Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						H

agyrðingakvöld var nýlega

haldið í Aratungu með úrvals-

hagyrðingum víðsvegar að af land-

inu undir stjórn Ólafs G. Einars-

sonar, fyrrverandi ráðherra og

forseta Alþingis. Jón Ingvar Jóns-

son orti þegar bifreiðin renndi í

hlað í Reykholti: 

Séra Hjálmar heims frá slarki

hingað ók í kulda og trekki,

vegum fylgdi að vissu marki

en vinstri beygjur tók hann ekki.

Ólafur Stefánsson tók á móti hag-

yrðingunum, þar sem Sigrún Har-

aldsdóttir var með í för: 

Öll þau komu í einum bíl, 

æstist vestan strengur, 

en Sigrún hefur sexapíl, 

sama á hverju gengur.

Séra Hjálmar Jónsson kynnti sig

um kvöldið með þessari vísu: 

Í minningunni grasi grónar

grundir brostu við mér ungum.

Í Dómkirkjunni Drottni þjónar

drengur austan úr Biskupstungum.

Og Hjálmar orti um ?ástandið?: 

Fjármál ræða út í eitt

einkum þeir sem missa

en við sem áttum aldrei neitt

erum bara hissa.

Jón Kristjánsson, fyrrverandi ráð-

herra, orti um bændurna í Biskups-

tungum, hvað þeir hefðu það gott

þegar verktakar væru komnir í hey-

skapinn, en tók það fram að þeir

tækju ekki verktaka í inniverkin:

Ölvaðir af sumri og sól

svífa karlar inní ból,

en hrútarnir þeir hrista tól,

helst þá fer að nálgast jól.

Þá mælti Sigrún Haraldsdóttir: 

Hér þarf að minna á það aftur og enn

svo enginn í heimsku vaði,

að við þessir fágætu framsóknarmenn 

erum frábær í alla staði.

VÍSNAHORN pebl@mbl.is

Af hrútum

og bændum

22

Daglegt líf

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

veginn skemmtilegt,? segir Halldór

hugsandi og lítur á hrúgu af teikn-

ingum sínum í hillu rétt við borðið. 

?Mér finnst það svolítið stress-

andi,? segir Halldór um það að hafa

tekið við af Sigmund á síðum Morg-

unblaðsins. ?Hann er auðvitað svo

mikill hluti af íslenskri menningu og

þjóðarvitund. Ég er fæddur 1965 og

Sigmund byrjaði að teikna 1964

þannig að ég hef algjörlega alist upp

við að sjá teikningu frá honum á

hverjum degi og myndirnar hans eru

á einhvern hátt samofnar manni,?

segir Halldór. ?Já, það er ábyrgðar-

hlutverk að koma í hans starf.? 

Þegar hann var 5?6 ára var Hall-

dór viss um að hann væri góður að

teikna og langaði þá þegar mest af

öllu að vera teiknari eins og Sigmund.

?Þá var ég farinn að teikna myndir af

kennurunum og svona, fékk athygli

út á það í bekknum að teikna skrípó-

myndir. Þær voru stundum hengdar

upp á vegg og krakkarnir hlógu að

þeim.? Þó að hugur Halldórs hafi þá

strax hneigst til teikninga hafði það

áhrif að lítil teiknihefð er á Íslandi.

?Það var því frekar óraunsætt að

ætla sér að verða teiknari. Öll skila-

boðin úr samfélaginu voru í þá átt.

Ég ákvað því að verða arkitekt eða

grafískur hönnuður, svo myndlistar-

maður og byrjaði að læra það.? Hann

útskrifaðist úr Myndlista- og

handíðaskólanum og segir: ?Svo end-

aði það bara með því að ég fór að gera

það sama og þegar ég var sjö ára.?

Og hlær. 

Aftur til barnæskunnar

Morgunblaðið/RAX

Á vinnustofunni Halldór sér skoplegu hliðarnar á þjóðmálunum og færir þær yfir á blað með nítjándu aldar teiknaraáhöldum.

L52159 Halldór Baldursson endurspeglar þjóðarsálina í skopmyndum sínum 

L52159 Fær sjaldan teiknistíflu en hugmyndirnar telur hann þó misgóðar

Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur

sia@mbl.is

Á

LÚTUR situr teiknarinn

yfir verki sínu á vinnustof-

unni. Eina lýsingin sem

hann nýtir sér er gamal-

dags lúxor-lampi. Fleira er gamal-

dags í vinnustofunni því þótt hann

hafi um tíma nýtt sér tölvuna við

teikningar sínar notar hann nú orðið

eingöngu fjaðurpenna og blekbyttan

stendur opin á borðinu. 

Halldór Baldursson teiknaði frá

upphafi útgáfu Blaðsins eina teikn-

ingu í það á dag. Þegar Blaðið fékk

nafnið 24 stundir hélt hann áfram á

síðum þess. Núna teiknar hann í

Morgunblaðið og hefur tekið við

skopkyndlinum af meistara Sigmund

sem hefur látið af störfum. 

