Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Skinfaxi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Skinfaxi

						v I Ð T A L

„íþróttaiðkun;

lífsstíll fyrir lífstíð"

segir íþróttakonan og þjálfarinn í Borgarnesi

íþróttalíf á sambandssvæði UMSB,

og þar á meðal hjá Ungmennafé-

laginu Skallagrími í Borgarnesi, er

með miklum blóma. Áhuginn er

mikill, bæði á keppnis- og al-

menningsíþróttum.

Skinfaxi brá sér bæjarleið, og

hitti íþróttafólk Umf. Skallagríms

og UMSB og fékk að kynnast fjöl-

breyttu starfi.

Borgarnesbær hefur verið mikið

í sviðsljósinu fyrir það að eiga

góða úrvalsdeildarmenn í körfu-

bolta. Knattspyrnumenn leika í

þriðju deild og sundmenn, frjálsí-

þróttamenn og badmintonmenn

eru í annarri deild. Fjölmennustu

greinarnar, með um og yfir 100

iðkendur, eru knattspyrna, frjálsar

og körfubolti.

Á síðastliðnu ári eignaðist

UMSB um fjórutíu Islandsmeistara

í hinum ýmsu íþróttagreinum, en

ekki er áhuginn minni í almenn-

ingsíþróttunum.         Vatnsleikfimi

stunda á milli 70 og 80 manns, um

50 manns eru í erobik og milli 50

og 60 eru í almennri líkamsrækt.

Einnig er boðið upp á göngu- og

trimmklúbba, ungbarnasund, frú-

arleikfimi og nudd.

Borgnesingurinn

íris Grönfeldt er íþróttafræðingur frá

háskólanum í Alabama. Hún er gædd

þeim eiginleika að geta hrifið alla með

sér, hvort sem um er að ræða afreksfólk

eða fólk í almenningsíþróttum. Það er

mál manna að hún eigi mikinn þátt í því

hve íþróttalífið í bænum er gott.

„Við gætum auðveldlega fyllt tvö í-

þróttahús með stanslausum æfingatím-

um, því íþróttaáhuginn er það mikill í

þessum 1700 manna bæ," segir Iris, að-

spurð um þennan almenna íþróttaáhuga.

„Það er þegar búið að gera mjög mik-

ið fyrir fþróttirnar í bænum og bærinn

stendur mjög vel á bak við alla íþrótta-

uppbyggingu, en aðsóknin er það mikil

að auðvitað vantar okkur stærra íþrótta-

hús, sundlaug og gerviefni á hlaupa-

brautir og það segir sig sjálft að þetta

kemur ínnan tíðar," segir íris, þess full-

viss að bæjarstjórnarmenn hugsi hátt.

Irís hefur sannarlega sankaö aö sér

verðlaununum.

Aðstaðan er að verða of lítil, Hafið þið

skipulagt starfið á annan hátt til þess að

koma öllumfyrir?

„Við reynum að skipuleggja hluta

þjálfunarinnar þannig að hún verði sam-

eiginleg fyrir deildirnar. Hver og ein

deild byggir upp sína tækni í sínum tím-

um í íþóttasalnum, en vegna þess hve

salurinn er ásetinn eru lfka sameiginleg-

ar þrekæfingar bæði í þreksal og í í-

þróttasal. Þegar þessar sameiginlegu æf-

ingar byrjuðu fyrir þremúr árum var að-

sóknin mjög góð, en það er langt síðan

að íþróttahúsið varð of lítið. Þessar æf-

ingar hafa annars gengið mjög vel, fyrst

á haustin er mikið um sameiginlegt

þrek, en þegar líða tekur á byrja ég með

sérhæfðari æfingar.

Það sem hefur meðal annars gert

þessar sameiginlegu æfingar mögulegar

er það að, mjög lítill rígur er á milli

deilda eins og oft vill verða."

Hver er ástœðan ?

Það er reyndar erfitt að segja til um

það, en það sem skíptir örugglega miklu

er að það er ekkert hálfkák á hlutunum í

neinni deild og allstaðar fagfólk við

störf. Bærinn, æskulýðsnefndin og

æskulýðsfulltrúi gera ekki upp á milli

deilda og standa vel á bak við allar

deildir. Við reynum að vinna þannig að

allar deildir vinni saman, en ekki á móti

hver annarri. Ég legg mikla áherslu á að

krakkarnir sem ég er að þjálfa stundi

líka aðra íþróttagrein. Það má ekki ger-

ast að menn berjist um krakkana og segi

að ein grein hafi tekið frá annarri.

Krakkarnir verða að fá að vita að þau

verða miklu fjölhæfari íþróttamenn með

því að stunda fleiri greinar alveg upp að

17-18 ára aldri og það liggur ekkert á

með að hefja sérhæfingu of snemma."

Megrun er úrelt fyrir-

brigði

Það hefur gengið bærilega að fá al-

menning í Borgarnesi til þess að stunda

líkamsrækt, hvernig hafið þið farið að?

„Það má ekki vera að nauða alltaf í

fólki um að það mæti í íþróttir vegna

þess að ákveðnir vöðvar þurfa á því að

halda. Heldur að fólkið komi sjálft til

þess að halda líkamanum við, alveg eins

og um bíl væri að ræða. Það má ekki

vera ánauð að fara í leikfimi, fólk verð-

ur að hafa gaman af því og það er líka

gaman.

Megrun er löngu úrelt fyrirbrigði,

fólk sem ætlar í megrun og vill losna

við 12 kíló heldur að skammtímalausnir

geti hjálpað því til þess. Fólk á að breyta

mataræðinu fyrir lífstíð með því móti að

minnka smátt og smátt neyslu sykurs og

fitu. Það leiðir til þess að viðkomandi

einstaklingur nær af sér kílóunum án

fyrirhafnar og það verður ekkert vanda-

mál ef lfkamsrækt er alltaf stunduð

reglulega. Aðrar aðferðir eru dæmdar til

þess að falla," segir íris.

Hvernig kemur þú þessum hugsunar-

hœtti inn hjáfólki?

„Mér finnst auðvelt að fræða Borg-

nesinga um þessi mál, en ég hef kennt á

mörgum stöðum út um sveitir og þar er

stundum annað hljóð í skrokknum og

menn hafa ákveðna fordóma gagnavart

8

Skinfaxi

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40