Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						51

MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008

Klúbbtilboð

fyrir áskrifendur

NEW YORK

þakkargjörðarstemning í Turninum

THANKSGIVING

25% afsláttur

Aðeins 5.625 kr. á mann

Fullt verð á mann er 7.500 kr.

NEW YORK þakkargjörðarkvöld-

verður í Veisluturninum, fimmtu-

daginn 27. nóvember, undir

ljúfum tónum Páls Rósinkranz.

Forréttir:

Grafinn nautavöðvi með

valhnetudressingu

New York skinka með

engifersinnepsgljáa

Dádýraterrine með piparrótarkremi

Aðalréttur:

Heilsteiktur kalkúnn með

rjómasoðnum kastaníuhnetum,

sultuðum kalkúnalærum

og kalkúnafyllingu

Moggaklúbburinn

Allir skráðir áskrifendur eru félagar í

Moggaklúbbnum og njóta þar með

tilboða um góð kjör á ýmiss konar

afþreyingu; bíómiðum,

listviðburðum, bókum og

hljómdiskum, auk þess sem

dreginn er út glæsilegur

ferðavinningur mánaðarlega.

mbl.is/moggaklubburinn

Meðlæti:

Sætar kartöflur, Waldorfsalat,

kornbrauð og maíssalat

Eftirréttir:

Graskersbaka

Eplabaka

Pecan-hnetubaka með

mascarponekremi

Borðapantanir síma 575 7500

Gildir fyrir tvo.

Afsláttur gildir ekki af drykkjum.

Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða

í síma 569 1122

þakkargjörð

mann

völd-

mmtu-

r

anz.

tarkr

um rætt mikið um að gera fram-

hald af myndinni og stúdíóið er

mjög spennt fyrir því, og það er

virkilega hvetjandi. Handritshöf-

undarnir og leikstjórinn, Michael

Patrick King, hafa fullt af sögum

sem þarf að vinna úr. Svo núna er-

um við að púsla þessu saman.?

Ekki er búist við öðru en að

meðleikkonur Parker, Kim Catt-

rall, Cynthia Nixon og Kristin

Davis, taki þátt í myndinni með

henni. Parker segir að ólíklegt sé

að persóna hennar Carrie, sem

giftist Big í seinustu mynd, eigi

börn í þeirri næstu. ?Það lítur

ekki út fyrir að það sé neitt sem

hún velji sér, en ég veit ekki. Það

yrði svolítið furðulegt að troða

börnum inn í líf hennar því hún

virðist á leiðinni í allt aðra og

öðruvísi átt.?

SARAH Jessica Parker segir að

tökur á næstu Sex and the City-

kvikmynd hefjist líklega næsta

sumar. Fyrsta Sex and the City

myndin, byggð á samnefndum

sjónvarpsþáttum, sló í gegn í bíó-

húsum fyrr á þessu ári.

Parker segir að þegar sé byrjað

að móta hugmyndir um fram-

haldið. ?Ég held að næsta sumar

sé góður tími fyrir tökur, svo

myndin komi út 2010. En það þýð-

ir að við þurfum að ákveða hvern-

ig þetta á að vera á næstu mán-

uðum,? segir Parker um stöðu

mála og bætir við að aðalhöf-

uðverkurinn nú sé að finna

raunsæislegan söguþráð. ?Við höf-

Framhald af Sex and the City

Reuters

Glæsilegar Kristin Davis, Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kim

Cattrall á frumsýningu Sex And The City: The Movie í maí á þessu ári. 

ALLT frá fyrstu tónum hrynsveit-

arinnar í ?Nú eru aðrir tímar? við

ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur ríkir

ljúfsár unaður í tónlistinni. Þessar

bóleró ballöður

Tómasar eru æv-

intýralega fal-

legar, ekki síst

?Veglaust haf?

við tíunda ljóð

Steins Steinars í

?Tíminn og vatn-

ið.? Ragga sýnir frábært næmi í

söngnum og Tómas leikur hér einn

sinn besta bassasóló ? þar sem

nema má andblæ frá dönskum beyk-

iskóg. Það er dálítið annað upp á

teningnum í ?Klof vega menn? við

ljóð Kristínar, dóttur tónskáldsins.

Ekki dugir að tónsetja slíkt titt-

lingaljóð í anda tilfinningatónlistar

og er tónlist Tómasar hér kraftmikil

án þess að rjúfa sambandið við

fyrstu ballöðurnar tvær eða þær

sem á eftir fylgja: ?Hjarta mitt? við

ljóð Halldórs Laxness, þar sem Ósk-

ar blæs ótrúlega þurran tenórsóló

þar sem tilfinningin blómstrar í

einni stígandi nótu, og ?Þú? við ljóð

Vilborgar Dagbjartsdóttur, sem

endar á lágstemmdu píanósólói Dav-

íðs Þórs.

Það verða kaflaskil með laginu við

kvæði Sveinbjörns I. Baldvinssonar

?Örljóði langþreytta drykkjumanns-

ins?. Lagið er skondin sítekning við

örtexta og söngtríóið (Tómas, Davíð

og Ómar) ljær lokum þess hallær-

isblæ. Er maður kominn í réttirnar?

Mugison setur blúsaðan svip á

?Náunga mína? við ljóð Kristínar

Svövu. Fínn performans og Davíð

trylltur við hammondið ? en ein-

hvern veginn rímar þetta ekki held-

ur við upphafslögin fimm. Bassinn

byrjar ?Vor? við ljóð Sveinbjarnar

flott og rímar vel við fyrstu lögin

fimm. Þá koma ?Stolin stef? sem

fyrst mátti heyra á skífunni ?Á góð-

um degi? Þessi fallega norræna ball-

aða Tómasar fellur því miður flöt til

jarðar í dúett þeirra Röggu og Mug-

isons. Söngtríóið lýtir enn í ?Alls

óvænt?.

Í ?Morgni? við ljóð tóskáldsins, er

þráðurinn tekinn frá ?Vetri?. Ragga

er á mörkum þess væmna í söng sín-

um en sleppur fyrir horn sem jafnan

fyrr. Lokalagið ?Sumarkvöld við

Hvalfjörð? er við ljóð Ingibjargar

einsog upphafslagið og er algjört

yndi og sóló Ómars perla í einfald-

leika sinum. Þarna einsog alls stað-

ar á skífunni er trommusláttur

Matthíasar það bjarg sem byggt er

á. Næmur, taktviss og fjölbreyttur. 

Ljúft og

sætt á

köflum

TÓNLIST

Geisadiskur

Tómas R. Einarsson: 

Trúnó bbbbn

Tómas R. Einarsson, bassa, ásamt Ósk-

ari Guðjónssyni, saxófón, Davíð Þór Jóns-

syni, píanó og hammond, Ómari Guðjóns-

syni, gítar, og Matthíasi M. D.

Hemstock, trommur og slagverk.

Söngvarar: Ragnheiður Gröndal 

og Mugison.

Blánótt BN 006. Reykjavík 2008.

Vernharður Linnet

@

Fréttir

áSMS

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52