?Ég fylgist mjög vel með,? svarar

Halldór spurningunni um hvaðan

hann fær allar sínar hugmyndir. ?Ég

brása á netinu og les allar þessar

nöldursíður [bloggið],? bætir hann

við, ?og svo vinn ég úr þessu.? Hann

neitar því hlæjandi að hann fylgist

með öllu því sem fram fer í þinginu.

?Ég hef engan tíma til að hlusta á all-

ar þessar ræður og það allt. Þess

vegna er gott að hafa blaða- og

fréttamenn,? segir hann og glottir. 

Halldór hefur nú teiknað í þó

nokkur ár og kannski viðbúið að ein-

hvern tímann myndist stífla þegar

draga á skopmynd dagsins upp.

Hann segir þó: ?? neeei, það er

sjaldan stífla, hugmyndirnar eru þá

frekar misgóðar. En það er ekkert

sérstakt vandamál, yfirleitt er ég

með svona tvær-þrjár hugmyndir í

kollinum.? Hugmyndirnar koma

gjarnan til hans á meðan hann er að

skissa og kannski má þá lýsa því á

þann hátt að þær renni úr fjaður-

penna hans á blaðið. ?Þetta er svolít-

ið eins og framlenging á heilanum og

oft verða hugmyndir til mjög mynd-

rænt. Brandarinn getur jafnvel orð-

ið til á eftir. Ég sé fyrir mér tákn-

ræna massíva myndlíkingu og þá er

ég viss um að brandarinn sé til stað-

ar, þó að hann komi seinna.? Stund-

um sprettur hugmyndin þó fram full-

sköpuð. 

Tvo-þrjá tíma tekur að teikna

hverja mynd. Þegar teikningin er

tilbúin skannar Halldór hana inn og

sendir hana rafrænt til Morgun-

blaðsins. ?Það er auðvitað hægt að

teikna í tölvu,? segir Halldór um aft-

urhvarfið til fjaðurpennans, ?ég

teiknaði einu sinni allt þannig. En

svo hef ég þróast frá henni, aftur í

vatnslitina og nítjándu aldar teikn-

araáhöld. Þau eru klassísk í svona

teikningu, ég held að flestir noti þau.

Það er alltaf best að teikna á pappír.

Líka það að eiga hlutinn er einhvern

Í dag verður opnuð gátt að teikn-

ingum Halldórs Baldurssonar í

gegnum mbl.is. Ingvar Hjálmars-

son, vefstjóri mbl.is, segir hana

fyrst og fremst hugsaða sem þjón-

ustu fyrir lesendur vefjarins. ?Hug-

myndin er sú að notendur mbl.is

geti farið inn á vefinn og skoðað

mynd dagsins, sem Halldór velur

sjálfur,? segir Ingvar. Stefnt er að

því að opna þetta með þrjátíu

myndum og smám saman verður aukið við. Hægt er að kaupa myndirnar

ýmist rafrænt eða í viðhafnarútgáfu. mbl.is er í samstarfi við Hans Pet-

ersen, sem sér um framköllun, og viðhafnarútgáfan er afhent innrömmuð. 

Allir bloggarar, skráðir á blog.is, geta tjáð sig um myndirnar. 

Hnappur verður á forsíðu mbl.is, vinstra megin, undir ?nýtt?. Slóðin er

mbl.is/halldor. 

Halldór á gagnvirku vefsvæði

TAFLA sem sendir frá sér rétt

magn lyfja þegar búið er að gleypa

hana hefur verið hönnuð af vís-

indamönnum segir breska dag-

blaðið Daily Telegraph. Taflan

inniheldur örgjörva, rafhlöðu,

þráðlaust radíó, dælu og lyfjabirgð-

ir, en hún dælir réttu magni lyfja í

fyrirfram ákveðinn líkamshluta. 

Pillan, sem kölluð er ?iPill? er

hönnuð af hollenska rafeindafyr-

irtækinu Philips og er hún með

skynjara sem mælir sýrustig til að

meta staðsetningu sína í meltinga-

færum. Talsmaður fyrirtækisins

segir að töfluna verði hægt að nota

til að meðhöndla meltingafæra-

sjúkdóma á borð við svæðisgarn-

arbólgu (Chron?s). Þar sem taflan

dælir lyfinu á nákvæmlega réttan

stað er hægt að hafa skammtana

smærri og dregur það úr hættunni

á aukaverkunum.

Búist er við að fyrirtækið kynni

töfluna á ársþingi bandarískra

lyfjavísindamanna sem haldið er í

Atlanta nú í nóvember.

Skammtur

mældur 

með pillu 

Tækni Tafla sem sjálf sér um að

mæla lyfjaskammtinn felur í sér

minni skammtastærðir.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52