Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 18
18 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Hin eiginlega hernaðar- aðgerð Breta í Falklands- eyjastríðinu hófst þennan dag árið 1982, en í stríðinu tókust Bretar og Argentínu- menn á um yfirráð yfir Falk- landseyjum, Suður-Georgíu og Suður-Sandvíkureyjum í Suður-Atlantshafi. Deilur um yfirráð yfir eyj- unum höfðu staðið lengi þegar herforingjastjórnin í Argentínu hugðist leggja eyjarnar, sem þá voru undir breskri stjórn, undir sig. Herforingjastjórnin taldi sig eiga stuðning annarra ríkja í deilunni vísan, þar á meðal Bandaríkjanna. Argentínumenn litu svo á að þeir væru að endur- heimta eigið land, en þeir kalla Falklandseyjar Las Mal- vinas. Bretar litu hins vegar á aðgerðirnar sem innrás á sitt yfirráðasvæði. Stríðið hófst með innrás Argentínumanna í Suður- Georgíu þann 19. mars árið 1982. Bretar hófu hernaðar- aðgerðir 1. maí þegar tvær Vulcan-sprengjuflugvélar flugu frá Ascension til Falk- landseyja til þess að varpa sprengjum á Stanleyflug- völl. Stríðinu lauk 14. júní árið 1982 með uppgjöf Arg- entínumanna. Flugsafn Íslands á Akureyri fagnar tíu ára afmæli í dag. Það var stofnað hinn 1. maí árið 1999 og hét þá Flug safnið á Akureyri. Hlutverk Flugsafnsins, sem er sjálfseignarstofnun og var formlega opnað 24. júní árið 2000, er að safna, varðveita, og sýna muni sem tengj- ast flugi á Íslandi, sögu þess og þróun. Einnig er það markmið safnsins að safna myndum sem tengjast flugsög- unni og skrá þær. Aðalhvatamaður að stofnun safnsins var Svanbjörn Sigurðs- son og hefur hann verið safnstjóri frá upphafi. Svanbjörn er að vonum manna fróð- astur um upphafsár safnsins. „Fyrstu árin var safnið til húsa í 450 fermetra flugskýli sem var leigt af Íslandsbanka. Það húsnæði var síðar keypt en ekki liðu mörg ár áður en flugskýlið var orðið of lítið. Haustið 2006 var hafist handa við að byggja núverandi húsnæði og er það fimmfalt stærra en gamla flugskýlið.“ Í flugsafninu er að finna heima- smíðaðar f lugvélar, f lugvéla- hreyfla, fis, svifflugur, gamlar farþegaflugvélar, flugmódel, listflug- vélar, ljósmyndir og ýmislegt fleira. „Elsta flugvélin í safninu er Klemm L.25e TF-SUX. Hún var smíðuð árið 1934 en kom til landsins með þýskum svifflug leiðangri árið 1938. Þá má nefna stjórnklefa fyrstu þotu íslensks flugfélags, Boeing 727 „Gullfaxa“, Aerospatiale Dauphin-björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar TF-SIF,og Aust- er V-sjúkraflugvél. Vélarnar í safninu eru að mestu leyti í eigu flugáhugamanna sem hafa gert þær upp. Þær eru flestar flug- hæfar og að minnsta kosti einu sinni á ári hefja þær sig til flugs. „Við höldum árlega flughátíð í kringum Jónsmess- una og þá fljúgum við öllu sem hægt er að fljúga,“ segir Svanbjörn en há- tíðin verður haldin í tíunda skipti dag- ana 20. og 21. júní næstkomandi. Svanbjörn segir vaxandi aðsókn í safnið og merkir hann það að gestum þyki mikið til þess koma að sjá vélarn- ar í návígi. Hann segir safnið eiga vel heima á Akureyri, enda er bærinn oft nefndur vagga flugsins á Íslandi. “ vera@frettabladid.is FLUGSAFN ÍSLANDS: FAGNAR TÍU ÁRA AFMÆLI MEÐ OPNU HÚSI OG KÖKUBOÐI Hefja sig til flugs einu sinni á ári Hér stendur Svanbjörn við Texas Taildragger flugvélina TF-API, sem hann endursmíðaði ásamt félaga sínum. MYND/ÚR EINKASAFNI MARGT BER FYRIR AUGU Vélarnar í safninu eru að mestu í eigu flugáhugamanna sem hafa gert þær upp. Í kringum Jónsmessuna á hverju ári er haldin flughátíð og þá má sjá vélarnar svífa um loftin blá. Í tilefni afmælisins verður boðið upp á köku í safninu í dag. MYND/ÚR EINKASAFNI JÓSEF GÖBBELS LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1945. „Hugsið ykkur fjölmiðla sem stórkostlegt hljómborð sem stjórnvöld geta spilað á.