Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 27
FRJÁLSÍÞRÓTTAANNÁLL UMFÍ
HSK - kappamir Jón Arnar og Ólafur
Tugþraut
Árangur í tugþrautinni dettur töluvert niður milli ára og munar þar mestu um að
Gísli átti við meiðsli að stríða og fór því ekki í gegnum þraut. Ólafur og Auðunn voru
sæmilegir en bættu sig samt ekki. Ekki er samt ástæða til að örvænta því að ef að Jón
Arnar, Gísli Sig, Friðgeir Halldórs og Unnar Vilhjálmsson ná sér á strik næsta sumar
þá gæti þetta orðið ein af sterkari greinunum. Meiðsli hafa þó oft viljað setja strik í
reikninginn í þessari erfiðu en skemmtilegu grein. Eitthvað virðist áhuginn á meðal
þeirra yngri vera að vakna fyrir þessari grein og er það vel.
KONUR
Spretthlaup
Hér er fyrsta greinin þar sem um
greinilegar framfarir er að ræða á milli
ára. Guðrún Arnars var mjög sterk og
bætti sig töluvert. Hún er nú farin að
nálgast íslandsmetin í styltri greinunum
þó enn vanti töluvert uppá. Sunna
Gestsdóttir er geysilega efnileg og setti
meyjamet í 200 metra hlaupinu og virð-
ist vera að styrkjast töluvert. Næstu ár
gætu þó samkvæml venju orðið erfið
þegar aðstöðuleysið fer að segja meira
til sín. Ef hún heldur hins vegar sínu
Guðrún Amardóttir
striki og æfir að kappi næstu árin þá
verða íslandsmetin í hættu. Snjólaug
bætti sig í 100 metrunum og sýndi styrk
í sínu fyrsta 400 metra hlaupi. Fyrir utan
þessar þrjár er breiddin þó heldur lítil en
töluvert er að ungum efnilegum stúlkum
sem ættu að geta bætt sig verulega á
næstu árum.
Millivegalengdir og
langhlaup
Fríða Rún bætti sig verulega í lengri
greinunum og hefur æft vel í Bandaríkj-
unurn. Henni hefur gengið vel í vetur og
vonandi heldur hún áfram að bæta sig
næsta sumar. Margrét Brynjólfsdóttir
sem æfir með Fríðu Rún í Bandaríkjun-
um bætti sig einnig í lengri greinunum
síðasta vor en keppti síðan lítið um sum-
arið. Vonandi nær hún sér aftur á strik
næsta sumar. Af ungu stúlkunum vakti
mesta athygli árangur Þórhöllu í 800 og
Laufeyjar í 1500 metrunum. Unnur
Stefáns sýndi að lengi lifir í gömlum
glæðum og náði frábærum árangri á
norðurlandamóti öldunga. Það er annars
Fríða Rún Þórðardóttir
athyglisvert hversu svipaðar þær Unnur
og Þórhalla eru í hinum ýmsu greinum,
aldurmunurinn er jú ein 25 ár!
Grindarhlaup
Árangur í grindarhlaupunum var
svipaður milli ára. Guðrún bætti sig að
vísu ekki í stuttu grindinni en litlu mun-
aði. Það er eftirtektarvert hversu ferill
Guðrúnar hefur verið líkur ferli Helgu
Halldórsdóttur íslandsmethafa í grindar-
hlaupunum. Það væri óneitanlega gam-
an að sjá Guðrúnu reyna við löngu
grindina og er ekki ólíklegt að það gæti
orðið hennar sterkasta grein. Þórdís
bætti sig í stuttu grindinni og náði mjög
frambærilegum árangri þó hér sé ein-
ungis um aukagrein að ræða hjá henni.
Þuríður bætir sig í báðum grindahlaup-
unum en hefur þó áreiðanlega ætlað að
gera enn betur. Birgitta stendur fyrir
sínu en þar fyrir utan er breiddin heldur
lítil.
Boðhlaup
Árangur í boðhlaupunum var slakari
en oftast áður og verður að teljast léleg-
ur. Félögin sýna boðhlaupunum flest lít-
inn áhuga og má segja að uppskeran sé
eftir því.
Hástökk
Töluvert bakslag kom í þessa grein
sem var langsterkasta kvennagreinin.
Eins og undanfarin ár var Þórdís lang-
sterkust en náði sér samt ekki á strik.
Hún stökk l,85m um veturinn og virk-
aði nijög sterk. Hún stökk síðan l,83m
strax um vorið en átti síðan við erfið
meiðsli að stríða mestan hluta sumars-
ins. Þóra átti einnig erfitt ár og var þetta
fyrsta árið sem hún bætir sig ekki.
Spumingin er hvaða áhrif það hefur á á-
huga hennar við æfingar. Maríanna er
best af þeim yngri en oft hefur framtíðin
verið bjartari í þessari grein.
Skinfaxi
27