Undrandi Mayer er ástfanginn. Nei takk Aniston hafnaði bónorði. Hafnaði bónorði LEIKKONAN Jennifer Aniston hefur hafnað bónorði söngvarans John Mayers. Aniston og Mayer tóku nýlega saman aftur eftir að hafa hætt saman fyrr á þessu ári eftir nokkra mánaða samband. Hún á að hafa hryggbrotið Mayer vegna þess að hún vill ekki eyðileggja það sem þau eiga saman nú. ?Jennifer sagði nei þegar John bað hennar. Hún sagði John að allt væri svo full- komið á milli þeirra núna að þau ættu ekki að eyðileggja það með því að taka fókusinn af samband- inu. Brúðkaup væri svo stressandi og Jennifer vill bara njóta sam- bandsins, að vera brjálæðislega ástfangin og fá fiðring ef annað þeirra sendir hinu símaskilaboð þegar þau eru ekki saman,? lét vinur parsins hafa eftir sér. Mayer á að hafa orðið svolítið undrandi á höfnun Aniston en er ákveðinn í að láta ekki ákvörð- unina hafa áhrif á rómantíkina, og er enn á því að það sem sé þeirra á milli sé hið eina sanna. ?John sagði Jennifer að hann væri viss um að hún væri rétta stúlkan fyrir hann. Hann er fús til að gera allt sem hún vill svo lengi sem þau eru sam- an.? Mayer var í skýjunum þegar An- iston tók aftur við honum í sein- asta mánuði og hann vill ekki að þau verði aðskilin aftur. ?Hann vill virkilega koma sér fyrir með henni, eignast börn, giftast og allt það sem því fylgir,? sagði vinurinn við Look tímaritið. / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI BODYOFLIES kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára HIGHSCHOOLMUSICAL3 kl. 8 LEYFÐ RESCUEDAWN kl. 10:20 B.i. 16 ára BODYOFLIES kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára HOWTOLOSEFRIENDS... kl. 8 B.i. 12 ára QUANTUMOFSOLACE kl. 10:20 Síðustu sýningar! B.i. 12 ára QUANTUMOFSOLACE kl. 8 Síðustu sýningar! B.i. 12 ára QUARANTINE kl. 10:20 Síðasta sýning! B.i. 16 ára PATHOLOGY kl. 8 Síðasta sýning! B.i. 16 ára RIGHTEOUSKILL kl. 10:20 Síðasta sýning! B.i. 16 ára - MMJ,KVIKMYNDIR.COM BYGGÐÁSANNSÖGULEGUMATBURÐUMUM ÓTRÚLEGAFREKSTRÍÐSFANGAÍVÍETNAMSTRÍÐINU STÓRLEIKARINN,CHRISTIANBALE ÚRTHEDARKKNIGHTSÝNIRSTJÖRNULEIK. OG AKUREYRI STEVEZAHNERMAGNAÐUR SÝND Í ÁLFABAKKA, OG AKUREYRI ANNEHATHAWAY ÚRGETSMARTOGDEVIL WEARSPRADAKEMURHÉRÍ MÖGNUÐUMSPENNUTRYLLI. MYNDSEMKEMUR STÖÐUGTÁÓVART FYRSTATEIKNIMYNDIN SEM ER FRAMLEIDD MEÐ ÞRÍVÍDD Í HUGA! ÓTRÚLEG UPPLIFUN, SJÓN ER SÖGU RÍKARI! ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í KEINGLUNNI TOPP GRÍNMYND SÝND Á SELFOSSI SÝND Á SELFOSSI SÝND Á SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI - D.Ö.J.,KVIKMYNDIR.COM -V.J.V.,-TOPP5.IS/FBL ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚVILT LIFA! SÝND Í ÁLFABAKKA VIP SALURINN ER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, Anne Hathaway Patrick Wilson ZACHEFFRONOGVANESSAHUDGENS GERAALLTVITLAUSTÍHIGHSCHOOLMUSICAL3! frumsýnd næstu helgi! - H.J.Morgunblaðið. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 SÁLIN hans Jóns míns fagnar um þessar mundir 20 ára starfsafmæli og hefur í tilefni þess ráðist í útgáfu á safndiskapakka sem gerir áratug- ina tvo upp. Í þessu myndarlega boxi er að finna þrjá hljómdiska sem inni- halda 45 vinsælustu lög Sálarinnar, DVD-disk með 25 myndböndum við smelli bandsins, tónleikaupptökur á tveim diskum ? annars vegar á CD og hins vegar á DVD og loks heim- ildarmynd um sveitina á DVD í leik- stjórn Jóns Egils Bergþórssonar. Það eru tónleikaupptökurnar og heimildarmyndin sem hér skulu tek- in til kostanna. Smellir á smelli ofan Það er vitaskuld kúnst að raða saman tónleikaupptökum svo úr verði spennandi lagalisti þegar lögin eru aðdáendum sveitarinnar löngu kunn og hefur öll borið ótal sinnum fyrir eyru landsmanna. Getur slík runa bætt einhverju við, þegar stór hluti þjóðarinnar á lögin þegar á plötum og geisladiskum? Hér, á 4. disk safnsins, hefur vel tekist til hvað þetta varðar, ekki síst af því nokkur laganna birtast hér í bún- ingi sem er nokkuð frá- brugðinn upprunalegri útgáfu þeirra. ?Á nýj- um stað? er hér með léttum reggae-dub, ?Krókurinn? birt- ist sem tæplega sex mínútna fönksk- rímsli með kóf- sveittum spunakafla og ?Ekki? lýkur að sama skapi á heil- löngum kraumandi spuna sem lengir þannig lagið í næstum sjö mínútur. Þá er fyrsti smellur Sálar- innar, hið tví- tuga en um leið síunga stuðlag ?