“ Göbbels var einn helsti samstarfsmaður Hitlers og áróðursmeistari nasista. Chile Argentína Suðurskautslandið AT L A N T S H A F Falklandseyjar ÞETTA GERÐIST: 1. MAÍ ÁRIÐ 1982 Bretar í stríð við Argentínumenn Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Maríu Guðmundsdóttur Dvalarheimilinu Seljahlíð, áður til heimilis að Grýtubakka 10. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Seljahlíðar fyrir að annast hana af alúð og hlýju síðustu æviárin. Guð blessi ykkur. Sendum öllum þeim sem styrktu minningarsjóð Stefaníu Guðrúnar Pétursdóttur sér- stakar þakkarkveðjur. Ásgeir Sigurðsson Guðrún Gunnarsdóttir Hilmar Sigurðsson Valgeir Sigurðsson Sigríður Sæmundsdóttir Steinunn Sigurðardóttir Árni Sigurðsson Auður Sigurðardóttir Þorgrímur Guðmundsson Kristín Sigurðardóttir Jón Steingrímsson Sigríður Sigurðardóttir Sverrir Sandholt Sigrún Edda Sigurðardóttir Pétur Emilsson Rúnar H. Sigurðsson Rósa S. Guðmundsdóttir og barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Hjartardóttir, Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut mánudag- inn 27. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldu hinnar látnu, Guðborg Jónsdóttir Þórarinn Lárusson Örn Jónsson Elín Jóhanna Elíasdóttir Ólafur Jónsson Guðbjörg Árnadóttir Bjarni Jónsson Lilja Steinunn Svavarsdóttir 90 ára afmæli Líney Guðmundsdóttir áður búsett á Bergþórugötu 25, mun halda upp á níræðisafmælið sitt að núverandi heimili sínu, Suðurholti 5 Hafnarfi rði, laugardaginn 2. maí. Opið hús frá kl. 14 og fram eftir degi. Allir velkomnir. Blóm og g jafi r vinsamlegast afþökkuð. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Margrétar Oddsdóttur Ásvegi 31, Akureyri. Sérstakar þakkir til lyfjadeildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir kærleiksríka umönnun. Jón E. Aspar Sigríður Oddný Jónsdóttir Skúli Magnússon Halldór Jónsson Margrét Skúladóttir Bragi Thoroddsen Magnús Ágúst Skúlason Emelía Valey Magnúsdóttir Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, Sigurðar Ríkharðs Stefánssonar frá Siglufirði. Stuðningur ykkar er okkur ómetanlegur. Ólöf Áslaug Kristjánsdóttir Hákon Heimir Sigurðsson Alda Pétursdóttir Birgir Agnar Sigurðsson Rakel, Brynjar og Kristófer. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ragnar Hermannsson frá Flatey á Skjálfanda til heimilis að Hvammi, Húsavík, lést að morgni 29. apríl á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigrún Ragnarsdóttir Gestur Gunnarsson Helga Ragnarsdóttir Kristinn Hrólfsson Hermann Ragnarsson Dómhildur Antonsdóttir Erla Ragnarsdóttir Ómar Ingimundarson barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. MERKISATBURÐIR 1908 Knattspyrnufélagið Fram er stofnað í Reykjavík. 1923 Kröfuganga er í fyrsta skipti farin á Íslandi á 1. maí. 1937 Maístjarnan, kvæði Hall- dórs Laxness, birtist fyrst í æskulýðsblaði. 1948 Sunnanlands snjóaði svo mikið að með fádæmum þótti. Jafnfallinn snjór á Stórhöfða í Vestmanna- eyjum mældist 65 senti- metrar. 1970 Rauðsokkuhreyfingin tekur þátt í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík og miðast upphaf hreyf- ingarinnar við þennan at- burð. 1981 Landssamband kartöflu- bænda er stofnað á Ís- landi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.