Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 14
LYFTINOAR Lyftingamenn í Borgarnesi Háðir íþróttum - án lyfja Kraftlyftingar í Borgarnesi finnast sterkir strák- ar sem leggja nótt við dag við æfingar í kraftlyftingum og ólympískum lyftingum. Áhuginn er mikill og góður andi á milli þessara tveggja greina lyftinga, þar sem menn styðja hvern ann- an. Margir strákanna hafa byrjað í boltaíþróttum, en síðan komist að því að lyftingarnar eru meira heillandi. Sumir stunda bæði lyft- ingar og aðrar íþróttagreinar, t.d. frjálsar.Jóhannes Eiriksson og Ingimundur Ingimundarson eru bestu kraftlyftingakapparnir í Borgarnesi. Síðastliðið sumar náðu þeir mjög góðum árangri á Evrópumeistaramóti unglinga í kraftlyftingum, sem haldið var í Austurríki, þegar þeir höfnuðu báðir í fimmta sæti í sínum þyngdarflokki. „Ég byrjaði fyrir þrem árum að æfa kraftlyftingar. Ég var að æfa sprett- hiaup, en stundaði lyftingar með og þá kviknaði áhuginnsagði Jóhannes. Eftir tvær vikur var hann búinn að setja nokkur íslandsmet. Alls á hann 15 íslandsmet; í 56 kg flokki á hann þrjú drengjamet, þrjú unglingamet og þrjú karlamet og í 60 kg flokki þrjú ung- lingamet og þrjú karlamet. Á Unglinga- meistaramóti íslands, sem fram fór 29. febrúar bætti Jóhannes 17 ára gamalt ís- landsmet Kára Elíssonar. Hann lyfti samtals 480 kg í samanlagt í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Sé miðað við árangur á Evrópumeistaramóti ung- linga þá hefði þessi árangur nægt Jó- hannesi til þess að komast í 2.-3. sæti þar og öruggt að hann á eftir að láta að sér kveða á næsta móti sem haldið verð- ur í Ungverjalandi í júní. Þegar talið berst að lyfjaneyslu segir Jóhannes að best sé að forðast lyfin al- farið. „Það er mest um vert að æfa rétt og vel með réttum hvíldum á milli. Mér finnst það mjög ósanngjarnt gagnvart hinum þegar menn ætla að stytta sér leið með lyfjum til þess að ná árangri fyrr. Ég stefni á að standa mig eins vel og ég get og ætla að reyna að komast á pall á næstu stórmótum.” Ingimundur Ingimundarson byrjaði að lyfta fyrir átta árum, hann var fyrst í sundi en stundaði auk þess lyftingar. „Ég var að vinna í vegagerð á sumrin Þeir eru sterkir, Jóhannes og Ingimundur. og datt þess vegna út úr sundinu, en fór að lyfta í staðinn,” segir Ingimundur. Flokkast það undir karlmennskubrjál- œði að stunda lyftingar? „Ég veit það ekki, ég vildi bara hafa eitthvað að gera, fá útrás í einhverju. Ég er ekki gel'inn fyrir flokkaíþróttir, frekar einstaklingsíþróttir og þegar ég fór að æfa var það ekki markmið að keppa.” Ingimundur á fjögur íslandsmet í 67 kg unglingaflokki og átti tvö í 75 kg flokki, en þau voru nýlega tekin af hon- um. Á nýliðnu Meistaramóti íslands hafnaði Ingimundur í öðru sæti í 82,5 kg karlaflokki og náði 640 kg í saman- lögðu. Sá sem sigraði lyfti sömu þyngd, en var 500 gr léttari og bar þess vegna sigur úr býtum. Ingimundur er kominn upp úr unglingaflokki í karlaflokk og segist ekki eiga von á að setja íslands- met á næstunni. Aðspurður segist Ingimundur ekki Itafa orðið var við lyfjaneyslu hjá íþróttafólki. „Lyfjaneysla skaðar fþróttirnar mik- ið. Ég er sannfærður um að það verði búið að útrýma lyfjaneyslu úr íþrótta- heiminum eftir nokkur ár.” Hvernig? „Fræðslan um skaðsemina er alltaf að aukast og nýjar upplýsingar eru að koma fram um það hvernig íþróttamenn geta byggt sig upp, án þess að neyta lyfja. Rafmagnsnuddið er ein þessara aðferða og líka rétt æfingatækni. Aukin og rétt neysla næringarefna og allt Ingimundur sýnirþrek og viljastyrk. skipulag varðandi mataræði hefur líka mikil áhrif. Það er hægt að ná sama ár- angri án lyfja, en það tekur bara lengri tíma. Auðvitað grunar mann suma sem maður er að keppa við um að neyta lyfja, en það er erfitt að vera viss. Ég stefni á það að standa mig vel hér innánlands og keppa eftir nokkur ár er- lendis, en eitt er víst að ég ætla að vera í íþróttum það sem eftir er. Maður verður háður þeim. Auðvitað er gaman að keppa og vinna, en þegar maður æfir ekki þá á maður það á hættu að verða upptrekktur og líða illa. Eftir áreynsluna sem fylgir íþróttunum þá h'ður manni rosalega vel. Maður lifir fyrir íþróttirnar og þar er góður félagsskapur. Ólympískar lyftingar Ólympískar lyftingar hafa ekki verið mikið í sviðsljósinu hér á landi. Tveir Borgnesingar, Vilhjálmur Þór Sigur- jónsson og Ingi Valur Þorgeirsson, hafa æft ólympískar lyftingar á fjórða ár og eru þeir beslu á landinu í sínum Uokk- um. Þeir byrjuðu báðir á trimmi, en hafa nú einbeitt sér að lyftingum. Á Norður- landamóti unglinga í ólympískum lyft- ingum, sem haldið var í nóvember síð- astliðnum stóðu þeir sig með miklum sóma. Vilhjálmur hafnaði í sjötta sæti á 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.