Á tjá og tundri?, kominn með djassaðan swing-takt í upptöku af tónleikum sveitarinnar í Circus-byggingunni í Kaupmannahöfn í apríl 2007. Tónleikaupptökurnar á hljóm- disknum eru héðan og þaðan, bæði að því leytinu að lögin fimmtán eru tekin af sjö mis- munandi tón- leikum en einnig af því þau eru frá öllum tímabilum sveitarinnar. Lagavalið er í sjálfu sér ekki til að deila um en þess meira er um vert að leyfa fjöl- breytninni að njóta sín, ekki síst með fram- angreindum tónleikaútgáfum. Það er alltaf virðingarvert að taka sénsa, ekki síst þegar um er að ræða ráð- setta reynslubolta á borð við þá Sál- arverja. Fagmenn við öll tækifæri Þegar DVD-diskurinn, sem er númer 6 í safninu, er skoðaður sést enn betur að Sálin hefur hin seinni ár verið alls ófeimin við að prófa nýja hluti með tónlist sína þegar kemur að tónleikahaldi. Hér er að finna alls 25 lög og fyrirkomulag- ið er það sama og á hljómdisknum, lögin eru af ýmsum tónleikum og lögin tekin héðan og þaðan af ferli sveitarinnar. Þar á meðal eru lög af víðfrægum órafmögnuðum tónleikum sem Sálin hélt í Loftkastalanum í ágúst 1999 og einnig af tvennum sam- krullstónleikum sem báðir þóttu afbragðsvel heppnaðir, Sálin og Sinfó í nóv- ember 2002 ann- ars vegar og Sálin og Gospel í sept- ember hins vegar. Lagavalið er sem fyrr stór- smellasafn úr digrum sarpi Sálarinnar. Í það heila er þessi diskur fyrirtaks yfirlit af vönduðum poppsmíðum. Það ber líka fagmennsku Sálarinnar glöggt vitni að þeir félagar eru jafnsterkir í lifandi flutningi hvort heldur um er að ræða smærri hljómleika með lát- lausri umgjörð eða þá stórtónleika í Laugardalshöll með þúsundir æp- andi aðdáenda hoppandi og klapp- andi. Það er talvert áhrifaríkt að sjá kjaftfulla Höllina syngja fyrsta er- indið af ?Sódómu? af slíkum radd- styrk að það skilar sér vel á hljóð- rásina; Stebbi Hilm- ars og Gummi Jóns eru óumdeil- anlega fagmenn á sínu sviði, með salinn full- komlega í vasanum. Fínasta upp- rifjun fyrir þá sem voru þar og um leið ljómandi gluggi inn í stemn- inguna fyrir þá sem voru fjarri góðu gamni. Mynd um band Heimildarmyndin, sem er hálf þriðja stund að lengd, rekur sögu sveitarinnar. Það er skondið til þess að hugsa að í upphafi var tjaldað til einnar nætur svo að segja, en mjór er oft mikils vísir og kunnara en frá þurfi að segja hvernig sveitinni hef- ur farnast frá því upprunalegi kvin- tettinn glataði þremur af fimm með- limum og endurmannaði sig svo til enn frekari sigra, þvert á flestar væntingar. Sagan er sögð gegnum viðtöl við meðlimi og tengda ein- staklinga og dúkka margar skemmtilegar sögur upp, bæði af ævintýrum og óförum. Hér er margt áhugaverðra mola, þó harðir aðdá- endur þekki máske mestan partinn af því sem hér kemur fram. Líklega hefði líka mátt kaflaskipta efninu betur niður; sem einn rennandi flaumur reynir á athyglina þegar á líður. Ósjálfrátt læðist þó fljótlega að manni sú tilfinning að dýpra hefði mátt kafa, ekki síst í samband þeirra Stefáns Hilmarssonar og Guð- mundar Jónssonar. Hefur sam- starfið verið átakalaust gegnum tíð- ina eða hafa þessir karakterar flotið á fagmennskunni gegnum súrt í bland við sætt? Guðmundur talar á einum stað um að þeir hafi einhverju sinni grafið stríðsöxina, ?eins og við gerum nú reglulega?. Einmitt það, já?! Hér er greinilega aðeins tæpt á einhverju viðameira sem gera hefði þurft skil ? núningurinn er jú partur af sögunni sem verið er að segja. Svona hlutir eru alltaf spennandi efni þegar hljómsveitarferlar eru gerðir upp, ekki síst hjá bandi sem hefur notið jafn mikilla vinsælda og það í jafn langan tíma. Þetta breytir því ekki að hér er kominn pakki sem er ómissandi fyrir aðdáendur sveitarinnar, og það er við hæfi að Sálin fagni tuttugu ára afmæli sínu með þessu myndarlega safni. Það er hreint enginn kreppubrag- ur á þessari samantekt þeirra Sálarverja og frá- gangur allur til stakrar fyrirmyndar, hvert sem litið er. TÓNLIST Sálin hans Jóns míns ? Hér er draumurinn ? viðhafnarútgáfa bbbbn Jón Agnar Ólason Hvar? ?Guðmundur talar á einum stað um að þeir hafi einhverju sinni graf- ið stríðsöxina, ?eins og við gerum nú reglulega?. Einmitt það, já?!? Afmælisgjöf við hæfi