Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 33
Það er ekki heldur nauðsynlegt að
byggja áhorfendastæði alls staðar þar sem
salir eru byggðir. Það er nóg að byggja
æfingasali og samnýta svo þá sali sem
hafa áhorfendastæði þegar þörf er á.”
Segðu mér frá störfum þínum sem í-
þróttafulltrúi?
„Arið 1936 gengu í gildi lög um
fræðslu bama og þá var Hermann Jónas-
son forsætis- og fræðslumálaráðherra.
í þessum lögum komu fram ákvæði
um sund- og leikfimisskyldu í öllum
skólum og byggja skyldi sundlaugar og
íþróttasali víða á landinu. Iþróttamann-
virki, vellir og sundlaugar höfðu verið
byggð af vanefnum og ungmennafélög-
in ráku þau og það var þeim mikil byrði.
I fyrri heimsstyrjöldinni voru íþróttir
ekkert iðkaðar í kaupstöðunum, þær
lágu algjörlega niðri, en í sveitunum
héldu ungmennafélögin áfram að iðka í-
þróttir og héldu sín héraðsmót. Þegar ég
byrjaði að starfa voru til menn sem
sögðu, Þorsteinn, þú átt að segja við rík-
isstjórnina að það eigi ekki að vera að
hugsa urn íþróttir, við byggjum íþrótta-
mannvirki þegar strfðinu er lokið. Eg
var ósammála þessu, það voru til pen-
ingar og hvers vegna ekki að nota þá í
þennan þátt þjóðlífsins. Árið 1947 byrj-
aði körfuboltinn og þá sögðu menn líka,
ekki fleiri íþróttagreinar, það þýðir fleiri
sali, þannig að viss þröngsýni var ríkj-
andi á þessum árum. En unga fólkið
vildi hafa íþróttir og þar komu bæjar-
stjórnir og hreppsnefndir til skjalanna,
en í þeim voru menn sem höfðu alist
upp í ungmenna- eða íþróttafélögum og
voru þess vegna félagslega sinnaðir og
íþróttalega hugsandi. Nú eru menn í
þessum stöðum sem vilja miklu fremur
byggja upp allt annað en íþróttir.”
Hvernig gekk að koma
sundskyldunni á?
„Ég var að vissu leyti kvíðinn, sund-
ið var orðin skylda og ég átti að fram-
fylgja lögunum. En fólkið vildi láta
börnin sín læra að synda og sendi þau
meira að segja langar leiðir til þess.
Alþýða manna var áhugasöm um
sund, þetta var alþýðumenntun og lil-
heyrði bændamenningunni. Frá því í
byrjun 18. aldar hefur sund verið iðkað
og kennt á Islandi þannig að það var
ekki svo erfitt að koma sundskyldunni á.
Ég hef fundið heimildir um 200 sund-
laugar sem ungmennafélögin byggðu úr
V I Ð T A L
torfí, við ár, í lautum og í vogum. Sund-
stæðin voru t.d. búin þannig til að við
laut í túni var settur hleðslugarður og
svo var læk veitt niður í þessa laut. Og í
sumum þessara sundstæða var kennt,
t.d. í Suðursveit.
En það var einn maður sem mótmælti
því að um landið gengi maður sem fyrir
skipaði að bömin lærðu sund, þetta væri
ekkert annað en framgangsmáti frá nas-
istum. En þessi mótmæli höfðu engin á-
hrif. Ég álít að unt 15% þjóðarinnar hafí
verið synd þegar ég byrjaði.
Hvatamaður getrauna
og lottós
Á þessum tíma voru um 100 sam-
komuhús til í landinu, mörg ákaflega
hrörleg. Þessvegna ákvað íþróttanefnd-
in, sem ég átti sæti í, að leita til allra
flokka um stuðning við þá hugmynd að
bæta aðstöðu fólksins til félagslífs og í-
þróttaiðkana. Þessu var vel tekið, en síð-
an voru það Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur sem sameinuðust um
félagsheimilalögin sem enn eru í gildi. I
þeim var ákveðið að setja á fót sérstakan
íþróttasjóð sem Alþingi átti að leggja fé
í. En ekki kom fram hvað mikið átti að
renna í sjóðinn á hverjum tíma.
í Svíþjóð var það þannig að fjár til í-
þrótta og íþróttamannvirkja var aflað
með svokölluðum getraunum. Hermann
Jónasson hafði kynnt sér það mál og
okkur var gefið leyfí til þess að setja á
fót getraunir sem tilraun.”
Þorsteinn á mikinn þátt í því að get-
raunir og lottó hófu göngu sína. Árið
1951 kynnti hann á sérstökum kynning-
arfundi hvemig ætti að útfylla getrauna-
seðil. Þátttakan varð ekki nægilega mik-
il svo að getraunirnar störfuðu einungis
í þrjú ár, en byrjuðu síðan aftur árið
1967.
„Árið 1972 vom lögin endurskoðuð
og þá var búið að koma upp talnaget-
raunum í Finnlandi, Svíþjóð og Þýska-
landi. Ég setti þetta inn í, en margir voru
á móti því og sögðu: Ef þetta verður að
lögum þá drepurðu getraunimar. Þetta
var samt sem áður samþykkt af Alþingi
og þar með varð sá möguleiki að veru-
leika að lottóið gæti hafið göngu sína.”
Landsmótin
Starfsemi ungmennafélaganna er
mjög fjölbreytt og það em vissir þættir
sem bera hana uppi. Fyrst og fremst eig-
um við að nota allt frá ungmennafélög-
unurn sjálfum. Þau hafa leikstarfsemi,
söngur er iðkaður þar og fleira. En mér
finnst ekki lögð nægjanlega mikil rækt
við guðsorðið á Landsmótunum. Á
Laugarvatni 1965 og á Laugum 1961 var
hugsað um að hafa helgiblæ á samkom-
unni, en ekki að presturinn stæði nánast
afskiptalaus, án kirkjukórs, og fólkið
væri svo að rangla í kring um hann án
þess að hlusta eins og gerst hefur.
Keppnin milli héraðssambanda er
auðvitað mikil, en það er ákaflega mis-
munandi hvaða íþróttir þau iðka. Það
þarf að takmarka keppnisgreinarnar við
ERÐLAUNAPENINGAR
stærð 42 mm.
Verð 250 kr. stk.
með ále^un
Einnig mikið úrval af bikurum
og öðrum verölaunagripum.
Pantiö tímanlega.
GULLSMIÐIR
Sigtryggur & Pétur.
Brekkugötu 5 - Akureyri.
S. 96-23524 Fax 96-11325
Skinfaxi
33