Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 35
VÍSNAÞÁTTUR Vísnaþáttur Ingimundur Ingimundarson, for- maður ritstjórnar Skinfaxa, hefur nú tekið við vísnaþættinum af dulnefnismanninum Sigurði Gísla- syni. Ungmennafélagar fóru í ferð til Aust- ur-Þýskalands á haustdögum 1990. Nokkrir í hópnum gátu fært hugsanir sín- ar í bundið mál. Var sú ljóðagerð í formi limra. Höfunda þessa skáldskapar verður ekki getið hér og í einhverjum til- fellum er nöfnum breytt. Bjöm B. Jónsson formaður HSK, garðyrkjubóndi á Stöllum, var skráður í ferðina en komst ekki. í hans stað fór varaformaður HSK, Sigurjón Karlsson bóndi undir Eyjafjöllum. Bjöm veit ég bónda á Stöllunr bera af drengjunum öllum. Hann fór ekki fet en ferðast hann lét umbafrá Eyjafjöllum. Það atvik átti sér stað í einni bæjar- ferðinni að einn úr hópnum gekk af krafti miklum í fangið á þýskri stúlku. Varð báðum mikið um. Er í náttstað var komið sögðu þeir, sem vitni urðu að atburðin- um, frá við mikla kátínu. Varð þá til eft- irfarandi limra á innan við 20 sek. og er hún merkilegust fyrir það að höfundar em fimm! Þau mættust á götu með gáska gleði sú brátt varð að háska. En Einar hann hló og ungmeyju dró upp í lil sín fyrir páska. Ferðast var á milli staða með lestum og ýmislegt gert sér til dundurs á leið- inni. Meðal annars var gripið í spil. Yfir- leitt voru spilamennimir hljóðir en á ýmsu gekk. íslensku kvinnurnar. Einn í hópnum var með myndavél með aðdráttarlinsu. Þegar stúlkurnar komu til baka var þeim tjáð að góðar nektarmyndir hefðu náðst af þeim. Flestar tóku því með jafnaðargeði en aðr- ar urðu órólegar og vildu fá filmuna. í humátt með hólkinn sinn fór og hugð’ann væri það stór að konur sem synda mætti kviknaktar mynda. Hljóðir þeir spila og spjalla spennulausir að kalla En lánið er valt og ef lukkast ei allt láta þeir grímurnar falla. En kraftlaus hann reyndist og mjór. í stórborgunum mátti líta stúlkur sem stunduðu elstu atvinnugrein kynsystra sinna. Fylgdust sumir náið með hegðun þeirra og viðskiptamannanna. Kvöld eitt hitti hópurinn Þjóðverja sem komið höfðu til íslands árið áður. Varð af mikil skemmtun. Sumir höfðu ótrúlegt úthald, voru lengi að en urðu jafnvel fyrstir til þess að rísa úr rekkju. Á horninu konumar kynna kostaboð faðmlaga sinna, og svo er að sjá að sumir þeim hjá sætleika vífs muni finna. Hafið þið gefið því gætur hverjir gantist úti um nætur? En magnað fínnst mér að Magga þó er ein með þeim fyrstu á fætur. Fyrripartar til að botna: Vorið nálgast, blómin blíð birtu sólar njóta. Ýmsar stjómir vinna vel verkin flestir lofa piltamir að því að á afmörkuðu svæði var vísir að nektamýlendu. Þangað streymdu Dag einn var farið að vatni einu miklu til bess að svnda. Af tilviljun komust Gamlir merkisgripir Það er ekki ofsögum sagt að frum- herjar ungmennafélaganna voru stór- huga og margt sem þeir framkvæmdu vekur undrun og aðdáun okkar eftir- komenda í dag. Árið 1918 hófust sameiginleg í- þróttamót ungmennafélaganna Aftur- eldingar í Mosfellssveit og Drengs í Kjós. Mótin stóðu með blóma allt til 1953 og þar reyndu með sér margir nafnkenndir íþróttakappar. Keppt var í frjálsum íþróttum, sundi og glímu. Það var sérstakt við mótin að engin verðlaun voru veitt en það félag sem sigraði sá um að færa úrslitin í sérstaka bók. Bókin er afar vönduð í skinnbandi og titilsíða skrautrituð. Hún er varð- veitt í útskornum trékassa og eru myndir úr fílabeini á loki hans. Kass- ann gerði Ríkharður Jónsson mynd- skeri af miklum hagleik. Hann er geymdur í heimasmíðuðuin málmkassa og hann síðan í þriðja kassanum sem einnig er úr málmi. Hér hefur ekki ver- ið kastað höndum til verka enda hafa þessir gripir, sem eru einstakir í sög- unni, varðveist. Bókin er geysimerk heimild, ekki síst þar sem lengi voru skráðir allir keppendur ásamt aldri og aðsetri. Þó tímarnir breytist og mótin séu nú úr sögunni hafa þessir merkisgripir varðveist og eru óbrotgjarn minnis- varði um framsýni og myndarskap ungmennafélaganna í þessum sveitum á sínum tíma. Skinfaxi 35

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.