangsmikil ríkisafskipti

með stórauknum útgjöldum hafa

verið eitur í beinum margra hag-

spekinga í Bandaríkjunum, einkum

á tímum gífurlegs fjárlagahalla, og

álitin jaðra við sósíalisma. 

Nú er hins vegar öldin önnur og

efnahagsástandið orðið svo slæmt að

margir hagfræðingar og þingmenn

fagna boðuðum aðgerðum Obama og

telja að ráðamennirnir í Washington

séu þeir einu sem geti komið efna-

hagnum á skrið að nýju. Þeir eru

sammála um að gera þurfi ráðstaf-

anir til að hjálpa milljónum húseig-

enda sem eiga í greiðsluerfiðleikum.

Ennfremur þurfi að halda áfram að

bjarga fjármálafyrirtækjum, þótt

sum þeirra eigi það ekki skilið, til að

afstýra hrinu gjaldþrota fyrirtækja

og einstaklinga.

Helstu efnahagsráðgjafar

Obama snúa við blaðinu

Lögðu áður áherslu á minni fjárlaga-

halla en boða nú stóraukin ríkisútgjöld

                                                                            Í HNOTSKURN

»

Fjármálaráðherraefni

Obama, Timothy Geithner,

var aðstoðarráðherra í fjár-

málaráðuneytinu í forsetatíð

Clintons. Lawrence Summers,

sem á að fara fyrir efnahags-

ráðinu, var fjármálaráðherra í

stjórn Bill Clintons.

»

Þeir lögðu áherslu á frjáls

viðskipti og telja að efna-

hagsuppganginn í valdatíð

Clintons megi að miklu leyti

rekja til minnkandi fjár-

lagahalla.

UM 25.000 fram-

haldsskólanem-

endur í Dan-

mörku mega eiga

von á, að kenn-

arar þeirra biðji

þá að afhenda

farsímann svo

hægt sé að kanna

innihaldið, til

dæmis sms-

skeyti og myndir.

Þetta er gert vakni grunur um, að

nemendur hafi brotið af sér með ein-

hverjum hætti. Í Oure Efterskole

hefur nokkrum nemendum verið vís-

að burt vegna þess, sem í ljós kom

við athugun á farsímanum þeirra.

Ole Hjorth, forstöðumaður skól-

ans, segir, að gripið sé til þessa

u.þ.b. fimm sinnum á ári en þó því

aðeins, að talin sé sérstök ástæða til.

Ekki eru allir hrifnir af þessu og

segja farsímann í raun dagbók, sem

ekki eigi að vera öðrum opin. 

svs@mbl.is

Farsímar

nemenda

rannsakaðir

Síminn Dagbók

unga fólksins. 

Eins og að hafa að-

gang að dagbókinni

EFTIR árangurslausar tilraunir í

fimm daga hefur bandarískum

geimförum loks tekist að nota tæki

sem breytir þvagi í drykkjarvatn.

Tækið er hluti af vatnshreinsibún-

aði sem geimferjan Endeavour

flutti í Alþjóðlegu geimstöðina. Sex

geimfarar eiga að dvelja í geim-

stöðinni á næsta ári, í stað þriggja

nú, og tækið verður mikilvægur

þáttur í því að sjá þeim fyrir vatni.

bogi@mbl.is

Tókst að breyta

þvagi í vatn

ÞESSI indversku börn skemmtu sér vel á meðan full-

orðna fólkið var við vinnu sína á kartöfluakrinum en

þau eiga þau heima í þorpinu Baraikapurva í Uttar

Pradesh. Ekki fylgdi fréttinni hvort jarðeplin væru

gullauga eða Rauður Eyvindur en líklega er sett niður

og tekið upp oftar en á Ísa köldu landi.

AP

Líf og fjör í kartöflugarðinum

CONNIE Hedegaard, loftslags- og orkumálaráðherra í

dönsku stjórninni, hefur varað við hugmyndum um fleiri

risastórar verslanamiðstöðvar í Danmörku. Segir hún,

að þær eigi sinn þátt í aukinni mengun vegna meiri akst-

urs og séu auk þess beint tilræði við mannlífið í borg-

unum, einkum miðborgunum.

Til að standa vörð um lífið í borgunum ákvað danska

þingið fyrir aðeins ári að takmarka fjölda nýrra versl-

anamiðstöðva en þær eru yfirleitt nokkuð fyrir utan

borgirnar. Nú virðist stjórnin hins vegar vera að semja

um það við Danska þjóðarflokkinn að auðvelda byggingu

fleiri verslanamiðstöðva.

Hedegaard, sem er í Íhaldsflokknum, minnir á, að

samþykkt þingsins í fyrra hafi verið gerð til að stuðla að

fjölbreyttara mannlífi í borgunum. Segir hún, að þess

séu mörg dæmi, einkum í Bandaríkjunum en til dæmis

líka í Svíþjóð, að bæir séu orðnir líflausir með öllu vegna

þess, að öll verslun fari fram í risastórum verslana-

kjörnum utan bæjar- eða borgarmarkanna.

Henrik Harder, lektor í skipulags- og samgöngu-

málum við Álaborgarháskóla, segir, að kannanir sýni

einnig, að fólk noti ekki almenningsfarartæki eins og

strætisvagna til að komast í verslanamiðstöðvarnar og

frá þeim, heldur næstum eingöngu einkabílinn. Það þýði

ekkert annað en meiri akstur og meiri mengun. 

svs@mbl.is

Á móti risaverslunum

ÞRIÐJUNGUR Gulár í Kína er svo

mengaður, að vatnið er ekki einu

sinni hæft til iðnaðarnota. Fljótið er

hins vegar aðaluppspretta neyslu-

vatns tugmilljóna manna. Nýjustu

rannsóknir sýna, að 34% vatnsins í

Gulá eru orðin svo eitruð, að það er

óhæft til drykkjar og allra annarra

nota, til dæmis í fiskeldi, í iðnaði eða

landbúnaði. Raunar voru aðeins 16%

af vatninu fullkomlega drykkjarhæf.

Mengunin hefur aukist í takt við

iðnaðaruppbygginguna í Kína og frá

iðnaði koma 70% af óþverranum. Þá

er eins komið fyrir mörgum þverám

Gulár enda segir Wen Bo, sem starf-

ar fyrir umhverf-

isverndarstofnun

í Kaliforníu, að

fljótið sé bara

eins og eitt alls-

herjarskolpræsi.

Margar af

menguðustu

borgum í heimi

eru í Kína og þar

er fjöldi fljóta og

vatna steindauð-

ur vegna mikillar mengunar. Virðast

tilraunir stjórnvalda til að draga úr

henni litlu hafa skilað hingað til.

svs@mbl.is

Mengun gæti valdið

vatnsskorti í Kína

Eins og gríð-

armikið skolpræsi.

NICOTINELL

Fæst nú hjá okkur!

®

Nicotinell

er samstarfsaðili

Krabbameinsfélagsins

Fæst á sölustöðum Shell á höfuðborgarsvæðinu

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52